Morgunblaðið - 29.08.2007, Qupperneq 34
34 MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Svar til Víkverja 25. ágúst
VANGAVELTUM þínum um það
hver standi með pálmann í hönd-
unum vegna lestarmála á höfuð-
borgarsvæðinu er auðsvarað. Það er
að sjálfsögðu R-listinn sem lagði
fram drög að lestarlínum í aðal-
skipulagi Reykjavíkur 2001-2024
sem samþykkt var 2002. Að Gunnar
I. Birgisson skyldi leggja slíka hug-
mynd til er þó alveg fráleitt enda fer
þar mikill einstaklings- og eins sveit-
arfélagsmaður. Ef eitthvað væri
myndi hann kannski leggja innan-
bæjarleið í Kópavogi.
Annars má Víkverji vita það að ef
hann hefur setið einn í sínum bíl
fastur í umferð að þá er hann hluti
vandans en ekki lausnarinnar. Slík-
ur hugsunarháttur er þó mjög al-
gengur meðal fólks en sá eiginleiki
Víkverja að sjá flísina í auga náung-
ans er kunnari en frá þurfi að segja.
SB.
Flytjum Kennaraskólann burt
ÉG HEF oft hugsað út í það síðustu
ár hve bráðnauðsynlegt er að flytja
gamla Kennaraskólann burt frá
þeim stað þar sem hann stendur við
Laufásveginn. Hugsum okkur þá
hörmung sem getur komið upp ef
eldur yrði laus í honum í sunnan/
suðvestanroki. Ekki væri möguleiki
að bjarga Barnaspítala Hringsins
sem nær allur er úr gleri.
Árið 1955 var Skipasund 88 flutt
úr Lækjargötunni inn í Skipasund,
það er örugglega ekki minna hús og
enginn vandi að flytja þetta með öll-
um þeim framförum og tækni sem í
dag er.
Karl Jóhann Ormsson,
Starengi 26, 112 Rvk.
Kaupþingskonsert
Mig langar að þakka KB banka fyrir
frábæra tónleika á Laugardalsvell-
inum. Þetta var hvert augn- og
eyrnakonfektið á fætur öðru. Ég skil
ekki þessa langdregnu, lélegu um-
ræðu varðandi hversu margir þarna
voru eða hvort Stuðmenn hafi ekki
leikið Halló, Halló! eða Fönn, Fönn,
Fönn. Persónulega fannst mér
músíkin þeirra vel leikin, fyndin og
skemmtileg í senn. Smátilbreyting.
Hvort þarna voru 20.000 eða 40.000
manns skiptir kannski ekki öllu máli,
tónleikarnir voru á góðum heims-
mælikvarða, hvort sem gestir mættu
á svæðið eða fengu beint heim í stofu
um allt land. Hver listamaðurinn á
fætur öðrum var frábær. Takk fyrir
mig.
Harpa Karlsdóttir.
Framlög frá Tryggingastofnun
GLITNIR stendur fyrir hlaupi. Ef
eldri borgari vill hlaupa og telur sig
hlaupa vel og koma í mark þá fær
hann fyrir aura. Kíló af ýsu kostar
rétt tæplega kr. 1.300 í dag. Spurn-
ing mín er: Þeir sem vilja hlaupa og
lifa og taka þátt; rýrir þetta mögu-
lega framlög frá Tryggingastofnun?
Spyr sá sem ekki veit.
Helgi Steingrímsson.
Þakkir
ÉG VIL þakka lyfjadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri fyrir
góða þjónustu og einstaka umönnun.
Eins vil ég þakka þeim á Hvamms-
tanga fyrir góða umönnun og hlýju í
veikindum mínum.
Benný.
Farsími og lyklakippa
SVARTUR Motorola-farsími og
lyklakippa með 2 lyklum á glataðist í
miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt
sunnudagsins 26. ágúst. 5.000 kr. í
fundarlaun. Vinsamlegast hringið í
síma 867 5732.
