Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.2008, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.2008, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ lesbók|Bókmenntirnar á tímum hins óljósa Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is V eruleikinn er allt það sem rúm- ast undir himninum,“ segir Jón Kalman Stefánsson og vísar til skáldsögu Eiríks Guðmunds- sonar, Undir himninum (2006), en í henni slær saman ýmsum heimum – samfélagslegum og bókmennta- legum, áþreifanlegum og óáþreifanlegum, nú- tíð og fortíð – sem allir geta fallið undir þessa skilgreiningu á veruleikanum; hann er með öðrum orðum ekki bara það sem við sjáum, heyrum, þreifum á, þekkjum með einhverjum hætti, heldur líka það sem við hugsum, ímynd- um okkur, trúum. Veruleikinn er heimurinn og maðurinn í öllu sínu veldi en ekki það fyrirbæri sem tungumálið virðist á einhverjum tíma- punkti hafa skilgreint fyrir okkur sem eitthvað áþreifanlegt og andstætt því sem við sköpum með ímyndunarkraftinum. Fyrirvarar, og þó Þegar nokkrir íslenskir rithöfundar eru spurð- ir hvort þeir séu realískir höfundar í þeirri merkingu að þeir skrifi bókmenntir sem lýsa veruleikanum felur svar þeirra flestra í sér þennan fyrirvara á skilningi okkar á veru- leikanum. Það kemur í sjálfu sér ekki á óvart því að hann hefur lengi verið til staðar í bók- menntunum. Gyrðir Elíasson orðar hann með eftirfarandi hætti: „Það er enginn einn veru- leiki til, í rauninni eru til jafn margir „veru- leikar“ og lífverurnar eru margar. Veruleiki hvers manns innra með honum er jafnrétthár og merkilegur til rannsóknar og svokallaður veruleiki fyrir utan. Jafnvel draumar eru veru- leiki, því öll dreymir okkur og svefninn er líka veruleiki þótt við vitum ekki af okkur á meðan. Sjálft ímyndunaraflið er einnig eins konar veruleiki, því að það er staðreynd að það er hluti af innréttingu mannskepnunnar og litar þess vegna alla sýn hennar á það sem hún sér og upplifir.“ Um raunsæið eru höfundarnir hins vegar ekki jafnsammála. Auðvitað hefur sterk raunsæisbylgja riðið yfir íslenskar bókmenntir síðustu ár í formi afþreyingarbókmennta. Þar hafa krimmarnir verið fyrirferðarmestir en í fimmta bindi Íslenskrar bókmenntasögu setur Jón Yngvi Jóhannsson verk Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Kristínar Marju Baldursdóttur og Vilborgar Davíðsdóttur einnig undir þennan hatt. Árni Þórarinsson, sem gaf út sjöundu glæpasögu sína á síðasta ári, Dauða trúðsins, lýsir viðhorfi þessara höfunda til skrifanna ágætlega. Hann segir að flestir krimmar, og hans þar meðtaldir, séu raunsæisbókmenntir að því leyti að þeir taki mið af umhverfi sínu. „Þeir skerpa kannski línur og draga fram suma strauma sem leika um samfélagið um- fram aðra. En eitt af markmiðunum er að reyna að ná utan um veruleika okkar.“ Af öðrum höfundum svarar Hermann Stef- ánsson spurningunni hvort hann sé realisti af- dráttarlaust með einu orði: „Já.“ Skáldsaga hans, Stefnuljós (2005), gæti hins vegar virst stangast á við þetta svar enda afar flókinn vef- ur veruleika og skáldskapar. Haukur Már Helgason, Nýhilingur og höfundur skáldsög- unnar Svavar Pétur og 20. öldin (2006), segist einnig vera realisti en hneigjast meira „að að- ferð Innrásarinnar frá mars en Zola, en með sannleika um veruleikann að markmiði“. Sann- arlega athyglisvert viðhorf hjá skáldi af kyn- slóð þeirra sem hafa alist upp við þann skilning að veruleikinn sé að leysast upp, sé jafnvel ekki til. Auður Jónsdóttir segist vera komin í heilan hring, fyrsta skáldsaga hennar, Stjórn- laus lukka (1998), hafi verið realísk og eftir að hafa diktað upp heiminn í Tryggðarpanti (2006) sé hún aftur komin á byrjunarreit, „nema núna sætti ég mig við að veruleikinn verður ekki beislaður og leyfi honum barasta að flæða. Ætli þetta endi ekki með að ég fari að skrifa ljóð“. Sumir höfundar eru meira efins um raunsæ- ið. Jón Kalman, sem hefur unnið mikið með samband veruleika og skáldskapar í verkum sínum, meðal annars sitt eigið líf, segir að bók- menntir hafi alltaf reynt að fanga veruleikann og beitt til þess öllum hugsanlegum aðferðum: „Realisminn er bara ein aðferðin, og ekki býsna góð, hún býr ekki yfir því óvænta og lýs- ir einungis því sem blasir við.