Morgunblaðið - 24.07.2008, Blaðsíða 2
Í HNOTSKURN
» Heimsmarkaðsverð þaðer hér birtist er dæg-
urverð (e. spot price), þ.e.
verð með afhendingu án taf-
ar.
» Olíufélögin kaupa al-mennt framvirka samn-
inga. Þróun dægurverðs gef-
ur þó góða vísbendingu um
þróun framvirks verðs.
» Gengi dollars hefurstyrkst um 3,6% gagnvart
krónunni frá 14. júlí.
» Áður en Skeljungurlækkaði verð í gær nam
lækkunin frá 14. júlí 3 krón-
um, 1,8%.
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
TONN af 95 oktana blýlausu bensíni
kostaði á markaði í Rotterdam 1028
dali á þriðjudag. Þá hafði það lækkað
um tæpa 155 dali, 13%, frá því að
hæsta verð mánaðarins náðist á mánu-
dag í síðustu viku, hinn 14. júlí. Sama
dag var hæsta heimsmarkaðsverð á
hráolíu skráð en í viðskiptum innan
dags fór fatið af hráolíu upp fyrir 147
dali. Á þriðjudag var dagslokaverð á
hráolíu um 128 dalir, 12% lægra en
dagslokaverð 14. júlí, sem var 145,2
dalir.
Þrátt fyrir þetta hefur verð á 95
oktana bensíni í sjálfsafgreiðslu hér-
lendis aðeins lækkað um 5 krónur síð-
an 14. júlí miðað við upplýsingar á vef
Skeljungs, sem eitt íslensku olíufélag-
anna býður upp á sögulegar verðupp-
lýsingar á vefnum. Fimm króna lækk-
un jafngildir 3% miðað við verðið 14.
júlí.
Beðið eftir birgðatölum
„Við höfum verið að bíða eftir birgða-
tölum frá Bandaríkjunum. Þær koma
á miðvikudögum í hverri viku og í kjöl-
farið getur heimsmarkaðsverð sveifl-
ast mikið,“ segir Már Erlingsson, inn-
kaupastjóri hjá Skeljungi, og segist
ekki telja Skeljung hafa brugðist treg-
lega við breytingum á heimsmarkaðs-
verði. Skömmu síðar lækkaði Skelj-
ungur verð á eldsneyti um 2 krónur.
Inntur eftir því hvort félagið hefði
brugðist við verðhækkun á markaði
með verðhækkun, á meðan beðið væri
eftir birgðatölum segir hann þá
spurningu ekki eiga við þar sem verð
hækkaði ekki á heimsmarkaði.
Endurspegli heimsmarkað
„Við bjóðum ætíð samkeppnishæft
verð á eldsneyti,“ segir Samúel Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri vöru-
stýringar hjá Olís, og bendir á að fé-
lagið hafi dregið til baka 4 króna
verðhækkun í liðinni viku þar sem
keppinautar þess hækkuðu verð
minna en Olís. Þar með hafi félagið
tekið á sig hluta af verðhækkunum.
Þess er skemmst að minnast að
þegar Olís hækkaði verð um 6 krónur
í liðinni viku sagði Samúel í samtali
við mbl.is: „Krafan er einfaldlega sú
að útsöluverð hérlendis endurspegli
heimsmarkaðsverðið og því hækkar
það og lækkar í takt við breytingar á
heimsmarkaði.“ Þá hafði heimsmark-
aðsverð á bensíni hækkað um 85 dali á
tonnið að sögn Samúels.
Úr takti við heims-
markaðsverð?
Dægurverð á tonni af 95 oktana bensíni á markaði
í Rotterdam hefur lækkað um 155 dali á rúmri viku
2 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
AnnarhfRekstrarverkfræðistofan
Suðurlandsbr. 46 • Sími 568 1020 • Annar.is
a ÁrsreikningarBókhald
Skattframtöl
!
!
"
#
!
$
%
&'(
#!
#
!
!
!"# $%
)
#
%
&'(
%
&'(
&'()
$!
$
!
!
"
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, net-
fang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Björgvin Guðmundsson, frétta-
stjóri, bjorgvin@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími
5691110 Prentun Landsprent ehf.
ICELAND
Express mun í
september taka í
notkun tvær ný-
legar Boeing 737-
700 flugvélar.
Samningur þess
efnis var undirrit-
aður í gær.
Í tilkynningu
frá Iceland Express segir að vél-
arnar séu mun sparneytnari og um-
hverfisvænni en þær flugvélar sem
félagið hafi fram að þessu notað í
millilandaflugi og eyði allt að 40%
minna eldsneyti á hvern flugtíma.
Þá segir í tilkynningunni að samn-
ingurinn marki tímamót fyrir Ice-
land Express þar sem allar vélar fé-
lagsins verði annaðhvort Boeing 737
eða 757.
Það er Astreus Airlines, systur-
félag Iceland Express, sem á og rek-
ur vélarnar sem koma í stað MD90
vélanna sem flogið hafa fyrir Iceland
Express. gretar@mbl.is
Taka Boeing
í notkun
KAUPMÁTTUR launa í júnímán-
uði dróst saman um 4,2% miðað við
sama mánuð í fyrra. Launavísitala í
júní var 346,2 stig og samkvæmt
fréttatilkynningu frá Hagstofu Ís-
lands hækkaði hún um 8,5% á milli
ára. Á sama tímabili hækkaði vísi-
tala neysluverðs um 12,7% en kaup-
máttarbreytingar fást með því að
draga neysluverðsvísitölu frá
launavísitölu.
