Morgunblaðið - 29.03.2008, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2008 3
Eggert Gunn-þór Jóns-
son, sem leikur
með Hearts í
Skotlandi, gerði
nýjan samning
við félagið í gær
og gildir hann
fram á sumar
2012. Hinn 19
ára knattspyrnumaður frá Eskifirði
hóf að leika með aðalliði félagsins á
síðasta tímabili og hefur staðið sig
mjög vel í vetur. Á vef félagsins
segir Eggert að hann sé mjög
ánægður með samninginn og það
hafi alltaf verið ljóst í hans huga að
hann ætlaði að vera áfram hjá fé-
laginu.
Eyjamenn hafa rift samningnumvið Junior Conzvales frá
Brasilíu. Ástæðan er agabrot sam-
kvæmt vef félagsins. Tveir landar
hans, Italo Jorge Pelande og Alex-
andre da Silva munu leika með lið-
inu í sumar.
Helena Sverrisdóttir fór mikinnmeð TCU skólaliðinu í fyrri-
nótt þegar það lagði Texas Tech
81:74 í 16-liða úrslitum NIT-
mótsins í bandaríska háskólabolt-
anum. Helena gerði 16 stig, tók 5
fráköst og gaf þrjár stoðsendingar
auk þess að stela boltanum þrisvar.
Þetta var sögulegur sigur því TCU
hafði ekki lagt Tech í 38 leikjum.
BacarySagna, bak-
vörður Arsenal,
verður frá
keppni í þrjár
vikur vegna
meiðsla á ökkla
sem hann hlaut í
leik gegn
Chelsea um sl.
helgi. Sagna mun því missa af leikj-
um Arsenal gegn Liverpool í
Meistaradeild Evrópu. Þá mun
hann einnig missa af deildarleikjum
gegn Liverpool og Manchester
United.
Darren Fletcher, miðjuleik-maður Manchester United,
verður frá keppni í sex vikur vegna
meiðsla á hné sem hann hlaut í
landsleik Skota og Króata á mið-
vikudaginn.
Alexandre Pato, hinn ungi Bras-ilíumaður hjá AC Milan, kom
inn á sem varamaður og lék sinn
fyrsta landsleik þegar Brasilía lagði
Svíþjóð að velli á miðvikudaginn á
heimavelli Arsenal í London. Pato
kom inn á sem varamaður í seinni
hálfleik og var ekki búinn að vera
inn á nema í 12 mín. er hann skor-
aði sitt fyrsta mark. Hann var fljót-
ari að skora en Pele og Ronaldo,
þegar þeir skoruðu í sínum fyrstu
landsleikjum. Það tók Pele 32 mín.
að skora gegn Argentínu 1957 og
Ronaldo 51 mín. að skora í sínum
fyrsta leik – gegn Íslandi 1994.
Arnór Smárason er í leik-mannahópi Heerenveen í stór-
leik helgarinnar í hollensku úrvals-
deildinni – þegar liðið tekur á móti
Ajax á heimavelli í kvöld. Ef Hee-
renveen nær sigri kemst liðið upp í
annað sætið. Arnór er af Akranesi
og hefur hann dvalið í herbúðum
Heerenven undanfarin ár.
Ísland sigraði Írland, 1:0, í vin-áttulandsleik U19 ára landsliða
kvenna í knattspyrnu sem fram fór
í Dublin í gær. Hlín Gunnlaugs-
dóttir skoraði sigurmarkið úr víta-
spyrnu þegar ein mínúta var eftir
af fyrri hálfleik. Þetta var fyrri
leikur þjóðanna sem mætast aftur í
Dublin á sunnudaginn. Bæði lið eru
að búa sig undir milliriðla Evr-
ópukeppninnar í lok apríl.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Stefán Stefánsson
Skothríð Keflvíkingar var slík strax í
byrjun leiks að Norðanmenn áttu í
mestu vandræðum með að komast
upp úr skotgröfunum og þegar við
bættist öflug vörn heimamanna sáu
gestirnir varla til sólar. Áður en yfir
lauk og kom að næsta leikhluta var
Keflavíkurliðið komið með 17 stiga
forskot, 37:20, og hafði þá fengið 27 af
þessum stigum með þriggja stiga
körfum. Akureyringar lögðu samt
ekki árar í bát og náðu að halda í horf-
inu fram í miðjan annan leikhluta en
þá hófst önnur skothrina svo að 21
munaði í hálfleik. Hún hélt svo áfram í
þriðja leikhluta þegar fyrstu níu stig-
um komu úr langskotum svo munur-
inn fór uppí 23 stig en þá komst meira
jafnvægi í leikinn. Þórsarar byrjuðu
að bíta frá sér en náðu bara að halda
sjó því þó Suðurnesjamenn slökuðu
aðeins á skotgleðinni var vörnin til
staðar.
