Morgunblaðið - 03.11.2007, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 3
Jón ArnórStefánsson
skoraði 14 stig
fyrir ítalska liðið
Lottomatica
Roma í fyrra-
kvöld þegar það
sótti heim
spænska stór-
veldið Real
Madrid í Meistaradeild Evrópu í
körfuknattleik. Þau dugðu þó ekki
því Real Madrid náði að knýja fram
sigur, 89:83, og Roma hefur því tap-
að tveimur fyrstu leikjum sínum í
deildinni. Jón Arnór byrjaði ekki
inná en kom til leiks um miðjan
fyrsta leikhluta og spilaði alls í 22
mínútur af 40. Hann var í stóru
hlutverki hjá Roma í seinni hálf-
leiknum.
Nemanja Sovic, körfuknattleiks-maður úr Fjölni, er genginn til
liðs við 1. deildarlið Breiðabliks.
Sovic, sem er þrítugur Serbi, hefur
leikið með Grafarvogsliðinu undan-
farin þrjú ár og spilaði fyrstu fjóra
leiki þess á þessu tímabili þar sem
hann gerði 12,8 stig að meðaltali í
leik.
Arnór Smárason og félagar ívaraliði Heerenveen eiga góða
möguleika á að komast alla leið í
átta liða úrslit hollensku bikar-
keppninnar í knattspyrnu. Arnór
skoraði eitt mark í fyrrakvöld og
lagði annað upp þegar liðið vann
óvæntan útisigur á 1. deildarliðinu
ADO Den Haag, 3:1. Í gær var
dregið til 16-liða úrslita og þar slapp
Heerenveen-B við úrvalsdeildarliðin
en dróst gegn 2. deildarliðinu Quick
Boys Katwijk.
Þorri Björn Gunnarsson skoraði2 mörk fyrir Ringsted sem tap-
aði fyrir Viborg á útivelli, 28:24, í
dönsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik í gærkvöld. Ringsted er á botni
deildarinnar með eitt stig eftir átta
leiki.
Bjarki Sigurðsson, fyrrum lands-liðsmaður í handknattleik og
núverandi þjálfari Aftureldingar,
skoraði hvorki fleiri né færri en 15
mörk í gærkvöld þegar B-lið Aftur-
eldingar vann B-lið Fram, 33:31, í
hörkuleik í bikarkeppni HSÍ að
Varmá í Mosfellsbæ. Með sigrinum
er Afturelding-B komin í 8-liða úr-
slit og Mosfellingar gætu átt tvö lið
þar því A-lið félaganna mætast einn-
ig í keppninni, í Safamýrinni í dag.
Paulo Ferreira, portúgalskiknattspyrnumaðurinn hjá
Chelsea, verður frá keppni næstu
fimm til sex vikurnar vegna ökkla-
meiðsla.
Fólk sport@mbl.is
Bæði lið hafa unnið átta leiki og gert
tvö jafntefli en Arsenal er taplaust á
meðan United er með einn ósigur á
bakinu, gegn Manchester City í
þriðju umferðinni. Frá þeim tíma
hefur United hins vegar unnið átta
deildaleiki í röð.
„Þetta er stórleikur enda hefur
báðum liðum gengið afar vel og allir
vilja sjá hvort liðið er betra þessa
stundina. Bæði lið hafa spilað mjög
góðan og skemmtilegan fótbolta og
þetta verður örugglega magnaður
leikur. Það er mikil hefð fyrir stór-
leikjum á milli þessara félaga, við
höfum tekist vel á undanfarin tíu ár
og leikir liðanna hafa ávallt verið
góðir og mikil barátta í gangi. Á ár-
um áður snerist þetta fyrst og
fremst um líkamleg átök en nú
leggja bæði liðin megináhersluna á
tæknina og góðan fótbolta,“ sagði
Wenger en hans menn eru ósigraðir
í 17 leikjum í röð og hafa leikið ein-
staklega vel það sem af er tíma-
bilinu.
„Við misstum aðeins móðinn und-
anfarin tvö ár og stóðum efstu lið-
unum of langt að baki, en nú erum
við komnir aftur í slaginn um meist-
aratitilinn. Þar á hins vegar margt
eftir að gerast. Liverpool og
Chelsea munu bæði blanda sér í þá
baráttu og svo hefur Blackburn
staðið sig geysilega vel,“ sagði Wen-
ger á fréttamannafundi í gær.
Ég sagði að Arsenal yrði
sterkara án Henrys
„Ég reiknaði með því fyrir tíma-
bilið að Arsenal yrði með í barátt-
unni um titilinn í ár og þessa stund-
ina að minnsta kosti hef ég rétt fyrir
mér. Ég sagði að lið Arsenal yrði
sterkara án Thierrys Henrys og ég
tel að Wenger hafi gert rétt með að
láta hann fara. Tími hans hjá félag-
inu var liðinn. Gott gengi liðsins
kemur mér alls ekki á óvart og ég
sagði í sumar að Arsenal myndi
aldrei láta það gerast aftur að vera
20 stigum á eftir Manchester Unit-
ed.
