Morgunblaðið - 25.04.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.04.2008, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ bílar Öryggi Mótorhjólið var sérlega lipurt og létt viðureignar sama hvort sem ekið var á malbiki eða á vegarslóðum. Þeir sem þekkja til BMW-mótorhjóla vita að framan af hafa alvöru BMW- mótorhjól verið talin hafa loftkælda tveggja strokka boxer vél, drifskaft og hönnun sem hefur höfðað meira til eldra mótorhjólafólksins en þess yngra. BMW hefur hins vegar unnið hörðum höndum að því síðastliðin ár að vinna gegn ímyndinni og er nú svo komið að frá BMW fæst nánast allt, „krúser“ hjól, keppnishjól, drullu- mallarar, fjögurra strokka hjól, eins strokka hjól, hjól með hefðbundinni fjöðrun eða óhefðbundinni BMW- fjöðrun og jafnvel hjól með keðjum í stað drifskaftsins viðhaldsfría. Í samkeppni við fleiri BMW voru um langt skeið einráðir á markaðnum fyrir ferðamótorhjól enda vilja flestir meina að BMW hafi fundið upp þann geira mótorhjóla þó óneitanlega hafi fyrirtæki eins og Tri- umph verið komin á svipaðar slóðir með hjól eins og Triumph TR6 Trophy. BMW lagði mikla áherslu á að hjól- in væru eins sterkbyggð og við- haldsfrí og hægt var og þegar við þann pakka var bætt slaglangri fjöðr- un, breiðara stýri og hærri ásetu var meira miðuð fyrir malbik en geta tæklað smá-slóða, er takmarkað. Sem betur fer er hægt að slökkva á kerfinu þegar keyrt er í möl því þá getur verið þörf á að nota afturbremsuna mun meira en á BMW eru fram- og aft- urbremsurnar tengdar saman með ABS-bremsukerfinu. Það nægir því að hemla í botn þegar þarf að nauð- hemla og kerfið sér um að dreifa álag- inu á milli fram- og afturhjóla. Þægindi og útbúnaður eru kjörorðin Sætið reyndist afar þægilegt og fór einnig vel um farþega á hjólinu og má vel ímynda sér að lítið mál sé að aka um lengri leið, jafnvel á slóðum, með farþega á hjólinu. Í reynsluakstrinum var þetta prófað og var ekkert upp á hegðun hjólsins að klaga þó farþegi væri á því þegar ekið var á malarvegi. Það sem ferðalangar sækjast eftir er þó aðallega tvennt: góð langdrægni og möguleiki á því að hlaða farangri á hjólíð. Langdrægnin er helst til dræm enda bara 16 lítra bensíntankur á hjólinu. Þó er hægt að komast um 350 kílómetra á tanknum sem verður að teljast viðunandi. Hvað töskur og aukabúnað varðar mun enginn koma að tómum kofanum hjá BMW því úr- valið af töskum og aukabúnaði er gíf- urlegt. Fyrir þá sem vilja enn meira úrval má alltaf leita til Touratech en það fyrirtæki hefur lengi sérhæft sig í aukabúnaði fyrir mótorhjól og þá sér- staklega GS-hjólin frá BMW. Af frágangi hjólsins má sjá að þrátt fyrir að það hafi hvorki boxervél né drifskaft fer ekki á milli mála að um BMW-mótorhjól er að ræða. Allur frágangur er til fyrirmyndar og er augljóst að efnisnotkun er skör ofar en t.d. á BMW F650 GS. Bæði eru felgur dýrari, fjöðrunin er mun vand- aðri og hjólið hefur öflugri bremsur. Það er ljóst að hvað ferðalög varðar hafa vopn þeirra sem hingað til hafa afsakað sig með sérkennilegri hönnun BMW verið slegin úr höndum þeirra – hér er komið alvöru ferðahjól sem þrátt fyrir að hafa bláa og hvíta BMW-merkið á tanknum er einfalt og hefðbundið. BMW fetar troðnar slóðir Sterkt F800 GS er sterklegt að sjá og virðist hjólið einmitt vera það sem BMW vantaði til að ná til þeirra sem hingað til hafa valið japanska fáka. Langferð BMW býður mikið úrval af aukabúnaði fyrir GS-hjólin og er bæði hægt að fá töskur sem henta innanbæjar og sérhannaðar töskur fyrir langferðir. Stjórnstöð Hægt er að fá upphitað stýri, ABS-bremsukerfi, GPS- leiðsögutæki og einnig er 12v tengi fyrir GSM-síma, tónhlöðu eða hvers kyns aukatæki. kominn pakki sem þótti prýðisgóður fyrir heimsreisur. En BMW-boxer hjólin þykja í stærra lagi fyrir marga og æði- þunglamaleg. Því fór svo að BMW hannaði hjól í samstarfi við Aprilia ár- ið 1993 og úr því samstarfi varð til hið geysivinsæla BMW F650 GS sem jafnframt var fyrsta BMW-hjólið sem ekki notaðist við drifskaft. Það má því segja að mótorhjólið sem hér er til prófunar sé eins konar samruni þess nýja