Morgunblaðið - 27.08.2007, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 27.08.2007, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 29 2007–2008 Óvitar! Frábær fjölskyldusýning. Forsala hafin! Frumsýning 15. september kl. 20. UPPSELT Áskriftarkortasala hafin! Vertu með! Sunnud. 16/9 kl. 20 Fimmtud. 20/9 kl. 20 Föstud. 21/9 kl. 20 Laugard. 22/9 kl. 20 Fimmtud. 27/9 kl. 20 Föstud. 28/9 kl. 20 Laugard. 29/9 kl. 20 4 600 200 leikfelag.is LÍK Í ÓSKILUM Lau 1/9 kl. 20 FRUMSÝNING upps. Mið 5/9 kl. 20 Lau 8/9 kl. 20 LADDI 6-TUGUR Sun 2/9 kl. 20 Fim 6/9 kl. 20 Fös 7/9 kl. 20 SÖNGLEIKURINN ÁST Í samstarfi við Vesturport Fös 31/8 kl. 20 Lau 1/9 kl. 20 Fös 7/9 kl. 20 Lau 8/9 kl. 20 BELGÍSKA KONGÓ Mið 12/9 kl. 20 Mið 19/9 kl. 20 Mið 26/9 kl. 20 SÖNGLEIKURINN GRETTIR Fim 30/8 kl. 20 upps. Lau 8/9 kl. 20 Sun 9/9 kl. 20 Lau 15/9 kl. 20 KILLER JOE Í samstarfi við Skámána Fim 6/9 kl. 20 Fim 13/9 kl. 20 DAGUR VONAR Fim 13/9 kl. 20 Fös 14/9 kl. 20 Fös 21/9 kl. 20 Lau 29/9 kl. 20 Miðasala 568 8000 - www.borgarleikhús.is Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA er ljúfsár gleðileikur um Jón sem flytur til Flateyjar ásamt konu sinni, í þeim tilgangi að endur- skoða líf sitt með áherslu á gleðina og leit manneskjunnar að lífsfyllingu og hamingju,“ segir Ólafur Egill Eg- ilsson, leikari og handritshöfundur, um Brúðgumann, kvikmynd sem nú er verið að skjóta í Flatey á Breiða- firði. Ólafur Egill leikur eitt af aðal- hlutverkunum í myndinni, en skrifar auk þess handritið ásamt leikstjór- anum Baltasar Kormáki. Brúðguminn er byggð á leikritinu Ivanov eftir rússneska leikskáldið Anton Tsjekhov, en sagan er þó færð yfir í nútímann. „Eins og stað- an er í dag má segja að myndin sé innblásin af leikritinu. En ég held að það sé alveg óhætt að segja að það sé í töluvert breyttri mynd,“ segir Ólaf- ur Egill. „Þetta er gamanmynd, en mjög í anda Tsjekhovs þar sem per- sónan er svo yfir sig komin af harmi yfir eigin kringumstæðum að hún getur ekki annað en hlegið. Það er þessi stemning sem verið er að skapa, hvað það er sárt og yndislegt að vera til – og auðvitað fyndið um leið.“ Með tærnar í nösunum Um 20 manna tökulið er í Flatey um þessar mundir, sem er fremur fámennur hópur miðað við umfang myndarinnar. „Við komum í eyjuna rétt fyrir verslunarmannahelgi og þá var svo mikið um að vera að það fékkst ekki gisting fyrir fleiri, og tökuliðið var því miðað út frá því. Hér deila menn herbergjum og sofa með tærnar uppi í nösunum á næsta manni,“ segir Ólafur Egill, en búist er við því að tökum ljúki um mán- aðamótin. „Svo þurfum við reyndar að koma aftur í tvo eða þrjá daga í haust eða vetur, auk þess sem það eru þrír tökudagar í Reykjavík. En svo var líka eitthvað tekið í Breiðafjarðarferjunni Baldri á leið- inni út í eyjuna og það er vert að taka fram að allir hafa verið sér- staklega hjálpfúsir og skilningsríkir, bæði íbúar í eyjunni, sem og skip- stjórinn á Baldri og aðrir aðstand- endur.