Morgunblaðið - 24.07.2008, Page 4

Morgunblaðið - 24.07.2008, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ viðskipti/athafnalíf  * +!  !  , * + , -.* /* 0 *  12 2 , *'  2 ,. *'  3+ 2   4. 5 6.7  8&&9  : 4. &  !$ $ !))) ) $# ! $)$ !) !!! ;$" ; " ;!" " ; !" < !" ; )" " ;"  !  !! ! $! $ ! -    .! / 01 2! / 01  +! * + , => ? =  & @ *'  & AB          "    3>A5 & >C 1?    & % &6 D  +   E       "     "    " -FG0 - 5 H@ 2 I,5 J      "      0EK ! L  M 4I-A 0EK)$        " " "  "     ))N  M 6 2.  5  ./ ./ &  30+     +! 4 5 6    7  6!/ 8   9 .           !"# $  % &'( ) &**+ 30+     + => ? > =  &> @ *'  &> AB  >  +  > 3>A5 & >C (   1?    &> % &6@  > D  +  (   > E > -FG0 - 5 H@ 2  4. >+> I,5> J  > ; ! / 01 < 9  !> = ?=  , = ?F 5FO4 A @   4P , @ 9 .> I , 52 '2> Q  '2> 3  ) . <   R ,=55R  3@  > 3 5&2. > *6" :                                                                  Q2 &   I+ 2   S % &-  #$# !$)) !)# #  $ ! ###$ $# ! ! $)$  !# )!!  !#!! H ))!$$ #) )#$#) H  #) $ $! )#!# H H H  !! ##$ H ) !!$ ! !  $)# $ ! )!   #$)   ) !) #!! H ) !! # $ H H H $ !  H )$ ! !!  $)) $   !   #! ! )  # $) )! !    $$!  H #! $! ! !! 4.'  *2 & $  ! $ )  $ !  $ H    H H $ # H H H # H *2 * 2 # # # # # # # # # # # # # # )# # # # # #   # # # # =I =I =I Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is TALIÐ er að bresk skattayfirvöld muni ákæra um 300 breska auðkýf- inga, sem eiga bankareikninga í Liechtenstein, fyrir skattsvik. Gera þau ráð fyrir að endurheimta um 300 milljónir sterlingspunda, þ.e. um 48 milljarða íslenskra króna, í van- greidda skatta, frá þessum einstak- lingum. Eru auðkýfingarnir grunaðir um að hafa skotið undan samtals rúmum einum milljarði punda, sem þeir hafi lagt inn á bankareikinga í Liechten- stein og ekki greint breskum skatta- yfirvöldum frá, að því er segir í frétt á fréttavef BBC-fréttastofunnar. Þar segir jafnframt að ekki sé úti- lokað að einhverjir hinna grunuðu muni semja um greiðslu skattskuld- ar sinnar áður en til dómsmáls kem- ur. Haft er eftir Paul Franklin, tals- manni breskra skattyfirvalda, í frétt BBC, að einstaklingarnir sem um ræðir séu mjög efnaðir. Þeir hafi notað þá leynd sem hvíli yfir reikn- ingum í bönkum í Liechtenstein til að sleppa undan því að standa skil á lögbundnum skattgreiðslum í Bret- landi. Þá kemur fram í fréttinni að skattayfirvöld í Þýskalandi, Banda- ríkjunum og í fleiri löndum séu einn- ig að skoða sambærileg mál. Og Ísland líka Mál þetta hófst í febrúarmánuði síð- astliðnum. Þá var frá því greint að þýska leyniþjónustan hefði keypt gögn af fyrrum starfsmanni LGT- bankans í Liechtenstein sem sýndu fram á að tæplega þúsund Þjóðverj- ar hefðu nýtt sér bankakerfið í Liechtenstein til skattsvika. Skatta- yfirvöld í fleiri löndum fóru þá á stúf- ana og föluðust eftir sambærilegum upplýsingum, einnig skattayfirvöld hér á landi. Guðrún Jenný Jónsdóttir, for- stöðumaður stjórnsýslusviðs Ríkis- skattstjóra, segir það ekki launung- armál að embættið hafi sent fyrir- spurn til þýskra yfirvalda vegna þessa máls. Hún segist hins vegar ekkert geta tjáð sig um hvað muni koma út úr því á þessu stigi. Um 300 breskir auð- kýfingar ákærðir Rannsókn byggð á gögnum frá Liechtenstein skilar árangri Morgunblaðið/Golli Fyrstir Bresk skattayfirvöld verða hugsanlega fyrst til að senda út ákærur um skattsvik á vegna