Mynd - 28.09.1962, Qupperneq 4

Mynd - 28.09.1962, Qupperneq 4
|1| MIKIÐ SAFNADIST Föstudag'ur 28. sept. 1962 - ENGU ÚTHLUTAD Beykjavlk, 28. sept. — Meira en hálft ár er liðið síðan sjóslysasöfnunin svo- nefnda hófst til styrktar að- standendum þeirra, sem fórust með m.b. Stuðlabergi og fleiri skipum í febrúar sl. Enn hef- ur ekki eyri verið úthlutað að því er MYND bezt veit, og ekki svo mikið sem safnað skýrslum um ástæður þeirra, sem lilut eiga að máli. Meginið af því, sem safnað- ipt, barst til Biskupsskrifstof- unnar, eða 1.775.000. Dagblöð- iri o. fl. aðilar tóku og á móti framlögum. Söfnunin hófst i marz og er í rauninni lokið fyr ir löngu, enda þótt einstaka framlag hafi borizt fram til þessa, m.a. 60 þús. kr. til Bisk- upsskrifstofunnar fyrir skömmu. Sérstök söfnunar- nefnd var starfandi, en félags- málaráðuneytið skipaði dr. Gunnlaug Þórðarson hdl. fram- kvæmdastjóra söfnunarinnar. MYND sneri sér til Gunn- iíiugs í gær til að spyrja frétta af söfnuninni og hverju það sætti að engu hefði verið út- hiutað enn. Varðist hann allra frétta, en kvaðst væntanlega boða blaðamannafund um málið í vikunni (sem raunar er senn á enda) og fleira fékkst hann ekki til að segja. ðlYND er þó kunnugt um, að ýmsum, sem bjuggust við framlagi frá söfnuninni, hefur komið þessi óheyrilegi dráttur mjög illa. Vonandi endist vik- an til að efna til blaðamanna- fundarins, þar sem gerð verð- ur grein fyrir söfnuninni og skýringar fást á því, hvað veld ur seinaganginum á störfum framkvæmdastjórans. Reykjavík, 28. sept. — Þegar saga kvenfata- tízkunnar verður skráð, er sennilegt, að árið 1962 verði talið sérstakt ár „bera baksins". Bera bakið einkenndi sumar- tizkuna, og nú eru kvöld kjólarnir fyrir veturinn komnir á markaðinn er- lendis og flestir með mjög úrskornu baki. 1 París, London og New York er sömu söguna að segja. Kvöldkjólarnir eru einfaldir, dökkir og með flegið bak. Tízkan hefur í för með sér breytingar hjá fleirum en saumastof- unum. Undirföt verða að vera hlíralaus, skórn ir opnir að aftan, og hálsfestar lafa niður á bert bakið. Þá segja erlend blöð, að aldrei hafi verið meira að • »«<»>• ■< Olympíuþorp fullgert Innsbruck, 28. sept. Olympíuþorpið fyrir vetrar- leikina 1963 er nú fullgert, og var opnað við hátíðlega athöfn í dag. Þorpið er í útjaðri Inns- bruck og húsin 11 hæða sam- býlishús, sem rúma 300 íbúa. Gætið ykkar á ísskápum! Reykjayík, 28. sept. Verið á verði, ef ykkur verð- ur boðinn ísskápur til kaups — eldri gerð af Rafha, hvítur með ryðblettum á toppnum — því honum var stolið úr skúr í Tívolígarðinum í fyrrinótt, Kófdrukkinn í höfnina Reykjavík, 28. sept. 1 nótt féll Jósteinn Magnús- son í höfnina út af Faxagarði. Lögreglan dró hann upp, hressti hann við og flutti hann svo í fangageymsluna við Siðu- múla, þar sem hann var kóf- drukkinn. ______ iHHHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinmiiiiiiiiiiiiiiiniiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHHiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiuiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiE *N«*ji* stanza’ Reykjavík, 28. sept. Hvaða gatnamót haldið þið, að hafi : árekstra og slys á samvizkunni? Blindu F þar sem aðeins hægri handar rétturiim Ónei, ekki aldeilis. Á þessu ári eru flestir f ar á gatnamótum Lönguhliðar og IZI l_____ (16 talsins), þar sem vel sést í allar áttir, mótum Hverfisgötu og Snorrabrautar (14 _ og þar eru götuvitar til þess að stjóma t::_ inni. Og grunsamlega margir af þessum árekstrum verða fyrir það, að of stutt bil er milli bíla. Þegar bíllinn á undan stanzar, er ökumað- urinn á eftir annað hvort að glápa upp og ofan eft- ir brautinni, sem hann ætl- ar inn á eða yfir, eða ein- blínandi á götuvitann, í stað þess að fylgjast með bílnum fyrir framan, þar til röðin kemur að honum að aka inn á eða yfir. 37 ABEKSTBAR A BORGABTtJNI Sumar götur eru árekstra frekari en svo, að sæmilega öruggt geti talizt að aka um þær. Þannig er t. d. með Borgartúnið. Þar eru frá síðustu áramótum skráð ir 37 árekstrar, og einn mað ur fyrir bíl að auki. HRINGBRAUT Og ’ beinir, greiðir og gatnamótalausir götuspott- ar geta verið lífshættulegir. A Híingbrautinni fram und an Landsspítalanum eru frá áramótum skráðir 6 i_ rekstrar og eitt dauðaslys. Þarna er strætisvagnastö og biðskýli fjær byggðinni. í, við götuna, og þess vegna talsverð umferð f" andi, Sumir verða I— fyrir bílum, stundum bílar — þótt það sé l.. að stanza þarna, því að engl inn vill aka yfir mann L_ af þvi að það er bannað ) stanza, og sumir til þess i kippa kunningjunum upp í.