“ Auður Ólafs- dóttir, sem gaf út Afleggjarann á síðasta ári, segist tvímælalaust vera að fást við ýmsar til- vistarspurningar er varði stöðu mannsins í heiminum á 21. öld og séu raunverulegar, en bætir við: „Ég er þó fyrst og fremst upptekin af veruleika skáldsögunnar, þeim sem er að- eins til í samhengi bókar, það er síðan í hönd- um lesenda að byggja brýr yfir í aðra veruleika og koma á diplómatísku sambandi. Ef lesand- inn gengst inn á lögmál leiksins og lætur blekkjast getur ó-raunsæi skáldskaparins gef- ið honum skáldlega sýn á veruleikann utan bókar, í því er galdurinn fólginn.“ Bókmenntir síðustu ára hafa snúist um spurningar um tengsl veruleika og skáld- skapar – eða veruleika skáldsögunnar, eins og Auður orðar það – og þá ekki síður um mögu- leika skáldskaparins til að ná utan um veru- leikann. Það hefur því verið látið reyna á raunsæið í sagnagerð, ekki síst með því að leggja á það ýmsar tilraunir sem módernism- inn gerði með form á síðustu öld, eins og fjallað var um í inngangi þessa greinaflokks í Lesbók fyrir viku. Sumar skáldsögur hafa beinlínis tekið möguleika frásagnarlistarinnar til um- fjöllunar, þar á meðal Sendiherrann eftir Braga Ólafsson. Hún er upplagt viðfangsefni í byrjun þessa greinaflokks, enda fáar sögur sem varpa jafnskemmtilegu ljósi á íslenskar bókmenntir í aldarbyrjun, hugmyndir þeirra um sjálfar sig, takmarkanir sínar, form og hlutverk, en einnig viðtökur þeirra. Tími sem enn er ekki liðinn Spurningunni um það hvort hann sé realískur höfundur svarar Bragi á eftirfarandi hátt: „Það sem ég skrifa um bý ég til úr því sem ég sé og heyri og ímynda mér. Ég er kannski real- ískur höfundur í þeim skilningi að ég reyni fyr- ir alla muni að forðast fantasíu og það að reyna að lýsa tíma sem enn er ekki liðinn.“ Með þess- ari síðustu setningu um að lýsa tíma sem enn er ekki liðinn vitnar Bragi til Sendiherrans. Aðalpersóna bókarinnar, Sturla Jón Jónsson ljóðskáld, fer á ljóðahátíð í Litháen, sem fulltrúi eða eins konar sendiherra íslenskra bókmennta, en áður skrifar hann grein fyrir ís- lenskt menningartímarit um það sem gerist á ljóðahátíðinni. Ritstjóri tímaritsins á bágt með að skilja hverslags grein þetta er og dettur helst í hug framtíðarskáldskapur, Science- fiction, sem hann segist ekki vilja birta. Þetta uppátæki, að lýsa tíma sem enn er ekki liðinn, kemur aftur fyrir í sögunni og þá hneykslast Sturla Jón mjög á þeirri hugdettu. Hann fær grein sína ekki birta í tímaritinu en hún er hins vegar birt í bókinni áður en sagt er frá ferð Sturlu Jóns á ljóðahátíðina. Það kemur reynd- ar ítrekað fyrir í sögunni að sagt sé frá hlutum sem enn hafa ekki gerst. Yfirleitt er það Sturla Jón sem fantaserar um óorðna hluti. Bíðum nú aðeins við. Þetta virðist stangast á við svar Braga Ólafssonar um að hann sé real- ískur höfundur í þeim skilningi að hann reyni fyrir alla muni að forðast fantasíu og það að reyna að lýsa tíma sem enn er ekki liðinn. Hvað er Bragi eiginlega að hugsa?! Getur ver- ið að hann meini ekkert með orðum sínum? Eða er svar hans einhvers konar útúrsnún- ingur? Hvað þýðir það í raun að hann forðist fantasíu og það að lýsa tíma sem enn er ekki liðinn? Er hægt að