Morgunblaðið - 25.02.2008, Page 2
2 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar
sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
LOGI Geirsson hlýtur náð fyrir
augum Markusar Baur, þjálfara
Lemgo, þessa dagana og er farinn
að sýna sitt rétta andlit. Logi var
markahæstur í liði Lemgo sem varð
að sætta sig við tap gegn Rhein-
Neckar Löwen í gær, 25:29, á
heimavelli. Logi gerði sex mörk,
þar af tvö úr vítaköstum og var með
fullkomna nýtingu af vítapunkt-
inum. Lið Lemgo er í sjöunda sæti
þýsku 1. deildarinnar með 24 stig.
Einar Örn Jónsson var í liði
Minden sem sótti Hamburg heim í
gær. Hamburg sigraði 27:22 en Ein-
ar Örn gerði eitt mark í leiknum
fyrir Minden og kom það úr víta-
kasti. Minden situr enn þá í fallsæti,
en liðið hefur 11 stig.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði
sjö mörk fyrir Gummersbach sem
vann Balingen á útivelli, 33:30. Ró-
bert Gunnarsson gerði 3 marka
Gummersbach en hann var rekinn
tvisvar af velli og Sverre Jakobsson
einu sinni. Alfreð Gíslason og læri-
sveinar hans eru nú með 30 stig í
sjötta sæti deildarinnar.
Jaliesky Garcia skoraði 5 mörk
fyrir Göppingen sem tapaði fyrir
Melsungen á heimavelli, 30:34.
Birkir Ívar Guðmundsson varði 4
skot á 40 mínútum þegar N-
Lübbecke tapaði fyrir Wetzlar á
heimavelli, 24:30. Þórir Ólafsson er
úr leik í bili vegna meiðsla hjá N-
Lübbecke.
Gylfi Gylfason skoraði eitt mark
fyrir Wilhelmshavener sem tapaði
fyrir Essen, 30:28, í fallslag
Logi kominn í náðina hjá Lemgo á ný
HSK tryggði sér á laugardaginn Ís-
landsmeistaratitilinn í glímu en þá
fór þriðja og síðasta umferð Meist-
aramóts Íslands fram í íþróttahúsinu
Torfnesi á Ísafirði. Lokastaðan varð
sú að HSK fékk 100,5 stig, Hörður
99 stig, HSÞ 97 stig, UÍA 91,5 stig,
KR 70 stig og GFD fékk 17 stig.
KR varð stigahæst í karlaflokki
með 66 stig en HSÞ í kvennaflokki
með 67 stig og Hörður í unglinga-
flokki með 41 stig.
KR-ingar urðu efstir í stigakeppni
karla með 66 stig en HSK varð í öðru
sæti með 63 stig. HSÞ fékk flest stig
í kvennaflokki, 67, en UÍA kom næst
með 41 stig. Hörður var með 41 stig í
unglingaflokki en síðan kom HSK
með 28,5 stig.
Sigurvegarar í einstökum flokkum
voru Pétur Eyþórsson, KR, Stefán
Geirsson, HSK, Snær Seljan Þór-
oddsson, UÍA, Stígur Berg Sophus-
son, Herði, Bjarni Þór Gunnarsson,
HSÞ, Soffía Björnsdóttir, HSÞ, og
Sylvía Ósk Sigurðardóttir, HSÞ.
Þau Pétur og Soffía sigruðu einnig
í opnum flokkum karla og kvenna,
auk síns þyngdarflokks.
Ólafur Oddur Sigurðsson var
kjörinn nýr formaður GLÍ á ársþingi
þess á Suðureyri um helgina.
HSK tryggði sér titilinn
Flensburgbeið lægri
hlut fyrir króat-
íska liðinu
Croatia Zagreb
25:29 í Meist-
aradeild Evrópu
í handknattleik á
útivelli í gær. Al-
exander Pet-
ersson gerði tvö mörk fyrir Flens-
burg en Einar Hólmgeirsson kom
ekki við sögu í leiknum. Zagreb-
liðið er geysi sterkt og hefur menn
eins og Mirza Dzomba, Vlado Sola
og Igor Vori innanborðs, auk þess
sem landsliðsþjálfarinn sjálfur,
Lino Cervar þjálfar liðið. Flens-
burg er í neðsta sæti riðils síns
með aðeins eitt stig eftir þrjá leiki.
