Morgunblaðið - 27.08.2007, Page 28

Morgunblaðið - 27.08.2007, Page 28
Mér er ljóst að líf mitt hefur verið óviðráð- anlegt vegna þess að ég er háð áfengi og fíkniefnum … 35 » reykjavíkreykjavík Flugan fer létt og löðurmannlega meðað fljúga um víðan völl en ákvað þótil tilbreytingar að fá far með Flug-félagi Íslands á föstudagsmorg- uninn þar sem hún átti erindi til Akureyrar. Var mætt á Reykjavíkurflugvöll eldsnemma að morgni og hitti þar fyrir Valgerði Sverr- isdóttur, þingmann, sem var að drekka morg- unkaffið sitt fyrir flugtak. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, var líka á leið til Akureyrar og hún var ótrúlega morg- unhress; kát og hlæjandi í ljósum buxum og köflóttum jakka með fallega tösku í stíl. Stelpan er farin að vera verulega smart í tauinu. Fluga hafði tékkað á veðurspánni á Stöð 2 kvöldið áður til að kanna ferðafærið og vakti athygli hennar að myndirnar sem fylgja svokölluðu ,,krakkaveðri“ eru af börnum sem eru greinilega offitusjúklingar. Átta mig ekki alveg á hvaða skilaboð eru þar í gangi, líta börn svona út í dag? Áhrif fjölmiðla eru vin- sælt smjattefni í tönnum fólks og því spurn- ing hvort þetta séu ekki óheppilegar fyr- irmyndir. En kannski eru bollubörnin á veðurkortinu bara skemmtileg mótsögn við ofvirku ,,fittnessfríkin“ í Latabæ ... Fluga flýgur oftast fyrir eigin vélarafli og kom því á óvart að sjá auglýsingu á borðinu sínu inni í flugvél en þar stóð stórum stöfum Saga Capital. Eitt unaðslegt augnablik hélt fluga að hún væri stödd á lúxusfarrými vél- arinnar en við lestur blaðanna kom í ljós að sama kvöld yrði mikið af helsta fyrirfólki landsins í opnunarhófi fyrirtækisins Saga Captital á Akureyri. Fröken fluga hefur verið hamingju- samlega búsett í hjarta miðbæjarins í 3 ár og starfs síns vegna (og stuðsins) er hún æði mikið á ferli þarna í hjartahólfunum og oft um miðjar nætur. Aldrei hefur daman verið ónáðuð af nokkrum manni, það hefur enginn pissað utan í húsið hennar og nær und- antekningarlaust sefur hún miklum værð- arsvefni um helgar, þótt ,,skálmöld“ sé sögð ríkjandi við dyragættina. Henni finnst líka ekkert að því að nokkrir vinalegir rónar haldi til í Austurstræti; gaf nokkrum þeirra rjómabollur á bolludaginn og losa mig stundum við klinkið í lófa þeirra. Þá verðum við öll glöð; rónarnir og ég. Flugustelpa fær útrás fyrir góðgerðargenið og þeir fá kaldan bjór í kroppinn. Eða volgan. Eftir því hvern- ig vindurinn blæs hjá Villa … | flug- an@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Anna Kristín Sigurðardóttir og Stefán Svan. Börkur Sigþórsson, Hjördís Gulla Gylfadóttir og Sigríður Eggertsdóttir. Kitty Von Somtime, Sruli Recht og Elíza Geirsdóttir Newman. Fríða Sigurðardóttir, Bryndís Sveinbjörns- dóttir og Arna Sigrún Haraldsdóttir. Sigurjón R. Þorvaldsson, Jón Heiðar Ríkharðsson og Rannveig Rist. Brynhildur Ólafsdóttir, Róbert Mars- hall, Magnús Geir Þórðarson og Sigrún Björk Jakobsdóttir. Karl Th. Birgisson, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, Guðjón Steindórsson, Haukur Leósson og Björgvin G. Sigurðsson. Inga Lind Karlsdóttir, Svanhildur Hólm, Helgi Jóhannesson, Hólmfríður Þórisdóttir og Sigurður Þ. Ragnarsson. Valgerður Sverrisdóttir og Arvid Kro. flugan ... Innanlandsflug og offita í veðurkortunum ... … Rónar og rjómabollur … Eyjólfur Ásgeirsson og Lilja Gunnarsdóttir. Berglind Sunna Stefánsdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Magnús Andersen og Kristinn Árni Hróbjartsson. Ævar Jóhannsson, Hermann Örn og Hafþór Bjarki Jóhannsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bragi Þorgrímur Ólafsson og Orri Jökulsson. »Höfuðstöðvar Saga CapitalFjárfestingarbanka voru vígðar í Gamla barnaskólanum á Akureyri á föstudagskvöldið. » Fatalínan Mundi var sýnd íVerinu í Loftkastalanum á laugardagskvöldið að við- stöddu „hipp og kúl“ liðinu. » Sænski tónlistarmaðurinn Jens Lekman hélt tónleika í glerskála Norræna hússins á Reyfi 2007. Björg Bjarnadóttir, Bjarni Torfi Álfþórsson, Hanna Björt Kristjánsdóttir, Hrund Rúd- ólfsdóttir og Erla Lárusdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.