Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.2008, Qupperneq 15

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.2008, Qupperneq 15
Listasafnið á Akureyri „Við erum öll hræsnarar“ hefur verið krotað með úðabrúsa á vegginn við inngang Lista- safnsins á Akureyri við Kaupvangsstræti. Yf- irlýsingin er á nokkrum tungumálum og minnir þannig á slagorð í ferðamannabransanum jafn- framt því að líkjast graffitíi eða götulist. Hér reynist vera um listrænan gjörning að ræða eft- ir Hlyn Hallsson, einn af 23 listamönnum sem eiga verk á sýningunni „Bæ bæ Ísland – upp- gjör við gamalt konsept“ sem nú stendur yfir í safninu. Sýningunni er ætlað að hrista upp í lands- mönnum og þar kennir ýmissa grasa í víðtækri gagnrýni á samfélagið. Yfirskrift sýningarinnar gefur til kynna að landið hafi verið selt, eða sé ofurselt, markaðsöflunum með einum eða öðr- um hætti. Raunar segir í sýningarskrá, sem hönnuð er í markaðsvænum stíl, að hér sé á ferðinni nokkurs konar útför „19. og 20. aldar hugmyndarinnar um Ísland“ og sem m.a. felist í tungumálinu sem undirstöðu þjóðarvitund- arinnar. Verk Þorvaldar Þorsteinssonar fjallar um náttúruna sem þungamiðju í menningarlegri sjálfsmynd þjóðarinnar – ekki síst eins og hún birtist í landslagsmálverkum. Í verkinu Íslensk myndlist (2008), sem minnir á eldra verk lista- mannsins, sést hvernig landslagsmálverk nýt- ast sem bakgrunnur sjónvarpsviðtala á RÚV þar sem þau eru sennilega notuð til að auka á trúverðugleika og bæta ímynd. Jafnframt skír- skotar verkið til mikilvægis náttúrunnar/ landslagsins í mótun myndlistar hér á landi á tímum nútímavæðingar, borgarmyndunar og tilurðar myndlistarmarkaðs. Þorvaldur bendir í öðru verki á að náttúrunni sjálfri megi hins vegar fórna, enda hún kirfilega varðveitt í formi málverka/táknmynda á þjóð- arlistasafninu (sem og í túristabæklingum og víðar í myndrænu formi). Listamaðurinn fjallar um dofna tilfinningu fyrir raunveruleikanum í beinskeyttu verki sem nýtur sín vel á sýning- unni. Hagnýting náttúrunnar verður Rúrí að yrk- isefni í áleitnu verki, Tortími: þar lendir tákn- gerving náttúrunnar, í líki ljósmyndastrimils, í vélrænum tætara en form verksins skírskotar til þeirra fossa sem nú hverfa hægt en örugg- lega undir uppistöðulón virkjana. Verkið vísar einnig til ákveðins gangvirkis eða eyðileggjandi afls sem knýr heiminn með arðsemi eina að leiðarljósi. Slíkt afl býr í hnattvæðingunni: alþjóðavæð- ingu risafyrirtækja og markaðsafla sem má út landamæri þjóðríkja eins og rætt hefur verið undanfarna áratugi. Myndbandsverk Ólafs Sveins Gíslasonar Fiskidrama, sem fjallar um hið viðtekna lífsviðurværi þjóðarinnar, sjávar- útveginn, hefur áleitinn og jarðbundinn slag- kraft í þessu samhengi. Libia Pérez de Siles de Castro og Ólafur Árni Ólafsson undirstrika um- ræðuna um upplausn landamæra í röð verka/ gjörninga víða um lönd og skrifa m.a. á hús- veggi: „Landið þitt er ekki til“ á ýmsum tungu- málum. Mun frumlegri er gjörningur þeirra sem fluttur var við opnun sýningarinnar í Ket- ilhúsinu á Akureyri í samstarfi við tónskáldið Karólínu Eiríksdóttur. Þar var stjórnarskrá lýðveldisins Íslands sungin í flutningi val- inkunnra tónlistarmanna. Gjörningurinn, í senn háalvarlegur og bráðfyndinn, er til þess fallinn að fanga athygli fólks og vekja til umhugsunar. Líkt og Hlynur Hallsson starfa Libia og Ólafur (í fyrrnefnda verkinu) á mörkum mynd- listar og graffitís, en hið síðarnefnda er notað talsvert á þessari sýningu. Graffitíið, eins og við þekkjum það, er upprunalega nátengt sam- félagslegu andófi og borgarvæðingu – og er kannski einmitt eitt menningareinkenni hnatt- væðingarinnar. Á sýningunni nú er andófsafli þess gefinn gaumur