Morgunblaðið - 25.02.2008, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 7
íþróttir
Alls voru keppnisliðin á mótinu sjö.
A-lið ÍR sigraði í kvennaflokki með
62 stig en í karlaflokki var það lið FH
sem varð hlutskarpast, en það fékk
61 stig. Í heildarkeppninni var hníf-
jafnt milli ÍR, FH og Breiðabliks, en
sem fyrr segir var það A-lið ÍR sem
bar sigur úr býtum.
Tveir undir gamla tímanum
Þrjú Íslandsmet í flokki fullorð-
inna féllu á mótinu í gær. Óli Þór
Tómasson úr FH bætti Íslandsmet í
flokki karla í 200 m hlaupi um 16/100
úr sekúndu þegar hann hljóp á 21,65
sek. Óli Þór bætti þar með aðeins
ársgamalt met Sveins Elíasar Elías-
sonar úr Fjölni, en Sveinn varð ann-
ar í hlaupinu. Báðir hlupu þeir þó
undir gamla Íslandsmetinu í gær.
Met slegin í boðhlaupum
Kvennasveit Breiðabliks bætti
eigið met í 4x400m boðhlaupi þegar
þær hlupu á 3:56,92 mín, en gamla
metið var 3:58,51 mín. Sveit Breiða-
bliks var skipuð Lindu Björk Lár-
usdóttur, Stefaníu Valdimarsdóttur,
Þuríði Erlu Helgadóttur og Herdísi
Helgu Arnalds.
Þá bætti sveit Fjölnis/Ármanns
Íslandsmetið í karlaflokki í sömu
grein, 4x400m hlaupi þegar sveitin
hljóp á tímanum 3:21,66 mín. Gamla
metið hafði verið í eigu ÍR og var
3:22,91 mín. Sveit Fjölnis/Ármanns
var eingöngu skipuð Fjölnismönn-
um, en þeir voru Leifur Þorbergs-
son, Bjarni Malmquist Jónsson, Ol-
geir Óskarsson og Sveinn Elías
Elíasson. Raunar sigraði A-sveit
Norðurlands í greininni í gær, en þar
sem sveitin var skipuð liðsmönnum
frá fleiri en einu félagi fær hún ekki
árangurinn skráðan sem félagsmet.
Auk þessara meta féllu einnig Ís-
landsmet í unglingaflokki og telpna-
flokki.
Með þessu má segja að innanhús-
tímabilinu í frjálsum íþróttum sé lok-
ið, en þetta var síðasta stóra mótið í
fullorðinsflokkum á þessum vetri.
Miðað við metaregnið í gær er vart
hægt að segja annað en þetta hafi
verið frábær endir á þessu tímabili
innandyra og ljóst að stefnir í spenn-
andi mót utanhúss hjá iðkendum
frjálsra íþrótta.
Árvakur/Frikki
ÍR-ingar fagna Mikill fögnuður var hjá bikarmeisturum ÍR í frjálsíþróttum innanhúss í Laugardalshöllinni.
ÍR hreppti bikarinn
ÞRJÚ Íslandsmet voru slegin á Bik-
armeistaramótinu innanhúss í gær
sem Frjálsíþróttasamband Íslands
hélt. A-lið ÍR varð bikarmeistari
eftir æsispennandi keppni í Laug-
ardalshöllinni og hlaut aðeins einu
stigi meira en FH sem varð í öðru
sæti. Lið Breiðabliks hafnaði svo í
þriðja sæti mótsins.
Óli Jón sló Íslandsmetið í 200 m hlaupi og skákaði Sveini
Boðhlaupsmet hjá Breiðabliki og Fjölni
PETER Grave-
sen, miðjumaður
Fylkis, fór illa að
ráði sínu í gær-
kvöld þegar
hann gat tryggt
Árbæingunum
stig gegn Kefla-
vík í fyrstu um-
ferð deildabik-
arsins í
knattspyrnu. Hann tók vítaspyrnu í
uppbótartíma en skaut fram hjá
marki Keflvíkinga, sem þar með
unnu 4:3 í bráðfjörugum leik í Eg-
ilshöllinni.