En tímabilið er langt og önnur fé-
lög eiga enn möguleika á að blanda
sér í baráttuna. Ég þekki það af
reynslunni að það er mjög erfiður
tími framundan fyrir Arsenal, enda
þótt liðið sé líklegt til að vera með í
slagnum veturinn á enda,“ sagði
Ferguson á fréttamannafundi á Old
Trafford í gær, áður en hann fór af
stað með lið sitt til London.
Wenger með betri útkomu
Wenger hefur forystu í innbyrðis
leikjum liðanna en 13 sinnum hafa
leikmenn hans fagnað sigri en læri-
sveinar Fergusons níu sinnum. Í úr-
valsdeildinni standa þeir jafnir að
vígi. Báðir hafa unnið átta leiki og
sex sinnum hefur orðið jafntefli.
Ferguson hefur unnið Englands-
meistaratitilinn níu sinnum þau 21
ár sem hann hefur stýrt liðinu en
Wenger þrisvar sinnum þau 11 ár
sem hann hefur verið við stjórnvöl-
inn hjá Lundúnaliðinu.
Manchester United og Arsenal
eru sigursælustu liðin frá stofnum
úrvalsdeildarinnar. United hefur
unnið 375 leiki og hlotið samtals
1.258 stig en Arsenal hefur unnið
316 leiki og innbyrt 1.107 stig.
Í lið Arsenal vantar í dag þá Rob-
in van Persie og Phillipe Senderos
en hjá United vantar Gary Neville,
Mikael Silvestre, Paul Scholes og
Park Ji-Sung.
Stórleikur helgarinnar í ensku úrvals-
deildinni á Emirates-leikvanginum
Sir Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United.
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal.
Veltir United
Arsenal
af toppnum?
MANCHESTER United á möguleika á að velta Arsenal af toppi ensku úr-
valsdeildarinnar í dag þegar félögin mætast í sannkölluðum stórleik á Em-
irates-leikvanginum í London, heimavelli Arsenal, klukkan 12.45. Liðin eru
jöfn að stigum en Arsenal á leik til góða og myndi því standa afar vel að
vígi, takist liðinu að innbyrða öll þrjú stigin.
LBERTO, miðvallarleikmaður Arsen-
31 árs, lyfti meðalaldri stráklingaliðs
enal sem lagði Sheffield United að
i, 3:0, í 16 liða úrslitum deildabik-
eppninnar vel upp, en meðalaldur
ins í leiknum var 20,1 ár. Með liðinu
u þrír 17 ára og einn 18 ára. Hinn
refnilegi enski miðjumaður, Henri
nsbury, 17 ára, kom inn á sem vara-
ður og í fremsu víglínu var Theo Wal-
t, 18 ára.
ræðurnir Justin, 23 ára, sem lék sem
miðvörður, og Gavin Hoyte, 17 ára, sem
var varamaður, voru í leikmannahópn-
um. Þeir hafa báðir leikið með enskum
unglingalandsliðum. Fyrir utan þessa
fjóra Englendinga er stór hópur af ensk-
um unglingalandsliðsmönnum hjá Arsen-
al, sem eiga framtíð fyrir sér. Það er
greinilegt að Arsene Wenger, sem hefur
verið deilt á fyrir að vera ekki með enska
leikmenn í liðu sínu, er að vinna gott
starf – að leggja til unga leikmenn í
framtíðarlandslið Englands.
Ungir Englendingar hjá Arsenal
KIST Ryan Giggs að skora fyrir Man-
ster United í dag í stórleik ensku úr-
sdeildarinnar við Arsenal verður hann
fti leikmaður félagsins sem nær að
ra 100 mörk fyrir lið þess í efstu deild
nglandi. Um leið verður hann fyrsti
ðurinn í 12 ár sem nær þeim áfanga
Manchester United. Síðast var það
rk Hughes, núverandi knatt-
rnustjóri Blackburn, sem komst í 100
rka klúbbinn.
obby Charlton er markahæstur í fyrr-
indum klúbbi. Hann skoraði 199 mörk
í efstu deild á Englandi á 17 ára ferli með
Manchester United í 606 leikjum. Aðrir
eru: Jack Rowly (1938-1955) 173 mörk,
Denis Law (1962-1973) 171 mark, Dennis
Viollet (1953-1962) 159 mörk, George
Best (1963-1974) 137 mörk, Stan Pearson
(1938-1954) 126 mörk, Mark Hughes
(1983-1985/1988-1995) 119 mörk, David
Herd (1961-1968) 114 mörk, Tommy Tay-
lor (1953-1958) 112 mörk, Joe Spence
(1919-1933) 106 mörk.
Giggs hefur leikið með aðalliði Man-
chester United frá 1991.
Giggs í 100 marka klúbbinn?
Reuters
eir góðir Argentínumaðurinn Carlos Tévez og Ryan Giggs fagna marki.
Sá besti! Sá flottasti!
Ný bók um undrabarnið
Cristiano Ronaldo
Þetta er bók sem allir
knattspyrnuunnendur
verða að eiga.
holar@simnet.is
M
bl
9
31
16
3