Morgunblaðið - 29.08.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2007 37
Kraftur, fjölbreytni oggleði er það sem kemurupp í huga Aino FreyjuJarvela, formanns SL,
bandalags sjálfstæðra leikhúsa,
þegar hún er spurð út í einhver ein-
kenni næsta leikárs sem hefst inn-
an tíðar hjá sjálfstæðum leikhópum
um land allt. 39 frumsýningar
munu líta dagsins ljós, þar af eru 34
ný íslensk sviðsverk og auk hefð-
bundinna leiksýninga segir Aino
Freyja að leikhóparnir stefni á ým-
islegar tilraunir, kanni nýjar vinnu-
aðferðir og kynni til sögunnar
framsækin innlend og erlend leik-
skáld. Aðildarfélög SL munu sem
fyrr setja upp fleiri sviðsverk held-
ur en stofnanaleikhúsin gera og
með þeim sýningum sem teknar
verða upp frá fyrra leikári munu
aðildarfélög SL bjóða upp á samtals
55 sýningar. Til gamans má geta að
á síðasta leikári var áhorfendafjöldi
Sjálfstæðra leikhúsa um 230.000,
sem eru fleiri gestir en stofn-
analeikhúsin öll fengu samanlagt.
Listrænt uppeldi þjóðarinnar
Leikárið framundan virðist ætla
að verða mjög svipað og í fyrra,
segir Aino Freyja og kannast ekki
við að áhugi almennings og leikara
sé þverrandi. „Það er ávallt fullt af
fólki tilbúið að leika eða taka þátt í
uppfærslum sjálfstæðra leikhópa og
þrátt fyrir að eðli þessara leikhópa
sé að þeir taki sér hlé í nokkurn
tíma, ýmist vegna anna aðstand-
enda eða fjárskorts eru flestir leik-
hópar virkir. Barnaleikhóparnir eru
mjög virkir og þá nefni ég til dæm-
is Möguleikhúsið og Stoppleikhóp-
inn en leikhópar koma og fara,
sumir eru mjög sterkir í ákveðinn
tíma en leggja svo upp laupana. Að-
alvandi okkar eru hins vegar fjár-
mögnun og það reynist okkur
stundum erfitt að sannfæra stjórn-
völd um ágæti og nauðsyn þess að
sjálfstæðir leikhópar þrífist. Við
höfum á okkur þetta áhugamanna-
orðspor en það er fjöldi atvinnu-
manna sem kemur að uppsetn-
ingum þessara leikhópa, og þá ekki
bara leikarar, heldur fólk á öðrum
listsviðum svo ekki sé talað um
iðnaðarmenn. Barna- og unglinga-
starfið er líka gríðarlega umfangs-
mikið og þessir hópar ferðast um
allt land. Þær sýningar sem þeir
setja upp eru oftar en ekki fyrstu
kynni barna af leikhúsi og því stór
þáttur í listuppeldi barna um allt
land.
Söngur, dans og barnasögur
Til viðbótar við hefðbundin leik-
verk munu aðildarfélög SL einnig
setja upp ýmiskonar söngleiki,
kabaretta og dansverk. Á komandi
leikári verða tveir söngleikir á veg-
um sjálfstæðra leikhúsa. Annar
þeirra er nýr íslenskur söngleikur
um nútímafólk sem nefnist Hér og
nú og verður í uppsetningu Sokka-
bandsins með tónlist eftir Baggalút.
Þá verður afar öflug starfsemi í
dansgeiranum þetta leikárið en
samtals 15 ný íslensk dansverk
verða frumsýnd. Reykjavík dans-
festival hefur leikárið nú á fimmtu-
dag með fjölda nýrra verka sem
sýnd verða um allan bæ fram á
sunnudaginn 2. september. Eins og
áður kom fram eru barna- og ung-
lingasýningar mikilvægur hluti af
starfsemi sjálfstæðra leikhópa og
ellefu af frumsýningum ársins
verða á verkum sem eru sér-
staklega sett upp fyrir börn og ung-
linga. Í þessu sambandi nefnir Aino
Freyja að á Grímuhátíðinni 2007
komu þrjár af fimm tilnefningum í
hlut sjálfstæðra leikhúsa.
