Morgunblaðið - 02.08.2008, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
úrslit
KNATTSPYRNA
Vináttuleikir:
Celtic – Tottenham.................................. 0:2
– Darren Bent 24., David Bentley 80.
Lokomotiv Moskva – Chelsea ................ 1:1
Ruslan Kambolov 84. – Michael Essien 27.
Lokomotiv vann eftir vítakeppni, 5:4.
Hertha Berlin – Newcastle..................... 1:0
Marko Pantelic 80.
ÁGÚST Björgvinsson, þjálfari A-landsliðs kvenna,
hefur valið tólf manna hóp fyrir Norðurlandamótið
sem fer fram í Gentofte dagana 4. til 9. ágúst
næstkomandi. Ísland hvílir fyrsta keppnisdaginn
en síðan er leikið fjóra daga í röð gegn Dönum,
Finnum, Svíum og Norðmönnum. Gentofte er út-
borg Kaupmannahafnar með tæplega 69 þúsund
íbúa. Gentofte er staðsett norður af höfuðborginni
og í bænum er meðal annars hinn frægi leikgarður
Bakken.
Haukar, Keflavík og Grindavík eiga öll þrjá leik-
menn í hópnum. Það er einn nýliði í íslenska hópn-
um Ragna Margrét Brynjarsdóttir úr Haukum
mun leika sína fyrstu landsleiki í Danmörku en
hún var valin besti ungi leikmaður Iceland Ex-
press-deildar kvenna á síðasta tímabili.
Landsliðshópurinn er þannig
skipaður en í sviganum er fjöldi
landsleikja.
Helena Sverrisdóttir, TCU
(21), Hildur Sigurðardóttir, KR
(52), Ingibjörg Jakobsdóttir,
Grindavík (1), Jovana Lilja Stef-
ánsdóttir, Grindavík (29), Krist-
rún Sigurjónsdóttir, Haukar (8),
Margrét Kara Sturludóttir,
Keflavík (5), María Ben Erlings-
dóttir, UTPA (16), Pálína Gunn-
laugsdóttir, Keflavík (6), Petrúnella Skúladóttir,
Grindavík (6), Ragna Margrét Brynjarsdóttir,
Haukar (0), Signý Hermannsdóttir, Valur (44),
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, KR (3). seth@mbl.is
Ragna Margrét fær tækifæri hjá Ágústi
Helena
Sverrisdóttir
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@mbl.is
Séu kaup og sölur liðanna borin saman
sést að Roy Keane og félagar hjá Sun-
derland hafa eytt hæstu nettóupphæð-
inni af félögunum í deildinni, eða rúm-
um 25 milljónum punda. Stefnan er því
greinilega sett á að forðast fallbarátt-
una sem liðið lenti í á síðustu leiktíð.
Manchester City kemur þar skammt á
eftir en liðið greiddi heilar 18 milljónir
punda fyrir brasilíska framherjann Jo.
Kaup Tottenham á leikmönnum á
borð við Króatann Luka Modric, sem
heillaði marga á EM í sumar, Giovani
Dos Santos frá Barcelona, David Bent-
ley frá Blackburn og brasilíska mark-
verðinum Heurelho Gomes frá PSV
gera Juande Ramos og félaga að mestu
„eyðsluklóm“ ensku úrvalsdeildarinnar
það sem af er sumri. Tottenham-menn
hafa hins vegar einnig verið duglegir
að selja leikmenn og þar ber hæst 19
milljóna punda salan á írska framherj-
anum Robbie Keane. Tottenham hefur
einnig selt fjóra leikmenn til Sunder-
land fyrir samtals 23 milljónir punda
og hefur þegar allt er tekið saman í
raun grætt tæpa milljón á leikmanna-
skiptum í sumar.