Kvengleraugu í óskilum
SJÓNSÓLGLERAUGU fundust á
bílaplaninu við Nóatún í Hafnarfirði
laugardaginn 25. ágúst. Þetta eru
kvengleraugu í svörtu rúskinns-
hulstri. Upplýsingar í síma 896 5474.
„Köttur á heitu blikkþaki“. Nú fer heitu sumardögunum væntanlega fækk-
andi. Þessi myndarlegi köttur hugsar framávið og nýtir blíðviðrið sem best.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Á útsýnisstað
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HVAÐ KOM FYRIR
FRÆNDA MINN?
HANN VARÐ
FYRIR STRÆTÓ
HVAÐA
STRÆTÓ?
STRÆTÓ...
LEIÐAKERFI STRÆTÓ,
HVER ER MUNURINN?
VHAAAH!
VIÐ TÖPUÐUM LEIKNUM
OG ÞAÐ ER ALLT KALLA
AÐ KENNA! VHAAAHH!!
VAR
ÉG
ÚTI?
ÚTI? ÞÚ KOMST
EKKI EINU SINNI
HÁLFA LEIÐ
KJÁNINN ÞINN! ÚPS!
HVENÆR
HELDUR ÞÚ AÐ
ÞAÐ KOMI
NÆSTA
ÞRUMUVEÐUR?
ÖRUGGLEGA
EKKI FYRR EN
Í VOR
HANN Á EFTIR AÐ
BRÁÐNA ÁÐUR EN VIÐ
GETUM LÍFGAÐ HANN VIÐ
HANN Á AFMÆLI Í DAG!
HANN Á AFMÆLI Í DAG!
MÉR FINNST
FRÁBÆRT HVERNIG
PABBI HEFUR
VINGAST VIÐ ÖNDINA
HENNAR MÖMMU!
HANN Á AFMÆLI HANN KVAKK!
HANN Á AFMÆLI Í DAG!
NEI, ÞETTA ER
HUGSUNARBÓLA...
HINAR ERU BARA
VENJULEGAR
LOFTBÓLUR
MIKIÐ VAR
ÞETTA ERFIÐUR
SÁLFRÆÐITÍMI
EF ÉG VÆRI ENNÞÁ Á
SKRIFSTOFUNNI ÞÁ MUNDI
ÉG TALA UM HANN TIL AÐ
LÉTTA Á MÉR
ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ
ÉG ÞURFI AÐ FINNA NÝJAR
LEIÐIR TIL AÐ HLEYPA ÚT
TILFINNINGUNUM EFTIR
TÍMANA HJÁ MÉR
ÍS
HVERT FÓR BARDAGAMAÐURINN?
HANN HLÝTUR AÐ HAFA
VERIÐ HETJA DAGSINS!
EF ÞÚ ERT
AÐ LEITA AÐ
HETJU ÞÁ
ER EIN SLÍK
HÉR...
ÞAÐ VAR
ÉG SEM VAR
HETJA
DAGSINS
ROD RAYMOND?!?
HVAÐ ER KVIKMYNDA-
STJARNA AÐ GERA
HÉRNA?
SUMIR
LEIKARAR LEIKA
BARA HETJUR...
AÐRIR LIFA SIG
MEIRA INN Í
HLUTVERKIÐ
HANN ER
MEIRI
LYGARINN
dagbók|velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13 SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
www.gimli.is - www.mbl.is/gimli
FRAMNESVEGUR - EINBÝLI
Traust þjónusta í 30 ár
Sérlega sjarmerandi og vel staðsett 121 fm einbýli á 2 hæðum, hæð og ris, á
þessum eftirsótta stað, Bráðræðisholtinu í vesturbæ. Húsið er að mestu endur-
byggt árið 1982. Falleg gróin lóð og suðursólpallur. Í húsinu eru 3 svefnherbergi,
stofa, borðstofa og sjónvarpshol í risi ásamt tveimur baðherbergjum sem voru
endurnýjuð árið 2003. Fallegar furufjalir á gólfum og málaður panell á veggjum.
Húsið er töluvert stærra en uppgefnir fermetrar vegna súðar í risi. Í heild, mikið
endurnýjað hús á einum eftirsóttasta stað Reykjavíkur. Verð 53,0 millj.