Morgunblaðið - 17.04.2008, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 3
Sigurður Ari Stefánsson átti stór-leik og skoraði 10 mörk þegar
Elverum, undir stjórn Axels Stef-
ánssonar, vann góðan sigur á Runar,
33:28, í fyrri leik liðanna í átta liða
úrslitunum um norska meistaratit-
ilinn í handknattleik í gærkvöld. Sig-
urður skoraði 7 mörk í fyrri hálf-
leiknum en þá var Elverum undir,
14:16. Ingimundur Ingimundarson
skoraði eitt marka liðsins. Liðin
mætast aftur á heimavelli Runar um
næstu helgi en það sem sigrar sam-
anlagt kemst í undanúrslitin.
Ólafur Stefánsson skoraði 4 mörkfyrir Ciudad Real í gærkvöld
þegar lið hans vann öruggan sigur á
Antequera, 30:22, í átta liða úrslit-
um spænsku bikarkeppninnar í
handknattleik. Ciudad Real mætir
Arrate í undanúrslitum en Arrate
vann Sigfús Sigurðsson og félaga í
Ademar León örugglega í gærkvöld,
34:26. Sigfús náði ekki að skora fyrir
Ademar en var rekinn tvisvar af
velli.
Hreiðar Levy Guðmundssonlandsliðsmarkvörður var besti
maður Sävehof í gærkvöld en það
dugði ekki til því lið hans tapaði á
heimavelli, 25:29, fyrir Ystad í þriðja
leik liðanna í undanúrslitunum um
sænska meistaratitilinn í handknatt-
leik. Sävehof var með 2:0 forystu í
einvíginu og hefði með sigri verið
komið í úrslit en Ystad fær nú tæki-
færi til að laga stöðuna á sínum
heimavelli. Erik Fritzon skoraði 7
mörk fyrir Sävehof en Oscar Carlén
8 mörk fyrir Ystad.
Eyjamenn lögðu Aftureldingu,31:29, í uppgjöri neðstu liða úr-
valsdeildar karla í handknattleik í
Vestmannaeyjum í gærkvöld. Mikil
spenna var í lokin, Afturelding var
með sjö útispilara gegn fjórum leik-
mönnum ÍBV í síðustu sókninni og
freistaði þess að jafna en í staðinn
náðu Eyjamenn boltanum og skor-
uðu. Nikolaj Kulikov skoraði 7 mörk
fyrir ÍBV og Oliver Kiss átti stórleik
í marki Aftureldingar.
Lærisveinar Sigurðar Jónssonarí Djurgården eru aftur á toppi
sænsku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu eftir jafntefli, 1:1, við Örebro
á útivelli í gærkvöld. Sölvi Geir
Ottesen lék allan leikinn með Djurg-
ården. Nýliðar Norrköping töpuðu
1:3 fyrir Halmstad á heimavelli og
eru enn án sigurs. Garðar B. Gunn-
laugsson kom inná sem varamaður
hjá Norrköping á lokamínútunum en
Gunnar Þór Gunnarsson sat á vara-
mannabekk liðsins allan tímann.
Árni Gautur Arason markvörðurmátti þola sitt annað tap í jafn-
mörgum leikjum með Thanda Royal
Zulu í suður-afrísku knattspyrnunni
í gær. Lið hans sótti þá heim Mamel-
odi Sundowns og tapaði, 2:0.
Thanda er áfram í þriðja neðsta sæti
deildarinnar þegar sex umferðum er
ólokið, þremur stigum frá fallsæti.
Fólk folk@mbl.is
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Keflavík hafði fjögurra stiga forystu
eftir fyrsta leikhluta en vann þann
næsta 23:13 eftir að ÍR reyndi svæð-
isvörn um tíma en gafst fljótlega
upp á henni. Keflavíkurliðið leit mun
betur út í alla staði. Boltinn gekk
hratt milli manna í sókninni og gríð-
arleg barátta var í leikmönnum í
fráköstum. Þegar einhver „hitnaði“ í
sókninni var leitað til hans og að
þessu sinni var það Gunnar Einars-
son sem var sjóðheitur. Hann gerði
23 stig, hitti úr fimm af sex þriggja
stiga skotum sínum, úr fjórum af
sex tveggja stiga skotum en nýtti
ekki eina vítaskotið sem hann fékk.
Arnar Freyr Jónsson átti einnig
flottan leik, gríðarlega snöggur leik-
maður sem erfitt er að ráða við á
degi sem þessum.
Miklu munaði fyrir ÍR-inga að
Hreggviður Magnússon, einn mátt-
arstólpa liðsins, náði sér engan veg-
in á strik í gærkvöldi og í þriðja leik-
hluta lék hann aðeins síðustu tvær
mínúturnar.
