Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 3
DANSKA liðið GOG sigraði slóvenska
liðið Celje Lasko í Meistaradeild Evr-
ópu í handknattleik í gær, 34:33. Snorri
Steinn Guðjónsson lék vel með liði
GOG og skoraði 7 mörk en Ásgeir Örn
Hallgrímsson komst ekki á blað. Ásgeir
lék þó vel í vörninni.
„Við lékum fínan leik og vorum alltaf
skrefinu á undan þeim. Sóknarleikur-
inn var mjög góður hjá okkur en við
áttum í vandræðum með þá í vörninni,“
sagði Snorri Steinn Guðjónsson í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
„Það er allt galopið í þessum riðli og
stefnir í hörkubaráttu hjá okkur. Við
erum með fjögur stig eftir þrjá leiki og
klaufar að vera ekki með fullt hús stiga.
Það eru svo tveir erfiðir útileikir eftir,
gegn Barcelona og Celje, og svo er fullt
af flottum leikjum eftir hjá okkur í
dönsku deildinni.“
Uppeldisfélag Snorra Steins, Valur
sigraði Celje í sömu keppni í fyrr í vet-
ur. Spurður hvort Snorri hefði ekki
orðið fúll að tapa fyrir liði sem Valur
hafði unnið sagði Snorri „Celje Lasko
er með ótrúlega gott lið og sterka
handknattleiksmenn og það var frá-
bært hjá Val að vinna þetta lið fyrr í
vetur. Þess vegna hefði ég alls ekki far-
ið í fýlu út af því ef við hefðum tapað
þessum leik. En við unnum.“
„Hefði ekki farið í fýlu“
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 3
íþróttir
Sigurbergur átti sannkallaðan stór-
leik en þessi 20 ára gamla stórskytta
skoraði 12 mörk og var svo sannar-
lega í landsliðsklassa en hann steig
sín fyrstu spor með íslenska lands-
liðinu undir stjórn Alfreð Gíslasonar
í haust. ,,Ég fann mig vel og þetta
small saman hjá mér en það sem
mestu máli skipti var að við unnum
leikinn. Flest það sem við lögðum
upp með gekk upp. Sóknarleikurinn
var góður og vörnin mjög góð á köfl-
um. Við náðum að stöðva styrkleika
Framara og nýta okkur þeirra veik-
leika,“ sagði Sigurbergur.
Það var mikill hraði og á köflum
óðagot í byrjun leiksins og allt útlit
var fyrir spennandi leik en annað átti
eftir að koma á daginn. Upp úr
miðjum fyrri hálfleik náðu Haukarn-
ir undirtökunum með Sigurberg og
Andra Stefan í broddi fylkingar í
sókninni og Eyjamennirnir í Hauka-
liðinu, Arnar Pétursson og Gunnar
Berg Viktorsson, fóru fyrir vörn liðs-
ins. Haukar náðu mest fimm marka
forskoti, 15:10, en Frömurum tókst
að laga stöðuna fyrir leikhlé en stað-
an í hálfleik var, 17:15.
Náðu átta marka forskoti
Framarar mættu grimmir til leiks
í seinni hálfleik. Þeim tókst að
minnka muninn í eitt mark, 20:19, en
þá sögðu Haukarnir hingað og ekki
lengra. Á örskömmum tíma tókst
þeim að slíta Framara frá sér. Fram-
arar gerðu sig seka um hvern sókn-
arfeilinn á fætur öðrum og nýjasti
liðsmaður Haukanna, Elías Már
Halldórsson, nýtti sér það til fulln-
ustu og skoraði fjögur mörk með
stuttu millibili og þegar síðari hálf-
leikur var hálfnaður var forysta
Hauka komin í fimm mörk, 26:21.
Haukarnir héldu áfram að þjarma að
Safamýrarpiltum og náðu mest átta
marka forskoti, 32:24, og gerðu þar
með út um leikinn. Framara reyndu
ýmis örþrifaráð. Þeir tóku tvo leik-
menn Hauka úr umferð og tókst að
rétta sig hlut örlítið en sigri Hafn-
arfjarðarliðsins var ekki ógnað.
