Morgunblaðið - 27.08.2007, Blaðsíða 36
MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 239. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Fjöldaslys í
Bessastaðafjalli
Meira en 15 erlendir starfsmenn
Arnarfells slösuðust, þar af tveir
alvarlega, þegar rúta á leið til Eg-
ilsstaða fór út af veginum í Bessa-
staðafjalli. Í rútunni voru rúmlega
30 starfsmenn. Hinir slösuðu voru
fluttir til Akureyrar, Neskaup-
staðar og Reykjavíkur, auk Egils-
staða. »Forsíða og 6
Bjargað úr bruna
Reykkafarar björguðu tveimur
unglingsstúlkum í gær þegar
kviknaði í meðferðarheimilinu
Stuðlum í Reykjavík. Stuttur við-
bragðstími slökkviliðs þykir hafa
skipt sköpum fyrir stúlkurnar sem
voru fastar inni í brennandi hús-
inu. »2
Mannskæðir eldsvoðar
Minnst 61 hefur látið lífið í
skógareldum í Grikklandi sem
hafa geisað síðan á föstudag.
Stjórnvöld grunar að um íkveikjur
sé að ræða og hafa 10 verið hand-
teknir. Tugir flugvéla og þyrlna
hafa komið til aðstoðar frá ýmsum
löndum sem og slökkviliðs- og her-
menn. »12
Taldir af
Leit að Þjóðverjunum Matthiasi
Hinz og Thomasi Grundt sem
hófst 18. ágúst sl. hefur verið hætt
og eru þeir taldir af. Alls komu
122 einstaklingar að leitinni í ná-
grenni Vatnajökuls. Leitarsvæðið
var á köflum afar erfitt og hættu-
legt yfirferðar. »4
SKOÐANIR»
Staksteinar: Verður bréfið endursent?
Forystugreinar: Svara fullum hálsi |
Órói í Myanmar
Ljósvaki: Bylting handritshöfunda
UMRÆÐAN»
Milljarðagróði – hvaða
lærdóm má draga?
Fangar á Íslandi
Lýðheilsa í Háskólanum í Rvk.
Gróðursetning undirbúin
Auðvelt að kaupa fyrstu íbúðina
Tært vatn eða efnafræðilegt sull?
FASTEIGNIR»
Heitast 17 °C | Kaldast 10 °C
Hæg breytileg eða
vestlæg átt. Léttskýjað
að mestu en hætt við
þokubökkum við N- og
NV-ströndina. »8
Ryan Phillippe seg-
ist aðeins vilja leika í
myndum sem fá fólk
til að hugsa og efast
um heiminn í kring-
um sig. »35
FÓLK»
Vill fá fólk
til að hugsa
TÓNLIST»
Budam sló Jens Lekman
út af laginu. »33
Sæbjörn Valdimars-
son gefur heimild-
armynd sem segir
sögu „slasher-
myndanna“ þrjár
stjörnur. »33
KVIKMYNDIR»
Viðbjóðslegt
viðfangsefni
TÖLVULEIKIR»
Ómar Örn Hauksson
fjallar um tölvuleiki. »32»
FLUGAN»
Flugan fór víða um
helgina. »28
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. „Ég er pabbi“
2. Kvenleg fegurð reiknuð út
3. Telur um einelti að ræða
4. Aron Pálmi kominn til landsins
„ÞETTA er gamanmynd en mjög í
anda Tsjekhovs þar sem persónan
er svo yfirkomin af harmi yfir eig-
in kringum-
stæðum að hún
getur ekki ann-
að en hlegið,“
segir Ólafur Eg-
ill Egilsson um
kvikmyndina
Brúðgumann
sem er byggð á
leikritinu Ivanov
eftir Anton
Tsjekhov.
Ólafur skrif-
aði handritið að myndinni ásamt
Baltasar Kormáki sem sér einnig
um leikstjórnina. Um 20 manna
tökulið hefur verið úti í Flatey á
Breiðafirði frá því um verslunar-
mannahelgina en búist er við því
að tökum ljúki um mánaðamótin.
Til stendur að setja Brúðgum-
ann upp í Þjóðleikhúsinu í vetur
og mun sami leikhópur verða að
störfum þar og í myndinni.
„Það er skemmtilegt að fá að
gera þetta í þessari röð, bíóið
fyrst og leikhúsið svo, því þá beit-
um við vinnsluaðferðum leikhúss-
ins, sem vonandi skilar sér í bíó-
myndina,“ segir Ólafur sem ætlar
að blogga um lífið í Flatey jafnvel
þótt þar sé ekkert netsam-
band. | 29
Bíóið fyrst,
leikhúsið svo
Ólafur Egill
Egilsson
SIGURÐI Flosa-
syni saxófónleik-
ara bauðst ný-
verið að halda
tónleika í Lin-
coln Center í
New York í byrj-
un næsta árs.