Tíu mínútum áður fékk Hall-
grímur Jónasson, leikmaður Kefl-
víkinga, rauða spjaldið fyrir að slá
til mótherja. Hann hafði áður skor-
að fyrsta markið í leiknum.
Fram mátti sætta sig við jafntefli
gegn 1. deildar liði KA á Akureyri,
1:1. Almarr Ormarsson kom KA yf-
ir en Jón Þorgrímur Stefánsson var
aðeins þrjár mínútur að jafna metin
fyrir Fram.
Eyþór Guðnason skoraði sig-
urmark HK úr vítaspyrnu þegar
Kópavogsliðið vann Njarðvík
naumlega, 1:0, í Kórnum.
Stefán Þ. Þórðarson byrjaði vel
með Skagamönnum eftir heimkom-
una frá Svíþjóð. Hann gerði bæði
mörkin í 2:0 sigri á Haukum í Akra-
neshöllinni. Skagamenn voru
manni færri í 70 mínútur eftir að
Andri Júlíusson fékk rauða spjald-
ið.
Pétur Georg Markan innsiglaði
sigur Fjölnis á Þór, 5:3, þegar hann
skoraði á síðustu mínútunni í Bog-
anum. Þór var 3:1 yfir þegar 20
mínútur voru eftir af leiknum.
Jóhann R. Benediktsson tryggði
Fjarðabyggð jafntefli gegn Stjörn-
unni þegar hann jafnaði úr víta-
spyrnu, 2:2, í leik liðanna í Kórnum.
Daníel Hjaltason skoraði fjögur
mörk fyrir Valsmenn þegar þeir
léku Eyjamenn grátt, 6:0, í Egils-
höllinni á laugardaginn.
Björgólfur Takefusa skoraði tví-
vegis fyrir KR-inga sem unnu
Leikni úr Reykjavík, 3:1.
Kristinn Steindórsson kom inn á
sem varamaður og skoraði tvö
marka Breiðabliks sem vann stór-
sigur á Grindvíkingum, 5:1, í
Reykjaneshöllinni.
Gravesen brást og
Keflavík fagnaði sigri
Peter Gravesen
BARCELONA
vann stórsigur á
Levante 5:1 í
spænska fótbolt-
anum í gær-
kvöld þar sem
Samuel Eto’o
gerði þrennu í
leiknum. Eiður
Smári Guðjohn-
sen var í leik-
mannahópi Katalóníuliðsins en
mátti hírast á tréverkinu allan
leiktímann.
Barcelona liðið fékk tvöfalda
ástæðu til að fagna síðar um
kvöldið því þá tapaði Real Madrid
nokkuð óvænt fyrir Getafe á
heimavelli sínum, Santiago Berna-
beu, 0:1. Það hleypir heldur betur
fjöri í toppbaráttu deildarinnar
því nú eru það aðeins tvö stig sem
skilja á milli þessara erkifjenda.
Real Madrid er sem fyrr í fyrsta
sæti og hefur 56 stig en Barcelona
hefur 54 stig. Það er því alveg
ljóst að áhugamenn um spænska
knattspyrnu geta búast við raf-
magnaðri spennu í toppbaráttu
deildarinnar eftir úrslit kvöldsins.
Eto’o með
þrennu
Samuel Eto’o
Tiger Woodsátti ekki í
vandræðum með
Stewart Cink í
úrslitum heims-
mótsins í holu-
keppni í gær-
kvöld og er þetta
15. sigur hans á
heimsmóti í
golfi. Woods hefur nú titil að verja á
öllum þremur heimsmótunum, hann
sigraði einnig á Bridgestone-
meistaramótinu og CA-meist-
aramótinu á Doral vellinum. Úrslita-
leikurinn var langt frá því að vera
spennandi því Woods var með mikla
yfirburði. Woods fékk 14 fugla á 29
holum og var hann með 8 vinninga
þegar 7 holur voru eftir.
