Morgunblaðið - 25.02.2008, Page 4
4 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Hlynur fór mikinn í liði Snæfells þó
svo að hann hefði ekki haft sig mikið
í frammi við að skora. Hann stóð sig
þeim mun betur í fráköstum og tók
18 slík í gær auk þess sem hann átti
sjö stoðsendingar. Sigurður Þor-
valdsson átti einnig flottan leik, 30
stig og skoraði kappinn 30 stig og
kann greinilega vel við sig í Laug-
ardalshöllinni en þar hefur hann
aldrei tapað úrslitaleik. Justin
Shouse átti einnig frábæran leik,
stjórnaði sókninni af ákveðni og hitti
auk þess vel, gerði 27 stig auk þess
sem hann átti 10 stoðsendingar. Þá
átti Sobodan Subasic einnig fínan
leik en hann var með 24 stig.
„Þeir hittu alveg rosalega strák-
arnir þarna fyrir utan. Fjölnismenn
setja marga menn inn í teig og þá er
nóg af mönnum hjá okkur fyrir utan
til að skjóta og í dag gekk það vel
hjá þeim,“ sagði Hlynur um félaga
sína sem skoruðu 14 þriggja stiga
körfur í leiknum úr 29 tilraunum, en
það gerir 48,3% nýtingu. Sambæri-
legar tölur hjá Fjölni voru 38 til-
raunir og 12 körfur eða 31,6%.
Náðu strax góðri stöðu
Hólmarar mættu mun ákveðnari
til leiks og var staðan fljótlega 11:5
og 27:15 en eftir fyrsta leikhluta
munaði tíu stigum, 30:20. Sá munur
hélst fram að hlé þó svo Fjölnir hafi
náð að laga stöðuna aðeins í þeim
leikhluta en um tíma var staðan
42:26 fyrir Snæfell. Þá kom góður
kafli hjá Fjölni sem gerði níu stig í
röð, en nær komst liðið ekki.
Fyrsta karfan eftir hlé var þriggja
stiga karfa frá Fjölni, 48:41, en
Snæfell svaraði að bragði með
þriggja stiga körfu. Hittni Snæfells í
þessum leikhluta var ótrúlega góð
en samt gekk liðinu illa að hrista
Fjölni af sér enda fengu Grafar-
vogsbúar mörg vítaskot sem þeir
nýttu vel og þegar skammt var eftir
af leikhlutanum var staðan 69:60 en
þá sögðu Snæfellingar: Hingað og
ekki lengra. Þeir gerðu átta síðustu
stigin í leikhlutanum og 11 stig á
móti tveimur í upphafi síðasta leik-
hlutans, 88:62 og sigurinn svo gott í
höfn.
„Okkur gekk erfiðlega að hrista
Fjölni af okkur en mér fannst samt
þetta aldrei vera í hættu hjá okkur.
Við klúðruðum talsvert mörgum
vítaskotum á meðan þeir hittu vel úr
þeim og eins hélt þessi númer átta
(Anthony Drejaj) þeim inni í leikn-
um með því að hitta vel á tímabili,“
sagði Hlynur. Snæfell hitti úr 13 af
29 vítaskotum, sem er 44,8% á með-
an Fjölnismenn hittu úr 16 af 21 eða
76,2%.
Sterkir í fráköstum
Lið sem mæta Snæfelli leggja öll
áherslu á að stíga vel út í teignum
þannig að leikmenn Snæfells nái
ekki eins mörgum fráköstum og þeir
gera venjulega. Fjölnismenn ætluðu
að gera það en gekk erfiðlega. „Ég
man nú bara varla eftir leik þar sem
við höfum orðið undir í baráttunni
um fráköst. Það er okkar styrkur og
bætir upp minni hæfileika okkar ein-
hvers staðar annars staðar. Þetta er
í rauninni sáraeinföld tölfræði. Við
tökum fleiri fráköst og fáum þar af
leiðandi fleiri skot. Því fleiri skot
sem við reynum hlýtur eitthvað
meira að fara ofan í. Og því lengra
frá körfunni sem strákarnir eru þeg-
ar þeir taka skotin því fleiri stig!
Þetta er sáraeinföld íþrótt – eins og
svo margar – og ef maður fer of
djúpt í þetta þá verður það bara
kjánalegt,“ sagði Hlynur.
Hjá Fjölni átti Anthony Drejaj
bestan leik með 26 stig, sjö fráköst
og sex stoðsendingar. Níels Dungal
átti einnig ágætis leik með 17 stig
og sex fráköst. Eins var Helgi Þor-
láksson fínn í vörninni en aðrir náðu
sér ekki nægilega vel á strik.
