Morgunblaðið - 22.09.2007, Page 4

Morgunblaðið - 22.09.2007, Page 4
4 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Helena Ólafs-dóttir, þjálfari meistara- flokks kvenna í knattspyrnu hjá KR. hefur tekið þátt í öllum sjö bikarúrslitaleikj- um KR til þessa. Sem leikmaður liðsins og fyrirliði þess og einnig sem þjálfari KR eða þá sem þjálfari mót- herja Vesturbæjarfélagsins.    Keflavík komst í úrslitaleikinn ídag með því að leggja HK/ Víking 1:0 í fyrstu umferð, Fylki í vítaspyrnukeppni í annarri umferð, Aftureldingu 2:1 í þriðju umferð og Fjölni 3:1 í undanúrslitum. KR vann Þór/KA 5:2 í 8-liða úrslitum og Breiðablik 7:3 þar sem Olga Fær- seth gerði fjögur mörk, öll í fyrri hálfleik.    Sævar Jónsson mun flauta til leiksá Laugardalsvelli í dag klukkan 16 en aðstoðardómarar verða Jó- hann Gunnar Guðmundsson og Þor- valdur Árnason. Stuðningsmenn beggja liða hefja upphitun klukkan 13, KR-ingar á sínu félagssvæði og Keflvíkingar í K-húsinu.    Íslensku unglingalandsliðin í blaki,skipuð leikmönnum 19 ára og yngri, töpuðu bæði sínum fyrstu leikjum á Norðurlandamótinu sem fram fer í Noregi. Piltarnir töpuðu 3:0 fyrir Norðmönnum, 25:11, 25:23 og 25:11. Stúlkurnar mættu Dönum og töpuðu einnig 3:0 í jöfnum leik, 25:23, 26:24 og 25:20    Árni Þór Sigtryggsson skoraðieitt mark í fyrsta leik sínum með Granollers í spænsku 1. deild- arkeppninni í handknattleik. Lið hans bar þá sigurorð af Pilotes Posada, 27:26.    Anatolij Demjanenko sagði í gæraf sér sem þjálfari úkraínska knattspyrnuliðsins Dynamo Kiev, í kjölfarið á ósigri gegn Roma í Meist- aradeild Evrópu. Þar með hafa þjálf- arar þriggja liða í Meistaradeildinni hætt störfum á síðustu dögum en hinir eru José Mourinho hjá Chelsea og Gheorghe Hagi hjá Steaua Búkarest.    Alfreð Gísla-son, þjálfari Gummersbach og íslenska lands- liðsins í hand- knattleik, fer með lið sitt á gamla heimavöllinn sinn í Magdeburg í 32- liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar. Gummers- bach dróst í gær gegn B-liði Magde- burg en Alfreð þjálfaði Magdeburg um árabil með frábærum árangri.    Engin Íslendingalið drógust sam-an í bikarnum en Flensburg, með Einar Hólmgeirsson og Alex- ander Petersson innanborðs, fékk erfitt verkefni því liðið leikur við Nordhorn á útivelli. Sama er að segja af Loga Geirssyni og félögum í Lemgo sem spila á útivelli við bikar- meistarana Rhein-Neckar Löwen, sem unnu bikarinn í fyrra undir nafni Kronau-Östringen.    Essen, lið Halldórs Sigfússonar,leikur við Hamburg á útivelli, Göppingen sækir Eisenach heim, Burgdorf leikur við Saarlouis á úti- velli, N-Lübbecke með Þóri Ólafs- son og Birki Ívar Guðmundsson inn- anborðs leikur við Waiblingen á útivelli, Wilhelmshavener sækir Friesenheim heim og Empor Rostock, lið Elíasar Más Halldórs- sonar, leikur við Erlangen á útivelli. Fólk sport@mbl.is „Auðvitað á ég ættir mínar að rekja til Keflavíkur og þar lék ég fyrstu árin og einnig í körfunni. En í íþróttum er það nú einu sinni þann- ig að maður leikur á fullu fyrir það félag sem maður er í hverju sinni,“ sagði Olga í samtali við Morgun- blaðið í fyrradag og taldi víst að hún gæti farið óáreitt um heimabæ sinn þó svo hún næði að skora á móti Keflavík í úrslitaleiknum. Hún hefur fundið leiðina í markið í sumar, skoraði 16 mörk í jafn mörgum leikjum með