Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 1
föstudagur 23. 5. 2008 bílar mbl.isbílar LÍTILL LÚXUSBÍLL NÝJASTA ÚTGÁFA AF MILLISTÆRÐARBÍLNUM AUDI A4 ER FJÖLSKYLDU SINNI TIL SÓMA >> 2 Eftir Þormóð Dagsson thorri@mbl.is Geðorðin tíu eru mörgumnauðsynleg í amstri dags-ins en þeirra er ekki sístþörf í umferðinni sem stundum vill draga fram það versta í fólki. Hugsanlega hafa einhverjir ökuþórar á höfuðborgarsvæðinu rekið augun í þessa hollu lesningu aftan á rauðri ítalskri vespu af gerð- inni Scarabeo Aprilia. Vespan er í eigu iðjuþjálfans Elínar Ebbu Ás- mundsdóttir en hún eignaðist vesp- una fyrir tæpum tveimum árum og er hæstánægð með þetta lipra og suðræna farartæki. Það var yngri bróðir hennar, Ásmundur Einar Ás- mundsson myndlistamaður, sem kynnti henni vespuna en hann hefur verið haldinn mótorhjóladellu frá unglingsaldri. „Bróðir minn heyrði af því að sendlarnir hjá Dominós væru að losa sig við vespur og hafði samband við mig um leið. Hann hafði lengi viljað sjá mig, systur sína, á þessu far- artæki því honum fannst það ein- hvern veginn passa svo vel við mig. Ég hafði aldrei komið nálægt neinu þessu líku þegar hann tók í mig í reynsluakstur á vespunni frá Kópa- vogi niður í miðbæ. Ég sat aftan á og var alveg við það að gera í mig af hræðslu,“ segir hún og hlær. Þrátt fyrir hræðsluna sat þessi lífsreynsla í Elínu og hún laðaðist ósjálfrátt að vespunni. Til að gera ökutækið end- anlega að sínu setti hún upp kassa aftan á hjólið og á hann festi hún geðorðin tíu. Adrenalínkúr Elín nefnir einnig að hugsanlega hafi aldurinn einnig haft eitthvað um ökutækjaskiptin að gera en hún er á fimmtugasta og þriðja aldursári. „Sumir skipta um maka á þessum aldri en ég skipti í staðinn um far- artæki,“ segir hún og hlær við. „Á sama tíma og ég eignaðist vespuna kom út megrunarbók fyrir konur þar sem haldið er fram að hægt sé að ná árangri í megrun með því að stunda einhverja iðju sem maður hræðist. Og þar sem ég var skít- hrædd við vespuna mína til að byrja með þá hugsaði ég: „Núna grennist ég alla vega um nokkur grömm.““ „Ef ég hefði ekki keypt mér vesp- una um þetta leyti þá hefði ég líklega aldrei gert það,“ heldur Elín áfram. „Og alveg eins og bróðir minn spáði þá hentar vespan mér mjög vel. Áð- ur var ég alltaf á hjóli og reyndi að hjóla eins og ég gat en sum erindi mín eru þess eðlis að reiðhjólið reyn- ist of tímafrekt. Jafnframt er ég nokkuð vistvæn í hugsun og finnst óþarfi að ein fjölskylda reki tvo bíla. Og vespan hefur auk þess mjög góð áhrif á geðið því þú ert í miklu meiri tengslum við allt umhverfið heldur en í bíl. Þá finnst mér ég ekki geta ferðast með Strætó því ég þarf að komast á milli staða á stuttum tíma. Á vespunni þarf ég heldur ekki að hafa áhyggjur af bílastæðum og þar fyrir utan er vespan mjög ódýr í rekstri, einkum á þessum síðustu og verstu,“ segir Elín en nefnir þó að tryggingagjaldið fyrir vespur hér á landi sé heldur hátt að hennar mati. Viðmót ökumanna Elín segir að íslenskir ökumenn taki henni og vespunni hennar yf- irleitt vel í umferðinni. „Ég er ennþá mjög passasöm í umferðinni og lít svo á að allir bílar séu hættulegir og á móti mér og ég keyri í samræmi við það,“ útskýrir hún. „Einn og einn ökumaður reynir að ögra manni með því að keyra alveg upp að hjólinu mínu. Svo þegar þeir sjá að það er brosandi miðaldra kona sem situr á hjólinu þá breytist yf- irleitt viðmótið til hins betra. Þá er ég líka með geðorðin tíu aftan á vespunni þannig að ég get ekki ann- að en glatt þá sem eru fyrir aftan mig. Þeir fá þarna mjög holla lesn- ingu um það hvernig megi rækta eigið geð þannig að ég tel að ég komi fólki hreinlega í gott skap með því að hjóla um götur bæjarins.“ | 4 Í góðum tengslum við umhverfið Morgunblaðið/Valdís Thor Vespueigandi Elín Ebba Ásmundsdóttir er hæstánægð með farartækið sitt. TOYOTAFYRIRTÆKIÐ hefur náð því takmarki að selja milljón Prius- tvinnbíla frá því hann kom á markað árið 1997, eða fyrir röskum áratug. Við síðustu mánaðamót höfðu 1,028 milljónir Priusa verið seldar. Fyrstu árin var Prius einungis seldur í Japan en boðinn á öðrum markaðssvæðum um heim allan þú- saldarárið, 2000. Tvinntæknin, þar sem byggt er á samspili bensínmótors og rafmótors, hefur í millitíðinni verið boðin í öðr- um Toyotabílum. Í júní í fyrra náði Toyota þeim áfanga að hafa selt milljón tvinnbíla af öllum gerðum. Prius er fyrsti fjöldaframleiddi tvinnbíllinn. Toyota segir það tak- mark sitt að selja a.m.k. milljón tvinnbíla árlega frá og með snemma á næsta áratug. Milljón Prius-bíla seld Franski bragginn frá Citroën fagnar sextugsafmælinu í haust » 7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.