Eins og áður segir átti Sigurberg-
ur stjörnuleik. Hann var mjög ógn-
andi, árræðinn og grimmur og réðu
Framarar ekkert við hann. Andri
Stefan átti einnig frábæran leik.
Leikstjórnandinn var sérlega klókur
að finna smugur á Framvörninni og
stjórnaði leik sinna manna af mikilli
röggsemi. Elías Már Halldórsson
var mjög drjúgur og nýtti sín færi
vel og Gunnar Berg Viktorsson
sýndi gamalkunna takta í sókninni
og átti fína leik í vörninni ásamt fyr-
irliðanum Arnari Péturssyni.
Áttum aldrei möguleika
,,Þetta var alveg skelfilega slappt
hjá okkur. Ég trúi því ekki að menn
hafi verið komnir með hugann við
bikarúrslitaleikinn því við sáum
hvernig fór fyrir Val á móti HK. Við
mættum svo sem vel stemmdir til
leiks en þetta gekk engan veginn hjá
okkur og við áttum í raun aldrei
möguleika. Sóknarleikurinn var
slappur og vörnin léleg og það geng-
ur ekki gegn liði eins og Haukum.
Með leik eins og þessum þá getum
við gleymt því að vinna bikarinn,
sagði Jóhann Gunnar Einarsson,
stórskytta Framara, eftir leikinn.
,,Það var fúlt að ná ekki að opna
toppbaráttuna. Með sigri hefðum við
komist í toppsætið sem hefði verið
gott veganesti fyrir bikarúrslitaleik-
inn. Ég vil ekki krýna Haukana strax
sem meistara. Staða þeirra er að vísu
góð en ég held í vonina um að þeir
tapi stigum og það verði spenna í tit-
ilbaráttunni, sagði Jóhann Gunnar.
Andri Berg Haraldsson var einna
bestur í liði Framara og þá sýndi
Haraldur Þorvarðarson lipur tilþrif í
seinni hálfleik. Vörn liðsins var hrip-
lek og markvarslan eftir því, sókn-
arleikurinn gekk ekki upp og greini-
lega náðu liðsmenn Fram ekki að
einbeita sér að verkefninu með bik-
arleikinn við Val handan hornsins.
Sigurbergur í stuði
Árvakur/Frikki
Mark Gunnar Berg Viktorsson skorar eitt marka Haukanna gegn sínu gamla félagi í Safamýrinni í gær.
HAUKAR eru aftur komnir með
þægilegt forskot á toppi N1 deildar
karla í handknattleik eftir sannfær-
andi og öruggan sigur á Fram,
37:32, í Safamýrinni í gær. ,,Þetta
voru virkilega mikilvæg stig og
með góðum leik og mikilli baráttu
tókst okkur ætlunarverkið. Ég get
tekið undir það að við erum komnir
með þægilega stöðu en það er mikið
eftir af mótinu og allt of snemmt
fyrir okkur halda að úrslitin séu
ráðin,“ sagði Sigurbergur Sveins-
son við Morgunblaðið eftir leikinn
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Haukar sterkari á öllum sviðum í Safamýri og sigruðu Fram 37:32
Fjögurra stiga forskot í deildinni Sigurbergur skoraði 12 mörk
AFTURELDING vann gríðarlega þýðingarmik-
inn sigur á ÍBV í úrvalsdeild karla í handbolt-
anum í gær, 28:25. Liðin sitja í tveimur neðstu
sætum deildarinnar en eftir sigurinn í gær er
Afturelding aðeins þremur stigum frá því að
komast af fallsvæðinu. Hilmar Stefánsson var
markahæstur hjá Aftureldingu með 8 mörk en
það var liðsheildin sem skóp sigur Mosfellinga.
„Það er ekkert auðvelt fyrir lið að hífa sig upp
úr meðalmennskunni og ná að innbyrða sigur. En
það tókst hjá okkur núna og ég er virkilega
ánægður,“ sagði Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aft-
ureldingar, eftir leikinn. „Undirbúningur okkar fyrir þennan leik var
örlítið frábrugðinn því sem gengur og gerist þar sem við tókum hluta
úr einni æfingu í vikunni í slökun. Ég er ekki frá því að það hafi skilað
sér á jákvæðan hátt í þessari viðureign okkar við ÍBV,“ sagði Bjarki.
