Morgunblaðið - 20.12.2007, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
HINN danski landsliðsþjálfari Kúv-
eit, Lars Friis-Hansen, er hvergi
banginn þótt Alþjóðahandknatt-
leikssambandið, IHF, hafi ákveðið
að leikið verði að nýju í forkeppni
Ólympíuleikanna í handknattleik í
Asíu. Undir stjórn Hansens vann
Kúveit Suður-Kóreu, 28:20, í um-
deildum úrslitaleik Asíukeppninnar
í haust og tryggði sér þar með sæti
í handknattleikskeppni Ólympíu-
leikanna. „Við vinnum Suður-
Kóreumennina aftur,“ sagði Han-
sen í samtali við Politiken í gær og
bætir við að hann telji landslið sitt
ekki munu verða í erfiðleikum með
að vinna. „Ég reikna ekki með að
það vefjist fyrir okkur að vinna þar
sem leikmenn Suður-Kóreu hafa
engan fyrir landsliðinu. Þeir hugsa
fyrst og fremst um félagslið sín í
Evrópu. Þeir voru áhugalausir og
slakir í leiknum við okkur,“ segir
Hansen sem sá ekkert athugavert
við dómgæslu jórdönsku dómar-
anna sem dæmdu fyrrgreindan úr-
slitaleik. „Það var eitthvað um at-
vik sem gátu fallið hvorum megin
sem var en ekkert út á dómgæsluna
að setja og hún var alls ekki eins
slæm og stundum var á Balkan-
skaganum hér á árum áður,“ segir
Hansen kokhraustur. „Kóreumenn-
irnir voru áhugalausir fyrir leikinn
enda kom það á daginn að þeir léku
afar illa gegn okkur. Þess vegna
töpuðu þeir leiknum.“
Tor Lian, forseti Handknattleiks-
sambands Evrópu, EHF, segir við
Politiken að niðurstaða IHF hafi
verið sú að fyrrgreint jórdanskt
dómarapar hafi ekki haft réttindi
til þess að dæma úrslitaleikinn,
enda hafi það ekki svokallað IHF-
próf dómara. Lian hefur eftir for-
manni dómaranefndar IHF að
frammistaða dómaranna í úrslita-
leiknum hafi verið „skandall“.
Þjálfari Kúveita er kokhraustur
HANNES S. Jónsson, formaður
Körfuknattleikssambandsins, sagði
aðspurður á blaðamannafundi sam-
bandsins í gær að sambandið myndi
gera allt sem það gæti til að gera
landslagið þannig að allir þeir sem
valdir yrðu í landsliðið gætu verið
með.
Í fyrra heltust nokkrir úr lestinni,
meðal annars sökum þess hversu dýrt
var fyrir þá að koma sér frá sínum
heimabæ og á landsliðsæfingarnar.
„Það voru nú ýmsar ástæður fyrir því
að menn gáfu ekki kost á sér í lands-
liðið. En það er alveg klárt að við
munum gera okkar landsliðsmönnum
fært að sækja landsliðsæfingar hjá
okkur. Við munum funda með þeim
leikmönnum sem landsliðsþjálfararn-
ir velja og fara yfir þessi mál. Við
munum búa til betra umhverfi fyrir
þá sem valdir verða,“ sagði Hannes.
Hann sagði líka vera vilja fyrir því
að fara meira með landsliðsæfingar út
á land. „Við höfum hug á að fara
meira út á land, kannski eina helgi
eða svo, en við erum auðvitað upp á
bæjarfélögin og íþróttafélögin komin
með að fá inni í íþróttahúsum, enda er
ekki til neinn þjóðarleikvangur þar
sem landsliðin geta æft,“ sagði Hann-
es S. Jónsson.
Vonandi verða allir með
Rógvi Jacob-sen, lands-
liðsmaður Fær-
eyja í knatt-
spyrnu og
fyrrverandi leik-
maður KR, hefur
verið seldur frá
HB í Þórshöfn til
norska 1. deildar
liðsins Hödd. Umboðsmaður hans,
Jákup í Stórustovu, sagði við dag-
blaðið Sosialurin að félög í Eng-
landi, Ítalíu, Belgíu og Hollandi
hefðu haft áhuga á að skoða Rógva
en hann hefði hafnað því að fara
eitthvert til reynslu. Tilboð Hödd
hafi líka verið svo gott að hann og
HB hafi ákveðið að taka því.
