Morgunblaðið - 25.02.2008, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
knattspyrna
„Það jafnast ekkert á við tilfinn-
inguna að vinna bikar og að skora
sigurmarkið gerir tilfinninguna
ennþá betri. Liðsandinn var hreint
ótrúlegur,“ sagði varnartröllið Jo-
nathan Woodgate, en hann skoraði
sigurmarkið í framlengingu. Juande
Ramos er frábær knattspyrnustjóri
sem kann að vinna titla. Hann hefur
unnið titla hjá Sevilla og núna er
hann tekinn til við sömu iðju hjá
Tottenham.“
Didier Drogba kom Chelsea yfir í
fyrri hálfleik með glæsilegu marki
beint úr aukaspyrnu. Tottenham
jafnaði ekki leikinn fyrr en í síðari
hálfleik þegar Dimitar Berbatov
skoraði úr vítaspyrnu, en sem fyrr
segir var það Woodgate sem skoraði
sigurmarkið.
Avram Grant, stjóri Chelsea, var
að vonum spældur eftir leikinn. „Við
stjórnuðum leiknum alveg þangað til
þeir fengu vítið. Eftir það var ekki
sjón að sjá okkur. Ég tel þó að dóm-
arinn hafi sjálfsagt haft rétt fyrir sér
þegar vítið var dæmt. Það er auðvit-
að frábær árangur út af fyrir sig að
komast alla leiðina í úrslitaleikinn,
en maður vill vinna þegar maður er
kominn í hann. Maður vill aldrei
tapa, því það er alltaf leiðinlegt að
tapa, en það er virkilega sársauka-
fullt að tapa svona úrslitaleikjum,“
sagði Avram Grant.
„Þetta var ótrúlegur sigur. Við
vorum undir í hálfleik en enduðum
samt á því að hampa bikarnum. Við
verðum vonandi bara betri og betri
með hverjum leik núna. Ég vona svo
sannarlega að þessi bikar sé upphaf-
ið að einhverju stóru fyrir félagið,“
sagði Gustavo Poyet aðstoðarknatt-
spyrnustjóri Tottenham, kampakát-
ur eftir sigur hans manna.
Fyrsti titill hjá Ramos
TOTTENHAM Hotspur varð í gær
enskur deildabikarmeistari í fjórða
skipti þegar liðið lagði Chelsea í
Lundúnaslag 2:1, eftir framlengdan
leik. Þar með er Spánverjinn Ju-
ande Ramos búinn að tryggja liðinu
fyrsta bikarinn undir hans stjórn,
en Ramos tók við liði Tottenham
fyrr á þessari leiktíð.
Reuters
Langþráður Ledley King og Robbie Keane, fyrirliðar Tottenham, lyfta deildabikarnum eftir sætan sigur á
Chelsea. King kom inn í lið Tottenham eftir langvarandi meiðsli og lék allan leikinn á Wembley.
Tottenham vann deildabikarinn í fyrsta sinn í níu ár Didier Drogba hefur
skorað mark í öllum úrslitaleikjum sem hann hefur leikið með Chelsea
Fróðir menntelja að
Eduardo Da
Silva, leikmaður
Arsenal, sem fót-
brotnaði illa á
laugardaginn er
Martin Taylor,
leikmaður Birm-
ingham, braut
fólskulega á honum, verði aldrei
sami leikmaðurinn. Eduardo, sem
er 25 ára í dag, mun ekki leika
meira á keppnistímabilinu og held-
ur ekki með Króatíu á Evrópumóti
landsliða í Sviss og Austurríki í
sumar.
Eduardo er tvíbrotinn, á legg ogökkla, en hann gekkst undir
uppskurð síðdegis á laugardag.
Reiknað er með að nánari upplýs-
ingar um batahorfur hans verði
gefnar út í dag. Meiðslin eru talin
svipuð og enski landsliðsmaðurinn
Alan Smith, Newcastle, varð fyrir í
febrúar 2006 en hann hefur ekki
náð sér á strik eftir það.
Arsene Wenger, knattspyrnu-stjóri Arsenal, baðst afsök-
unar á ógætilegum orðum sínum í
garð Martins Taylors, varnarmanns
Birmingham. Strax eftir leik sagði
Wenger að Taylor ætti að fá lífstíð-
arbann fyrir brotið á Eduardo.
„Ummæli mín um Martin Taylor
voru óhófleg. Ég lét þau falla í hita
augnabliksins eftir leikinn. Þetta
var tilfinningaþrunginn dagur og
við vorum allir í losti vegna meiðsl-
anna,“ sagði Wenger nokkrum tím-
um síðar við BBC.
FernandoTorres,
landsliðsmiðherji
Spánar, tryggði
Liverpool sigur
á Middlesbrough
á Anfield með
því að skora
þrennu, 3:2.
Rafael Benítez,
knattspyrnustjóri Liverpool, hrós-
aði landa sínum mikið og sagði að
hann hefði ná að aðlaga sig hinni
erfiðu keppni í ensku úrvalsdeild-
inni. „Það er alltaf erfitt fyrir út-
lendinga að ná strax fótfestu í öðr-
um löndum, en Torres hefur gert
það.“ Það má segja að Torres hafi
náð að nýta færin sem hann fékk
uppi við mark Middlesbrough
hundrað prósent.
