Morgunblaðið - 25.04.2008, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 25.04.2008, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 7 bílar  Leó M. Jónsson vélatæknifræðingur svarar fyrirspurnum á leoemm- @simnet.is (Ath. Bréf geta verið stytt). Eldri spurningar og ítarlegri svör eru birt á www.leoemm.com. Ekkert opinbert eftirlit er með gæðum eldsneytis. Hver eru gæði eldsneytisins? Spurt: Ég hef verið að velta fyrir mér hver séu gæði þeirrar dísilolíu sem okkur er seld hérlendis og hef skoðað vefsíður olíufélaganna. Þar er hvergi minnst á gæðastaðla eldsneytis, brennisteinsinnihald, cetantölu og fleira sem hægt er að lesa um á síðum erlendra olíufélaga. (Er samt miklu fróðari um grill og fleira sem þessi fé- lög selja). Skeljungur segist selja Shell Formula dísil frá árinu 2000 (http://www.skeljungur.is) en ekkert minnst á það í verðlistum. Bílafram- leiðendur gera ákveðnar kröfur um eldsneyti og skiptir þetta væntanlega meira máli eftir því sem mengunar- búnaður og vélarstýringar verða flóknari. Á bandarískum vefsíðum sem ég hef verið að skoða er fullyrt að misjöfn gæði dísilolíu hafi valdið bilun- um í dísilvélum bíla og aukinni olíu- eyðslu. Mér finnst furðulegt að hér sé lítil sem engin umræða um gæði olíu- nnar, sérstaklega þegar haft er í huga dísilbílum er að fjölga. Getur verið að þessi ört stækkandi bílafloti verði fyr- ir ótímabærum bilunum og óþarfa eldsneytiseyðslu vegna lakra gæða dísilolíunnar? Svar: Ekkert opinbert óháð eftirlit er með gæðum þess eldsneytis sem okk- ur er selt (jafnvel þótt þetta sé ein helsta tekjulind ríkissjóðs). Ým- islegt bendir til þess að gæðin séu mismunandi á mismunandi tíma (eftir inn- kaupum og förmum) en enginn munur sé á því eldsneyti sem olíufélögin kaupa þótt dreifikerfi kunni að vera mismunandi. Kvartað hefur verið undan vatns- og soramengaðri dísilolíu og vatnsmeng- uðu bensíni frá einu olíufélaganna við mig – og gangtruflanir hafa horfið eft- ir ákveðnar aðgerðir og eftir að hætt var viðskiptum þar – ég hef látið stjórnendur þess félags vita af þessu. Þeir virtust ekki hafa áhyggjur af þessu (buðu mér í heimsókn til að ræða málið – sem ég veit ekki hvaða tilgangi átti að þjóna – enda hafði ég ekki tíma til þess). Sérstök ástæða fyndist mér til að sérstakt opinbert og reglulegt eftirlit væri haft með elds- neyti (mætti t.d. fela FÍB) – en norska bensínið (krack–bensín) mun vera það fyrsta sem selt er hérlendis sem þolir ekki geymslu nema takmarkaðan tíma og brennur jafnvel ekki ársgamalt! Það eina sem maður getur gert er að nota ísóprópanól raka- og ísvara út í bensín og sérstakan rakavara fyrir dísilolíu auk þess að endurnýja elds- neytissíur oftar (en þessi efni eru seld á allt að tíföldu verði bensínlítra). Er hægt að skipta um gler í ljóskeri? Spurt: Ég er með nýlegan jeppa með brotið gler (gat) í öðru framljóskerinu. Nýtt ljósker kostar 35-40 þús. kr. Á partasölu get ég fengið svona ljósker með brotnum festingum en að öðru leyti heilt fyrir 4 þús. kr. Er hægt að skipta um gler í þessum ljóskerum þótt framleiðandinn segi það ekki mögulegt? Svar: Já, það er hægt. Jamal, parta- sali í Mosfellsbæ, kennir eftirfarandi aðferð): Djúpt fat er fyllt með heitu vatni, bætt út í það sjóðandi vatni úr 3 hraðsuðukötlum. Rafmótor sem still- ir halla spegils tekinn úr ljóskerinu og spennurnar losaðar af glerinu. Ljóskerið með brotna glerinu er látið liggja í heitu vatninu í 15 mín. Þá mýkist kíttið þannig að hægt er að losa brotna glerið úr. Gæta þarf þess að kíttið sitji eftir í falsinu en fylgi ekki glerinu. Þá er þetta endurtekið með ljóskerið með heila glerinu. Heila glerið er síðan sett í heila ljós- kerið, það látið liggja í heitu vatni í 15 mín. Þá er það tekið upp úr, glerið sett í og spennurnar settar á og látið kólna í rólegheitum. Þá á ljóskerið að vera heilt og þétt. Gæta verður þess að halda vatninu jafn heitu þær 15 mín. sem tekur að mýkja kíttið. Sé talin ástæða til að þétta betur, til að varna því að gufa þéttist innan í ljós- kerinu, má nota sílikonþéttiefni frá Permatex og setja taum á samskeytin allan hringinn. Gæta verður þess að sé um bensínbíl að ræða að nota síli- kon sem er (Oxy Sensor Safe), þ.e. eyðileggur ekki súrefnisskynjara en venjulegt glært sílikon myndar klór- efnasamband við storknun sem eyði- leggur skynjarana komist það í loft- inntak vélar. Ekkert opinbert eftirlit er með gæðum eldsneytis F í t o n / S Í A N1 VERSLANIR SÍMI 440 1200 WWW.N1.IS HjáN1 finnur þú landsinsmesta úrval af bílavarahlutum frá viðurkenndum framleiðendum. Í verslunumokkar um land allt er fagfólk reiðubúið að veita þér alla þá aðstoð og ráðgjöf semþú þarfnast.N1 –Meira í leiðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.