Sigfús Sigurðsson lék með liðisínu, Ademar León sem gerði
sér lítið fyrir og vann þýsku meist-
arana í Kiel 28:24 í Meistaradeild-
inni í gær. Sigfús var þó ekki með-
al markaskorara í leiknum. Með
sigrinum jafnaði lið Sigfúsar Kiel
að stigum en bæði liðin eru með
fjögur stig eftir fyrri umferð riðla-
keppninnar.
Dómararnir Gunnar Jarl Jóns-son, knattspyrnumaður úr
Leikni í Breiðholti, og Hörður Að-
alsteinsson, sem dæmdu leik Fram
og Hauka í N1 deild karla í hand-
knattleik í gær eiga lof skilið fyrir
frammistöðu sína en þeir eru ný-
liðar í faginu. Þeir höfðu virkilega
góð tök á leiknum, voru yfirveg-
aðir og öruggir í sínum aðgerðum
og engu líkara en þeir væru búnir
að dæma í efstu deild í mörg ár.
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálf-ari Íslandsmeistara Vals í
handknattleik karla, var í blaða-
mannastúkunni með upptökuvél á
leik Fram og Hauka í gær. Óskar
var að kortleggja leik Framara en
Valur og Fram mætast í bikarúr-
slitum um næstu helgi.
Vignir Svav-arsson
skoraði 6 mörk
fyrir Skjern sem
vann nauman
sigurá Mors-Thy
á útivelli, 31:30, í
dönsku úrvals-
deildinni í hand-
knattleik. Þorri
Björn Gunnarsson gerði eitt mark
fyrir Ringsted sem tapaði fyrir
toppliði FCK, 36:30. Arnór Atla-
son er enn frá hjá FCK vegna
meiðsla.
Hreiðar Guðmundsson, lands-liðsmarkvörður í handknatt-
leik, og félagar hans í Sävehof töp-
uðu fyrir Hammarby, 32:27, í
toppslag í sænsku úrvalsdeildinni í
gær. Sävehof er í þriðja sæti deild-
arinnar með 30 stig en Hammarby
er með 35 stig á toppnum og Ystad
kemur næst með 31 stig.
Fólk sport@mbl.is
Bergur Ingi sagði við Morgunblað-
ið að frostið og vindurinn hefðu
ekki haft nein áhrif á sig.
„Nei alls ekki. Undanfarnar æf-
ingar hjá mér heima hafa byrjað á
því að moka snjó á kastsvæðinu í
Kaplakrika og svo þarf ég að salta
allt sjálfur líka áður en ég get
byrjað að kasta. Á Íslandi get ég
ekki æft inni, þannig ég þarf að
gera viðeigandi ráðstafanir eftir
veðri til að ég geti æft. Hérna í
Finnlandi t.d. eru aðstæður aðrar.
Þeir hafa hér glæsilegt kastbúr
innandyra og æfingaaðstæður eru
góðar. Hins vegar er aðeins mælt
utandyra og þess vegna var keppt
úti.“
Berg vantar aðeins um þrjá og
hálfan metra til að ná lágmarki inn
á Ólympíuleikana í Peking í haust
og sjálfsagt hlýtur markmiðið að
vera að komast þangað. „Auðvitað
er það markmiðið. Það er mjög
raunhæft eins og staðan er núna
og hugurinn stefnir til Peking. Það
er alveg á hreinu. Núna taka bara
við stífar æfingar þegar heim
verður komið. Planið á næstunni
hjá mér verður bara að æfa vel,
vera duglegur að lyfta og borða
hollt.“
Næsta mót sem Hafnfirðingur-
inn tekur þátt í fer fram um miðj-
an næsta mánuð í króatísku borg-
inni Split. Bergur segir það þó
ekki endilega vera markmiðið að
ná Ólympíulágmarkinu þar. „Auð-
vitað væri stórkostlegt að ná lág-
markinu á mótinu í Split, en það er
ekkert endilega stefnan hjá mér
þar. Ég á eftir að æfa meira og fer
í heilmiklar æfingabúðir með vor-
inu. Þetta kemur örugglega í ljós í
sumar hvort ég næ á Ólympíu-
leikana eða ekki,“ sagði Bergur
Ingi Pétursson Íslandsmethafi í
sleggjukasti.