| Þá er kannski bíll á eftin of nærri, eða skiptir um # Hér ,siýra ijösin umfcrð akgrein til þess að komast fram úr, og ekur þar með í veg fyrir aðra, og guð veit hvað. ISKYGGILEGA MÖRG SLYS Umferðarslysin og önnur óhöpp í umferðinni eru orð- in ískyggilega mörg á þessu ári.. Þó hefur margt verið gert, til þess að um- ferðin geti gengið greiðar, en margt er líka eftir. Eitt er víst: Það er algerlega til- gangslaust að koma á ak- eina umferðarátt í senn; samt verða einna flestlr árekstrar R«r... Illlll....... reinum og skýrum merk- ingum á götum, götuvitum og öðru slíku, ef þess er ekki mjög vel gætt, að öku menn fari eftir þessum merkingum og skilji þær. Ef ökumenn fara ekki eft- ir akreinakerfinu, er það hættulegra en ekkert. Það verður að setja margfaldan lögreglustyrk á þessa staði, meðan skipulagning er að komast á nýbreytnina. Básar, nyrsta hús landsins Grímsey, 26. sept. Á íslandi er aðeins til eitt hús fyrir norðan heim- skautsbaug. Það heitir BÁSAR og þar býr odd- vitinn, Alfreð Jónsson, skipasmiður. Alfreð reisti þetta hús fyrir tveimur árum. Hann er gam- all Siglfirðingur, sem setzt hefur að í Grímsey. Alfreð var árum saman einn frægasti skíðakappi landsins og var mjög fjölhæf íþrótta- kempa fyrr á árum. Umferðarvandamál í Stór-Kaupmannahöfn Stór-Reykjavík, 28. sept. Þeir í Stór-Kaupmanna- höfn virðast hafa frétt af umferðarkönnuninni hjá okkur, því að nú ætla þeir að leysa sín vandamál mcð rafeindaheila og ein- valaliði sérfróðra manna á næstu 2—3 árum. Gert er ráð fyrir, að 15—20 manns helgi sig algerlega þessu verkefni, sem mun kosta 1—2 milljónir danskra króna. Auk þess verðúr haft samstarf við og byggt á reynslu Gautaborgar og Oslóar, sem eru að undir- búa svipað starf. Þar sem ráðgert er að verja 1—2 milljörðum d.kr. til neð- anjarðarbrauta, vega, bíla- stæða o.s.frv. í Stór-Kaup- mannahöfn á næstunni, þykir ekki umhorfsmál að •e&g'.in í nokkurn kostnað tll að finna ódýrustu og beztu lausn á umferðar- vandamálunum. BRÁDSKEMMTILEG LEIK- SÝNINGI TJARNARBÆ Herakles og Agiasfjósið flokkast raunar undir minni liáttar pródúkt Dúrren- matts, enda samið upphaf- lega sem útvarpsleikrlt, verkið frcmur Iaust í bygg- ingu og endirinn svolítið sentimental á la Kiljan, en bráðskemmtilegt og lifandi leikhúsverk eigi að siður, efnislega borið uppi af markvissri og harðvitugri ádeilu. Sýningin í gærkvöldi tókst að ýmsu leyti ótrú- lega vel, þrátt fyrir að flestir Ieikendauna eru svo gott sem nýliðar, og verð- ur það einkum þalckað leik- stjóranum, Gísla Alfreðs- syni, sem liefur tekizt að skapa lieilsteypta sýningu við mjög erfiðar aðstæður. Hvert atriði er unnið og hnitmiðað, og þó er það kannski mest um vert að leikstjórinn liefur skilið þann stíl, sem hentar leikn- um og sýnir liann í öllum síimm grófgerða sjarma og ferskleika. Leikendurnir sleppa yfirleltt vel frá hlut- verknm sínum, sérstaka kátínu vöktu Þorsteinn Geirsson, Jón Ingvason, Pétur Einarsson og auðvit- as Jónasson gerðl' margt skemmtilegt í lilutverki Heraklesar (útlitið bæði hellenskt og heraklesar- legt), en virtist þó eitthvað miður sín á köflum og spillti með því liraða leiks- ins, sem þarf að vera ná- kvæmur, næstum vélrænn. Þýðing Þorvarðar Helga- sonar er hressileg og mjög við hEefi og leiktjöld Kurt Zier gerð af mikllll liug- kvæmni og öruggum smekk. Ragnar Björnsson hefur samið tvo liátíðarsöngva í réttum dúr; einkum náði liann liinni tilhlýðilegu stemningu í þjóðsöngnum. Og ekki spilla svo blessað- ar skvísurnar, sætar í fram- Krossgáta nr. 26. Lárétt: 1. dráttlistarmaður — 7. á eftir tímanum — 8. ör- smæö — 10. ljótur leikur — 11. hljóm — 12. stökkti á burt — 13. fæöi — 14. fangamark — 15. keyröi — 17. fornt karlmanns- nafn — 18. fyrirliöar. Lóðrétt: 1. rotverja — 2. sæl- gætistegund — 3. norðlenzkt verzlunarfyrirtæki (skst.) — 4. óþrif — 5. flan — 6. anganina — 9. á litinn — 11. óhamingja — 15. fæddi — 16. lengdarmál (skst.). Lausn nr. 25.

x

Mynd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mynd
https://timarit.is/publication/326

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.