Flottur kafli Keflvíkinga
Keflavík var 69:61 yfir eftir þriðja
leikhluta og ÍR gerði fyrsta stig
þess fjórða. En þá var ballið búið.
því Keflavík gerði 19 stig í röð og
var Gunnar iðinn á þessum kafla.
Næstu stig ÍR komu ekki fyrr en
2,35 mínútur voru eftir af leiknum
og hann í raun búinn, staðan þá
88:62.
Eins og áður segir komst ÍR í 2:0
með fræknum sigri í Keflavík í
fyrsta leik og síðan í Seljaskóla í
næsta leik. En þeim tókst ekki að
fylgja þessum sigrum eftir og svíður
það væntanlega. „Þetta er mjög
svekkjandi. Við komum hingað al-
veg sannfæðir um að við gætum
unnið hér eins og við gerðum í fyrsta
leiknum,“ sagði Jón Arnar Ingvars-
son, þjálfari ÍR, eftir leikinn.
„Við erum með þannig lið að
margt þarf að smella saman hjá
okkur sem sést kannski vel á því að
við töpuðum fleiri leikjum en við
unnum í vetur. Það sést því að það
eru gallar í þessu hjá okkur, en ég
held að ÍR geti horft til framtíð-
arinnar björtum augum. Það eru
margir menn í liðinu sem fengu
mikla reynslu út úr þessu enda er-
um við með íslenska leikmenn í lyk-
ilhlutverkum hjá okkur. Þeir eru
reynslunni ríkari og verða ennþá
sterkari að ári,“ sagði Jón Arnar.
Erum hundfúlir
Spurður hvort liðið geti samt ekki
verið ánægt með heildarútkomuna í
vetur. Liðið endaði í sjöunda sæti,
komst í undanúrslit með því að
vinna KR og tapar fyrir deildar-
meisturum Keflavíkur í oddaleik.
„Auðvitað erum við hundfúlir, en ef
maður horfir yfir þetta í heild þá
lékum við tvö efstu liðin í úrslita-
keppninni og höfum veitt þeim verð-
unga keppni með því að vinna Kefla-
vík á útivelli og KR tvisvar á útivelli.
Það sýnir að það býr margt gott í
þessu liði,“ sagði þjálfarinn.
Hann sagði að ekki hefði náðst
það besta út úr liðsheildinni að
þessu sinni. „Við byggjum leik okk-
ar á liðsheildinni og náðum bara
ekki að ná því besta út úr henni í
kvöld. Einvígið byrjaði vel en síðan
snerist þetta í þannig leik sem hent-
ar Keflavík betur og við náðum ekki
að snúa því við þannig að við næðum
að ráða ferðinni,“ sagði Jón Arnar.
Stoltur af liðinu
Eiríkur Önundarson átti góðan
leik í gær fyrir ÍR og var að vonum
svekktur þegar hann gekk af velli.
„Þetta er gríðarlega svekkjandi. Við
erum búnir að vera dálítið rokkandi
í vetur og höfum sýnt að við getum
unnið alla – en því miður líka tapað
fyrir öllum. Ég held að það sé verið
að setja saman nokkuð heilsteypt lið
hjá okkur og við vorum ansi hreint
nálægt því að komast einu skrefi
lengra núna. En því miður náðum
við ekki að sýna okkar rétta andlit í
síðustu þremur leikjum okkar.
Það var sérstaklega svekkjandi að
ná ekki að sýna sparihliðina á
heimavelli, en þar var okkar helsta
von um að slá Keflavík út. Þeir eru
með gott lið og mikla reynslu og
vanir að vera í þessari stöðu. Þetta
varð því orðið ansi erfitt eftir að við
töpuðum á heimavelli en þetta fer í
reynslubankann hjá strákunum og
ég er gríðarlega stoltur af liðinu,“
sagði Eiríkur.
Glæsileg endurkoma
KEFLVÍKINGAR leika til úrslita í
Iceland Express-deild karla í körfu-
knattleik. Liðið lagði ÍR 93:73 í
oddaleik liðanna í undanúrslitunum
í gær fyrir fullu húsi áhorfenda í
Toyota-höllinni í Reykjanesbæ.
Mikil stemning var á áhorf-
endabekkjunum en Keflvíkingar
höfðu undirtökin á vellinum þannig
að leikurinn varð aldrei spennandi.
En áhorfendur skemmtu sér engu
að síður hið besta. Endurkoma
Keflvíkinga er einsdæmi í sögu
körfunnar en þeir eru fyrstir til að
komast í úrslit eftir að hafa lent 2:0
undir. Keflvíkingar viðhéldu einnig
hefðinni varðandi Suðurnesjalið í
úrslitum en lið þaðan hefur alltaf
verið í úrslitum frá því úr-
slitakeppnin hófst 1984.
