Morgunblaðið - 27.08.2007, Side 32
32 MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Ómar Örn Hauksson
omar@itn.is
NÍUNDI áratugurinn var um margt
merkilegur áratugur. Nýrómantíkin
hélt innreið sína í alla heimsins
menningarkima og fólk fór að safna
skotti, síðu að aftan og túberaði
toppinn. Myndbandstæknin kom
líka til sögunnar og allir kepptust
um að fá sér myndbandstæki á
heimilið. Þó var valið ekki eins ein-
falt og halda mætti. Tvö vörumerki,
VHS og Beta kepptu um almenn-
ingshylli og urðu átökin á tímabili
ansi hörð. Á endanum stóð VHS þó
uppi sem sigurvegari en sigur þess
má rekja til þess að framleiðslan var
ódýrari auk þess sem VHS hafði
lengri upptökutíma. Beta, sem var
tæknilega séð betri tækni, varð hins-
vegar atvinnutæki sem enn er notað
í dag á meðan VHS hefur gefið upp
öndina á heimamarkaðnum og ný
tækni, DVD, tekið við.
Disney og PS3 styðja Blu Ray
En þrátt fyrir að DVD sé rétt um
10 ára gamalt á almenningsmarkaði
þá hefur hafist nýtt stríð á milli fylk-
inga sem vilja ná yfirráðum á mark-
aðinum. Fyrir um ári komu fyrstu
háskerpu DVD diskarnir á markað
en eins og áður þá voru það tvær
fylkingar sem kepptu um hylli neyt-
enda. HD DVD sem Toshiba og
Microsoft standa á bak við og Blu
Ray sem Sony og Apple hafa þróað.
Það sem hefur gert þetta stríð svo
flókið og leiðinlegt fyrir neytendur
er að kvikmyndafyrirtækin hafa
einnig skipt sér í flokka með eða á
móti annarri hvorri tækninni. Flest
fyrirtækin hafa, þar til nýlega, ann-
að hvort gefið út á báðum sniðum
eða bara á Blu Ray, en Universal
fyrirtækið var það eina sem gaf ein-
göngu út í HD DVD. Það sem gerði
stöðu Blu Ray svona sterka voru fyr-
irtæki á borð við Disney sem höfða
til fjölskyldufólks en það er stærsti
neytendahópurinn, og Playstation 3
sem hefur innbyggðan Blu Ray spil-
ara í tölvunni.
150 milljón dalir
Þrátt fyrir að HD DVD hafi komið
á markað mun fyrr en Blu Ray og sé
ódýrari kostur þá hefur sala á Blu
Ray diskum verið 2-3 á móti einum
HD DVD diski. Allt leit út fyrir að
þetta stríð yrði yfirstaðið eftir
næstu jól en í síðustu viku tók Micro-
soft sig til og bauð – að því er sagt –
Paramount og Dreamworks kvik-
myndafyrirtækjunum, 150 milljón
dali fyrir að gefa aðeins út á HD
DVD en fyrirtækin höfðu áður gefið
út undir báðum merkjunum. Fyrir
neytendur eru þetta skelfilegar
fréttir. Enginn vill kaupa sér tvö
tæki til þess að horfa á kvikmyndir
og það hefur aldrei tekist að sann-
færa neytendur um annað. Svo virð-
ist sem þessi fyrirtæki hafi ekki lært
neitt af VHS og Beta stríðinu forð-
um daga.
Hitt er svo annað mál að hvorugu
þessara merkja og tækninni sem
þau framleiða, hefur tekist að fanga
athygli hins almenna neytanda. Fyr-
ir nokkrum vikum náðu háskerpu
diskar að toppa sölu á VHS spólum
sem þýðir að rétt um 2% kaupenda
eru að velta þessu fyrir sér. Hinn al-
menni neytandi er meira en sáttur
við sinn venjulega DVD disk og ein-
hver tími er enn í það að almenn-
ingur stökkvi út í næstu búð og
kaupi sér svona græju. Ástæðan er
e.t.v. helst sú að þegar DVD-tæknin
kom á markað þurfti fólk ekki að
kaupa sér nýtt sjónvarp og aðrar
græjur til þess að njóta tækninnar.
Þess þarf hins vegar ef maður á að
njóta háskerpumynda til fulls og
ekki bara háskerpusjónvarp heldur
líka hljóðmagnara sem er sérstak-
lega ætlaður háskerputækni.
Hin ástæðan er svo sú að enginn
áþreifanlegur munur er á mynd- og
hljóðgæðum þessara tveggja merkja
þó Blu Ray hafi að vísu meira
geymslupláss á sínum diskum, 50 gb
á móti 30 gb á HD DVD. HD DVD
býður á móti upp á fleiri möguleika
varðandi aukaefni en það mun brátt
breytast því Blu Ray hefur heitið því
að standa HD DVD jafnfætis á því
sviði.
