Vikublaðið - 28.07.1997, Page 7
28. júlí 1997
fttasMsaöQasiGp
EFTIRSPRETTIR
Rauði krossinn gegn
jarðsprengjum
Nýlega lagði Rauði kross íslands
fram fjórar milljónir íslenskra króna
til Alþjóðaráðs Rauða krossins.
Fénu verður varið til hjálpar þeim er
verða fyrir barðinu á þeim óhugnaði
sem jarðsprengjur eru og til að efla
fyrirbyggjandi aðgerðir og fræðslu
um hættuna sem af þeim stafar.
Alþjóða Rauði krossinn starfar nú
í 20 löndum þar sem hann veitir
læknisaðstoð, annast endurhæftngu
og smíði gervilima fyrir fómarlömb
jarðsprengna.
Baráttan við þennan ógnvald felst
þó ekki eingöngu í aðstoð við þá
sem þegar hafa slasast. Reynt er eft-
ir mætti að gera sprengjur sem enn
liggja í jörðu óvirkar og fræða íbú-
ana um hættuna, ekki síst bömin. En
þrátt fyrir umfangsmikið starf er enn
langt í land. Tuttugustu hverju mín-
útu alla daga ársins deyr eða ör-
kumlast einhver af völdum jarð-
sprengna. Þetta þýðir að 800 manns
deyja á mánuði og 1200 manns
særast.
Þrír Islendingar
tilnefndir
í haust verða Umhverfisverðlaun
Norðurlandaráðs veitt r þriðja sinni.
Verðlaunin, sem nema 350 þúsund
dönskum krónum, verða veitt einka-
fyrirtæki, opinberri stofnun, rann-
sóknarstofnun eða ráðgjafa sem með
afgerandi hætti hefur stuðlað að því
að draga úr álagi á umhverfið af
völdum framleiðslustarfsemi, notk-
unar eða förgunar á framleiðsluvöm.
Verðlaunahafinn á að hafa átt eftir-
tektarvert fmmkvæði á sviði nátt-
úm- og umhverfisvemdar. Við-
fangsefnið í ár var Vinnslu- eða
vömþróun sem leiðir til vemlegra
umbóta fyrir umhverfið.
Alls bámst tuttugu tilnefningar,
sex frá Danmörku, þrjá frá Finn-
landi, ein frá Færeyjum, þrjár ffá
Noregi, fjórar frá Svíþjóð og þijár
frá íslandi. Þeir íslendingar sem em
tilnefndir em Einar Einarsson fyrir
þróun á umhverfisvænum nöglum
fyrir nagladekk, Einar Þorsteinn og
Tilraunastofa Burðarforma fyrir út-
færslu á efnis- og orkusparandi hí-
býli og loks Nýiðn ehf. fyrir vöm-
þróun og nýja framleiðsluaðferð á
umhverfisvænum vetrardekkjum.
Verðlaunin verða veitt í tengslum
við þing Norðurlandaráðs sem hald-
ið verður í Helsinki á hausti kom-
anda.
BSRB mótmælir
vinnubrögðum
Kjaradoms
Stjóm BSRB lýsir algjörri van-
þóknun á þeim vinnubrögðum sem
Kjaradómur viðhefur þegar hann
skammtar æðstu embættismönnum
þjóðarinnar mun meiri kjarabætur
en samið var um í síðustu kjara-
samningum. Hækanir upp á 9-20%
þegar almennt launafólk fær 4.7%
hækkun ná engri átt að mati banda-
lagsins og eru til marks um siðleysi
sem virðist ríkja hjá sjálftökuliði
þjóðarinnar.
Þá vekja yfirlýsingar formanns
Kjaradóms furðu stjómar BSRB en í
þeim hefur komið fram að frekari
hækkanir á launum þingmanna og
æðstu embættismanna séu fyrirhug-
aðar með haustinu og um næstu ára-
mót.
Stjóm BSRB mótmælir vinnu-
brögðum og úrskurði Kjaradóms
harðlega og hvetur stjómvöld til að
grípa í taumana til að koma koma í
veg fyrir þær alvarlegu afleiðingar
og þann trúnaðarbrest sem úrskurð-
ur þessi veldur.
UTBOÐ
F.h. Sjúkrahúss Reykjavíkur, Landspítalans, Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri og Fjórðungshússins á ísafirði er óskað eftir tilboðum í rönt-
genfilmur og framköllunarvökva. Útboðið fer frarn á EES markaði.
Útboðsgögn, sem em á ensku, verða seld á skrifstofu vorri á kr. 1.000,-
Opnun tilboða: fimmtudaginn 18. september kl. 11:00 1997 á sama stað.
lnnkaupastofnun Reykjavíkurborgar
Frikirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavik
Simi 552 5800 Bréfsími 562 2616
Leyfi til sölu
notaðra ökutækja
í apríl sl. tóku gildi lög nr. 20/1997, um breytingu á
lögum nr. 69/1994, um sölu notaðra ökutækja. í
lögunum er kveðið á um að hver sá, sem vill reka
verslun eða umboðssölu með notuð ökutæki, skuli
hafa til þess sérstakt leyfi viðskiptaráðherra. Einnig
er kveðið á um að viðskiptaráðuneytið skuli halda
skrá yfir þá, sem leyfi hafa til starfsemi, samkvæmt
lögum.