Slökunin skilaði sér
Bjarki
Sigurðsson Það er með ólíkindum hvaðlandsliðsþjálfaramálið íhandknattleik hefur tekiðslæma stefnu. Stjórn
Handknattleikssambands Íslands er
greinilega búin að missa þjálf-
aramálið út úr höndunum á klaufa-
legan hátt með klúðri – með því að
málið hefur verið að þvælast í fjöl-
miðlum fram og til baka. Stjórn HSÍ
hefur haft tíma frá áramótum til að
finna eftirmann Alfreðs Gíslasonar.
Vinnubrögð HSÍ hafa verið væg-
ast sagt furðuleg og það er einnig
hægt að segja um framkomu þeirra
manna sem HSÍ hefur leitað til –
Dags Sigurðssonar, Geirs Sveins-
sonar og Arons Kristjánssonar, sem
komu ekki hreint fram strax í byrj-
un, heldur byrjuðu að gefa stjórn
HSÍ undir fótinn og hófu síðan við-
ræður án þess að full alvara væri til
staðar hjá þeim. Þannig framkoma
er ekki boðleg.
Það er einnig með ólíkindum að
stjórn HSÍ hafi ekki rætt við fyrrver-
andi landsliðsþjálfara þegar allt er
komið í óefni. Stjórnarmenn vilja
greinilega ekki ræða við þjálfara
hér heima, sem hafa áður slegið á
fingurna á stjórn HSÍ og óskað eftir
faglegum vinnubrögðum, eins og
Viggó Sigurðsson og Guðmund Þórð
Guðmundsson.
HSÍ velur frekar þann kostinn að
leita eftir þjálfurum í Þýskalandi –
kanna ástandið þar. Já, þegar eitt
besta lið Þýskalands leitar eftir
þjálfara frá Íslandi, sem er ekki inni
í myndinni hjá HSÍ, til að leysa erfið
verkefni tímabundið, eins og Flens-
borg gerði þegar liðið kallaði á
Viggó, sem svaraði kallinu og vann
afar gott starf með Flensborgarliðið
sl. keppnistímabil.
Já, og klúðrið er orðið algjört þeg-
ar fyrirliði landsliðsins verður við
óskum fjölmiðla og lætur blanda sér
í málið til að benda á þjálfara sem er
honum að skapi! Hvað er að gerast?
Hvernig stendur á því að fyrirliði
fellur í þá gryfju að láti fjölmiðla
teyma sig í þannig vitleysu?
Ég er þeirra skoðana, að leik-
menn eiga aldrei að blanda sér í
þjálfaramál – og þá ekki fyrirliðar.
Og þegar stjórnarmenn HSÍ eru
byrjaðir að tjá sig um málið á þann
hátt sem Þorbergur Aðalsteinsson
gerði í sjónvarpi í sl. viku eru menn
byrjaðir að skaða handknattleikinn.
Þorbergur og Ólafur Stefánsson,
fyrirliði landsliðsins, hafa skotið
hátt yfir mark með framgöngu sinni
í umræðunni um landsliðsþjálfara.
Þegar stjórnarmenn HSÍ segja að
ekkert liggi á, nægur tími sé til
stefnu, er málið komið úr öllum
böndum. Eftir aðeins fjórar vikur
fær nýr þjálfari að glíma við eina
verkefnið sem er boðið upp á fyrir
forkeppni ÓL í Póllandi í lok maí –
að stjórna landsliðinu í tveimur leikj-
um gegn Norðmönnum í Laug-
ardalshöllinni. Stjórn HSÍ ber skylda
að ganga frá málum strax, með því
að kalla á krafta fyrrverandi lands-
liðsþjálfara, Viggós Sigurðssonar
eða Guðmundar Þórðar Guðmunds-
sonar, og óska eftir því að þeir komi
HSÍ af þeim villigötum sem sam-
bandið er komið á. Eins og ég hef áð-
ur sagt tel ég Viggó betri kostinn af
tveimur góðum.
Klúður
Á VELLINUM
Sigmundur Ó. Steinarsson