Emil Hallfreðsson var á ný í leik-mannahópi Reggina eftir
meiðslin en kom ekki við sögu þegar
liðið vann óvæntan en dýrmætan sig-
ur á Juventus, 2:1, í ítölsku A-
deildinni í knattspyrnu í fyrrakvöld.
Nikola Amoruso skoraði sigurmarkið
úr vítaspyrnu í uppbótartíma.
Jóhannes Karl Guðjónsson lék all-an tímann með Burnley sem tap-
aði, 3:1, fyrir Plymouth í ensku 1.
deildinni í knattspyrnu á laugardag-
inn.
Garðar B.Gunn-
laugsson skoraði
síðara mark
sænska knatt-
spyrnuliðsins
Norrköping, úr
vítaspyrnu, þegar
það sigraði Mar-
iehamn frá
Álandseyjum, 2:0,
í æfingaleik á laugardaginn. Gunnar
Þór Gunnarsson var ekki með Norr-
köping en hann var hvíldur vegna
smávægilegra meiðsla. Mariehamn
leikur í efstu deild í Finnlandi og var
þar í sjötta sæti í fyrra en Norrköp-
ing vann sænsku 1. deildina í fyrra og
leikur í úrvalsdeildinni í ár eftir fimm
ára fjarveru.
Arnar Þór Viðarsson var vara-maður hjá De Graafschap og
kom ekki við sögu þegar lið hans tap-
aði, 4:1, fyrir PSV Eindhoven í hol-
lensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
gær.
Kamerúninn Samuel Eto’o fór ákostum í liði Barcelona í gær og
gerði þrennu þegar liðið sigraði Lev-
ante, 5:1. Athygli vakti að þegar
Eto’o fagnaði sínu þriðja og síðasta
marki fékk hann myndavél lánaða hjá
einum af fjölmörgum ljósmyndurum
leiksins og smellti einni mynd af ljós-
myndaranum í miðjum fagnaðarlát-
unum.
David Beckham lék stórt hlutverkhjá félagsliði sínu, LA Galaxy
um helgina er liðið lagði ástralska lið-
ið Sidney FC í leik um þriðja sætið á
meistaramóti Kyrrahafsins. Læri-
sveinar hins hollenska Ruud Gullit
hjá LA Galaxy, unnu leikinn 2:1 og
lagði David Beckham upp bæði mörk-
in. Það var japanska liðið Gamba
Osaka sem vann Kyrrahafsmótið.
Garðar Jó-hannsson
skoraði tvö marka
Fredrikstad þeg-
ar liðið gerði jafn-
tefli, 3:3, við Våle-
renga í viðureign
norsku knatt-
spyrnuliðanna á
æfingamóti á La
Manga á Spáni í
gær. Vålerenga sigraði í víta-
spyrnukeppni en Gunnar Heiðar
Þorvaldsson lék ekki með liðinu að
þessu sinni.
Fólk sport@mbl.is
Meistaramót Íslands
Þriðja og síðasta umferð, Ísafirði, laugar-
daginn 23. febrúar:
Lokastaðan í stigakeppni:
HSK ....................................................... 100,5
Hörður..................................................... 99,0
HSÞ.......................................................... 97,0
UÍA .......................................................... 91,5
KR............................................................ 70,0
GFD ......................................................... 17,0
Lokastaða í opnum flokki karla:
Pétur Eyþórsson, KR ............................... 18
Stefán Geirsson, HSK............................... 15
Ólafur Oddur Sigurðsson, HSK............... 12
Lokastaða í +90 kg flokki karla:
Stefán Geirsson, HSK............................... 18
Stígur B. Sophusson, Herði...................... 13
Jón Birgir Valsson, KR............................. 10
Lokastaða í -90 kg flokki karla:
Pétur Eyþórsson, KR ............................... 18
Ólafur Oddur Sigurðsson, HSK............... 15
Arnar Halldórsson, Herði ........................ 11
Lokastaða í -80 kg flokki karla:
Snær Seljan Þóroddsson, UÍA................. 18
Steinar B. Marinósson, Herði .................. 11
Óttar Ottósson, KR ................................... 11
Lokastaða í +80 kg flokki unglinga:
Stígur B. Sophusson, Herði...................... 16