Sjálfstæð leikhús gera víðreist
Sýningar á vegum sjálfstæðra
leikhúsa munu fara víðar um heim-
inn á komandi leikári heldur en
nokkru sinni fyrr. Vesturport stefn-
ir til að mynda á að sýna verk sitt
Till sammans í Englandi, Banda-
ríkjunum, Þýskalandi og Mexíkó en
verkið verður frumsýnt á Íslandi í
desember. Skoppa og Skrítla munu
einnig sýna leikverk sitt í Afríku og
New York en verk þeirra var til-
nefnt til Grímunnar fyrir barna-
leikrit ársins 2007. Sem fyrr munu
danslistamenn kynna íslenska
menningu víða erlendis. Pars Pro
Toto fara með verk sín til Berlínar
svo dæmi sé tekið auk þess sem Pa-
nic Productions verða með sýningar
í Þýskalandi og Frakklandi.
„Ég hugsa að þetta verði afar
skemmtilegt og spennandi leikár,
segir Aino Freyja að lokum. „En
mér finnst það líka alltaf jafn ótrú-
legt hvað það er mikið af fólki sem
er tilbúið að taka þátt í þessu og
mæta á sýningar sjálfstæðu leik-
húsanna. Það eru til dæmis stærri
hópur sem sækir leikhús á hverju
ári en sá sem fer á leiki úrvalsdeild-
arinnar í knattspyrnu og það segir
ef til vill eitthvað um áhugann.“
Á þriðja hundrað þúsund
leikhúsgesta í fyrra
Sjálfstæðu leikhúsin bjóða upp á fjölbreyttar sýningar í vetur
Sæmundur fróði Möguleikhúsið hefur lengi verið eitt öflugasta sjálfstætt starfandi leikhúsið í landinu.
Killer Joe Sýning sem er í leik-
stjórn Stefáns Baldurssonar
var tilnefnd sem leiksýning
ársins á síðustu Grímu-hátíð.
Morgunblaðið/Kristinn
Emma og Ófeigur Stoppleikhóp-
urinn fagnaði 10 ára afmæli ekki
alls fyrir löngu.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
Sjá sýningadagatal á www.landnamssetur.is
Miðapantanir í síma: 437-1600
2007–2008
Óvitar!
Frábær fjölskyldusýning. Forsala hafin!
Frumsýning 15. september kl. 20. UPPSELT
Áskriftarkortasala hafin!
Vertu með!
Sunnud. 16/9 kl. 20
Fimmtud. 20/9 kl. 20
Föstud. 21/9 kl. 20
Laugard. 22/9 kl. 20
Fimmtud. 27/9 kl. 20
Föstud. 28/9 kl. 20
Laugard. 29/9 kl. 20
4 600 200
leikfelag.is
LÍK Í ÓSKILUM
Lau 1/9 kl. 20 FRUMSÝNING upps.
Mið 5/9 kl. 20 Lau 8/9 kl. 20 upps.
Sun 9/9 kl. 20 Fös 14/9 kl. 20
LADDI 6-TUGUR
Sun 2/9 kl. 20 upps. Fim 6/9 kl. 20
Fös 7/9 kl. 20
SÖNGLEIKURINN ÁST
Í samstarfi við Vesturport
Fös 31/8 kl. 20 Lau 1/9 kl. 20
Fös 7/9 kl. 20 Lau 8/9 kl. 20
BELGÍSKA KONGÓ
Mið 12/9 kl. 20 Mið 19/9 kl. 20
Mið 26/9 kl. 20
SÖNGLEIKURINN GRETTIR
Fim 30/8 kl. 20 upps. Lau 8/9 kl. 20
Sun 9/9 kl. 20 Lau 15/9 kl. 20
KILLER JOE
Í samstarfi við Skámána
Fim 6/9 kl. 20 Fim 13/9 kl. 20
DAGUR VONAR
Fim 13/9 kl. 20 Fös 14/9 kl. 20
Fös 21/9 kl. 20 Lau 29/9 kl. 20
Miðasala 568 8000 - www.borgarleikhús.is