Árvakur/Golli
Sterkur Bergur Ingi Pétursson var ekki í vandræðum í frosti og funa í Finnlandi og bætti Íslandsmetið.
Hitar sig upp með
snjómokstri og salti
BERGUR Ingi Pétursson úr FH
bætti Íslandsmet sitt í sleggjukasti
á laugardaginn á vetrarkastmóti í
Kaustisen í Finnlandi. Bergur kast-
aði sleggjunni 70,52 metra og bætti
þar með sitt eigið met um 22 senti-
metra. Ætla má að aðstæður hafi
ekki verið sem bestar, en keppnin
fór fram í töluverðum vindi og 4
stiga frosti. Bergur bætti Íslands-
metið í greininni fimm sinnum á
síðasta ári og nálgast nú ólympíu-
lágmark óðfluga, en lágmarkið er
74,00 metrar.
Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson
thorkell@mbl.is
Bergur Ingi bætti Íslandsmet sitt í sleggjukasti í Finnlandi
og nálgast ólympíulágmarkið Hugurinn stefnir til Peking
Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson
thorkell@mbl.is
BJARNI Fritz-
son, landsliðs-
maður í hand-
knattleik, var
ekki í leikmanna-
hópi St. Raphael
sem beið lægri
hlut fyrir Cham-
béry 37:31 í efstu
deildinni í Frakk-
landi á laugardag.
„Ég gat ekki tekið þátt í leiknum
vegna meiðsla. Þetta er sem sagt
magavöðvinn sem er rifinn og er í
raun og veru búinn að vera það í einn
og hálfan mánuð. Ég harkaði þetta af
mér í Noregi og var þá „teipaður“, til
þess að geta verið með á Evrópu-
mótinu, en hefði svo bara átt að hvíla
að því loknu. Í stað þess spilaði ég
tvo leiki þegar ég var kominn heim
til Frakklands og sýndi í raun hálf-
gjört kæruleysi með því,“ sagði
Bjarni í samtali við Morgunblaðið í
gær. Hann vonast þó til að geta spil-
að með liði sínu um næstu helgi.
„Það er auðvitað ekkert sniðugt að
spila næsta leik, en ég stefni samt að
því að vera með. Ég er alveg heill að
öllu öðru leyti. Ég ríf bara upp þenn-
an vöðva í hvert skipti sem ég tek
skot.“
Erum í fínum málum
Bjarni segir St. Raphael eiga þrjá
mikilvæga leiki framundan og með
því að safna stigum úr þeim sé staða
þeirra vænleg. Liðið er nú í tíunda
sæti deildarinnar, en aðeins þremur
stigum munar milli sjötta sætisins
og þess tíunda. „Við erum í þannig
séð í fínum málum, en liðið lék í
næstefstu deild á síðustu leiktíð.
Framtíðin er bara björt og við erum
strax farnir að kaupa leikmenn fyrir
næstu leiktíð,“ sagði Bjarni Fritz-
son, en hann er með samning við St.
Raphael til vorsins 2009.
Bjarni
með rif-
inn maga-
vöðva
Bjarni Fritzson
CIUDAD Real komst í gær á topp
spænsku 1. deildarinnar í hand-
knattleik á ný með því að sigra Val-
ladolid á heimavell, 30:27. Ólafur
Stefánsson átti góðan leik, skoraði
4 mörk sjálfur og lék stórskyttuna
Siarhei Rutenka vel upp. Rutenka
gerði 9 mörk í leiknum.
Ciudad Real er með 34 stig en
Barcelona, sem vann Aragón fyrir
helgina, er með 33. Sigfús Sigurðs-
son og félagar í Ademar León koma
næstir með 30 stig.
Árni Þór Sigtryggsson náði ekki
að skora fyrir Granollers sem tap-
aði fyrir Portland, 33:30.
Ciudad aft-
ur á toppinn