West Ham hafði heppnina meðsér og vann Fulham, 1:0, á
marki á lokamínútunum sem var
ansi vafasamt. Nolberto Solano fór
með takkana í Antti Niemi, mark-
vörð Fulham þegar hann teygði sig
í boltann, sem síðan fór af handlegg
Solanos og í netið.
HermannHreið-
arsson lék allan
leikinn með
Portsmouth sem
sigraði Sunder-
land, 1:0. Jerma-
in Defoe skoraði
sigurmarkið úr
vítaspyrnu sem
króatíski landsliðsmaðurinn Nico
Kranjcar fékk. Hermann hefði get-
að fengið vítaspyrnu í byrjun síðari
hálfleiks þegar hann var hindraður
í að skalla á mark úr góðu færi,
með peysutogi.
David James, félagi Hermannsog landsliðsmarkvörður Eng-
lands, hélt upp á 500. leik sinn í
ensku úrvalsdeildinni með því að
halda hreinu gegn Sunderland.
James, sem er 37 ára, hefur leikið í
deildinni frá stofnun hennar 1992,
lengst með Liverpool þar sem hann
spilaði 216 deildaleiki á sjö árum.
Fólk sport@mbl.is
ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, var ekki ánægður
eftir jafnteflisleik gegn Birm-
ingham á laugardag, 2:2. Strax á
þriðju mínútu leiksins var miðherj-
inn Eduardo Da Silva borinn fót-
brotinn af leikvelli eftir ljótt brot
Martins Taylors.
„Þetta brot var búið að gera boð
á undan sér í talsverðan tíma því
það hefur legið í loftinu að leiðin til
að stöðva Arsenal sé að sparka í
leikmenn liðsins,“ sagði Wenger og
taldi að það hefði ekki verið auka-
spyrna, sem leikmenn Birmingham
skorðu fyrra mark sitt úr. „Þá
fengu þeir ódýra vítaspyrnu í leiks-
lok, sem þeir jöfnuðu úr. Víta-
spyrnan var dæmd stuttu eftir að
dómarinn sleppti augljósri víta-
spyrnu á Birmingham – er brotið
var á Adebayor,“ sagði Wenger.
Arsenal réð gangi leiksins, en
náði ekki að knýja fram sigur. Theo
Walcott skoraði bæði mörk liðsins
með fimm mínútna millibili í upp-
hafi seinni hálfleiksins.
Eduardo
fótbrotinn
WAYNE Rooney og Cristiano Ron-
aldo léku vörn Newcastle grátt
þegar Manchester United vann
stórsigur, 5:1, í leik liðanna á St.
James’ Park á laugardaginn. Þeir
félagar gerðu tvö mörk hvor og
Rooney lagði loks fimmta markið
upp fyrir Louis Saha í uppbót-
artíma. United nýtti sér því stiga-
tap Arsenal gegn Birmingham
fyrr um daginn og nú skilja þrjú
stig toppliðin.
„Það voru sóknarmenn okkar
sem gerðu út um leikinn, þeir
voru stórkostlegir. Þetta var fín
frammistaða og við hefðum getað
skorað fleiri mörk. Rooney og
Ronaldo gerðu tvö mörk hvor en
Tévez og Nani hjálpuðu þeim mik-
ið með hlaupum sínum. Það er erf-
itt að spila í Newcastle en okkur
tókst að þagga niður í heima-
mönnum,“ sagði Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri Manchester
United.
Frábærir
frammi
GRÉTAR Rafn Steinsson virtist hafður fyrir
rangri sök í gær þegar dæmd var á hann víta-
spyrna í leik Blackburn og Bolton í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu. Úr spyrnunni skoraði
Benni McCarthy fyrra mark sitt af tveimur af
vítapunktinum og fyrsta markið í góðum sigri
Blackburn í nágrannaslagnum, 4:1.
Mark Clattenburg dómari dæmdi á Grétar
Rafn fyrir meint brot á David Dunn yst í vítat-
eignum en þegar atvikið er skoðað í sjónvarpi
sést að það var mjög hæpinn dómur. Kevin Dav-
ies náði að jafna fyrir Bolton áður en McCarthy
skoraði úr annarri vítaspyrnu en David Bentley
og Morten Gamst Pedersen bættu síðan við
mörkum fyrir Blackburn.
Grétar Rafn spilaði allan leikinn með Bolton
en Heiðar Helguson var ekki með vegna meiðsla
í baki.
Ívar Ingimarsson lék síðustu 20 mínúturnar
með Reading sem tapaði, 1:2, fyrir Aston Villa á
heimavelli í gær. Þetta var áttundi ósigur Read-
ing í röð en Nicky Shorey skoraði á lokasekúnd-
unum, fyrsta mark liðsins í fimm leikjum. Ashley
Young gerði fyrra mark Villa og lagði það síðara
upp fyrir Marlon Harewood. Lið þeirra náði Liv-
erpool og Everton að stigum með þessum úrslit-
um. Ívar kom aftur inn í hópinn eftir leikbann en
hóf leikinn á varamannabekknum. Brynjar
Björn Gunnarsson er enn fjarri góðu gamni hjá
Reading vegna meiðsla.
Grétar hafður fyrir rangri sök