í opinberu listsamhengi. Graffari (Margeir) hefur verið fenginn til að úða á veggina innandyra eins og til að árétta róttækni sýningarhugmyndarinnar. Líklega hefði „krot“ hans, ásamt textaverkum Hlyns, þó notið sín betur eitt og sér í rýminu. Skila- boðum Hlyns á borð við „meira, meira, meira, kaupa, kaupa, kaupa“ er ofaukið innan um fjölda annarra verka sem gagnrýna neysluvæð- ingu. Veggjakrotið ýtir undir kraðakkennt heild- arútlit sýningarinnar þar sem kennir ýmissa grasa. Kannski er það framkallað af ásettu ráði, í þeim tilgangi að endurspegla hamaganginn og æsinginn í þjóðfélagi gegndarlausrar efn- ishyggju þar sem keppst er við að hagnast sem mest á sem stystum tíma. Brenglað gildismat neyslusamfélagsins birtist í ýmsum verkum, svo sem í ljósmyndatengdum málverkum Ósk- ar Vilhjálmsdóttur þar sem bernskt yfirbragðið er í andstöðu við firrtan veruleikann sem þau lýsa. Önnur verk verða eins og hluti af síbylj- unni – sem „kórinn“ í útfærslu Hallgríms Helgasonar tekur undir sem og jábræður Ósk- ar – en ná ekki að skera sig úr sem gagnrýni. Þannig spegla útkrassaðar DV-síður Unnars Arnar Auðarsonar og Hugins Þórs Arasonar óvönduð vinnubrögð sem einkenna æsifrétta- mennsku – en ekki verður listamönnunum mik- ill matur úr þessu viðfangsefni. Kolbeinn Hugi Höskuldsson er á svipuðum nótum í mynd- bandsverki þar sem kunnir stjórnmálamenn sjást riðlast á að því er virðist listamanninum sjálfum í afbökuðum klámmyndum við tilheyr- andi tónlistarundirleik. Kannski býr hér undir gagnrýni á markaðsvæðingu listarinnar en þó virðist í þessum verkum helst birtast sjálfsfró- un allsnægtaþjóðfélagsins. Í verki Berglindar Jónu Hlynsdóttur er fólg- in lúmsk ádeila, sem skírskotar í margar „áttir“ í útsýnisturni sem þó neyðir sýningargesti til að lúta fram og virða fyrir sér fagurfræði fast- eignaheimsins og byggingariðnaðarins. Þar ræður einsleitnin og meðalmennskan ríkjum sem og græðgi og gróðavon. Slíkt mótar sýn okkar á umhverfið – og umhverfið sjálft – nú um stundir. Berglind nýtir hér rýmið á hugvits- saman hátt – og það gerir Þórdís Alda Sigurð- ardóttir einnig í verkinu Hreint og hvítt þar sem þvotturinn fer eins og Ajax-stormsveipur um rýmið, kannski eins og neyslu- og fram- kvæmdaglöð þjóðin: sjálfsmyndin grundvallast á því að hafa nóg að gera og helst að „gleyma“ fortíðinni. Ólöf Nordal beinir hins vegar sjónum að menningararfleifðinni, ekki síst eins og hún birtist í tungumálinu, sem mótvægi við þau hnattvæddu bandarísku menningaráhrif sem Steingrímur Eyfjörð gerir að sannkölluðu um- ræðuefni í skondnum „talblöðru“-verkum. Skoffínið í verki Ólafar horfir raunalega í átt til sýningargesta – eins og aftan úr óljósri, dulvit- aðri fortíð og hvítur hrafn, skammt þar frá, krunkar honum til samlætis. Aðrir íslenskir fuglar sjást uppstoppaðir sem sýningargripir í verki Bryndísar Snæbjörnsdóttur og Marks Wilsons í verki sem fjallar um „náttúru“ and- spænis „menningu“ þar sem hið síðarnefnda hefur yfirhöndina. Veggspjald með myndum af fleiri „íslenskum“ fuglum beinist að hinu yf- irlætisfulla vestræna sjónarhorni og ný- lendustefnu, sem Ísland hefur ekki farið var- hluta af og er mótandi þáttur í sögu þess og „19. og 20. aldar hugmyndinni“ um það. Hér er samankominn stór hópur listamanna, sem sumir eru ónefndir hér, og mikill fjöldi verka sem eru misjöfn að gæðum eins og gefur að skilja á slíkri sýningu. Þessi fjöldi verka og viðfangsefna, í ekki stærra sýningarrými, dreg- ur þó úr áhrifamættinum. Þrátt fyrir ýmis sterk verk fer sýningin því á köflum nærri mörkum þar sem við taka sniðugheit og kæru- leysi – í samræmi við yfirskriftina. Kveðjuhóf MYNDLIST Á mörkunum „Þrátt fyrir ýmis sterk verk fer sýningin því á köflum nærri mörkum þar sem við taka sniðugheit og kæruleysi – í samræmi við yfirskriftina.