Morgunblaðið - 20.12.2007, Side 1
íþróttir
Ágúst Björgvinsson tekur við kvennalandsliðinu í körfuknattleik >> 4
STJARNAN SKEIN SKÆRT
FRAM SÁ EKKI TIL SÓLAR Á HEIMAVELLI – VALUR
NÁÐI FJÓRÐA SÆTINU EFTIR SIGUR GEGN HK >> 2-3
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
,,Ég er búinn að fá jólagjöfina í ár.
Að fá að starfa á næst stærsta knatt-
spyrnumóti í heimi er mikill heiður
og þetta verður mikil reynsla fyrir
mig,“ sagði Kristinn við Morgun-
blaðið í gær en hann var þá nýbúinn
að fá fréttirnar um að hann hefði
verið valinn til starfa á Evrópu-
mótinu.
Kristinn og sjö aðrir dómarar
verða svokallaðir fjórðu dómarar í
riðlakeppninni en Evrópumótið
hefst 7. júní og lýkur með úrslitaleik
þann 29. júní. 16 þjóðir leika til úr-
slita um Evrópumeistaratitlinn þar
sem Grikkir eiga titil að verja.
,,Það verður frábært að fá að
starfa með þeim bestu í Evrópu og
ég er gríðarlega ánægður. Það er
ólíklegt að við sem störfum sem
fjórðu dómarar á mótinu verðum
lengur en í riðlakeppninni, því eftir
riðlakeppnina býst ég fastlega við að
þeir dómarar sem lenda í niður-
skurðinum sinni hlutverki fjórða
dómara,“ sagði Kristinn.
Kristinn mun standa í ströngu
fyrir mótið því allir tólf dómararnir
ásamt aðstoðardómurunum og
fjórðu dómurunum munu þurfa að
þreyta ýmis próf, bæði skrifleg og
verkleg.
,,Þetta er líka sárabót fyrir Ever-
ton-leikinn fræga og segir manni að
það hafi gengið vel þrátt fyrir ein
stór mistök,“ sagði Kristinn en eins
og mönnum er í fersku minni urðu
honum og Gunnari Gylfasyni á mis-
tök þegar þeir dæmdu vítaspyrnu á
Zenit í leik liðsins gegn Everton á
Goodison Park og í kjölfarið var leik-
manni liðsins vikið af velli. Þetta
voru einu mistök Kristins í leiknum
og þau virðast ekki hafa haft nein
áhrif því hann fékk góða einkunn hjá
eftirlitsdómaranum fyrir frammi-
stöðu sína og er nú verðlaunaður
með því að starfa á Evrópumótinu.
Þá má fastlega reikna með því að
hann fái fleiri verkefni eftir áramót-
in, hugsanlega í 32-liða úrslitum
UEFA-keppninnar.
Þeir tólf dómarar sem hafa verið
valdir til að dæma á Evrópumótinu
eru: Konrad Plautz, Frank De
Bleeckere, Howard Webb, Herbert
Fandel, Kyros Vassaras, Roberto
Rosetti, Pieter Vink, Tom Henning
Øvrebø, Lubos Michel, Manuel
Enrique Mejuto González, Peter
Fröjdfeldt, Massimo Busacca
Kristinn til
starfa á EM
KRISTINN Jakobsson, knatt-
spyrnudómari, hefur verið valinn
til starfa í úrslitakeppni Evrópu-
móts karlalandsliða í knattspyrnu
sem fram fer í Sviss og Austurríki
næsta sumar en dómaranefnd evr-
ópska knattspyrnusambandsins til-
kynnti í gær hvaða dómarar hafa
verið valdir til að sinna dómgæslu á
mótinu. Þetta er mikil viðurkenn-
ing fyrir Kristin, sem mun sinna
starfi fjórða dómara ásamt sjö öðr-
um dómurum.
Búinn að fá jólagjöfina segir Kristinn
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
Emil meiddist í leik Reggina gegn
Sampdoria þann 1. desember og fékk
þá þungt högg framan á læri. Reikn-
að var með að hann yrði tilbúinn á ný
fyrir leik liðsins gegn Catania á Þor-
láksmessu en læknisskoðun á þriðju-
dag leiddi í ljós að það væri ekki inni í
myndinni. Emil missti jafnframt af
bikarleik Reggina gegn meisturum
Inter Mílanó í gærkvöldi.
„Ég var sendur til læknis í Róm
þar sem þetta lagaðist ekki eins fljótt
og búist var við. Menn voru smeykir
við að þetta gæti verið eins alvarlegt
og hjá Marco Materazzi, leikmanni
Inter, sem var frá í þrjá mánuði og
þurfti að fara í aðgerð eftir að hafa
fengið högg á lærið í haust. Í mynda-
tökunni kom í ljós að það er enn
blæðing til staðar í lærinu, það kom
smá rifa á vöðvann, og ég verð að
hvíla mig í tvær vikur í viðbót. Það er
hinsvegar lán í óláni að jólafríið er að
skella á, auk þess sem leik við AC
Milan, sem ég hefði misst af, var
frestað fyrr í þessum mánuði,“ sagði
Emil við Morgunblaðið í gær.
„Svo er alls ekki víst að ég hefði
leikið þennan bikarleik gegn Inter.
Þjálfarinn ákvað að hvíla 5-6 fasta-
menn vegna þess að leikurinn gegn
Catania í deildinni á sunnudaginn
skiptir okkur öllu máli. Það má því
segja að ég missi bara af tveimur
leikjum á sex vikum, gegn Parma um
síðustu helgi og gegn Catania. Ef allt
er með felldu spila ég með þegar við
mætum Empoli á útivelli 13. janúar,“
sagði Emil sem er á leið heim í
jólafrí.
„Það verður yndislegt að koma
aftur heim. Ég verð í tíu daga jólafríi
og á að mæta á ný til æfinga 2. jan-
úar. Vonandi tekst liðinu bara að
vinna Catania á sunnudaginn svo við
verðum ekki í of slæmri stöðu þegar
deildin byrjar aftur. Það verður
mjög erfitt að vera á meðal áhorf-
enda á þeim leik.“
Reggina er næstneðst með 10 stig,
hefur aðeins náð að vinna einn leik af
fimmtán og gert sjö jafntefli. Liðið er
fjórum stigum á eftir næstu liðum,
Siena, Livorno og Empoli, en á einn
leik til góða.
Emil frá keppni fram í janúar
Hefur ekki jafnað sig af meiðslum í læri Gat ekki leikið gegn Inter í gærkvöldi
EMIL Hallfreðsson, landsliðsmaður
í knattspyrnu, leikur ekki með liði
sínu, Reggina, í ítölsku A-deildinni
á ný fyrr en keppni þar hefst aftur
eftir jólafríið, þann 13. janúar.
Úr leik Emil Hallfreðsson.
AP
Bardagi Michael Ballack og félagar hans í Chelsea lögðu Liverpool 2:0 í gær í 8-liða úrslitum enska deildabikars-
ins. Chelsea mætir Everton í undanúrslitum en Lundúnaliðin Arsenal og Tottenham drógust saman. »3
fimmtudagur 20. 12. 2007
íþróttir mbl.is