KR í deildinni og heldur að hún hafi spilað eina átta bikarúrslitaleiki. Hún er því al- vön að spila á Laugardalsvelli. „Mér er sama hvað menn segja en bikarúrslitaleikurinn er fyrir mér stærsti leikur sumarsins og sá skemmtilegasti að spila og þar vilja allir vera. Þetta verður því bara skemmtun á laugardaginn,“ sagði Olga, langmarkahæsta knatt- spyrnukona landsins, sem hefur skorað 265 mörk fyrir lið sín í efstu deild og yfir 300 mörk samanlagt í öllum mótum fyrir KR. Mætum til að vinna Þrátt fyrir að KR hafi unnið Keflavík 5:0 í fyrri leiknum í deild- inni og 4:0 í þeim síðari og Olga hafi gert þrennu í fyrri leiknum og tvennu í þeim síðari, á hún von á erfiðum leik. „Við förum að sjálf- sögðu í þennan leik til að sigra, það er ekki spurning. Bikarleikir eru allt öðruvísi en deildarleikir og þó svo við höfum haft betur í sumar þá lentum við í talsverðum vandræðum með að brjóta ísinn á mánudaginn í Keflavík. Þegar komið er út í svona leik getur allt gerst. Það búast allir við því að við vinnum og við ætlum okkur það. En í íþróttum, og ekki síst í bikarleikjum, getur allt gerst og við verðum að vera vel á tánum til að klára þetta dæmi. Ef menn mæta ekki tilbúnir í leiki þá er allt- af hætta á að tapa,“ sagði Olga. Helena Ólafsdóttir þjálfari KR sagði að undirbúningi liðsins yrði mjög svipað háttað og fyrir hvern annan leik. „Við verðum reyndar aðeins meira saman en fyrir deild- arleiki, en við munum sofa í okkar rúmum aðfaranótt laugardagsins. Síðan hittumst við í morgunmat á laugardagsmorguninn og mætum síðan til leiks ákveðnar í að njóta þess að spila úrslitaleik og hungr- aðar í titil,“ sagð Helena. Ástand leikmanna KR er þokka- legt en Katrín Ómarsdóttir verður að sjálfsögðu ekki með enda ökkla- brotnaði hún fyrir skömmu. Ekki er útséð um hvort Embla Grétarsdótt- ir getur verið með en hún meiddist á dögunum en KR-ingar eru að von- ast til að hún geti leikið. Aðrir leik- menn eru til í slaginn. Mikil spenna fyrir leiknum „Það er rosamikil spenna fyrir þessum leik hjá okkur, enda stærsti leikur ársins hjá okkur öllum og sjálfsagt stærsti leikur ferilsins hjá flestum okkar, í það minnsta hjá mér,“ sagði Lilja Íris Gunnarsdótt- ir, fyrirliði Keflavíkur þegar hún var innt eftir hvernig spennustigið væri hjá Keflavíkurliðinu fyrir bik- arúrslitaleikinn við KR. „Ástandið hjá okkur er að skána en hún Guðný Petrína Þórðardóttir, aðal-senterinn okkar og marka- skorari, er meidd en hefur verið að æfa síðustu daga með okkur og við vonum að hún geti leikið með,“ sagði Lilja Íris. Hún sagði að liðið ætlaði að gista á Hótel Loftleiðum fyrir leikinn. „Við gistum aðfaranótt laugardags- ins á Loftleiðum, tökum eina æf- ingu á föstudeginum á Valbjarnar- velli og mætum síðan á aðal- leikvanginn tilbúnar í slaginn. Spennustigið er nokkuð hátt hjá okkur en við ætlum að passa okkur á að nota það ekki sem neikvæða spennu, heldur hafa gaman af þess- um leik. Við ætlum að koma og njóta þess að fá að spila þennan leik. Við erum komnar þetta langt og komnar með silfrið þannig að það er í sjálfu sér engu að tapa hjá okkur. Við töpuðum fyrir KR á mánudaginn en það skiptir ekki máli þegar komið er í úrslit bikars- ins,“ sagði Lilja Íris. Salih Heimir Porca er þjálfari Keflvíkinga og hann var ánægður með að koma liðinu í úrslitaleikinn. „Það