Hittum svakalega
Magnús Þór Gunnarsson stór-
skytta var í miklum ham og hitti úr 6
af ellefu þriggja stiga skotum sínum
við mikinn fögnuðu rúmlega þrjú
hundruð áhorfenda. „Ætlunin var að
koma grimmir til leiks og fara inn í
teig en við hittum svakalega, vitum að
við erum góðar skyttur og tilbúnir í
úrslitakeppnina. Þegar maður er
kominn tuttugu stig yfir kemur alltaf
kafli þegar menn slaka sjálfkrafa á.
Við ætluðum ekki að gera það en héld-
um samt haus og unnum öruggan sig-
ur,“ sagði Magnús eftir leikinn og tel-
ur sigur í næsta leik ekki í höfn. „Við
þurfum að vinna tvo leiki eins og allir
aðrir svo við komum grimmir til leiks,
sama hvað liði við mætum, sérstak-
lega á heimavelli því við verðum að
verja hann. Það verður mjög erfitt að
fara til Akureyrar því þeir eru með
góðan heimavöll og ef við mætum ekki
eins og við mættum núna, vinnum við
ekki en við erum í góðum málum með
einn sigur.“ B.A. Walker var bestur
Keflvíkinga þegar hann átti mestan
þátt í halda hraðanum í byrjun og
skoraði 22 stig eins og Magnús en
Anthony Susnjara var drýgstur í frá-
köstum, tók alls 9. Reyndar var fjöldi
frákasta ekki í samræmi við vörnina,
alls 26 á móti 36 gestanna en þeim
mun meiri var skotgleðin því Keflvík-
ingar reyndu 38 þriggja stig skot og
hittu úr 19.
Hvorki snertum né skutum
„Við létum taka okkur í bólinu,
gerðum einmitt það sem við ætluðum
að vanda okkur við að gera ekki og
létum tilefnið ná til okkar en það virt-
ist einmitt gerast,“ sagði Hrafn Krist-
jánsson, þjálfari Þórsara, eftir leik-
inn, taldi spennuna í fyrstu leik
úrslitakeppninnar of mikla. „Keflvík-
ingarnir voru bara á skotæfingu í
fyrsta leikhluta og við vildum hvorki
snerta þá né fara sjálfir upp í skot svo
því fór sem fór og í hálfleik var þetta
orðið mjög erfitt. Það var alveg gefið
að þeir myndu stökkva á okkur í byrj-
un og þá er mikilvægt að standa það
af sér. Við gerðum það ekki en ef lið
byrjar á svona hraða og við stöndum
það af okkur – hvert fer það þá. Það
eru þessi einföldu atriði í körfubolta.
Þú sérð um að stoppa þinn mann og ef
maður þarf alltaf að treysta á hjálp
við það, einmitt gegn liði með svona
marga skotmenn þá endar það með
því að einhver þeirra fær opið skot.
Við vorum einfaldlega ekki að taka
okkar mann,“ bætti Hrafn við og
hlakkaði til næsta leiks. „Mér líst vel á
næsta leik sem verður verðugt verk-
efni og enn verðugra eftir þennan
leik. Þetta er gaman, við erum komnir
í úrslitakeppni og fyllum húsið. Við
erum nú á leiðinni norður og vitum að
þetta eru engin ofurmenni, sem erum
að keppa við og getum gert betur.“
Þórsarar máttu búast við látum í byrj-
un og að þátttaka í úrslitakeppni
þýddi að leggja þyrfti hart að sér en
þeim tókst ekki að vera mikið með í
byrjun. Cedric Isom var þeirra bestur
með 24 stig, 7 fráköst og 5 stoðsend-
ingar en Keflvíkingum tókst að hemja
hann á köflum. Robert Reed barðist
af mætti undir körfunni og tók 9 frá-
köst og Óðinn Ásgeirsson kom til með
6 fráköst.
Þriggja stiga skotgleði
réð ríkjum í Keflavík
Ljósmynd/Víkurfréttir
Öflugur Magnús Þór Gunnarsson skoraði 22 stig fyrir Keflavík gegn Magnúsi Helgasyni og félögum hans úr Þór.