Hjalti Þ. Ásmundsson, UÍA................... 11,5
Magnús K. Ásmundsson, UÍA ................. 10
Lokastaða í -80 kg flokki unglinga:
Bjarni Þór Gunnarsson, HSÞ................... 18
Hreinn H. Jóhannsson, HSK ................... 14
Steinar B. Marinósson, Herði .................. 12
Lokastaða í opnum flokki kvenna:
Soffía Björnsdóttir, HSÞ.......................... 18
Sylvía Ósk Sigurðardóttir, HSÞ .............. 14
Laufey Frímannsdóttir, UÍA..................... 9
Lokastaða í +65 kg flokki kvenna:
Soffía Björnsdóttir, HSÞ.......................... 18
Laufey Frímannsdóttir, UÍA..................... 9
Sylvía Ósk Sigurðardóttir, HSÞ ................ 5
Auður Gunnarsdóttir, HSK........................ 5
Lokastaða í -65 kg flokki kvenna:
Sylvía Ósk Sigurðardóttir, HSÞ .............. 12
Guðrún Heiður Skúladóttir, UÍA .............. 9
Guðbjörg L. Þorgrímsdóttir, GFD............ 5
Þróttur Vogum 15 2 13 1233:1340 4
Reynir S 15 2 13 1149:1461 4
NBA-deildin
Aðfaranótt laugardags:
Boston – Phoenix .............................. 85:77
Charlotte – Sacramento ............... 115:116
Orlando – Philadelphia................... 115:99
Indiana – New Jersey .................. 113:103
New York – Toronto....................... 103:99
Cleveland – Washington .................. 90:89
Detroit – Milwaukee ..................... 127:100
Chicago – Denver.......................... 135:121
Memphis – Dallas ............................. 83:98
New Orleans – Houston ................. 80:100
LA Clippers – Utah ...................... 114:104
Golden State – Atlanta ................. 110:117
Seattle – Portland............................. 99:87
Úrslit í fyrrinótt:
San Antonio – New Orleans............. 98:89
Washington – Charlotte ................. 110:95
Miami – Philadelphia...................... 96:101
Eftir framlengingu.
New Jersey – Indiana .................... 102:91
Milwaukee – Denver..................... 115:109
Utah – Atlanta ................................ 100:94
LA Clippers – LA Lakers.............. 95:113
Bikarmót SKÍ
Keppt í skíðabrekkum Böggvisstaðafjalls
við Dalvík á laugardag og sunnudag
Svig karla:
Sigmar Örn Hilmarsson ................... 1:44,07
Gunnar Þór Halldórsson................... 1:44,87
Sigurgeir Halldórsson ...................... 1:45,06
Svig kvenna:
Tinna Dagbjartsdóttir ...................... 1:52,57
Fanney Guðmundsdóttir .................. 1:54,07
Eyrún Kristín Eyjólfsdóttir ............. 1:56,14
Stórsvig karla:
Gunnar Þór Halldórsson................... 1:51,06
Kristinn Ingi Valsson........................ 1:51,92
Sigurgeir Halldórsson ...................... 1:53,16
Stórsvig kvenna
Inga Rakel Ísaksdóttir ..................... 1:59,49
Selma Benediktsdóttir...................... 2:00,59
Silja Hrönn Sigurðardóttir............... 2:02,19
Svig karla 17-19 ára:
Sigmar Örn Hilmarsson ................... 1:44,07
Gunnar Þór Halldórsson................... 1:44,87
Björn Ingason.................................... 1:46,17
Svig kvenna 17-19 ára:
Silja Hrönn Sigurðardóttir............... 1:56,99
Selma Benediktsdóttir...................... 2:00,41
Stórsvig karla 17-19 ára:
Gunnar Þór Halldórsson................... 1:51,06
Sigurgeir Halldórsson ...................... 1:53,16
Björn Ingason.................................... 1:56,57
Stórsvig kvenna 17-19 ára:
Selma Benediktsdóttir...................... 2:00,59
Silja Hrönn Sigurðardóttir............... 2:02,19