er mikill spenningur hjá stelp- unum, enda eru nokkrar stelpur mjög ungar hjá okkur, allt niður í 14 og 15 ára. Svo er ég með serb- neska og enska leikmenn og ís- lenskar líka og þetta er mikil blanda. Þegar maður mætir KR vill maður helst vera með reynda leik- menn. En svona er þetta. Það er gaman að koma hingað og spila úr- slitaleik, ég gerði það sjálfur þrisv- ar sinnum og gekk vel. Þetta er sér- stakur leikur og ég er að reyna að segja stelpunum að við séum sig- urvegarar, við erum búin að vinna silfrið og gullið er í boði. Við gerum auðvitað okkar besta til að krækja í það. Aðalmálið er að leggja sig alla fram og í bikarúrslitaleik gera menn það alltaf. Þetta eru hörku stelpur og ef okkur tekst að láta þetta allt smella saman og komum grimm til leiks getur allt gerst,“ sagði Salih Heimir Porca. Morgunblaðið/Ómar Spenningur Nokkur spenningur er fyrir úrslitaleik Keflavíkur og KR í VISA-bikar kvenna í dag. Hér kljást þær Embla Grétarsdóttir, sem verður vonandi með í dag, og Vesna Smiljkovic, leikmaður Keflavíkur. KR-ingar freista þess að vinna bikarinn þriðja sinni KEFLAVÍK og KR mætast í úrslita- leik VISA-bikarkeppni kvenna á Laugardalsvelli í dag klukkan 16. Þetta er í 27. sinn sem leikið er í bikarkeppni kvenna og hefur Valur unnið oftast, eða tíu sinnum. KR hefur tvívegis orðið meistari, 1999 og 2002 en Keflavík hefur aldrei sigrað en einu sinni leikið til úr- slita, gegn ÍA árið 1991. ÍA vann 6:0, sem er stærsti sigur í úrslita- leik kvenna, og þá lék ung stúlka úr ÍBK, eins og félagið hét þá, sinn fyrsta bikarúrslitaleik. Olga heitir hún Færseth sem nú leikur með KR og er fyrirliði liðsins.. Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Olga Færseth, fyrirliði KR, lék með Keflavík í úrslitum fyrir sextán árum EYJAMENN verða að vinna Þrótt úr Reykjavík í næst síðustu umferð 1. deildar karla í knatt- spyrnu í dag til að eiga möguleika á að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni. Liðin mætast á Valbjarn- arvelli og takist ÍBV ekki að sigra er ljóst að Þróttur fer upp, og einnig væru þá Grindavík og Fjölnir komin upp, sama hvernig þeirra leikir fara í dag, gegn Reyni og Þór. Vinni Eyjamenn hinsvegar í dag verða þeir með 41 stig og Þróttur 44 fyrir lokaumferðina. Eftir leiki dagsins gætu þrjú lið verið komin upp, tvö, eitt, eða jafnvel ekkert. Grindvíkingum nægir jafntefli gegn Reyni úr Sandgerði á heimavelli í dag til að fara upp og Fjölnir myndi tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni með því að leggja Þórsara í í Grafarvogi í dag. ÍBV fær síðan Fjölni í heimsókn í síðustu um- ferðinni, og það gæti orðið hreinn úrslitaleikur um sæti í úrvalsdeildinni, fari svo að ÍBV vinni Þrótt í dag og Fjölnir næði ekki að sigra Þór. Botnslagurinn er líka spennandi því þar eru KA og Reynir með 16 stig, Njarðvík 17 og Vík- ingur Ó. og Stjarnan eru með 19 stig og Þór 21. Eitt þessara liða fellur. Víkingur og Stjarnan mætast í dag, KA fær Leikni R. í heimsókn og Njarðvík tekur á móti Fjarðabyggð en Reynir fer til Grindavíkur og Þór í Grafarvoginn. Í loka- umferðinni mætast Þór og KA nyrðra, Njarðvík heimsækir Stjörnuna, Reynir fær Þrótt í heim- sókn og Víkingar leika við Leikni R. ÍBV verður að sigra – annars eru úrslit ráðin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.