Morgunblaðið - 03.11.2007, Side 1
laugardagur 3. 11. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Wenger og Ferguson mætast í stórleiknum í London í dag >> 2-3
VALSKONUR ÆTLA ÁFRAM
MÆTA KRUSEVAC FRÁ SERBÍU TVÍVEGIS AÐ HLÍÐ-
ARENDA Í EVRÓPUKEPPNINNI UM HELGINA >> 4
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
Sigurður er uppalinn Valsmaður og
lék með félaginu þar til hann fór til
Danmerkur í sumar. Hann er 25 ára
gamall miðjumaður og hefur leikið
11 A-landsleiki fyrir Íslands hönd,
alla sex leikina í Evrópukeppninni í
Sviss 2006 og fimm leiki á undan
henni. Sigurður sagði að það væri
ekki sjálfgefið að snúa aftur heim á
Hlíðarenda.
„Nei, ég veit hreinlega ekki hvað
verður því Valsmenn fengu leik-
mann í minn stað, sem er alveg eins
og ég og fékk meira að segja núm-
erið mitt, og ég hef ekki hugmynd
um hvort þeir þurfa á mér að halda.
Það er hvort eð er lokað fyrir fé-
lagaskiptin í bili svo ég ætla að taka
mér kærkomna hvíld frá handbolt-
anum í tvær vikur eða svo. Ég fékk
satt best að segja mikinn leiða á
honum hérna í Danmörku og þegar
maður fer að kvíða fyrir því að fara
á æfingar, er nóg komið. Það voru
margir hlutir sem gengu einfaldlega
ekki upp og ég ákvað því að segja
þetta gott og drífa mig heim, ekki
síst til að fá knús frá pabba og
mömmu. En það er spennandi kost-
ur að koma aftur heim og spila í úr-
valsdeildinni því mér sýnist hún
aldrei hafa verið eins skemmtileg og
einmitt í vetur,“ sagði Sigurður, sem
gekk beint inn í erfiða fallbaráttu
hjá Skanderborg en liðið er næst-
neðst í úrvalsdeildinni með eitt stig
eftir átta leiki og tapaði, 28:30, fyrir
Fredericia í gærkvöld.
„Þetta var reyndar einn skásti
leikurinn okkar og hörkuspennandi
allt til loka. Ég var meira að segja
rekinn tvisvar af velli á fyrstu 8
mínútunum. En það hefur líka verið
einkennileg upplifun fyrir mig, eftir
alla sigurgönguna með Val, að vera í
svona fallbaráttu. Liðið er bara ein-
faldlega ekki nógu gott,“ sagði Sig-
urður sem skoraði 2 mörk fyrir
Skanderborg í gærkvöld en Gísli
Kristjánsson gerði 2 mörk fyrir
Fredericia og þeir Fannar Þor-
björnsson og Hannes Jón Jónsson
sitt markið hvor.
Sigurður er á heimleið
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Til Íslands Sigurður Eggertsson fagnar marki í leik gegn Rússum í Evrópukeppninni í Sviss. Hann er á heimleið frá Danmörku.
SIGURÐUR Eggertsson, sem hefur leikið með danska úrvalsdeildarliðinu
Skanderborg það sem af er þessu tímabili, er hættur hjá félaginu og er á
leið heim til Íslands. Sigurður staðfesti þetta við Morgunblaðið í gærkvöld,
eftir kveðjuleik sinn með liðinu, en sagði jafnframt að hann hefði ekki rætt
við nein íslensk lið enn sem komið er.
Hættur hjá Skanderborg Kveið fyrir æfingum Ekki sjálfgefið að fara í Val
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
„ÞAÐ var vonlaust fyrir mig
að ná þessum leik gegn New-
castle en ég vonast til þess
að vera kominn í gang aftur
þegar við mætum Manchest-
er City um næstu helgi,“
sagði Hermann Hreiðarsson,
landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, við Morgunblaðið í
gær. Hann fór ekki með liði
Portsmouth norður til New-
castle í gær en liðin mætast
þar í ensku úrvalsdeildinni í
dag. Það verður fyrsti deilda-
leikurinn sem Hermann
missir af á þessu tímabili en
hann var í byrjunarliðinu í
fyrstu 11 leikjunum. Hann
lék hinsvegar ekki gegn
Blackburn í deildabikarnum
fyrr í þessari viku.
