Morgunblaðið - 03.11.2007, Side 4
4 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
STJÖRNUMENN, nýliðarnir í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik,
sögðu í gær upp samningum við tvo
af þremur erlendum leikmönnum
sínum og þeir eru á leið af landi
brott. Það eru Bandaríkjamaðurinn
Steven Thomas og Makedóníumað-
urinn Muhamed Taci, en þeir léku
sinn síðasta leik með liðinu þegar
það vann Þór frá Akureyri, 85:78, í
fyrrakvöld.
Thomas var áberandi í þeim leik,
skoraði 23 stig og tók 11 fráköst,
en Taci, sem er 2ja metra hár fram-
herji, aðeins
skoraði 5 stig í
leiknum.
„Þetta eru
góðir körfubolta-
menn en við
ákváðum að láta
þá fara þar sem
þeir voru of
sveiflukenndir í
leikjunum. Báðir
gátu skorað 30
stig í einum leik og fimm í þeim
næsta. Nýliðar eins og við hafa
ekki efni á slíku og þeir reyndust
ekki nógu góðir varnarmenn. Það
var ekki einleikið að þeir sem léku
gegn Thomas voru bestu menn
sinna liða hverju sinni,“ sagði
Bragi Magnússon þjálfari Stjörn-
unnar við Morgunblaðið í gær-
kvöld.
Stjarnan leikur næst við Njarð-
vík á fimmtudagskvöldið kemur og
Bragi sagði að stefnt væri að því að
nýr Bandaríkjamaður yrði kominn
til félagsins í tæka tíð fyrir þann
tíma en leit væri hafin.
Stjarnan sendir Thomas og Taci heim
og leitar að nýjum útlendingi
Steven
Thomas
ÍR-INGAR tefldu fram nýjum
bandarískum leikmanni í fyrrakvöld
þegar þeir biðu lægri hlut fyrir
Keflavík, 110:79, í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik. Sá heitir Ray Cunn-
ingham og hann kom nánast beint úr
fluginu í leikinn því hann kom fyrst
til landsins fyrr um daginn. Cunn-
ingham spilaði í 15 mínútur, skoraði
5 stig og tók 4 fráköst. Hann á að
leysa af hólmi Sonny Troutman,
landa sinn, sem lék fyrstu þrjá leiki
ÍR-inga í haust en stóð ekki undir
væntingum og var látinn fara.
Cunningham er þrítugur að aldri,
framherji, um tveir metrar á hæð, og
spilaði með Minot SkyRockets í
bandarísku CBA-deildinni á síðasta
keppnistímabili en hann hefur ekki
leikið áður í Evrópu.
Sendu Úkraínumann heim
Í gær urðu svo frekari umskipti
hjá ÍR-ingum en þeir létu þá úkra-
ínska leikmanninn Roman Moniak
fara. Hann reyndist þeim enginn
happafengur, spilaði þrjá leiki og
skoraði ekki nema tvö stig samtals,
gegn Skallagrími. Moniak spilaði í
fimm mínútur gegn Keflavík í fyrra-
kvöld, tók þrjú fráköst en skoraði
ekki stig.
Umskipti hjá ÍR-ingum
Helena Sverr-isdóttir,
landsliðskona í
körfuknattleik
sem áður lék með
Haukum, skoraði
níu stig í sínum
fyrsta leik með
Lady Frogs í há-
skólakeppninni í
Bandaríkjunum. Helena og sam-
herjar unnu stórsigur á All-Stars,
78:47.
Þrátt fyrir að sterkustu hand-knattleikslið Þýskalands hafi
boðið landsliðsmanninum Holger
Glandorf gull og græna skóga fyrir
að koma til þeirra hefur Glandorf
ákveðið að leika áfram með uppeldis-
félagi sínu, Nordhorn. Glandorf er
fæddur í nágrenni Nordhorn og hef-
ur leikið með liðinu frá barnæsku.
