Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 5
vöru af stað þegar hún var í aðal-
hlutverki í frægri mynd með Audrey
Hepburn og Gregory Peck en þar
sat sú fyrrnefnda í söðli hjá Peck á
meðan hann rúntaði um stræti Róm-
ar. Niðurstaðan varð sú að 100 þús-
und hjól seldust árið 1956.
Það hjálpaði til að leikarar og ann-
að frægt fólk tók ástfóstri við vesp-
una góðu og varð hún því mikið
tískudjásn. Vinsældirnar jukust sí-
fellt og árið 1960 var búið að selja
samtals tvær milljónir vespa, þá var
framleiðsla hafin í fleiri löndum með
leyfi Piaggio. Vespan varð því tákn-
gervingur nýrra tíma; tíma bjart-
sýni, frelsis og frjálslyndis, og má
því segja að hún hafi verið rétt tæki
á réttum stað og réttum tíma eftir
hörmungar seinni heimsstyrjald-
arinnar.
Samkeppnin
brýnir klærnar
Snemma á tíunda áratugnum var
þó Piaggio komið í talsverð vand-
ræði enda samkeppnin gríðarlega
hörð og japanskar skellinöðrur bún-
ar að kroppa í markaðinn síðan á
sjöunda áratugnum.
Framleiðendur eins og Honda og
Suzuki hafa staðið sig vel í því að
framleiða skellinöðrur sem í senn
byggjast á notagildi vespunnar og
eru lausar við fortíðarþrána sem á
tíma plagaði Piaggio.
En vespan lifir og í höndum nýrra
eigenda hefur hún gert garðinn
frægan á ný. Og það kemur líklega
fáum á óvart að elstu gerðir vesp-
unnar eru geysilega vinsælar og
fæst stórfé fyrir vel uppgerðar vesp-
ur í dag. Nýjar vespur eru þó enn
vinsælar enda hefur lífi verið hleypt
í þær á ný.
Vinsældir Kvikmyndin Roman Ho-
liday var mikil upplyfting fyrir
Vespuna en þar fóru Audrey Hepb-
urn og Gregory Peck saman um
Róm á Vespu.
Skrautleg Fataversl-
unin GAP fékk heið-
urinn af því að hanna
Vespu fyrir Piaggio
og hefur hönnun af
þessu tagi hleypt
miklu lífi í söluna.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 5
Leó M. Jónsson vélatæknifræðingur
svarar fyrirspurnum á leoemm-
@simnet.is (Ath. Bréf geta verið
stytt). Eldri spurningar og ítarlegri
svör eru birt á www.leoemm.com
Spurt: Við létum drauminn rætast
og festum kaup á nýjum húsbíl.
Hann er byggður á sendibílsgrind
og með drifið á framhjólunum. Er
óhætt að fara hálendisvegi á svona
bíl án sérstakra ráðstafana, t.d. hlífa
og styrkinga?
Svar: Það fer að einhverju leyti eftir
tegund og stærð bílsins hvort þörf er
fyrir styrkingar eða hlífar. En hús-
bílar eru algeng sjón inni á hálend-
inu á sumrum og því færir í flestan
sjó. Húsbílaeigendur hafa með sér
samtök og halda úti vefsíðunni
www.husbill.is og eru þar ýmsar
nytsamar upplýsingar. Renniverk-
stæði Árna Brynjólfssonar í Hafn-
arfirði hefur um árabil sérhæft sig í
viðgerðum, breytingum og styrk-
ingum á húsbílum auk þess að ann-
ast ísetningu alls konar aukabún-
aðar svo sem bakkmyndavéla,
sílsabretta o.fl.
Hlutverk jafnvægisstangar
Spurt: Nýi jeppinn minn er búinn
jafnvægisstöngum (ballansstöngum)
að framan og aftan. Stangirnar af-
tengjast þegar sett er í lága drifið og
ekið hægt yfir ójöfnur og tengjast
sjálfkrafa aftur þegar ákveðnum
hraða er náð. Mér skilst að svona
stangir séu í öllum bílum þótt þær
aftengist ekki sjálfvirkt. Hvaða til-
gangi þjónar þessi búnaður og sjálf-
virka tengingin?