forðast fantasíu í skáld- skap? Þykist Bragi alltaf vera að segja sögur um eitthvað sem hefur gerst? Reyndar fór Bragi á ljóðahátíð í Litháen og ýmislegt úr þeirri ferð mun hafa skilað sér inn í söguna eins og hann hefur sagt frá í viðtali hér í Les- bók (23.12. ’06). En Sendiherrann er fyrst og fremst uppspuni, fantasía um hluti sem hafa ekki gerst (ekki enn að minnsta kosti). Og sú staðreynd gerir svar Braga hér að framan líka að uppspuna. Svo virðist sem við séum lent inni í skáldverki eftir Braga Ólafsson. Það er augljóslega engu að treysta! Sjálfur gerir Bragi lítinn ef nokkurn greinarmun á veruleika og skáldskap. Í svari sínu um real- ismann segir hann nefnilega enn fremur: „Þegar ég hef lýst einhverju og það er komið á prent er það í mínum augum áþreifanlegur veruleiki. Og stundum verð ég var við það hjá lesendum að þeir upplifa þann veruleika á svipaðan hátt og ég.“ Hvað er raunsæi? Hverju er hægt að treysta í frásögn? Sendiherrann glímir við þessar spurningar. Hann er metafiction, skáldverk um skáldskap, saga sem er sífellt að gera at- hugasemdir við það hvernig hún er sögð, texti sem grefur undan sér með nákvæmlega sömu aðferð og Bragi beitir í svarinu um meintan realisma sinn: Að búa til leiðarvísi um sjálfan sig sem er villandi. Sturla Jón fær einmitt þá hugmynd að fyrsta prósaverk hans, að frátal- inni áðurnefndri tímaritsgrein, verði einhvers konar leiðarvísir fyrir útlendinga um Reykja- vík sem villi um fyrir lesandanum og gefi hon- um kolranga mynd af borginni. Bragi er enginn realisti, nema í þeim skiln- ingi að hann skrifar bókmenntir sem lýsa veru- leika skáldskaparins. Eða, svo sanngirni sé gætt: Bragi er einn af þeim höfundum sem líta á sig sem realista en gera það með þeim hætti að maður þarf að endurhugsa hugtakið. Frásagnarháttur Braga er raunsæislegur. Það er nánast eins og hann vilji kryfja hvert augnablik í sögum sínum. Þessi nákvæmi og hægi stíll virðist vera tilraun til þess að ná utan um veruleika eða kannski skapa veruleika eða tilfinningu fyrir veruleika. Staðsetningar skipta líka miklu máli í sögum Braga, þær ger- ast á þekktum stöðum, í tilteknum borgum, götum, húsum, íbúðum, herbergjum. Spurður hvers vegna hann sé svona upptekinn af sögu- rýminu svarar hann: „Þegar ég er staddur í bókabúð kaupi ég mér frekar skáldsöguna Brighton Rock eftir Graham Greene heldur en einhverja bók sem gerist á stað sem er ein- ungis til í höfði höfundarins. Þetta er ábyggi- lega einhvers konar fötlun. En hvers vegna ég nota í sögunum ákveðnar nafngreindar götur og jafnvel húsnúmer og íbúðir, mig grunar að það sé einhvers konar sambland af gægjuþörf og illkvittni. Þeir eiginleikar eru held ég mjög algengir hjá höfundum.“ Sendiherrann er kirfilega settur niður í til- teknu rými. Fyrsti hluti bókarinnar gerist í Reykjavík og bera kaflarnir heiti gatna í borg- inni, svo sem Bankastræti og Skólavörðustíg- ur. Þetta kunnuglega umhverfi undirstrikar ekki aðeins raunsæi frásagnarinnar heldur einnig staðfestu í fari Sturlu Jóns, ákveðið sjálfsöryggi sem endurspeglast í þungum dómum hans um menn og málefni. Hann er á heimavelli. Í lok fyrsta hluta er birt grein hans um ljóðahátíðina sem hann fer á í næsta hluta bókarinnar. Í greininni, sem áðurnefndur rit- stjóri tímaritsins hafði einnig kallað spádóm, lýsir Sturla Jón því yfir – þrátt fyrir að segja það of sjálfsagða freistingu til þess að láta undan henni – að nafn þorpsins Druskininkai, sem ljóðahátíðin er haldin í, sé fjarstæðukennt og sannarlega ósannfærandi. Í greininni, sem úthúðar uppákomunni, er sömuleiðis sagt að það eina óvænta sem gæti gerst á hátíðinni sé að textar eins útlenda þátttakandans, sem þýddir eru á litháísku, væru hreint ekki