“ Anna Jóa Til 11. maí 2008. Opið þri.-su. kl. 12-17. Aðgangur 400 kr. Ókeypis fyrir eldri borgara og börn, og á fimmtudögum. Sýningarstjóri: Hannes Sigurðsson Bæ bæ Ísland – samsýning MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 15 Morgunblaðið/Haraldur Guðjónsson Haraldur „Þegar horft er á þessar stórsýningar í Co- vent Garden og Salzburg er ekki hægt annað en dást að þeim kraftaverkum sem unnin eru í þröngum húsakynnum Íslensku óperunnar í Gamlabíói!“ Hlustari Ég hef undanfarið skemmt mér viðað horfa á og bera saman tvær uppfærslur á óperunni La Traviata eft- ir Verdi. Annars vegar er það upp- færsla sem Sir George Solti stýrði í Konunglegu óperunni í Covent Garden þar sem Angela Gheorghiu syngur hlutverk Víólettu Valery, Frank Lop- ardo er elskhuginn Alfredo Germont og Leo Nucci syngur hlutverk föður hans, Giorgio. Þessi uppfærsla, sem kom út á mynddiski hjá Decca árið 1995 (og fæst í Tólf tónum á Skólavörðustíg), er með sígildu sniði: sögusviðið er París árið 1840, konurnar eru í síðkjólum með blævængi og karlarnir í kjólfötum með hvíta hanska. Hins vegar er uppfærsla frá Salzburg með Vínarfílharmóníunni undir stjórn Carlos Rizzis og hinni rússnesku Önnu Netrebko, Rolando Villazón og Thomas Hampson í aðal- hlutverkum. Þetta er aftur á móti afar nútímaleg uppfærsla og gjörólík hinni fyrri: Víóletta er í stuttum, eldrauðum kjól og lifir sínu skemmtanalífi í kappi við stóra klukku á sviðinu. Þessi uppfærsla var gefin út á mynd- diski hjá Deutsche Grammophon árið 2005. Nýlega sá ég líka þriðju upp- færsluna í Íslensku óperunni þar sem Hulda Björk Garðarsdóttir, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Tómas Tóm- asson sungu aðalhlutverkin og gerðu það frábærlega vel. Ég mæli eindregið með mynddiskunum frá Covent Gar- den og Salzburg og vona líka að sem flestir hafi séð uppfærslu Íslensku óp- erunnar sem var frábær (en sýningum er nú lokið). Þegar horft er á þessar stórsýningar í Covent Garden og Salz- burg er ekki hægt annað en dást að þeim kraftaverkum sem unnin eru í þröngum húsakynnum Íslensku óp- erunnar í Gamlabíói! Haraldur Bernharðsson, mál- fræðingur á Stofnun Árna Magn- ússonar í íslenskum fræðum. Lesarinn Ég er með nýjan doðrant um málbreyt-ingar, sem Þórhallur Eyþórsson mál- fræðingur ritstýrir, á skrifborðinu mínu. Ég er rétt að byrja en bókin lofar góðu, enda um uppáhaldsviðfangsefni mitt í málfræði. Und- anfarið hef ég hins vegar aðallega lesið bækur sem ég hef lesið áður, sumar til þess að geta verið með á nótunum í umræðum um bók- menntir á Hugvísindaþingi nú um helgina en svo ákvað ég nýlega að rifja upp tvær bækur sem ég las sem krakki. Þetta eru Kofi Tóm- asar frænda og Sagan hans Hjalta litla. Ég man vel hvað mér fannst erfitt að lesa þessar bækur, ég bókstaflega píndi mig áfram og nú langaði mig til að endurmeta upplifunina. Það hræðilega og sorglega í þessum bókum var sannleikurinn í þeim, ég gerði mér einhverja grein fyrir honum og það hafði áhrif þegar ég lærði seinna um hann hjá sögukennurum, dýpkaði held ég skilninginn. Reyndar rifjaðist upp fyrir mér að það sem mér fannst á sínum tíma sorglegast af öllu sorglegu í sögunni um Hjalta voru örlög ærinnar Hosu! Nú reyni ég að gera upp við mig hvort ég á að kynna þessar bækur fyrir krökkunum mínum. Myndu þau engjast eins og ég gerði? Margrét Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Margrét „Ég man vel hvað mér fannst erfitt að lesa þessar bækur, Kofi Tómasar frænda og Sagan hans Hjalta litla, ég bókstaflega píndi mig áfram,“ segir Margrét.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.