Svar: Jafnvægisstöngin er oftast u-
laga og gerð úr bolsformuðu fjaðra-
stáli. Rétt á undan vinkilbeygjunum
á þeim kafla sem er þversum í bíln-
um er baulum fest upp í botn bílsins
vinstra og hægra megin. Stangirnar,
sem eru samhliða hásingu geta verið
aftan eða framan við hana. Stöngin
leikur í gúmfóðringum í baulunum.
Endar stangarinnar eru liðtengdir
hásingunni við hvort hjól. Þegar bíl
er beygt á ferð leggst hann á þau
hjól sem eru utar í beygjunni vegna
flóttaaflsins og hallans flytur jafn-
vægisstöngin hluta álagsins frá ytri
hjólunum yfir á hjólin sem fara innar
í beygjunni. Þannig kemur jafnvæg-
isstöngin í veg fyrir að innri hjólin
missi veggrip, halli bílsins í beygju
verður minni og stöðugleikinn meiri
með meira veggripi. Jafnvæg-
isstöngin gerir það að verkum að
þyngdarmiðja bílsins flyst minna til í
láréttu og lóðréttu plani vegna
flóttaafls. Það gefur augaleið að
jafnvægisstöngin minnkar slaglengd
fjöðrunarinnar, jafnvel svo að þegar
ekið er yfir miklar ójöfnur nær hjól
ekki nógu langt niður til að ná gripi.
Þess vegna eru stangirnar aftengd-
ar við slíkar aðstæður (í sumum
jeppum) en tengjast sjálfkrafa á ný
til að tryggja akstursöryggi þegar
komið er á slétt undirlag og hraði
aukinn. Því sverari sem jafnvæg-
isstöng er, að öðru jöfnu, því meiri
áhrif hefur hún á stöðugleikann og
því stinnari er fjöðrunin.
Húsbílar á
fjallavegum
Húsbílar Ýmsar nytsamar upplýs-
ingar um húsbíla má finna á vefsíð-
unni www.husbill.is.
Fyrirtækið Derbi, sem er þekkt fyr-
ir að framleiða skellinöðrur og reið-
hjól með hjálparmótorum, hefur nú
fært hugmyndafræði sína skrefinu
framar og hannað skellinöðru sem
um flest minnir á fjallahjól.
Um er að ræða loftkælda, eins
strokks fjórgengisvél sem aðeins er
100 cc að rúmmáli. Vélin knýr hjól-
ið áfram með hjálp sjálfskiptingar
og er hjólið ætlað til skemmtunar
en má einnig nota innanbæjar og er
því sérstök áhersla lögð á góða
eldsneytisnýtingu og lítinn út-
blástur.
Nú kunna margir að spyrja sig
hvort ekki sé bara betra að hjóla og
vissulega hlýtur svarið við þeirri
spurningu að vera jákvætt. Derbi
hefur þó séð við því þar sem hægt
er að taka vélina úr stellinu þegar
ekki er þörf á vélaraflinu. Þannig
gefur það auga leið að einhvers
staðar geti vélin komið sér vel, t.d.
þar sem brekkur eru miklar og
jafnframt gæti hjólið hentað þeim
sem af einhverjum ástæðum geta
hjólað en mega ekki reyna mikið á
líkamann.
Hjólið, sem er aðeins 40 kíló á
þyngd, er með innbyggðan bens-
íntank í stellinu og má búast við því
að aflið verði um 4 hestöfl þó enn
hafi það ekki verið gefið upp.
Nýtt Derbi DH 2.0 var kynnt fyrir skömmu og er hjólið kynnt sem um-
hverfishæfur kostur enda eiga eyðsla og útblástur að vera í lágmarki.
Lágmarkað til að
ná hámarkinu