textar þess tiltekna ljóðskálds heldur einhverjir allt aðrir textar sem hefðu ekkert með ljóðlist að gera. Hvort tveggja hefur forspárgildi í sög- unni. Annar hlutinn heitir Vilnius en kaflar hans bera ekki götuheiti. Sá fyrsti heitir Blett- ur í teppinu en bletturinn er það fyrsta sem Sturla Jón festir augun á þegar hann opnar dyrnar að hótelherbergi sínu ef frá er talið sjónvarpstæki sem virðist hanga í lausu lofti. Sjónvarpið getum við litið á sem glugga inn í hið óraunverulega og fjarstæðukennda en bletturinn (sem er kveikjan að skáldsögunni, eins og fram kom í áðurnefndu Lesbók- arviðtali) gerir hótelherbergið meira spenn- andi og framandi í augum Sturlu Jóns og jafn- vel hættulegra. Og þess er auðvitað ekki langt að bíða að Sturla Jón verður leiksoppur óvæntra atburða – og að vissu leyti hættulegra – og á sama tíma missir hann fótanna í þessu nýja og framandi umhverfi. Eitt kvöld er hann rændur rándýrum frakka, sem hann hafði fest kaup á fyrir ferðina, og í sömu svipan er hann afhjúpaður sem ritþjófur – ljóðabókin sem hann ætlar að lesa upp úr á hátíðinni sam- anstendur af ljóðum sem eru meira og minna stolin úr handriti eftir látinn frænda hans sem ber það kunnuglega nafn Jónas Hallmunds- son. Stuttu eftir að upp kemst um ritstuld Sturlu Jóns verður hann svo uppvís að því að stela verðmætum frakka af öðrum gesti hátíð- arinnar. Hin raunsæislega frásögn sem fékkst við að lýsa kunnuglegum veruleika hefur nú á óvænt- an hátt snúist upp í frásögn sem hefur það ekki að meginverkefni að lýsa veruleikanum heldur því hvernig bókmenntir verða til. Nafn Jónasar, frændans sem Sturla Jón stelur frá, vísar auðvitað til þjóðskáldsins Hallgríms- sonar og þar með bókmenntahefðarinnar sem kenningar segja að skáldverk séu tilvitnanir í. Sjálfur virðist Sturla Jón ekki þekkja þessar kenningar því það kemur honum stórlega á óvart að maðurinn sem afhjúpar ritstuldinn fordæmir hann ekki. Reyndar kemur í ljós að maðurinn beitir nákvæmlega sömu aðferð til þess að fá útrás fyrir eigin sköpunarþörf. Og þá þarf ekki að koma á óvart að sögunni um frakkastuldinn „stelur“ Bragi úr sögunni Káp- unni úr Pétursborgarsögum Gogols en sú bók er nefnd í Sendiherranum. Það er ekki fyrr en í síðasta hluta bók- arinnar sem ákveðið jafnvægi kemst aftur á líf Sturlu Jóns. Hann hefur þá fengið sína lexíu í gangvirki skáldskaparins. Þessi hluti gerist að mestu leyti í Minsk og ber það heiti en eini kafli hans nefnist Pilies-stræti eftir götu í Vil- nius sem Sturla Jón kynnist fyrst í ljóði. Þar situr Sturla Jón á bar og fer að ímynda sér hvað eigi eftir að gerast í væntanlegri heim- sókn hans til móður konu, sem hann kynnist á hátíðinni, og býr í blokkaríbúð í Minsk. Í lok sögu vitum við að þau tvö eiga fyrir höndum þessa ferð til Minsk. En við vitum ekki hvern- ig sú ferð verður „í raun“. Um það verðum við að treysta hugarburði Sturlu Jóns, skálds og sérlegs sendiherra í framandi fantasíu- og framtíðarheimum, en hann á það reyndar til að verða að veruleika. Realismi sagnabókmennta nú um stundir fjallar fyrst og fremst um veruleika skáld- skaparins. Eins og við eigum eftir að sjá í næstu greinum þessa flokks er sá veruleiki hins vegar farinn að skarast með ýmsum hætti við aðra heima sem lengi þóttu raunverulegri. Veruleiki skáldsögunnar Skáldsaga Braga Ólafssonar, Sendiherrann, er upplagt viðfangsefni í byrjun þessa greina- flokks, enda fáar sögur sem varpa jafn- áhugaverðu ljósi á íslenskar bókmenntir í aldarbyrjun, hugmyndir þeirra um sjálfar sig, takmarkanir sínar, form og hlutverk, en einnig viðtökur. Bragi Ólafsson Erum við stödd í skáldsögu eftir hann? Morgunblaðið/Einar Falur

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.