Morgunblaðið - 29.08.2007, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BÆJARYFIRVÖLD á Seltjarnarnesi hafa lagst á eitt um að börn og ung-
menni geti stundað tómstundastarf óháð efnahag eða félagslegum að-
stæðum, að því er segir í frétt frá bæjarfélaginu.
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, segir tóm-
stundastyrkina hafa verið meðal mikilvægustu stefnumála núverandi
meirihluta fyrir síðustu kosningar og því sé einkar ánægjulegt að sjá þá í
höfn.
Frá og með haustinu stendur öllum börnum og ungmennum á aldrinum
6-18 ára á Seltjarnarnesi til boða 25 þúsund króna styrkur til að stunda
skipulagt íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf. Styrkurinn veitir börnum
aukið valfrelsi og stuðlar að jafnrétti í samfélaginu. Þar sem styrkirnir
lækka útgjöld heimilanna vonast bæjaryfirvöld til að þeir verði hvati fyrir
börn til að stunda það íþrótta-, tómstunda- eða æskulýðsstarf sem mestan
áhuga vekur hjá þeim, segir í fréttinni.
Hvert ungmenni á Seltjarnar-
nesi fær 25 þúsund krónur
SALA áfengis það sem af er sumri
hefur aukist um 5,39% á milli ára. Á
tímabilinu 1. júní til 26. ágúst hefur
ÁTVR selt 5.607.515 lítra af áfeng-
um vökva, en í fyrra seldust
5.320.845 lítrar.
Í júní í ár jókst salan um 7% milli
ára, en mest var aukningin í júlí
þegar góðviðrið lék við landann.
Jókst þá sala áfengis um heil 9% á
milli ára.
Þess ber þó að geta að áfengis-
salan fyrir verslunarmannahelgina
nú reiknast með sölutölum í júlí en í
fyrra reiknaðist áfengissala fyrir
verslunarmannahelgi með sölutöl-
um í ágúst.
Eins og fram hefur komið í
blaðinu varð einnig umtalsverð
söluaukning á tóbaki mánuðina júní
og júlí í ár, samanborið við sömu
mánuði í fyrra.
Morgunblaðið/Kristinn
Aukin sala á
áfengi í sumar
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu var ekki lengi að finna ósvífinn
þjóf á mánudagskvöld, en sá hafði
tæmt sjóðsvél pítsustaðar í miðborg
Reykjavíkur. Starfsfólk staðarins
gat gefið lögreglu greinargóða lýs-
ingu á manninum, sem hafði stokk-
ið inn fyrir afgreiðsluborðið, tekið
peningana og hlupið burtu. Að sögn
lögreglu fannst maðurinn í vellyst-
ingum á nærliggjandi krá, í óðaönn
við að eyða stolnu fjármununum.
Fannst á barnum
EKKERT fannst á Svínafellsjökli í
gær sem gefur tilefni til frekari leit-
ar að Þjóðverjunum tveimur sem
leitað hefur verið undanfarna daga.
Leitarmenn voru að störfum í gær
þar sem lítill bakpoki og plastpokar
fundust í fyrradag með búnaði sem
tilheyrir Þjóðverjunum. Búnaðurinn
fannst við enda Svínafellsjökuls und-
ir grjóthleðslu sem gefur til kynna
að mennirnir hafi skilið hann eftir
áður en þeir lögðu á jökulinn. Var
ákveðið að leita svæðið aftur með
það í huga að mennirnir hefðu farið
niður jökulinn í þeim tilgangi að
sækja búnaðinn sem þeir skildu eftir
en þar var um að ræða létta skó,
inniskó, fatnað (hreinan og óhrein-
an), hluta klifurbúnaðar og bækur.
Flogið var með hóp leitarmanna
frá Björgunarfélagi Hornafjarðar
upp á jökulinn og fóru þeir sem leið
lá niður jökulinn frá því svæði sem
tjöldin stóðu og að þeim stað sem
búnaðurinn var geymdur.
Að leitinni í gærkomu menn frá
Ríkislögreglustjóra, Björg-
unarfélagi Hornafjarðar og Lög-
reglustjóranum á Eskifirði ásamt
áhöfn þyrlu Landhelgisgælunnar.
Leitinni hætt
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
NÝJASTI stórmeistari Íslands í
skák, Héðinn Steingrímsson, hefur
gengið til liðs við skákdeild Fjölnis
og gert samning við deildina til
tveggja ára.