upplýsinga um bankainnistæður í Lichtenstein. Í HNOTSKURN » Upplýsingar um skattund-anskot, sem komu frá Liechtenstein í febrúarmánuði síðastliðnum, ollu miklu upp- námi í viðskiptaheiminum víða í Evrópu og einnig í Banda- ríkjunum. » Ekkert er athugavert viðþað að íslenskir skatt- greiðendur eigi bankainni- stæður erlendis svo fremi sem þeirra er getið á skatt- framtali. HINN 18. ágúst nk. munu í Bandaríkjunum taka gildi nýjar reglur um innlánatryggingar, sem ná munu yfir 160 stærstu þar- lendra banka. Federal Deposit Insurance Corporation (FDIC), tryggingasjóður innstæðueigenda og fjárfesta, á að veita þeim trygg- ingavernd, sé banki eða sparisjóð- ur ekki fær um að greiða út inn- stæður til viðskiptavina sinna. Í Wall Street Journal kemur fram að FDIC hafi séð ástæðu til að breyta reglunum í ljósi hins erf- iða ástands á fjármálamarkaði og innan við viku eftir að hafa þurft að taka yfir hinn gjaldþrota banka Indy Mac í mánuðinum, sem mun koma til með kosta bandaríska skattgreiðendur um 4-8 milljarða dala, jafngildi um 32-64 milljarða íslenskra króna. Reglurnar m.a. þýða að bank- arnir munu þurfa að staðla þær upplýsingar um innlánsreikninga, sem þeir skila til FDIC, auk þess sem þeir þurfa að koma upp kerfi sem frystir sjálfkrafa mjög háar innstæður stefni í óefni. sigrunro- sa@mbl.is Reuters Regluverk Enn að vinna úr vanda hinna alræmdu húsnæðislána. Strangari innláns- reglur ÞRÁTT fyrir að olíuframleiðsluríki eins og Sádi- Arabía hafi hagnast mjög vel á hækkandi olíuverði undanfarið ár hafa yfirvöld þar áhyggjur af afleið- ingum hás olíuverðs til lengri tíma. Nú þegar er áhugi fyrir raf- og tvinnbifreiðum orðinn töluverð- ur og margir sem ekki vildu heyra á kjarnorku minnst íhuga það alvarlega að reisa fleiri kjarn- orkuver til að viðkomandi ríki verði síður háð olíu til orkuframleiðslu. Sádi-Arabía þarf því að íhuga framtíð sína í ver- öld þar sem eftirspurn eftir helstu auðlind landsins verður hugsanlega mun minni en nú. Sádí-arabískt hagkerfi þyrfti við slíkar aðstæður að vera breiðara og byggja á fleiri stoðum en það gerir nú og vilja stjórnvöld reisa tækni- og þróunarborg skammt frá Medína, sem ætlað er að vera ein slík stoð. Bæta ímynd fjölskyldunnar Í Þekkingarborginni, eins og svæðið hefur verið nefnt, verða háskólar, tæknivædd sjúkrahús og íbúðir fyrir 130.000 manns. Áætlað er að fimm svipuð svæði verið byggð í landinu á næstu 15 ár- um og verður kostnaðurinn samtals um 8.000 millj- arðar íslenskra króna. Er hugsunin sú að í borgunum geti stór hluti þjóðarinnar fundið sér verðmætaskapandi vinnu, en helmingur landsmanna er yngri en 21 árs. Virð- ast stjórnvöld í Sádi-Arabíu hafa lært sína lexíu af fyrri olíuhækkunartímabilum, þar sem auðnum var sóað í lúxusneyslu prinsa og í uppbyggingu á vegakerfi landsins, en minni áhersla var lögð á uppbyggingu í menntun og atvinnuuppbyggingu. Ríkisstjórninni er því mikið í mun að sýna lands- mönnum að olíuauðnum sé í þetta sinn varið í fjár- festingu og uppbyggingu sem komi öllum íbúum landsins til góða og til að bæta ímynd konungsfjöl- skyldunnar, sem eins og áður segir, hefur orð á sér fyrir eyðslusemi. bjarni@mbl.is Þekkingarborg í Sádi-Arabíu HEIMSMARKAÐSVERÐ á olíu hélt enn áfram að lækka í gær, en búist er við því að nýjar tölur um eldsneytisbirgðir í Bandaríkjunum