Morgunblaðið - 25.04.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.04.2008, Blaðsíða 1
föstudagur 25. 4. 2008 bílar mbl.isbílar Renault-samsteypan er nú orðin þriðji stærsti bílasmiður heims >> 2 TROÐNAR SLÓÐIR ÞÝSKA MÓTORHJÓLIÐ FS800 GS FRÁ BMW ER FALLEGUR OG LIPUR FARARSKJÓTI >> 4 FRAMENDI C2-smábílsins frá Citroën hefur tekið breytingum og ný gerð bílsins stendur til boða með nýrri dísilvél til viðbótar þeim vélar- útgáfum sem fyrir eru. „Vistlegi“ er undirnefni bílsins vegna hlutfallslega lítillar losunar gróð- urhúsalofts. Fimm ár eru frá því C2-bílnum var fyrst hleypt af stokkum og hefur Citroën nú gert á honum nokkrar útlitsbreytingar að framanverðu. Stuð- arinn er nýrrar hönnunar, kælishlífin fyrir framan vatnskassann og ljósaluktirnar hafa stækkað. Eftir andlitslyftinguna er bíllinn öllu líkari hin- um stærri C3-bíl að framan. Í vélarhúsinu eiga kaupendur nú þess einnig kost að hafa þar 110 hestafla, 1,6 lítra dísilmótor sem gefur 240Nm tog og losar aðeins 119 g/km af gróðurhúsalofti. Hann verður með rykagnasíu og eyðir aðeins 4,4 lítrum á hundrað km í blönduðum akstri. Velja má á milli þriggja stærða af bensínmótor, 60-90 hestafla, og tveggja díselmótora, 68 og 110 hesta. Verði stærsti bensínmótorinn, 1,4 lítra, 16 ventla og 90 hestafla, fyrir valinu fylgir svo- nefndur stopp-start-búnaður með. C2-smábílnum var hleypt af stokkunum árið 2003 og af honum hafa verið seld rúmlega 480.000 eintök. Nýja gerðin kemur á markað í næsta mán- uði. C2 fær andlitslyftingu og meiri kraft Breytingar Meiri heildarsvipur er yfir trjónu C2-bílsins eftir andlitslyftinguna. ÞESSA dagana stendur yfir al- þjóðlega bílasýningin í Peking sem haldin er annað hvert ár. Þar getur að líta það allra nýjasta frá bíla- framleiðendum heimsins sem gefa einnig forsmekk að því sem koma skal í hönnun og tækni. Japanski hugmyndabíllinn Mazda Taiki hef- ur fengið mikla athygli á sýning- unni í Peking en hann gefur mynd af því hvernig sportbílar Mazda munu hugsanlega líta út í framtíð- inni. Hönnuðir bílsins hafa lagt sér- staka áherslu á umhverfishæft gildi hans án þess þó að draga of mikið úr afli og sportlegum aksturseig- inleikum. Bílasýningunni í Peking lýkur hinn 28. apríl. Reuters Léttur Hugmyndabíllinn Mazda Taiki fangar athygli á alþjóðlegu bílasýningunni í Peking. Bíllinn er léttur og sérlega umhverfishæfur. Framandi hugmyndir í Kína

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.