Þess er hér með óskað, að allir þeir, sem reka
verslun eða umboðssölu með notuð ökutæki,
sendi upplýsingar þar um til viðskiptaráðuneytis-
ins, þ.e.a.s. afrit af leyfisbréfi og gildri starfs-
ábyrgðartryggingu. Gerð verður skrá yfir alla leyfis-
hafa með hliðsjón af þeim upplýsingum, sem ber-
ast ráðuneytinu. Þeir, sem ekki verða á skrá 15.
ágúst nk. en reka þrátt fyrir það verslun eða um-
boðssölu með notuð ökutæki, mega eiga von á því
að sölustað þeirra verði lokað í kjölfarið.
Viðskiptaráðuneytið,
7. júlí 1997
Myndbanda- og
gerningahátíð
Síðastliðinn laugardag var opnuð
alþjóðleg geminga- og myndbanda-
hátíð í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b
og í MIR-salnum, Vatnsstíg 10 í
Reykjavík.
Hátíðin lýtur að tímatengdri
myndlist og em meginmiðlamir
ljósmyndir, myndbönd, tölvur, og
gemingar.
Hátíðin, sem ber yftrskriftina On
Iceland, er viðamesta verkefni sinn-
ar tegundar sem sett hefur verið upp
á íslandi. Sýningarsalimir tveir
verða að jafnaði aðeins opnir um
helgar en á morgun, þriðjudaginn
29. júlí, flytur írski myndlistamiað-
urinn Alaster McLennan tólf tíma
langan geming í Nýlistasafninu. Há-
tíðin stendur til 10. ágúst.
HITAVEITA
REYKJAVÍKUR
NESJAVALLAVIRKJUN
Fram til 31. ágúst verður
Nesjavallavirkjun opin til skoðunar:
mánudaga - laugardaga kl. 9:00 - 12:00 og
13:00 -18:00 sunnudaga kl. 13:00 - 18:00
Hver myrti Karólínu?
Þann 8. ágúst næstkomandi mun
leikhópurinn Höfúðpaurar frumsýna
hið glæpsamlega gamanleikriti Paul
Portners, Hár & Hitt í Borgarleik-
húsinu.
Hár og Hitt er eitt vinsælasta leik-
rit sem sýnt hefur verið í Bandaríkj-
unum og hefur alls staðar slegið að-
sóknarmet.
Hár og Hitt er sakamálaleikrit þar
sem áhorfendur em þátttakandur.
Leikritið gerist á hárgreiðslustofu
þar sem Bonni ræður ríkjum ásamt
Hófí aðstoðarstúlku sinni. Skömmu
eftir að leikurinn hefst er framið
morð hæðinni fyrir ofan.
Hlutverk áhorfenda er að vitna til
um ferðir gmnaðra og þeir fá einnig
tækifæri til þess að yfirheyra þá. Að
lokum greiða áhotfendur atkvæði
um hvem skuli ákæra fyrir morðið.
Engar tvær sýningar em eins, áhorf-
endur ráða ferðinni og hafa um það
úrslitavald hvemig leikritið endar
hverju sinni.
Mið-
stjóm
Næsti fundur miðstjórn-
ar Alþýðubandalagsins
verður haldinn 6. sept-
ember nk.
Nánar auglýst síðar.
Ferðaskrifstofum og stærri hópum er bent
á að panta skoðun með fyrirvara. Sími í
gestamóttöku er 482 2604
Framboð til formanns
í samræmi við 16. gr. flokkslaga auglýsir yfirkjör-
stjórn eftir framboðum til kjörs formanns Alþýðu-
bandalagsins.
Kjörgengir til formanns eru þeir einir sem teljast fé-
lagar í Alþýðubandalaginu þegar framboðsfresti lýk-
ur. Til að framboð teljist gilt skulu fylgja meðmæli
a.m.k. 80 flokksmanna en ekki fleiri en 100 úr minnst
þremur kjördæmum landsins. Meðmæli með fleirum
en einum frambjóðanda teljast ekki gild.
Frestur til að skila framboðum rennur út 11. ágúst
1997. Framboð skulu send formanni framkvæmda-
stjórnar Alþýðubandalagsins, Austurstræti 10, 101
Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Elsa Þorkelsdóttir, formað-
ur yfirkjörstjórnar og Heimir Már Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins, í síma 551 7500
og 898 4858 Yfirkjörstjórn
SlAtfS>
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríldssjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1984-l.fl. 01.08.97 -01.02.98 kr. 81.624,60
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 29. júlí 1997
SEÐLABANKIÍSLANDS