Í tilkynningu Hagstofunnar kem-
ur fram að launavísitala hafi hækk-
að um 1,2% á milli mánaða en jafn-
framt að þar gæti áhrifa af
kjarasamningum BSRB við ríkið og
Félags grunnskólakennara við
launanefnd sveitarfélaga.
sverrirth@mbl.is
Kaupmáttur
dregst saman
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ, FME,
hefur lokið rannsókn á fyrirhuguðu
hlutafjárútboði Reykjavík Energy
Invest. Í tilkynningu frá eftirlitinu
segir að ekki hafi verið gefin út út-
boðslýsing í samræmi við ákvæði
þágildandi laga um verðbréfa-
viðskipti en brot á því ákvæði geti
varðað viðurlögum.
Þar sem fallið var frá áætlunum
um útboðið telur FME þó ekki til-
efni til frekari aðgerða í málinu.
sverrirth@mbl.is
Morgunblaðið/Eyþór
Ekki tilefni
til aðgerða
GREININGARDEILD Lands-
bankans telur líklegt að Seðlabank-
inn muni hefja stýrilækkunarferli
sitt fyrr en áður hefur verið gefið
út.
„Seðlabankinn leggur nú ofur-
kapp á að koma í veg fyrir víxlverk-
un launa og verðlags. Bankinn telur
efnahagssamdrátt óumflýjanlegan
og aukið atvinnuleysi nauðsynlegt
til þess að koma jafnvægi á hag-
kerfið. Alþjóðlega lánsfjárkreppan
og mikil skuldsetning veldur því
hins vegar að stýrivextir Seðla-
bankans bíta nú sem aldrei fyrr.
Því er líklegt að óbreyttir vextir
valdi meiri efnahagssamdrætti en
bankinn spáir á næstu árum,“ segir
í nýrri stýrivaxtaspá greiningar-
deildar sem gerir ráð fyrir að stýri-
vextir verði lækkaðir þegar í nóv-
ember en ekki á fyrsta ársfjórðungi
2009, eins og Seðlabankinn hefur
gefið út.
Afgangur á vöruskiptum
Í spá bankans segir jafnframt að
mikil umskipti séu að verða í vöru-
og þjónustuviðskiptum við útlönd.
„Við reiknum með að afgangur
myndist á vöruskiptum þegar á
seinni helmingi þessa árs. Þessi
þróun mun styðja mjög við gengi
krónunnar og auka svigrúm Seðla-
bankans til vaxtalækkana,“ segir í
spánni.
Raunstýrivextir hafa, á mánaðar-
grunni, verið neikvæðir undanfarna
mánuði en að mati greiningardeild-
ar mun það breytast með haustinu
þegar verðbólga mun taka að lækka
mjög hratt. Þá myndast rými til
stýrivaxtalækkunar en greiningar-
deild spáir því að stýrivextir verði
að meðaltali 15% á fjórða ársfjórð-
ungi. sverrirth@mbl.is
Lækkunarferli
hefst í haust
Stýrivextir á fjórða fjórðungi 15%
TAKMÖRK eru fyrir því hve auð-
veldlega frumlyfjaframleiðendur
geta komist inn á samheitalyfja-
markaðinn, að mati Róberts Wess-
man, forstjóra Actavis. Í grein Fin-
ancial Times er haft eftir Róberti að
frumlyfjaframleiðendur skorti
þekkingu á ódýrum framleiðsluað-
ferðum, sem samheitalyfjafyrirtæk-
in hafi.
Í greininni er fjallað um það að
mörkin milli samheita- og frumlyfja-
markaðanna eru að verða óskýr, en
nokkrir stórir frumlyfjaframleið-
endur hafa nýlega stigið sín fyrstu
skref inn á samheitalyfjamarkaðinn.
Segir FT að útlitið sé ekki endi-
lega bjart fyrir samheitalyfjafyrir-
tæki þegar horft sé lengra fram á
veginn. Rétt sé að fjöldi lyfja detti
úr höfundarvernd á næstu árum,
sem gagnist þeim, en mun færri lyf
renni út á árunum á eftir, sem geri
fyrirtækjunum erfitt fyrir, þar sem
þau reiða sig á stöðugt streymi
nýrra vörutegunda. bjarni@mbl.is
Reuters
Aðrar að-
ferðir í
framleiðslu
Sviptingar á sam-
heitalyfjamarkaði
Í GRÓFUM dráttum má draga þá ályktun að heimilin hafi að hluta skuld-
breytt verðtryggðum lánum í erlend lán, að því er segir í Morgunkorni grein-
ingardeildar Glitnis.
Talsmenn viðskiptabankanna segja lítið framboð af erlendum lánum í
þessu árferði og að bankarnir reyna að halda í allan þann gjaldeyri sem þeir
eiga. „Klárlega hefur verið áhugi hjá almenningi að breyta verðtryggðum
lánum yfir í erlend lán, sérstaklega í kjölfar veikingarkippsins um páskana
þar sem menn töldu að krónan mundi ganga strax til baka en Landsbankinn
hefur ekki leyft viðskiptavinum sínum að skuldbreyta,“ sagði Elín Sigfúsdótt-
ir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs hjá Landsbankanum. sjakob@mbl.is
Erlend lán eftirsótt