Þessi afstaða Glandorf þykir vera
einstök nú um stundir.
Þýska handknattleiksliðið Flens-burg ætlar ekki að endurnýja
samning sinn við þýska landsliðs-
manninn Frank von Behren þegar
samningur hans rennur út í vor.
Behren hefur verið meira og minna
meiddur í tvö ár og hafa forráða-
menn Flensburg misst þolinmæðina.
Hugsanlegt er talið að Behren gangi
til liðs við uppeldisfélag sitt, GWD
Minden.
Handknattleiksmaðurinn JanisGrisanovs sem ÍBV leysti und-
an samningi fyrir nokkrum dögum
hefur gengið í raðir ÍR sem leikur í
næstefstu deild.
Kristian Kjelling, landsliðsmaðurNoregs í handknattleik, var
valinn besti leikstjórnandinn á fjög-
urra þjóða móti í handknattleik í
Túnis fyrir viku. Gunnar Petersson,
landsliðsþjálfari Norðmanna, undr-
ast valið mikið og er ekki einn um
það sökum þess að Kjelling lék ekki
með norska landsliðinu í keppninni.
Vegna meiðsla fylgdist Kjelling með
leikjum mótsins frá áhorfendastæð-
unum.
Finnbogi Llo-rens, knatt-
spyrnumaður frá
Akranesi, hefur
skrifað undir nýj-
an samning við
HK til þriggja ára.
Finnbogi hefur
spilað með Kópa-
vogsfélaginu und-
anfarin tvö ár og var einn lykilmanna
þess þegar það vann sig upp í úrvals-
deildina í fyrra, og hélt sér þar í ár.
Skagamenn hafa samið við tvo afefnilegustu knattspyrnumönn-
um sínum til tveggja ára. Það eru
Guðmundur Böðvar Guðjónsson, 18
ára, sem á að baki 9 leiki með ÍA í
efstu deild, og Ragnar Leósson, sem
er aðeins 16 ára en spilaði þó tvo leiki
í úrvalsdeildinni í sumar.
Fólk sport@mbl.is
Ágúst segist hafa fengið í hendur
upptöku af leik serbneska liðsins og
það virðist vera blanda af yngri efni-
legri leikmönnum og eldri og reynd-
ari, þar á meðal Liljana Knesevic,
sem hefur verið ein fremsta hand-
boltakona Serba á síðari árum.
„Knesevic leikur á miðjunni og er
yfirburðamaður í liðinu. Hún er
potturinn og pannan í öllu spili liðs-
ins. Þannig að það er ljóst að við
verðum að leggja áherslu á að
stöðva hana til þess að eiga mögu-
leika á að komast áfram,“ sagði
Ágúst.
Knesevic skoraði 56 mörk í fyrstu
fjórum leikjum Krusevac í serb-
nesku deildinni og því ljóst að hún
getur orðið Valsliðinu erfið nái hún
sér á strik.
„Liðið Krusevac er í uppbyggingu
og hefur ekki farið vel af stað í serb-
nesku deildinni og er um miðja
deildina. Þetta virðist vera nokkuð
vel spilandi lið en miðað við þetta
sem ég sá þá tel ég okkur eiga ágæt-
is möguleika á að komast áfram en
það er klárt mál að við verðum að
eiga tvo góða leiki til þess að það
verði möguleiki. Að minnsta kosti
verðum við að leika betur en í síð-
asta leik í deildinni, gegn Haukum,“
sagði Ágúst.