„Aðdragand-
inn að því var sá
að af einhverjum
ástæðum var óskað eftir íslensku
djassbandi til að halda tónleika þar.
Íslenskir djassleikarar fengu tæki-
færi til að senda inn upplýsingar og
upptökur eftir sjálfa sig og ég er
nýbúinn að fá þær fréttir að ég hafi
orðið fyrir valinu og fái að standa
fyrir tónleikum þar í janúar eða
febrúar. Það er ekki orðið alveg
ljóst hvaða verkefni ég mun fara
með en það mun væntanlega verða
tengt því sem ég hef verið að gera
á undanförnum árum,“ segir Sig-
urður í viðtali við Morgunblaðið í
dag. Það er margt annað að gerast
hjá Sigurði sem sendi nýverið frá
sér tvær plötur og leikur einleik
með Sinfóníuhljómsveit Íslands í
haust. | 13
Boðið í Lin-
coln Center
Sigurður Flosason
FYRSTU fjárréttirnar fóru fram í sveitum landsins um
helgina en réttir standa yfir næsta mánuðinn. Flestar
þeirra verða þó ekki fyrr en aðra eða þriðju helgina í
september.
Í gærmorgun var réttað í Hlíðarrétt í Mývatnssveit
og var veður með besta móti. Til réttar komu rétt um
2.000 fjár og fer því heldur fækkandi, eins og víðast
hvar, en féð er fallegt á lagðinn og sýnist koma þokka-
lega vænt af fjalli.
Mikill mannfjöldi var í réttinni enda naut fólkið
stundarinnar og réttarstemningarinnar. Gangnamenn
fengu prýðisveður og allt hefur gengið svo sem í sögu.
Hið vænsta fé af fjalli
Fjölmenni kom saman í Hlíðarrétt um helgina
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
ÍSRAELSK kona á þrítugsaldri,
sem leitað var í Kverkfjöllum,
fannst heil á húfi í gær. Arna Ösp
Magnúsardóttir, skálavörður í Sig-
urðarskála, fann konuna í Hveragili.
Þá voru rúmlega 50 björgunarsveit-
armenn Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar af Norður- og Austurlandi
farnir til leitar og menn með leit-
arhunda frá Reykjavík og Akureyri
á leið á svæðið.
„Hún fór héðan á föstudag gang-
andi í Hveragil og ætlaði að koma
aftur um hádegi á laugardag,“ sagði
Arna í samtali við Morgunblaðið.
„Þegar hún lét ekki sjá sig fór ég að
hafa áhyggjur og hafði samband við
Neyðarlínuna um kl. ellefu á laug-
ardagskvöld. Á sunnudagsmorgun
keyrði ég inn í Hveragil og þar hafði
konan búið um
sig og ætlaði að
bíða þar til hún
fyndist.“ Tæp-
lega tveggja
stunda akstur er
frá Sigurðarskála
inn í Hveragil.
Arna sagði
konuna hafa lent
í þoku og villst á
föstudag. Þá var
þoka á svæðinu og líka á laugardag
en í gær var bjart og gekk á með
skúrum. Konan fann vegslóða og
tók þá viturlegu ákvörðun að tjalda
við endann á honum og bíða. Að
sögn Örnu var konan orðin áhyggju-
full en hún vissi ekki um þann við-
búnað sem fer í gang þegar ein-
hvers er saknað.
Arna sagði konuna hafa verið
ágætlega búna. Hún er búin að
ganga um Hornstrandir og hjóla um
hálendið í sumar, svo Arna óttaðist
ekki að henni hefði orðið kalt. „Ég
hafði áhyggjur af því að eitthvað
hefði komið fyrir hana og hún slas-
ast,“ sagði Arna Ösp.
Ferðakonan fékk far úr Sigurð-
arskála til byggða í gær.
Fannst heil á húfi
Ísraelsk ferðakona sem villtist í Hveragili í þoku bjó um
sig í tjaldi við vegslóða þar sem skálavörður fann hana
Í HNOTSKURN
»Sigurðarskáli í Kverk-fjöllum er í eigu Ferða-
félags Fljótsdalshéraðs og
Ferðafélags Húsavíkur. Hann
er opinn allt árið og gæsla er
þar á sumrin.
»Kverkfjöll eru megineld-stöð í norðurbrún Vatna-
jökuls og þriðji hæsti fjall-
bálkur landsins. Þar er mikið
háhitasvæði.
Arna Ösp
Magnúsardóttir
♦♦♦