Morgunblaðið - 02.08.2008, Page 1
laugardagur 2. 8. 2008
íþróttir mbl.isíþróttir
Tottenham lætur til sín taka í kaupum og sölum á leikmönnum >> 2
FÆSTIR HORFA Á FRAM
FJÓRIR LEIKMENN LANDSBANKADEILDARINNAR ERU
EFSTIR OG JAFNIR Í M-GJÖF MORGUNBLAÐSINS >> 4
Reuters
Einbeiting Um 10.500 keppendur leggja nú lokahönd á undirbúning sinn fyrir Ólympíuleikana í Peking í Kína en leikarnir verða settir 8. ágúst. Alls er
keppt í 28 íþróttagreinum og er keppni á straumvatnskajak ein þeirra. Luuka Jones frá Nýja-Sjálandi gaf ekkert eftir á æfingunni í gær.
ASTON Villa
mætir FH aðeins
þremur dögum
áður en liðið leik-
ur sinn fyrsta
leik í ensku úr-
valsdeildinni á
nýrri leiktíð. Lið-
ið leikur gegn
FH á Laugar-
dalsvelli 14.
ágúst en tekur svo á móti Man-
chester City þann 17. sama mán-
aðar. Villa leikur svo við Stoke í
deildinni áður en Fimleikafélagið
kemur í heimsókn til Birmingham
og mætir svo Liverpool í næsta leik
á eftir.
„Það er ljóst að fyrri leikurinn
verður leikinn á Íslandi og það á
Laugardalsvelli. Ætli það yrði ekki
gaman ef áhorfendur yrðu á bilinu
6-8000 á leiknum hér heima. Við
viljum allavega mjög gjarnan að vel
verði mætt á völlinn,“ sagði Pétur
Stephensen, framkvæmdastjóri FH.
Spurður hvort FH hefði dottið í
lukkupottinn hvað sjónvarpstekjur
varðar sagði Pétur: „Ég hef bara
ekki hugmynd um það. Ef leikurinn
verður sýndur ytra gæti svo verið,
en það hefur enginn spáð neitt í
þeim málum enn þá. Það kemur allt
saman í ljós þá ef svo verður. Við
erum fyrst og fremst ánægðir með
að fá að leika gegn eins stóru liði og
raun ber vitni.“
Aston Villa hafnaði í 6. sæti
ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu
leiktíð. Hjá félaginu leika menn á
borð við Gareth Barry, Ashley
Young, Nigel Reo-Coker, John
Carew, Martin Laursen, Wilfred
Bouma, Brad Friedel og Gabriel
Agbonlahor. thorkell@mbl.is
„Viljum góða
mætingu
á völlinn“
Pétur Stephensen
ÍSLENSKI landsliðsmaðurinn í
körfuknattleik, Pavel Ermolinskij,
hefur samið til eins árs við spænska
liðið La Palma. Liðið leikur í næst-
efstu deild á Spáni. La Palma er
staðsett á Kanaríeyjum en liðið er í
sömu deild og Melilla sem Hörður
Vilhjálmsson samdi við á dögunum.
Pavel er 21 árs gamall og er hann
sonur Alexanders Ermolinskij sem
lék á árum áður með Skallagrím,
ÍA og Grindavík.
Á síðustu leiktíði lék Pavel með
Ciudad Huelva í LEB gulldeildinni
á Spáni sem er næstefsta deild en
þar var hann í láni frá Unicaja
Malaga sem er eitt af sterkustu fé-
lagsliðum Evrópu. Frá þessu er
greint á karfan.is. seth@mbl.is
Pavel samdi
við La Palma
„ÉG SKAL ekki segja til um mögu-
leika okkar gegn þeim en við mun-
um allavega ekki láta valta neitt
yfir okkur og kannski á góðum degi
stríða þeim eitthvað líka,“ segir
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH
sem lenti á móti enska úrvalsdeild-
arliðinu Aston Villa í 2. umferð for-
keppni UEFA-bikarkeppninnar
þegar dregið var í gær.
Lið Aston Villa þarf engrar
kynningar við. Þar stjórnar Skotinn
Martin ÓNeill harðri hendi og hef-
ur náð góðum árangri með liðið.
FH sigraði sem kunnugt er lið
Grevenmacher samtals 8:3 í fyrstu
umferð keppninnar. Hvort liðið á
möguleika að fara lengra skal ósagt
látið en Heimir lítur á viðureignina
sem kærkomið og skemmtilegt
tækifæri fyrir menn að sýna hvað í
mönnum búi þegar glíma þarf við
mótherja af þessu taginu. „Það er
oft svo að menn sýna leiki gegn
svona liðum sem þeir sýna ekki
annars enda meira í húfi. Við mun-
um nýta okkur allan meðbyr og
kannski verður um eitthvað vanmat
að ræða hjá Villa mönnum og það
getur hjálpað okkur líka.“
Fyrri leikur liðanna fer fram hér
á landi þann 14. ágúst og sá síðari
á Villa Park þann 28. sama mán-
aðar.
Aston Villa hefur einu sinni áður
mætt íslensku liði, Val árið 1981, í
Evrópukeppni meistaraliða og sigr-
uðu þá öruggt 7:0. Vann Aston
Villa reyndar keppnina það árið.
albert@mbl.is
„Skemmtilegt tækifæri“
Enska knattspyrnuliðið Aston Villa mætir FH í UEFA-bikarnum