Morgunblaðið - 21.02.2008, Qupperneq 1
fimmtudagur 21. 2. 2008
íþróttir mbl.isíþróttir
Valur lagði Hauka en nær ekki í úrslitakeppnina >> 2
TOPPLIÐIN ERU ÍSLENSK
SJÖ PRÓSENT LEIKMANNA Í ÍSLENSKU
HANDBOLTALIÐUNUM KOMA FRÁ ÚTLÖNDUM >> 4
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
HVORKI Heiðar Helguson né Grétar Rafn
Steinsson verða með liði Bolton í kvöld þegar
liðið mætir spænska liðinu Atletico Madrid á
Vicente Calderón vellinum í Madrid í kvöld.
Þetta er síðari leikur liðanna í 32-liða úrslitum
UEFA-bikarsins en Bolton vann óvæntan 1:0 sig-
ur á Reebok-vellinum með marki frá Senegal-
anum El Hadji-Diouf.
Grétar Rafn er ekki löglegur með Bolton í
UEFA-bikarnum þar sem hann hefur leikið með
hollenska liðinu AZ Alkmaar í keppninni á þessu
tímabili og Heiðar er meiddur í baki.
,,Þetta er allt að koma hjá mér enda ekki um
alvarleg meiðsli að ræða. Það eru bólgur neðst í
bakinu sem komu eftir að ég fór af stað að nýju
eftir langan tíma. Ég fór í sprautu í gær og ég
verð vonandi tilbúinn í baráttuna á ný um aðra
helgi þegar við fáum Liverpool í heimsókn,“
sagði Heiðar við Morgunblaðið í gær en Heiðar
verður ekki með Bolton á sunnudaginn þegar
liðið mætir Blackburn á Ewood Park.
Vona að ég spili minn fyrsta Evrópuleik
Heiðar segir að pressan sé á leikmönnum
Atletico Madrid fyrir leikinn í kvöld.
,,Þetta verður eflaust erfiður leikur fyrir mína
menn en vörnin hefur haldið vel í síðustu leikjum
og pressan er á Spánverjunum. Ég vona innilega
að förum áfram svo ég geti nú spilað Evrópuleik
í fyrsta sinn á ferlinum,“ sagði Heiðar.
Nokkur kergja er í forráðamönnum Bolton
vegna þess uppátækis hjá Atletico Madrid að
birta á heimasíðu félagsins, flugnúmer Bolton-
liðsins til Madrid, nafn hótelsins sem það mun
gista á og tímasetningar og staðsetningar á æf-
ingum liðsins.
,,Ég veit ekki hvað þeim gengur til með þessu.
Þetta er alveg fáránleg og undarleg framkoma
hjá liðinu.“
Heiðar þarf
að bíða enn
um sinn
Reuters
Frábær Lionel Messi átti flottan leik með Barcelona þegar liðið vann Celtic 3:2 í Glasgow. Hér fagna félagar hans honum. »3
ÓLAFUR Ingi Skúlason verður á miðjunni hjá
Helsingborg sem tekur á móti PSV Eindhoven í
UEFA-bikarnum í knattspyrnu í kvöld. PSV
vann fyrri leikinn á sínum heimavelli, 2:0, og
stendur því vel að vígi. Hann telur að sænska lið-
ið eigi möguleika á að komast áfram.
„Ég á von á því að við náum að stjórna leikn-
um meira en í Hollandi en við verðum að vera
mjög þolinmóðir. Aðalmálið er að við fáum ekki
á okkur mark og ef það tekst er allt hægt. Við
getum þess vegna skorað tvö til þrjú mörk á
lokamínútunum ef staðan er 0:0 lengi,“ sagði
Ólafur Ingi við netútgáfu Helsingborgs Dagblad
í gær.
Þeir Kristján Örn Sigurðsson og Ólafur Örn
Bjarnason verða einnig í eldlínunni í sömu
keppni í kvöld en þeir leika með Brann gegn
Everton á Goodison Park í Liverpool.
Ólafur eygir
von gegn PSV
„AUÐVITAÐ er maður grautfúll að tapa, en
við lékum vel og óneitanlega er Ciudad
hærra skrifað lið en við, en engu að síður ætl-
uðum við okkur að sjálfsögðu sigur og vorum
nærri honum,“ sagði Guðjón Valur Sigurðs-
son, leikmaður Íslendingaliðsins Gummers-
bach sem tapaði í gær fyrir Ólafi Stefánssyni
og félögum í spænska liðinu Ciudad Real,
28:27 í Meistaradeild Evrópu, en leikið var í
Þýskalandi.
Ólafur skoraði tvö mörk í leiknum, bæði í
fyrri hálfleik, en hjá Gummersbach skoraði
Guðjón Valur 6/4 mörk og Róbert Gunnars-
son 4. Sverre Jakobsson lék að vanda af festu
í vörninni en komst ekki á blað yfir marka-
skorara.
Leikurinn þótti mjög skemmtilegur og vel
leikinn af báðum liðum. „Þetta var góður
leikur, kannski ekki sá hraðasti í heimi, en
tryggði sigurinn með tveimur síðustu mörk-
um hans.
„Óli spilaði allan tímann og við náðum ekk-
ert að berja á honum af alvöru,“ sagði Guð-
jón Valur um félaga sinn hjá landsliðinu, Ólaf
Stefánsson í liði Ciudad. „Hann skoraði tvö
mörk í fyrri hálfleik en fékk ekki mörg færi,
var meira í að hjálpa félögum sínum og koma
þeim í færi,“ sagði Guðjón Valur sem sagði
að allir Íslendingarnir hefðu komist frá
leiknum án meiðsla. „Við erum í það minnsta
allir lifandi, enda eins gott þar sem það er
leikur aftur á laugardaginn,“ sagði Guðjón
Valur.
Ólafur og félagar hafa sigrað í öllum þrem-
ur leikjum sínum í 2. riðli meistaradeildar-
innar og eru með 6 stig en Gummersbach er í
þriðja sæti með tvö stig eftir einn sigur og
tvö töp, fyrir Ciudad og Montpellier.
við spiluðum mjög taktískt og vorum sjálfum
okkur í raun verstir á lokakaflanum að ná
ekki í það minnsta jafntefli. Þeir gerðu tvö
síðustu mörkin í leiknum en við fengum færi
á lokasekúndunni til að jafna en Hombrados
varði skotið frá Pungartnik,“ sagði Guðjón
Valur.
Ciudad byrjaði betur og komst í 3:1, en
heimamönnum tókst að snúa dæminu við,
komust í 10:7 og 12:8 en í leikhléi var staðan
15:14 fyrir Gummersbach.
Ciudad gerði tvö fyrstu mörkin í síðari
hálfleik og komst síðan í 22:19 áður en
Gummersbach náði að jafna 22:22 og var Ró-
bert þar á ferðinni. Eftir þetta var jafnt á öll-
um tölum og alltaf skoruðu leikmenn
Gummersbach á undan. En á lokakaflanum
var það Alberto Entrerríos sem skoraði jafn-
harðan fyrir Ciudad og það var hann sem
„Börðum ekkert á Óla“
Guðjón Valur með sex mörk þegar Gummersbach tapaði fyrir Ciudad Real
í Þýskalandi Segir Ólaf Stefánsson aðallega leggja upp fyrir félaga sína