„Fannst þetta aldrei
í hættu hjá okkur“
SNÆFELL fagnaði sigri í úrslitaleik
Lýsingarbikars karla í körfuknatt-
leik í gær þegar liðið lagði Fjölni
109:86 í Laugardalshöllinni. Fjöl-
margir stuðningsmenn Snæfells fjöl-
menntu frá Stykkishólmi og létu vel í
sér heyra enda liðið þeirra að vinna
bikarinn í fyrsta sinn. „Það kom ekki
annað til greina en að færa þessum
frábæru stuðningsmönnum bikarinn
heim í hólminn,“ sagði Hlynur Bær-
ingsson, fyrirliði Snæfells, eftir sig-
urinn.
Árvakur/Frikki
Afmælisflug Geof Kotila, þjálfari Snæfells, var tolleraður eftir sigurinn í Laugardalshöll í gær. Hann varð 49 ára í gær og fékk því afmælisflugferð.
Hlynur Bæringsson var ánægður með að fá bikarinn til Stykkishólms Sigurður
Þorvaldsson í miklum ham enda tapar hann ekki úrslitaleik í Laugardalshöllinni
Í HNOTSKURN
»Geof Kotila, þjálfari Snæ-fells, var að stjórna liði sínu í
fimmta bikarúrslitaleiknum á
sex árum, en hann fór með
danska liðið Bakken Bears í úr-
slit fjögur ár í röð áður en hann
kom til Snæfells.
»Þjálfarinn fékk fína afmæl-isgjöf frá leikmönnum sín-
um. Sigur í bikarnum á 49 ára
afmælisdeginum.
»Sigurður Þorvaldsson, leik-maður Snæfells, átti glæsi-
legan leik í gær og hann kann
vel við sig í Höllinni því þar hef-
ur hann orðið meistari með ÍR
auk þess að leika fjóra leiki með
Snæfelli í Powerade-bikarnum
2004 og 2007.
„ÞAÐ fór allt
niður hjá mér í
upphafi þannig
að það var bara
um að gera að
halda áfram að
skjóta,“ sagði
Sigurður Þor-
valdsson sem
var stigahæstur
leikmanna Snæ-
fells í bikarúr-
slitaleiknum.
Hann var „sjóðheitur“ alveg frá
fyrstu mínútu, hitti úr fjórum af
sjö tveggja stiga skotum, 7 af 13
þriggja stiga skotum en var ekki
heitur á vítalínunni frekar en aðrir
félagar hans, hitti úr einu af fimm
skotum þar. Sigurður skoraði úr
fjórum þriggja stiga skotum fyrir
hlé, en þá gerði hann 14 stig. Stig-
in í síðari hálfleik urðu 16 og þar
af þrjár þriggja stiga körfur.
„Við byrjuðum betur og eftir
það kom slakur kafli þannig að
þeir komust inn í leikinn. Í byrj-
um seinni hálfleik hittu þeir úr
öllu – gjörsamlega öllu – en við
vorum þolinmóðir og þjálfarinn
talaði um það fyrir leikinn að það
þýddi ekkert að slaka á þó að
mótherjarnir kæmu eitthvað til
baka. Við héldum haus í seinni
hálfleik og náðum að klára verk-
efnið.
Okkar styrkleiki er fráköst og
vörn og það klikkaði ekkert í dag.
Við erum stórir og ágætlega
snöggir og það er okkar leikur að
berjast og taka fráköst,“ sagði
Sigurður og viðurkenndi að sér
leiddist ekki í Laugardalshöllinni.
„Nei, þetta er minn uppáhalds-
staður! Við þurfum að flytja Snæ-
fell til Reykjavíkur og gera Höll-
ina að okkar heimavelli,“ sagði
Sigurður ánægður með daginn.
Höllin
uppá-
haldsstað-
urinn
Sigurður
Þorvaldsson
„ÞEIR voru miklu ákveðnari en
við allan leikinn og betra liðið
sigraði í dag, það er ekki spurn-
ing,“ sagði Bárður Eyþórsson,
þjálfari Fjölnis, eftir að úrslitin
voru ljóst í úrslitaleik bikarkeppn-
innar.
„Við lentum talsvert undir strax
í leiknum og það var alltaf verið að
reyna að vinna þann mun upp. Við
náðum nokkrum sinnum að koma
muninum niður í ein sjö stig og
það var í lagi. Þeir jörðuðu okkur
síðan í seinni hálfleik og það gerði
gæfumuninn. Þeir voru miklu
ákveðnari og grimmari í öllum sín-
um aðgerðum.
Það kom okkur ekkert á óvart í
sókninni hjá þeim en það eina sem
kom okkur á óvart var hversu við
mættum þeim illa.
Hlynur og fleiri jörðuðu okkur
gjörsamlega. Við vissum að það
við yrðum að stíga vel út og vera
grimmir í fráköstunum. Það vissu
allir, en samt gekk það ekki eftir
og svo var það auðvitað bara
hlægilegt hvað Siggi [Sigurður
Þorvaldsson] skoraði grimmt. Ég
veit ekki hvað skal segja, en þetta
var ekki okkar dagur. Betra liðið
vann í dag,“ sagði Bárður.
Þeir voru
miklu
ákveðnari
en við