sýni fram á að eldsneytisneysla þar í landi sé að dragast saman. Um miðj- an dag í gær hafði verð á Brent- norðursjávarolíu lækkað um 1,5% og stóð í rúmum 127 bandaríkjadöl- um á fatið. Í gær voru tillögur rædd- ar í bandarísku öldungadeildinni um að draga mjög úr fjölda afleiðu- samninga með olíu sem hver spá- kaupmaður getur átt hverju sinni og auka upplýsingagjöf þeirra til eftirlitsaðila. bjarni@mbl.is Heimsmark- aðsverð á olíu enn á niðurleið S-AFRÍSKI demantaframleið- andinn De Beers, sem framleiðir um 40% af öllum demöntum heims, jók tekjur sínar um 10% á fyrri helmingi ársins vegna hækkandi demantaverðs í heiminum. Í frétt Bloomberg segir að eft- irspurn eftir gæðademöntum sé „mjög, mjög mikil“ um þessar mundir. Ástæða þess er meðal ann- ars sú sama og ástæða þess að eft- irspurn eftir gulli er mikil, þ.e. þeg- ar að kreppir á fjármálamörkuðum og verðbólguskýin hrannast upp leita fjárfestar í vörur sem halda verðgildi sínu. Í kjölfar aukinnar eftirspurnar hækkar verð. sverrirth@mbl.is Eftirspurn þrýstir dem- antaverði upp BRESKA símafyrirtækið Vodafone hefur lýst því yfir að það muni kaupa eigin bréf að andvirði eins milljarðs punda, um 160 milljarða króna, eftir að gengi bréfa félagsins féll um 14% á þriðjudag, en er það mesta lækkun gengis bréfa félagsins á einum degi. Gengisfallið kom í kjölfar af- komuviðvörunar Vodafone, sem gerir ráð fyrir minni tekjum en áð- ur hafði verið spáð, en viðvörunin var gefin út aðeins tveimur mán- uðum eftir að upphafleg spá var gerð opinber. Hlutabréfakaup Vodafone koma svo til vegna þessa mikla falls. Fleiri fyrirtæki í far- símageiranum hafa gefið út viðvar- anir og féll gengi Ericsson um 11% eftir slíka viðvörun. bjarni@mbl.is Kaupir eigin bréf FJÁRFESTINGARSJÓÐIR í eigu stjórnvalda í olíuríkjunum í Mið- Austurlöndum hafa í auknum mæli fjárfest í stórfyrirtækjum á Vestur- löndum á umliðnum árum. Hefur mikið borið á stjórnvöldum í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum. Nýjasta dæmið um slíka fjárfestingu eru einmitt kaup þessa sjóðs á hlutum í bandaríska stórfyr- irtækinu General Electric (GE) fyr- ir 8 milljarða dollara, um 634 millj- arða íslenskra króna. Furstarnir eru eftir kaupin meðal stærstu hlutahafa í GE. gretar@mbl.is Abu Dhabi kaupir í General ElectricÁ KREPPUTÍMUM leitar fólk eðlilega leiða til að spara og er matarreikningurinn þar ekki und- anskilinn. Fyrir dýrari matsölu- staði eru þetta því erfiðir tímar, en hagur skyndibitastaða, sem selja mun ódýrari matvöru, vænkast hins vegar. Talið er að McDonalds hamborgarakeðjan, sem er stærsta skyndibitakeðja heims, muni hagn- ast töluvert á þessari breytingu á neysluvenjum almennings og hefur því jafnvel verið spáð að hagnaður á hlut á öðrum ársfjórðungi í ár verði 21% meiri en á sama tíma í fyrra. Þá hagnast McDonalds meira en aðrar bandarískar skyndibitakeðjur á veikingu doll- arans, en 40% af tekjum fyrirtæk- isins koma frá Evrópu, svo dæmi sé tekið. Fleiri aðilar geta gert ráð fyrir auknum tekjum í hallærinu, en fólk dregur gjarnan úr viðskiptum við dýrari verslanir eins og Whole Foods og kaupir frekar inn í Wall-Mart, sem gera má ráð fyrir að muni skila ágætum arði í ár, að öllu öðru óbreyttu. bjarni@mbl.is Fólk flykkist til McDon- alds á krepputímum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.