Óðinn Björn Þorsteinsson kúlu-varpari og Þórey Edda Elís-
dóttir stangarstökkvari, bæði úr
FH, hafa verið valin frjálsíþrótta-
maður og frjálsíþróttakona ársins
2007 af stjórn Frjálsíþróttasam-
bands Íslands.
Guðmundur Pétursson verðureftirlitsmaður UEFA, Knatt-
spyrnusambands Evrópu, í leik
AEK og Villarreal frá Spáni sem
fram fer í Aþenu í kvöld. Hann er
liður í lokaumferð riðlakeppninnar
í UEFA-bikarnum og hefur því úr-
slitaáhrif á hvaða lið fara áfram og
komast í 32 liða úrslitin.
Enska blaðið The Sun sagði fráþví í gær að Newcastle, Man-
chester City og West Ham hefðu öll
áhuga að fá Eið Smára Guðjohnsen
til liðs við sig þegar félagsskipta-
glugginn opnast í janúar. Eiður
sagði hinsvegar við spænska blaðið
El Periodico Barcelona í gær að
hann hefði engan áhuga á að yfir-
gefa félagið.
Arsene Wen-ger, knatt-
spyrnustjóri Ars-
enal, var stoltur
af ungu strákun-
um sínum eftir
að þeir lögðu
Blackburn að
velli, 3:2, og
tryggðu sér rétt
til að leika í undanúrslitum deilda-
bikarkeppninnar í fjórða skipti á
fimm árum. Meðalaldur byrjunar-
liðs Arsenal var rúm 20 ár, en hann
lækkaði við hverja skiptingu og var
orðinn rúmlega 19 ár þegar leik
lauk. Fjórir 17 ára leikmenn léku
með Arsenal. „Strákarnir vilja
vinna bikarinn og það geta þeir
gert,“ sagði Wenger.
Vanderlei Luxemburgo, fyrr-verandi landsliðsþjálfari Bras-
ilíu í knattspyrnu, hefur tekið við
Palmeiras í heimalandi sínu í
fjórða sinn á þjálfaraferlinum.
Undir hans stjórn vann liðið
meistaratitil í Brasilíu 1993 og
1994. Vonast forráðamenn Palmei-
ras til að Luxemburgo endurtaki
leikinn.
Fólk sport@mbl.is
Ágúst gerði fjögurra ára samning
við Körfuknattleikssambandið og
sagðist hann hlakka til að takast á
við það verkefni. „Ég hlakka til að
takast á við þetta verkefni. Ég byrj-
aði sem aðstoðarþjálfari hjá ung-
lingalandsliðunum árið 2001 og tók
síðan við 18 ára liðinu 2003 auk þess
að vera með kvennalið Hauka síð-
ustu þrjú árin. Ég þekki því ágæt-
lega til í kvennaboltanum og flestar
þær stelpur sem verða í landsliðinu
hafa væntanlega verið hjá mér í
yngri liðunum,“ sagði Ágúst í gær
þegar skrifað var undir saminginn.
„Áherslurnar hjá mér hafa verið
þannig að liðin mín hafa kannski æft
aðeins meira en gengur og gerist og
landsliðið mun líka æfa meira en
verið hefur. Landsliðshópurinn mun
hittast núna um hátíðirnar og þar
munum við ræða hverjar eru tilbún-
ar að vera með í þessu verkefni og
það er von mín að allar stelpurnar
gefi kost á sér. Síðan ætlum við að
hittast tvisvar eða þrisvar í vetur og
vera með svona móralska fundi. Æf-
ingar hefjast síðan þegar deildinni
lýkur í vor og æft verður fram að
Evrópukeppninni, en auðvitað með
fríum því stelpurnar þurfa sitt frí og
hvíld,“ sagði Ágúst.
Íslenska kvennalandsliðið tók í
fyrsta sinn þátt í Evrópukeppninni
síðast og búið er að skrá liðið til
keppni á nýjan leik. Dregið verður í
riðla 16. febrúar, bæði í Evrópu-
keppni karla og kvenna, en bæði lið
eru í svonefndri B-deild.
