Morgunblaðið - 24.07.2008, Side 8
É
g hef unnið við bókaútgáfu alla mína tíð og
gert fátt annað, enda held ég að maður nái
engum árangri í þeirri grein nema að helga
sig henni gjörsamlega. Þetta er lífsstíll,“
segir Jóhann Páll sem kemur úr fjölskyldu
bókaútgefenda en faðir hans Valdimar Jóhannsson stofn-
aði bókaútgáfuna Iðunni árið 1945.
„Ég datt inn í starf hjá Iðunni sem framkvæmdastjóri
í útgáfu fjölskyldunnar og var þar í tíu ár þegar Iðunn
bar höfuð og herðar yfir önnur útgáfufyrirtæki. Svo sinn-
aðist mér við fjölskylduna og fór í fússi og stofnaði For-
lagið 1984. Það var strembinn rekstur og ég hafði ekki
neitt fjármagn til að koma honum á koppinn. Ég seldi
síðan Máli og menningu fyrirtækið einhverjum sex árum
síðar en gegndi áfram stöðu útgefanda fyrirtækisins og
varð svo í framhaldinu forstöðumaður markaðssviðs
Máls og menningar samhliða útgáfustarfinu hjá Forlag-
inu. Árið 2000 yfirgaf ég Mál og menningu og Forlagið og
stofnaði JPV útgáfu, sem var hluti af ævintýrafyrirtæk-
inu Genealogia Islandorum. Það varð fljótt ljóst að það
fyrirtæki átti sér ekki rekstrargrundvöll og ég dró mig
út úr því sama árið og hélt áfram með JPV sem blómstr-
aði frá upphafi. Á síðasta ári sameinuðumst við bókaút-
gáfuhluta Eddu og þar með var ég kominn aftur með Ið-
unni og Forlagið, mín gömlu fyrirtæki, í hús.“
Samhent fjölskylda
Jóhann Páll er fæddur í stjörnumerki nautsins í
Reykjavík 1952. Hann segist þó líta á sig sem Svarfdæl-
ing, þaðan sem faðir hans kom. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð 1974 og innritaðist í
bókmenntir í Háskóla Íslands en lauk því námi ekki því
hann hellti sér að fullu í bókaútgáfuna með föður sínum.
Eiginkona Jóhanns Páls er Guðrún Sigfúsdóttir, sem
hefur unnið honum við hlið sem ritstjóri bóka mörg und-
anfarin ár. „Reyndar hefur hún alltaf verið viðloðandi
mína vinnu með einum eða öðrum hætti en við höfum
deilt saman súru og sætu frá því á árinu 1972.“
Þau eiga þrjú börn. Egill Örn er fæddur 1974, og er
framkvæmdastjóri Forlagsins. Sif er fædd 1980, og seg-
ist Jóhann Páll vera búinn að lokka hana líka inn í For-
lagið. Yngstur er Valdimar. Hann er nýútskrifaður stúd-
ent og vinnur við bókaútgáfuna með fjölskyldunni í
sumar en hyggur á nám síðar. „Hann skilar sér svo von-
andi aftur. Það er dásamlegt þegar fjölskylda getur unn-
ið samhent saman eins og okkur hefur lánast hingað til.
Guð gefi að svo verði áfram.“
Að sögn Jóhanns Páls tókst sameining JPV og Eddu
vonum framar þó að vinnan hafi verið gríðarleg. Hann
segir að einvalalið starfsmanna hafi leyst öll mál sem upp
hafi komið á þann veg að ekki sé nokkur leið að það verði
betra. Sameiningin hafi einnig gengið mjög vel upp fjár-
hagslega. Fyrirtækið sé mjög lítið skuldsett sem komi
sér vel á þeim óróatímum sem nú ríkja. „Ef við ofmetn-
umst ekki og vöndum áfram til verka á öllum sviðum á
Forlagið að geta átt mjög bjarta framtíð en bókaútgáfa
er vissulega áhætturekstur og auðvelt að fara út af spor-
inu. Lesendur munu njóta þess að til sé burðugt fyr-
irtæki í útgáfu. Öðruvísi er ekki hægt að sinna þeirri
menningarskyldu sem nauðsynlegt er að rækja ef við
ætlum að rísa undir nafni sem bókaþjóð og halda lífi í
okkar helstu verðmætum á sviði bókmenningar.“
Jóhann Páll segir að það sárvanti sambærilegan
stuðning við bókaútgáfu á Íslandi og við það sem tíðkist í
nágrannalöndunum. „Við vinnum á svo litlu málsvæði að
það getur ekki kallast annað en kraftaverk hvers útgef-
endur hafa þó verið megnugir.“
Gleymir sér í Photoshop
Um áhugamálin segir Jóhann Páll að hann lesi ekki
eins mikið og hann kysi. Lesturinn sé mjög takmarkaður
við skoðun handrita sem fyrirtækinu berast. Það sé í
raun og veru fullt starf. „Annars geri ég nánast ekkert
annað en að sinna starfinu og sólarhringurinn er alltof
stuttur til að sinna því. Það má því segja að útgáfan sé
bæði mitt starf og áhugamál. Það eina sem ég fæst við er
ljósmyndun. Ég er mjög áhugasamur um hana og tekst
stundum að sameina hana vinnunni með myndatökum af
höfundum, kápumyndum og þess háttar. Eini tíminn sem
ég get gleymt vinnunni er þegar ég sting mér inn í
Photoshop til að vinna myndirnar. Það er skemmtilegt
myrkraherbergi og ég steingleymi tímanum,“ segir
Jóhann Páll Valdimarsson. gretar@mbl.is
Jóhann Páll
Valdimarsson
hefur verið áberandi í bókaútgáfu
hér á landi í langan tíma. Hann sagði
Grétari Júníusi Guðmundssyni
að þetta væri lífsstíll.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Útgefandinn Jóhann Páll segist vilja lesa meira.