Héðinn Steingrímsson hefur alla
tíð verið í TR en undanfarin ár hefur
hann teflt fyrir félagslið í Þýska-
landi og er að hefja fjórða tímabil
sitt í þýsku deildinni. Hann náði stór-
meistaratitli á móti í Tékklandi sem
lauk 5. ágúst síðastliðinn og hlakkar
til að taka þátt í uppbyggingarstarf-
inu hjá Fjölni, en auk þess að tefla
fyrir nýliðana í 1. deild Íslandsmóts-
ins kemur hann að barna- og ung-
lingastarfi félagsins.
Mikil uppbygging
Stórmeistarinn segir að formað-
urinn Helgi Árnason hafi unnið
mjög gott uppbyggingarstarf hjá
deildinni. Hann hafi mikla jákvæða
orku og hafi gefið sér byr í seglin.
„Ég er mjög ánægður með að fá
tækifæri til þess að vinna með hon-
um og krökkunum í Grafarvogi,“
segir Héðinn. „Á skákborðinu á
ákveðin sköpun sér stað og upp-
bygging í hverri skák og það er
gaman að taka þátt í svona upp-
byggingarstarfi hjá ungu og fram-
sæknu félagi.“
Skákdeild Fjölnis var stofnuð
2004. Síðan hefur lið hennar sigrað í
neðri deildunum hverri af annarri
og er nú komið í hóp þeirra bestu. Á
sama tíma hefur verið mikil gróska í
skákinni meðal barna og unglinga í
Grafarvogi og hafa nemendur Rima-
skóla verið þar fremstir í flokki.
Helgi Árnason segir mikinn akk
að fá stórmeistara eins og Héðin
Steingrímsson til liðs við deildina.
„Það er mikill fengur fyrir okkur að
fá svona kröftugan mann í okkar
lið,“ segir hann og bætir við að það
sé mjög jákvætt að hafa stórmeist-
ara með í uppbyggingunni.
Héðinn Steingrímsson hefur
gengið til liðs við Fjölni
Morgunblaðið/Ómar
Samstarf Héðinn Steingrímsson, stórmeistari í skák, og Helgi Árnason,
formaður skákdeildar Fjölnis, undirrita samninginn. Fyrir aftan er mynd
af Héðni þegar hann varð heimsmeistari 12 ára og yngri 1987.
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
YFIRMENN fangelsa á landinu
telja ekki sérstaka ástæðu til að end-
urskoða hvernig staðið er að eld-
varnamálum fangelsanna, í ljósi af-
leiðinga brunans á Stuðlum um
helgina. Framkvæmdir standa nú
yfir við tvö fangelsi af fimm, því unn-
ið er að stækkun Kvíabryggju og
fangelsisins á Akureyri. Samhliða
framkvæmdunum má ætla að eld-
varnamál verði endurskipulögð og
er það gert í samvinnu við eldvarna-
eftirlit slökkviliðsins á staðnum auk
Brunamálastofnunar.
Úttekt var gerð á eldvarnamálum
Litla-Hrauns fyrir stuttu í kjölfar
athugasemda fanga um eigið öryggi
í hugsanlegum eldsvoða. Að sögn
Jóns Sigurðssonar, deildarstjóra á
Litla-Hrauni, er í öllu farið eftir til-
mælum eldvarnaeftirlits og segist
hann ekki vita betur en brunavarnir
séu góðar í fangelsinu. Þó er tölu-
verður munur á húsi 4, sem tekið var
í notkun 1995 og húsi 3 sem verið
hefur í notkun síðan 1972.
Hið fyrrnefnda er búið rafstýrð-
um læsingum á öllum hurðum, svo
opna má þær allar samtímis ef þörf
er á í neyðartilfellum. Þar er hver
klefi sérstakt brunahólf sem hindrar
að eldur berist á milli. Þar sem hús 3
er eldra er viðbúnaður þar síðri, en
allir klefar í báðum húsum eru búnir
samtengdum reykskynjurum, auk
þess sem í öllum rúmum eru svokall-
aðar tregtendranlegar dýnur, sem
keyptar voru að tilmælum eldvarna-
eftirlitsins, og þarf mikið til að í
þeim kvikni. Í hverjum gangi eru
svo tvær útgönguleiðir, ein í hvorum
enda.
Jón leggur áherslu á að samvinn-
an við Brunamálastofnun og eld-
varnaeftirlitið sé mjög góð. „Að-
stæður eru sérstakar svo við verðum
að hafa alla með okkur þegar svona
er unnið svo við gerum það rétt.