Ljósmynd/Jón Björn Ólafsson
Skin og skúrir Gunnar Einarsson og Arnar Freyr Jónsson átti flottan leik í gær en ÍR-ingurinn Hreggviður Magn-
ússon náði sér ekki á strik og fylgist hér með Arnari Frey, ásamt Tahirou Sani, leggja boltann í körfuna.
ÞAÐ eru miklar líkur á því að Páll Gísli Jónsson muni ekki
standa í marki ÍA í Landsbankadeildinni í sumar. Páll Gísli
meiddist á hægra hné á æfingu liðsins sl. fimmtudag og bendir
flest til þess að hann sé með slitið krossband. Á föstudag mun
Páll Gísli fara í myndatöku og eftir þá rannsókn mun hann fá úr
því skorið hvort krossbandið sé slitið. Skagamenn hafa nú þegar
hafið leit að markverði til þess að fylla skarð Páls Gísla. Þórður
Guðjónsson, framkvæmdastjóri rekstrarfélags mfl. félagsins,
segir að tveir ungir og efnilegir markverðir séu í leikmannahóp
félagsins.
„Trausti Sigurbjörnsson verður 18 ára á þessu ári og Árni
Snær Ólafsson er ekki nema 17 ára. Þeir eiga báðir framtíðina
fyrir sér en það er ekki raunhæft að ætla þeim að standast það
álag sem fylgir því að leika í efstu deild á Íslandi heilt keppn-
istímabil. Við erum því að leita að markverði,“ sagði Þórður
Guðjónsson við Morgunblaðið.
ÍA leitar markmanns
VALDÍS Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni
á Akranesi, sigraði á alþjóðlegu áhuga-
mannamóti sem lauk á Kýpur í gær. Valdís
lék samtals á 2 höggum yfir pari en hún var
á 70 höggum eða 2 höggum undir pari á fyrri
hringnum og 76 höggum í gær eða 4 höggum
yfir pari. Alls luku 27 keppendur leik af þeim
29 sem hófu keppni. Heiða Guðnadóttir úr
GS endaði í þriðja sæti á 10 höggum yfir pari
(78-76). Eygló M. Óskarsdóttir úr GKG varð
fjórða á 16 höggum yfir pari (81-79) og
Ragna Björk Ólafsdóttir úr GR varð fimmta
á 20 höggum yfir pari (83-81). Á föstudag hefst keppni í karla-
flokki og þar leika þeir: Andri Már Óskarsson GHR, Axel Bóas-
son GK, Björn Guðmundsson GA, Guðjón Henning Hilmarsson
GKG og Rúnar Arnórsson GK.
Valdís efst á Kýpur
Valdís Þóra
Jónsdóttir
ÓLÖF María Jónsdóttir hefur leik í dag á Evrópumótaröð
kvenna í golfi eftir langt hlé en mótið sem Ólöf leikur á fer fram
á Spáni. Árið 2005 komst Ólöf María fyrst allra kylfinga frá Ís-
landi á Evrópumótaröðina í golfi og keppnistímabilið 2004-2005
lék hún á 12 mótum og endaði hún í 105. sæti peningalistans.
Á tímabilinu 2005-2006 náði Ólöf aðeins að leika á 8 mótum
en hún varð að hætta keppni undir lok tímabilsins vegna
meiðsla á úlnlið. Hún lék ekki á mótaröðinni á síðasta tímabili
þar sem hún eignaðist sitt fyrsta barn og vegna veikinda barns-
ins varð Ólöf að fresta endurkomu sinni á mótaröðina.
Mótið á í dag er því fyrsta atvinnumótið hjá Ólöfu Maríu frá
því um miðjan júlí árið 2006. Á því ári náði hún aðeins að kom-
ast í gegnum niðurskurðinn á tveimur mótum af alls átta og
besti árangur hennar var 37. sæti. Besti árangur hennar á Evr-
ópumótaröðinni er 35. sætið en þeim árangri náði Ólöf árið 2005
á móti Danmörku.
Ólöf María með á ný
ot-
ns-
þau
og
:11
Jó-
et-
og
og
2.
og
ndi,
með
19.
frá
ot-
blo
in-
21.
rir
:21
ni í
on-
am
þá
ær
m
-
tir
tri:
ls-
s-
Keflvíkingar neituðu að gefast upp þegar þeir voru 2:0 undir Brutu blað í sögu
körfuknattleiksins ÍR-ingar geta verið stoltir af frammistöðu sinni