„Þetta er lífsstíll“
SVIPMYND»
FLESTIR þeirra sem
dreymir um að feta í
fótspor golfsnillinga á
borð við þá Tiger Wo-
ods og Jack Nicklaus
vita vel að veðurguð-
irnir eru ekki alltaf
hliðhollir þeim er
reglulega munda golf-
kylfur. Hér á Íslandi
eru það sérstaklega
vindáttirnar sem geta
reynst golfurum enda
vitum við öll að hér get-
ur blásið úr öllum átt-
um á sama tíma.
Hugvitsamir Hol-
lendingar hafa fundið lausn á þessum vanda. Þar í landi undirbúa menn nú
fyrsta innanhúsgolfvöll heims. Og hér er ekki verið að tala um minigolf
heldur 18 holu golfvöll með öllu tilheyrandi. Húsið verður um 14 þúsund
fermetrar og hefur Gizmag.com eftir talsmanni byggjenda að búist sé við
150 þúsund gestum á ári. sverrirth@mbl.is
Í skjóli fyrir veðrinu
Skjól Á Íslandi er hægt að spila fótbolta innan-
húss en ekki golf.
HVER man ekki eftir lokamínútunum í æv-
intýramyndinni sígildu Star Wars VI: A New Hope
þar sem Logi geimgengill flýgur inn í Helstirnið til
þess að sprengja það í loft upp? Eftir æsilegan elt-
ingaleik við hin illa Svarthöfða, sem lauk þegar
Hans Óli, smyglarinn hugaði, skaut á flaug illmenn-
isins, tókst Loga ætlunarverk sitt og fékk að laun-
um blómsveig hjá systur sinni.
Nú geta þeir sem vilja lifa sig inn í þessi atriði komist aðeins nær því þar
sem uppboðshúsið Profiles in History hyggst á næstunni bjóða út flaug þá
er Svarthöfði beitti til þess að hrella Loga. Að sögn The Sun er talið líklegt
að fyrir flaugina fáist um 100 þúsund pund sem er allhá upphæð í ljósi þess
að í myndinni voru notuð módel og er stærð „flaugarinnar“ aðeins 45x35
sentimetrar. sverrirth@mbl.is
Kjörin jólagjöf fyrir suma
HALLÆRIÐ tekur á sig ýmsar
myndir. Eins og Útherji fjallaði um fyr-
ir viku rak hann nefið inn á veit-
ingastað einn í miðbænum sem má
muna sinn fífil fegri. Skömmu síðar
lá leið hans í mötuneyti sænska
sendiráðsins í Garðabæ (IKEA) og
hafði hann hugsað sér að gæða sér
á sænskum kjötbollum. Áður en Út-
herji komst að kjötbollukötlunum
féllust honum þó hendur þegar hann
sá tvö þekkt andlit út viðskiptaheim-
inum sitja við sama borð og skegg-
ræða um einhver skjöl á borðinu á
milli þess sem bollurnar góðu lædd-
ust upp í þá.
Vissulega má svo vera að viðkom-
andi þyki sænskar kjötbollur svona
góðar en þar sem Útherji leitar aldrei
einföldu skýringanna telur hann svo
ekki vera. Í huga Útherja er ljóst að
fyrirtæki þau er viðkomandi starfa
hjá hafa einfaldlega skorið niður
risnureikninginn og starfsmennirnir,
þótt hátt settir séu, þurfa því að leita
á ódýrari staði en áður. Þá er kjöt-
bollustaðurinn í Garðabæ mjög góð-
ur kostur, að minnsta kosti í nokkra
daga til viðbótar því eins og menn
vita hækkar verð þar aðeins í ágúst.
Sparað í hádeginu
ÚTHERJI
Peningamarkaðssjóður SPRON hefur gefið langhæstu ávöxtun
allra peningamarkaðssjóða á Íslandi allt frá stofnun.
Fyrsta sæti
*Nafnávöxtun 31. maí 2007–31. maí 2008 skv. www.sjodir.is. Peningamarkaðssjóður SPRON er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Rekstrarfélag SPRON.
Útboðslýsingu má nálgast á heimasíðu SPRON Verðbréfa, www.spronverdbref.is. Athygli er vakin á að fjárfestingarsjóðir eru áhættumeiri fjárfestingarkostur en verðbréfasjóðir skv. lögum.
Vegmúla 2 – 108 Reykjavík – 550 1310 – verdbref@spron.is – www.spronverdbref.is
SPRON Verðbréf
Peningamarkaðssjóður SPRON
16% ávöxtun