“ Drjúg ljósaskipti Aðspurður segir Ólafur Egill allt hafa gengið eins og í sögu í eyjunni fögru. „Veðrið hefur líka verið eins og eftir pöntun, það hefur verið því- líkt blíðviðri. Við erum með mikið af útitökum enda er íslensk sum- arstemning í myndinni; Jón gengur í endurnýjun lífdaga að einhverju leyti í gegnum íslenska sumarið og sumarnæturnar. Við höfum verið að fara á fætur fyrir allar aldir til þess að fanga þá stemningu enda komið fram í ágúst og ekki alveg bjart allan sólarhringinn. En ljósaskiptin hafa verið okkur drjúg.“ Flatey á Breiðafirði er mikil nátt- úruperla og að sögn Ólafs Egils hafa menn haft nóg fyrir stafni í eyjunni, annað en að búa til bíómynd. „Þeir Hilmir Snær og Þröstur Leó skelltu sér til dæmis á lundaveiðar um dag- inn. Þeir fóru út í eyjarnar hér í kring og komu til baka með rúmlega 50 lunda, enda er þeim veiðimanns- eðlið í blóð borið. Lundarnir voru svo framreiddir af þeim félögum sama kvöld og voru frábær matur.“ Tekið á mýktinni Eins og áður segir fer Ólafur Egill með eitt af aðalhlutverkunum í Brúðgumanum en aðrir leikarar eru þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Jó- hann Sigurðarson, Hilmir Snær Guðnason, Margrét Vilhjálmsdóttir, Laufey Elíasardóttir, Ilmur Krist- jánsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Herdís Þorvaldsdóttir, Karl Guð- mundsson og Þröstur Leó Gunn- arsson. Baltasar Kormákur stjórnar svo öllu saman af mikilli festu, en að sögn Ólafs Egils er hann þó enginn harðstjóri. „Ég kallaði hann meira að segja „soft-boss“ um daginn. Hann er að taka þetta á mýktinni, enda engin ástæða til annars þar sem þetta er lítið tökulið og allir í svo nánu sambýli að öll samskipti verða að ganga snurðulaust fyrir sig. En eins og allir vita er Baltasar fylginn sér, og hann sækir sitt.“ Kvikmynd verður leikrit Til stendur að setja Brúðgumann upp í Þjóðleikhúsinu í vetur og mun sami leikhópur verða að störfum þar og í myndinni. „Ef allt gengur eftir náum við að frumsýna bíómyndina um svipað leyti og leiksýninguna,“ segir Ólafur Egill. „Það er skemmti- legt að fá að gera þetta í þessari röð, bíóið fyrst og leikhúsið svo, því þá beitum við vinnsluaðferðum leik- hússins sem vonandi skilar sér í bíó- myndinni.“ Leikararnir hafa gengið lengi með persónur sínar í maganum því vinna við Brúðgumann hófst í Þjóðleikhús- inu strax í janúar. „Þannig að þegar það kemur að frumsýningu í desem- ber höfum við haft þetta í maganum í næstum því heilt ár, sem er auðvit- að frábært fyrir leikara.“ Þess má loks geta að Ólafur Egill ætlar að blogga um lífið í Flatey, jafnvel þótt þar sé ekkert netsam- band. Slóðin er: www.flateyj- arblogg.blog.is. Brúðguminn í Breiðafirði Tökur á nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks standa yfir í Flatey Leikstjórinn Baltasar Kormákur er enginn harðstjóri að sögn Ólafs. Hér er hann um borð í Breiðafjarðarferjunni Baldri en hluti af myndinni var tekinn þar um borð á leiðinni út í eyjuna. Bræðurnir Ólafur Egill Egilsson, leikari og handritshöfundur, ásamt Gunnlaugi bróður sínum sem hefur verið bílstjóri á tökustað. MR. SKALLAGRIMSSON - höf. og leikari Benedikt Erlingsson Sjá sýningadagatal á www.landnamssetur.is Miðapantanir í síma: 437-1600

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.