„Ég meiddist í nára í
leiknum við West Ham um
síðustu helgi. Það er ekkert
alvarlegt, en það var hins-
vegar alveg glatað að ná því
að spila í Newcastle. Þetta er
einhver smá rifa en maður
verður bara að vera skyn-
samur og ég verð vonandi
klár um næstu helgi,“ sagði
Hermann.
Portsmouth hefur átt góðu
gengi að fagna undanfarnar
vikur, unnið fjórum sinnum
og gert tvívegis jafntefli í
síðustu sex deildaleikjum sín-
um, og er í sjöunda sæti úr-
valsdeildarinnar.
Hermann kyrr heima
ALBERT Brynjar Ingason,
knattspyrnumaður úr Fylki,
gekk í gær til liðs við Íslands-
meistara Vals og samdi við þá
til þriggja ára. Albert er 21
árs sóknarmaður, uppalinn
hjá Fylki, og hefur skorað sex
mörk í 36 leikjum með liðinu í
úrvalsdeildinni. Þar af gerði
hann fjögur mörk í 13 leikjum
í ár, þrennu gegn Keflavík.
Albert átti ekki fast sæti í
Fylkisliðinu fyrr en seinni
hluta mótsins. Hann kom inn
á sem varamaður fimm sinn-
um í fyrstu tíu umferðunum
en var í byrjunarliðinu í síð-
ustu átta leikjunum.
Auk þess að leika með
Fylki var Albert í láni hjá
Þórsurum seinustu vikur
tímabilsins 2005 og gerði þá
eitt mark í sjö leikjum í 1.
deildinni. Hann á að baki sex
leiki með yngri landsliðum.
Óhætt er að segja að tengsl
Alberts við Val séu mikil. Fað-
ir hans, Ingi Björn Alberts-
son, er markahæsti leikmaður
Vals í efstu deild frá upphafi
og var jafnframt þjálfari Vals
1990-1992 og aftur um tíma
1999. Afi Alberts var svo Al-
bert Guðmundsson, einn
fræknasti knattspyrnumaður-
inn í sögu Vals og atvinnu-
maður í Frakklandi og á Ítalíu
um árabil, og síðar ráðherra.
Þá spilar mágur Alberts,
Guðmundur Benediktsson,
með Val og gæti leikið með
honum í framlínunni.
Albert til liðs við Val
KVENNALIÐ Fylkis fær góðan lið-
styrk í dag þegar tvær efnilegar
knattspyrnukonur skrifa undir
samninga. Það eru Laufey Björns-
dóttir úr Breiðabliki og Thelma Ýr
Gylfadóttir úr Val sem báðar eru 18
ára gamlar en þegar komnar með
talsverða reynslu úr úrvalsdeild-
inni, auk þess að eiga að baki fjölda
leikja með yngri landsliðum Íslands.
Kristinn Steingrímsson, formaður
meistaraflokksráðs kvenna hjá
Fylki, staðfesti komu þeirra í Árbæ-
inn við Morgunblaðið í gærkvöld.
Laufey lék alla 16 leiki Breiða-
bliks í úrvalsdeildinni í sumar, og
skoraði fjögur mörk. Samtals á hún
að baki 36 leiki í deildinni og hefur
gert í þeim 11 mörk. Thelma hefur
samtals spilað 25 leiki með Val og
ÍA í efstu deild og skorað átta mörk,
þar af lék hún fimm deildaleiki með
Íslandsmeistaraliði Vals í sumar.
Tvær sterkar
til Fylkis
PATREKUR Jóhannesson, fyrrum
landsliðs- og atvinnumaður í hand-
knattleik, verður ekki meira með
Stjörnunni fyrr en í fyrsta lagi að
loknu landsleikjahléinu í febrúar.
Hann hefur ekki spilað með Garða-
bæjarliðinu í síðustu leikjum vegna
meiðsla í hné og Kristján Hall-
dórsson þjálfari Stjörnunnar sagði
við Morgunblaðið að hann reiknaði
ekki með honum strax.
„Patrekur er einfaldlega illa far-
inn eftir ferilinn og þarf lengri
hvíld til að fá sig góðan. Ég geri
allavega alls ekki ráð fyrir honum
til áramóta og svo sjáum við til.
Hann er hinsvegar að gera góða
hluti með mér á bekknum og er
framtíðarmaður í handboltanum á
því sviði,“ sagði Kristján en Patrek-
ur hefur verið honum til aðstoðar í
undanförnum leikjum Garðbæinga.
Patrekur
lengur frá