Purple Ray
Hættan er sú að á endanum muni
neytendur standa frammi fyrir
tveimur vörutegundum sem eru ná-
kvæmlega eins fyrir utan það kvik-
myndaúrval sem þau bjóða uppá. Í
þeirri stöðu mun Blu Ray verða ofan
á því stærstu, fjölskylduvænu, kvik-
myndaverin (eins og Disney) styðja
þá tækni. Eins og er þá eru það lík-
lega bara kvikmyndaáhugamenn og
fjárfestar sem hafa áhyggjur af nú-
verandi stöðu en von er á að margir
muni að lokum sitja eftir með sárt
ennið og tómt seðlaveskið. Mín lausn
á málinu er hins vegar að þessar
tvær fylkingar blandi þessum tveim-
ur stöðlum saman í Purple Ray og
láti Prince semja kynningarlagið.
Háskerpu ruglingur
Augnayndi Kvikmyndin 300 er ein þeirra sem var gefin út bæði á Blu Ray og HD DVD.
/ ÁLFABAKKA
ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
THE BOURNE ULTIMATUM kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:30 LEYFÐ DIGITAL
RATATOUILLE m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ DIGITAL
THE TRANSFORMERS kl. 10:20 B.i. 10 ára
/ KRINGLUNNI
ASTRÓPÍA kl. 6:15 - 8 - 10:10 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 8 - 10:10 LEYFÐ LÚXUS VIP
RATATOUILLE m/ensku tali kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 4 - 5:30 (Digital kl.5:30) LEYFÐ DIGITAL
THE TRANSFORMERS kl. 5 - 8 - 10:40 B.i.10.ára
THE TRANSFORMERS kl. 5 B.i.10.ára LÚXUS VIP
NANCY DREW kl. 6 B.i.7.ára
GEORGIA RULE kl. 8 B.i.7.ára
HARRY POTTER 5 kl. 8:15 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
OCEAN´S 13 kl. 10:10 B.i.7.ára
MATT DAMON SNÝR AFTUR SEM LAUNMORÐINGINN
ÓDREPANDI JASON BOURNE
MATT DAMON
ER JASON BOURNE
MAGNAÐASTA
SPENNUMYND
SUMARSINS
eee
H.J. - MBL
eeee
- JIS, FILM.IS
eeeee
- LIB, TOPP5.IS
eeeee
- SV, MBL
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI
NANCY
DREW
YNGSTI OG KLÁRASTI EINKASPÆJARI HEIMS ER NÚ MÆTT Á HVÍTA TJALDIÐ
ÓVÆNTASTA
STELPUMYND ÁRSINS!
eee
H.J. - MBL
eeee
- JIS, FILM.IS
AÐ MÍNU MATI ÆTTU
ALLIR AÐ DRÍFA SIG
MEÐ FJÖLSKYLDUNA
- A.S, MBL
LANDSLIÐ GRÍNISTA
Í STÆRSTU ÍSLENSKU
BÍÓMYND ÁRINS.
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
FRÁBÆR ÍSLENSK
AFÞREYING
- SVALI, FM 957
PÉTUR OG SVEPPI HAFA
ALDREI VERIÐ FYNDNARI
- H.A, FM 957
EIN SÚ SKEMMTILE-
GASTA SÍÐAN SÓDÓMA
- Í.G, BYLGJAN
TÖLVULEIKIR
GUILTY Gear er afturhvarf til
gömlu spilakassaleikjanna sem mað-
ur spilaði á Fredda og Spilatorgi hér
um árið. Leikurinn, eða leikirnir, þar
sem þeir eru tveir í þessum pakka,
eru einfaldir slagsmálaleikir í tví-
vídd og minna óneitanlega á Dark-
stalkers. Leikirnir tveir eru Guilty
Gear: Judgment og Guilty Gear X2.
Judgment er mjög einfaldur leikur
þar sem persónan gengur eftir vegi
og lemur allt sem verður á vegi
hennar, svolítið eins og Double Dra-
gon var. X2 er á hinn bóginn meiri
keppnisleikur eins og Tekken. Judg-
ment er óneitanlega skemmtilegri
en þeir líða báðir fyrir að vera of ein-
feldningslegir og maður verður fljótt
þreyttur á að gera sömu hlutina aft-
ur og aftur. X2 líður einnig fyrir það
að PSP-stjórnunin hentar ekki fyrir
þær kröfur sem leikurinn gerir
gagnvart spilun og er það miður.
Tveir geta spilað í einu á milli
PSP-tölva en fyrir utan það er fátt
sem hrífur mann. Grafíkin er falleg
og litrík, eilítið kassaleg en virkar.
Hljóðið er sæmilegt með pirrandi
hljómborðsrafmagnsgítargeðveiki
yfir manni allan tímann.
Kannski ekki alveg minn tebolli
og það þarf aðeins meira innihald til
þess að svona leikir haldi athyglinni.
Eins og
á Fredda
Ómar Örn Hauksson
Guilty Gear „Judgment er mjög
einfaldur leikur,“ segir í dómnum.
TÖLVULEIKIR
PSP
Majesco
Guilty Gear: Judgment