og gamla hjá BMW. Hugmyndafræðin að baki hjól- inu er enn sú sama, sterkbyggt og endingargott hjól sem þó státar af keðju frekar en drifskafti og hefur jafnframt hefðbundna fjöðrun. BMW hefur þó hvergi til sparað frekar en venjulega en sökum þess hvernig hjól- ið er uppbyggt, á hefðbundinn máta, þá fer hið nýja BMW F800 GS í beina samkeppni við önnur ferðahjól eins og Honda Varadero, Triumph Tiger, Su- zuki V–Strom, Ducati Multistrada og KTM 990 Adventure svo einhver séu nefnd. Alvöru ferðahjól? Hið nýja F800 GS er útbúið nýrri vél með tveimur samhliða strokkum og er hún 800cc að stærð. Vélin er nokkuð öflug og hlýtur að hafa stóra þýska meginlandshesta því BMW gef- ur upp að hún sé 85–88 hestöfl en við prófanir mælist vélin iðulega 91–94 hestöfl. Hér er því um að ræða hjól sem hefur svipað afl og stóru 1200 GS hjólin en mun minni þyngd því F800 GS er aðeins 178 kíló í þurrvikt og 207 kíló með öllum vökvum. Þetta er einmitt helsti styrkur hjólsins því það smellpassar á milli F650 GS, sem í dag er með 800 vél og 71 hestafl, og 1200 GS hjólsins. BMW hefur því náð að hanna hjól sem er kraftalegt á að líta eins og 1200 GS en hefur aksturseiginleika á við léttara hjólið. Í akstri er F800 GS afskaplega lip- urt mótorhjól. Há ásetan, sem þó er ekkert í líkingu við 1200 GS, gefur gott útsýni yfir það sem fram undan er en þó er sætið ekki það hátt að fólk sem er í meðalhæð geti ekki ekið hjól- inu. Stýrið er breitt og sterklegt og er hægt að koma margs konar útbúnaði fyrir á því eins og GPS-staðsetning- artæki. Upphituð handföng eru kær- komin viðbót þegar haft er í huga hve stýrið er breitt því maður kólnar ansi fljótt á höndunum þegar engin er vindhlífin. Á léttum slóða reyndist fjöðrunin vera mjög ákjósanleg fyrir ferðahjól, slaglöng og mjúk og var hjólið strax mjög traustvekjandi í akstri. Aflið er þó mikið og varð ökumaður var við að eldsneytisgjöfin væri fullnæm og því var auðvelt að missa hjólið í spól upp brattar brekkur. Þetta er þó án efa nokkuð sem mun venjast. Bremsurnar eru verulega góðar og er mikil hjálp að hafa ABS-bremsu- kerfi á malbiki en við líflegan akstur er ABS-kerfið stanslaust með smá- inngrip sem gefur einfaldlega til kynna að grip dekkjanna – sem eru þó REYNSLUAKSTUR Ingvar Örn Ingvarsson Vél: Tveir strokkar, samhliða, 800 rúmsenti- metrar. Afl: 85 hestöfl við 7500 snúninga. Tog: 83 NM við 5.750 snúninga. Gírkassi: Sex gíra og blaut kúpling. Dekk: 90/90 21 að fram- an, 150/70 17 að aftan. Bremsur: 2 x 300 mm að framan með tveggja stimpla dælum, 1 x 265 eins stimpils að aftan. Eldsneytistankur: 16 lítrar. Sætishæð: 880 mm. Þyngd: 207 kíló með öll- um vökvum. Verð: Áætlað 1.244.000. BMW F800 GS Lincoln Navigator 4WD, árg. 2003, ek. 52 þús. km, sjálfsk. fjarlægðarskynjarar, topplúga, leður o.fl. Verð 3.750 þús. kr, áhv. 3.000 þús. kr. Lúxus Sportbíll 4,6sec 0-100, 400 Hö Cadillac CTS-V, árg. 2006, ek. 5 þús. km, Beinsk. 6 gíra, 400 Hö, DVD, topplúga, Xenon, leður o.fl. Verð 5.890 þús. kr. Nissan Patrol GR, árg. 2003, ek. 99 þús. km, sjálfsk. dísel, dráttarbeisli o.fl. Verð 2.690 þús. kr. Jeep Grand Cherokee Limited 4X4, árg. 2004, ek. 53 þús. km, sjálfsk. topplúga, leður o.fl. Verð 2.690 þús. kr. Suzuki GSX Hayabusa 1300 RY, árg. 2005, ek. 14 þús. km, beinsk. Verð 1.100 þús. kr. Hyundai Santa Fe II V6, árg. 9/06, ek. 17 þús. km, sjálfsk. Hiti í sætum o.fl. Stgr. Tilboð 3.290 þús. kr. Listaverð 4.050 þús. kr!!! M.Benz E 430 Avantgarde, árg. 2001, ek. 144 þús. km, sjálfsk. topplúga, leður o.fl. Verð 1.700 þús. kr. Yfirtaka á láni!!! Dodge Ram 1500 4X4, árg. 2007, nýr, sjálfsk. dráttarbeisli, leður o.fl. Verð 4.290 þús. kr. Funahöfða 1 • Opið virka daga kl. 10:00-18:30 • Laugardaga kl. 12:00-16:00 M bl 9 94 93 7 Jeep Grand Cherokee Limited 4X4, árg. 2002, ek. 111 þús. km, sjálfsk. topplúga, leður o.fl. Stgr.Tilboð 1.490 þús. kr. Verð áður 1.890 þús. kr!!! Nissan Patrol GR 44", árg. 2000, ek. 230 þús. km, beinsk. Dísel, 44" breyttur, ek. ca. 40 þús. km á vél, topplúga, CP-Stöð o.fl. Verð 2.990 þús. kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.