REYNDAR var ætlunin að skjóta
mikið en það hefur samt ekki verið
okkar stíll í vetur,“ sagði Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Keflvík-
inga, að loknum öruggum 105:79
sigri á Þór frá Akureyri í fyrstu við-
ureign liðanna í 8 liða úrslitum úr-
valsdeildarinnar, sem fram fór suð-
ur með sjó. Keflvíkingar voru
skotglaðir í meira lagi og reyndu 38
þriggja stiga skot, á móti 28 innan
teigs, og hittu úr nógu mörgum til að
vinna. „Við spiluðum fyrst og fremst
góða vörn í dag enda það lið sem
fékk fæst stig á sig í vetur þó að það
hafi lítið komið fram í fjölmiðlum.
Við getum því spilað á ýmsa vegu, í
dag hlupum við mikið og skutum,
miklu meira en í vetur en hvort við
gerum það í næsta leik veit ég ekk-
ert um, það kemur í ljós á morgun.“
Í HNOTSKURN
» Keflavík nýtti helming af 38þriggja stiga skotum sínum.
Þórsarar hittu úr fimm af 17
þriggja stiga skotum sínum.
Fráköstin voru fleiri hjá Þórs-
urum, 36 á móti 26 Keflvíkinga.
nsson heldur enn í
ólympíumót fatlaðra
a síðar á árinu. Hann
kalista síns fötlunar-
því að komast inn en
flokki.
m sýnist í þessu því
mast álfumeistarar á
m er neðar á listan-
og kemst því inn og
einn spilari frá þeim
á heimavelli. Þar með
í flokkinn og Jóhann
n.
restur til að staðfesta
ekki víst að allir þeir
staðfesti komu sína
fir enn í voninni enda
að ná inn á listann,
ferðaðist víða um heim til að
taka þátt í stigamótum.
Von hans felst ef til vill
einna helst í því að Afríku-
menn hafa ekki sent fulltrúa
á ólympíumót fatlaðra í fjóra
áratugi eða svo þannig að ef
þeir halda uppteknum hætti
losnar eitt sæti og þar sem
Jóhann Rúnar er efstur á
biðlistanum kæmist hann á
leikana.
Annar möguleiki er að Þjóðverjar sendi ekki
fulltrúa. Á listanum er nefnilega þýskur spilari,
sem er fyrir ofan Jóhann Rúnar á styrkleika-
listanum, en heyrst hefur að Þjóðverjar sendi
ekki menn á mótið nema þeir eigi möguleika á
verðlaunasæti og þessi viðkomandi spilari á litla
von á slíku.
Rúnar vonast til að
á ólympíumótið
Jóhann Rúnar
Kristjánsson
ÓLAFUR Jóhannesson er kominn í hóp
með nokkrum mætum mönnum sem hafa
náð að stýra íslenska karlalandsliðinu í
knattspyrnu til sigurs í þremur leikjum í
röð.
Tony Knapp varð fyrstur til þess árið
1984 þegar Ísland vann Grænland, Wales í
undankeppni HM og Sádi-Arabíu.
Sigfried Held var næstur árið 1987. Ís-
land vann þá Austur-Þýskaland í for-
keppni Ólympíuleikanna og Noreg, heima
og heiman, í undankeppni EM.
Ásgeir Elíasson stýrði liðinu í þremur
sigurleikjum í röð 1994, gegn Bólivíu,
Eistlandi og Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum.
Guðjón Þórðarson var ósigraður í 11
landsleikjum í röð 1998 til 1999 sem þjálf-
ari Íslands. Þar af unnust þrír í röð, gegn
Rússlandi (EM), Lúxemborg og Andorra
(EM).
Atli Eðvaldsson gerði betur en aðrir ár-
ið 2000 þegar Ísland vann fjóra leiki í röð,
gegn Finnlandi, Færeyjum, Möltu og Sví-
þjóð.
Logi Ólafsson og Ásgeir Sigurvinsson
byrjuðu á þremur sigurleikjum þegar þeir
tóku við 2003, gegn Færeyjum, Litháen og
aftur Færeyjum, allt í undankeppni Evr-
ópukeppni landsliða, EM.
Ólafur Jóhannesson er nú búinn að
stýra Íslandi til sigurs gegn Armeníu,
Færeyjum og Slóvakíu.
Ísland vann líka þrjá leiki í röð 1989. til
1990. Guðni Kjartansson stjórnaði sig-
urleik gegn Tyrkjum (HM) haustið 1989
og Bo Johansson gegn Lúxemborg og
Bermúda 1990.
Ólafur kominn í hóp þjálfara,
með þrjá sigrar í röð …