Ekki lengi að hugsa mig um
„Ég var ekki lengi að hugsa mig
um þegar leitað var til mín um að
halda áfram. Allt umhverfið hjá
sambandinu er til fyrirmyndar og
allt er unnið af fagmennsku auk þess
sem það er mikill hugur í mönnum
að lyfta þessu hærra en áður. Lands-
liðsnefnd og stjórn KKÍ gera vel og
ég er spenntur að halda áfram,“
sagði Siguður þegar hann skrifaði
undir tveggja ára samning. Hann
viðurkenndi þó að það hefði aðeins
komið upp í hugann að hætta, en það
hefði bara verið í skamma stund.
Held við getum farið lengra
„Að sjálfsögðu held ég að við get-
um komist lengra, annars hefði ég
ekki haldið áfram. Uppistaðan í lið-
inu er ungir menn sem eru á leiðinni
á besta aldurinn í körfunni. Þeir eru
komnir með mikla reynslu og með
vinnu og einbeitingu er alveg klár-
lega hægt að fara lengra.
En menn verða að gera sér grein
fyrir því að það að fara lengra yrði
gríðarlegt skref fyrir íþróttina. Það
þýðir einfaldlega að vera meðal 24
bestu þjóða Evrópu og það er
kannski stærra en menn gera sér
grein fyrir,“ sagði Sigurður.
Fyrirkomulagið í Evrópukeppn-
inni í körfu hefur oft verið gagnrýnt
enda er það þannig að leikið er í
nokkrum stuttum törnum sem flest-
ir telja ekki sniðugasta fyrirkomu-
lagið.
Fáránlegt fyrirkomulag
„Þetta er auðvitað hreint út sagt
fáránlegt. Það eru stóru þjóðirnar
sem ráða anski miklu í sambandi við
þetta. Ég finn því allt til foráttu en
ræð auðvitað engu þar um og við
sættum okkur bara við þetta á með-
an kerfið er svona. Það er auðvitað
miklu auðveldara og skemmtilegra
ef þetta væri eins og í fótboltanum,
öll lið sett í einn pott og dregið. Þá
spila allir við alla í riðlunum og þar
er engin B-keppni. Það þykir ekki
spennandi en ef menn rýna í keppn-
ina hjá okkur er B-keppnin rosalega
sterk enda allir þar sem eru að
reyna að komast upp í hóp þeirra 24
bestu í körfunni í Evrópu. Bæði
keppnisfyrirkomulagið og nafnið á
þessu er furðulegt,“ sagði Sigurður.
Verður hörkusamkeppni
Hann sagðist búast við að hópur-
inn yrði svipaður hjá sér og verið
hefði. „Það voru margir sem komu
að þessu í fyrra og það er fullt af
góðum mönnum sem voru ekki með í
fyrra en munu klárlega koma inn
núna. Þannig að það verður hörku-
samkeppni og bara skemmtilegt.
Það er gott að vera með íslenska
leikmenn erlendis og vonandi fara
fleiri út því það er fullt af strákum
hér sem eru nægilega góðir til að
spila erlendis. Það er reyndar líka
kostur að hafa sterka menn hér
heima því það gerir deildina hérna
sterkari en ella og hún er mjög sterk
hér á landi,“ sagði Sigurður.
Morgunblaðið/Frikki
Ráðnir Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, innsiglar samninginn við landsliðsþjálfarana, Ágúst Björgvinsson og Sigurð Ingimundarson.
Ágúst tekur við konunum
og Sigurður með karlana
ÁGÚST Björgvinsson hefur verið
ráðinn landsliðsþjálfari kvenna í
körfuknattleik og tekur hann við
starfinu af Guðjóni Skúlasyni. Sig-
urður Ingimundarson skrifaði í gær
undir tveggja ára samning um
þjálfun karlalandsliðsins, en hann
hefur verið með liðið síðustu fjögur
árin. Ágúst hefur verið með lands-
liðs skipað stúlkum sem eru 18 ára
og yngri og stærstur hluti þeirra
sem koma til með að verða í lands-
liði hans hafa leikið undir hans
stjórn í yngri landsliðum Íslands.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is