„Verkefnið er skemmtilegt. Það
er ekki á hverjum degi sem við leik-
um Evrópuleiki og stefna okkar er
að sjálfsögðu að komast áfram í
keppninni, en það er langt í frá
nokkuð sjálfgefið,“ segir Ágúst sem
stýrði Valsliðinu í undanúrslit í
Áskorendakeppninni fyrir tveimur
árum. Markmiðið nú er að sjálf-
sögðu að komast sem lengst. „Marg-
ir leikmanna minna hafa góða
reynslu, bæði af Evrópukeppninni
fyrir tveimur árum og eins eftir að
hafa leikið með landsliðinu þannig
að ég tel liðið vera reiðubúið í þetta
verkefni. En við komust ekki í gegn-
um það nema að leika vel og fá góð-
an stuðning frá áhorfendum í báðum
leikjum,“ segir Ágúst og bætir við
að miðaverði á leikina sé stillt í hóf,
aðeins kosti 500 krónur inn fyrir
eldri en 16 ára, en frítt fyrir þá sem
eru undir þeim aldri. Eins og fyrr
segir þá fara leikirnir fram í Voda-
fone-höllinni, nýju íþróttahúsi Vals
við Hlíðarenda.
„Við verðum að njóta þess að spila
og gera allt sem hægt er til þess að
vinna. Ég tel okkur hafa reynslu-
mikið lið sem á að vera tilbúið í leiki
af þessu tagi,“ sagði Ágúst.
Forráðamenn Krusevac-liðsins
óskuðu í byrjun eftir því við Val að
báðir leikirnir færu fram ytra, í
bænum Krusevac sem er 150 km
fyrir utan Belgrad. „Það tók sinn
tíma að ná sambandi við Serbana
þar sem þeir tala ekki mikið ensku.
En allt hafðist þetta að lokum og eft-
ir að samningaviðræður fóru af stað
reyndist ekki stórt mál að fá báða
leikina hingað heim. Þetta gekk
fremur hratt fyrir sig,“ sagði Ágúst.
Leikmenn Krusevac komu til
landsins á fimmtudagskvöldið og
höfðu góðan tíma til að búa sig undir
leikina í gær og fram eftir degi í dag.
„Ég reikna með að við förum
hægt inn í leikinn í dag og sjáum til
hvaða möguleikar opnast. Samt
verðum við að keyra upp hraðann sé
þess kostur, því hraður leikur er tví-
mælalaust okkar styrkur,“ segir
Ágúst sem telur serbneska liðið vera
ívið hávaxnara en Valsliðið en ekki
sé munurinn meiri en svo að hann
telji að það verði til neinna vand-
ræða fyrir Valsliðið.
Íslandsmeistarar Stjörnunnar
leika í Frakklandi
Valur er ekki eina íslenska
kvennaliðið sem verður í eldlínunni í
Evrópukeppninni í handknattleik
um helgina. Í dag leika Íslands-
meistarar Stjörnunnar fyrra sinni
við franska liðið US Mios Biganos í
EHF-keppninni, 3. umferð. Leikið
verður í bænum Mios, sem er
skammt suðvestur af Bordeaux. Síð-
ari leikur liðanna fer fram hér á
landi á sunnudaginn eftir viku.
Morgunblaðið/Sverrir
Þjálfarinn Ágúst Jóhannsson, þjálfari Valsstúlkna, stjórnar sínum mönnum í leik. Valur leikur tvo Evrópuleiki að Hlíðarenda um helgina.
Stefnum á að komast
áfram í keppninni
„ÉG Á von á tveimur hörkuleikjum
þar sem ég tel okkur eiga mögu-
leika á að komast áfram í næstu um-
ferð með yfirvegaðri spilamennsku
og góðum stuðningi,“ segir Ágúst
Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs
Vals í handknattleik sem í dag og á
morgun leikur við serbneska liðið
Zork Napredak Krusevac í 3. um-
ferð Áskorendakeppni Evrópu.
Báðir leikirnir fara fram á heima-
velli Vals. Í dag verður flautað til
leiks klukkan 18.30 en klukkan 17 á
morgun en síðari leikurinn er
heimaleikur Vals.
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Liljana Knesevic, ein fremsta handknattleikskona Serbíu, leikur hér á landi