Hérna eru um 80 manns svo þetta
verður hreinlega að vera í lagi.“
Hegningarhúsið við Skólavörðu-
stíg og fangelsið í Kópavogi eru ekki
búin rafstýrðum útgöngum eins og
Litla-Hraun, en að sögn Guðmundar
Gíslasonar forstöðumanns eru allar
hurðir eldtefjandi og húsinu skipt í
brunahólf svo eldur berist ekki á
milli klefa.
Brunavarnir fangelsanna
almennt í góðum farvegi
Morgunblaðið/RAX
Hraunið Slökkvitæki og brunaslöngur eru á hverju horni á Litla-Hrauni.
Eftir Unu Sighvatsdóttir
unas@mbl.is
„ÞESSI starfsemi getur ekki verið
hvar sem er, svo við getum ekki flutt
hana inn í venjulegar byggingar því
þá erum við hreinlega farin að stofna
þeim í lífshættu, það er ekki flóknara
en það,“ segir Bragi Guðbrandsson
forstjóri Barnaverndarstofu, en enn
hefur ekki verið tekin ákvörðun um
hvernig skuli ráðstafa lokaðri deild á
Stuðlum eftir að álman sem hýsti
hana brann á sunnudaginn.
Bragi segir ekki æskilegt að deild-
in verði flutt til bráðabirgða. „Þegar
komið er með þessa unglinga á deild-
ina þá eru aðstæður þeirra og ástand
oft mjög krítískt,
þau koma oft í
lögreglufylgd og
eru undir áhrifum
alls kyns efna.
Þetta gerir kröf-
ur til húsnæðis
sem er öruggt, en
eins og við sjáum
til dæmis núna,
að jafnvel þótt
þetta sé sérstak-
lega hannað húsnæði til þess að
halda börnum í þessu ástandi þá
tekst samt að kveikja í þannig að þau
lenda í lífshættu.“ Ávallt er gerð lík-
amsleit á þeim einstaklingum sem
lagðir eru inn á lokaða deild og allt
fjarlægt sem vistmenn geta notað til
að skaða sjálfa sig eða aðra. Hátt í
200 börn sæta neyðarvistun á ári og
segir Bragi ekki hægt að fyrirbyggja
með öllu að einhver þeirra komist
inn með eitthvað með sér. Í þessu til-
viki bendir allt til að stúlkurnar hafi
haft á sér kveikjara.
Bragi segist vonast til að hægt
verði að leysa málið innan veggja
Stuðla. „Við erum að reyna að finna
leiðir til að gera þetta án þess að
þurfa að loka hluta af meðferðar-
deildinni á meðan. En hvað sem við
gerum þá þarf það að vera þannig að
öryggis þeirra sé gætt í hvívetna.
Engu að síður er alveg ljóst að við
munum lenda í stórum vanda.“
Neyðarvist ekki færð burt
Bragi
Guðbrandsson
Stykkishólmur | Forsætisnefnd Al-
þingis fundaði í Stykkishólmi í gær og
var aðalefni fundarins að skipuleggja
störf Alþingis á komandi starfsári.
Þetta er fyrsti slíkur fundur Sturlu
Böðvarssonar sem forseta Alþingis.
Sturla var spurður hvort málefni
Grímseyjarferju hefðu verið til með-
ferðar eða afgreiðslu hjá nefndinni og
svaraði hann því að svo hefði ekki
verið en komið hefði fram í umræðum
nefndarmanna að þeir væru sammála
um að málið væri í eðlilegum farvegi
hjá fjárlaganefnd og því þyrfti ekki að
ræða það innan forsætisnefndar að
svo stöddu. Fjármál Alþingis voru
m.a. til umræðu og rætt var um vænt-
anlegt þing á vegum NATO í byrjun
október. Tillögur frá forseta Alþingis
um endurskipulagningu á starfs-
háttum Alþingis voru ræddar og
Sturla sagði að góð samstaða væri um
breytingarnar.
Þingsetning verður 1. október nk.
samkvæmt venju og var setning-
arathöfnin skipulögð á fundinum.
Forsætisnefnd tók fyrir erindi frá
þingflokki Vinstri grænna um að
beina því til Ríkisendurskoðunar að
gera samkomulag milli ríkis og
Landsvirkjunar um yfirtöku vatns-
réttinda í neðri hluta Þjórsár. For-
sætisnefnd samþykkti að taka undir
beiðnina.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Fundur Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Einar Már Sigurðsson, Þuríður Back-
man, Helgi Bernódusson skrifstofustjóri, Sturla Böðvarsson, Ásta R. Jó-
hannesdóttir, Kjartan Ólafsson og Magnús Stefánsson.
Grímseyjarferja ekki rædd
á fundi forsætisnefndar