Hin fjögur fræknu misróleg
Stóru liðin fjögur, Arsenal, Chelsea,
Liverpool og Manchester United hafa
haft nokkuð hægt um sig, en misjafn-
lega þó. Nýráðinn stjóri Chelsea, Luiz
Felipe Scolari, var ekki lengi að sann-
færa landa sinn og fyrrum lærisvein í
portúgalska landsliðinu, miðjumanninn
Deco, um að koma frá Barcelona fyrir
tæplega 8 milljónir punda. Fyrir komu
Scolaris hafði annar portúgalskur
landsliðsmaður, varnarmaðurinn José
Bosingwa, gengið í raðir Chelsea fyrir
litlar 16,2 milljónir punda.
Scolari kveðst þó ekki hættur og er
brasilíski landsliðsmaðurinn Robinho
ofarlega á lista yfir þá leikmenn sem
Portúgalinn girnist. Þá voru rússnesku
framherjarnir Roman Pavlyuchenko
og Andrei Arshavin orðaðir við félagið í
kjölfar góðs árangurs á EM, en
Tottenham hefur einnig lýst yfir áhuga
á að krækja í a.m.k. annan af þeim fé-
lögum.
Ungir leikmenn til Arsenal
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hef-
ur lengi lagt traust sitt á unga leik-
menn og á því virðist engin breyting
ætla að verða í ár. Þrátt fyrir að hafa
lítið sýnt með franska landsliðinu á EM
í sumar var hinn 21 árs gamli Samir
Nasri keyptur frá Marseille fyrir 9,5
milljónir punda, og Arsenal vann einn-
ig kapphlaupið um hinn 17 ára Aaron
Ramsey hjá Cardiff sem keyptur var
fyrir fimm milljónir punda. Svissneski
landsliðsmaðurinn Gokhan Inler hefur
verið sterklega orðaður við Lundúna-
liðið og eru Arsenal-menn sagðir reiðu-
búnir að greiða 10 milljónir punda fyrir
kappann. Wenger sér hins vegar á bak
tveggja annarra miðjumanna, þeirra
Mathieu Flamini sem fór frítt til AC
Milan og Alexander Hleb sem fór fyrir
11,8 milljónir punda til Barcelona. Þá
hefur framherjinn Emmanuel Adebay-
or verið sagður á leið frá félaginu.
Liverpool kom mörgum á óvart með
kaupunum á Robbie Keane frá Totten-
ham fyrir 19 milljónir punda en Keane
lék frábærlega á síðustu leiktíð og
skoraði 23 mörk. Keane fyllir skarð
ólíks framherja, Peter Crouch, sem
farinn er til Portsmouth fyrir 11 millj-
ónir punda, og er Írinn sjálfsagt hugs-
aður sem aðstoðarmaður markahróks-
ins Fernando Torres í framlínu
Liverpool. Minna þekktir leikmenn á
borð við Andrea Dossena, Diego
Cavalieri og Philipp Degen hafa bæst í
hópinn en Liverpool hefur misst þá
Scott Carson, Harry Kewell og John
Arne Riise. Líklega hefur þó farið fé
betra eins og þar stendur.
Ferguson engu eytt enn þá
Sir Alex Ferguson og félagar á Old
Trafford hafa haldið að sér höndum í
sumar eftir að hafa eytt háum fjár-
hæðum fyrir ári síðan í kappa á borð
við Nani og Anderson. Enn hefur eng-
inn verið keyptur til félagsins en
Ferguson hefur gefið það út að a.m.k.
eitt stórt nafn muni bætast í hóp Unit-
ed áður en að leiktíðin hefst og hefur
búlgarski markaskorarinn Dimitar
Berbatov helst verið nefndur til sög-
unnar. Félagið seldi hins vegar varnar-
manninn Gerard Pique til Barcelona
fyrir um 6 milljónir punda, og þá ku
Portúgalinn Ronaldo hafa verið orðað-
ur við Real Madrid.
Enn eru tvær vikur þar til deildin
hefst og ljóst að margt á eftir að gerast
áður en leikmannamarkaðurinn lokar
um næstu mánaðamót.
Reuters
Há upphæð Eigandi Manchester City greiddi um 2,8 milljarða kr. eða 18 millj-
ónir punda, fyrir Brasilíumanninn Jo sem lék áður með CSKA í Moskvu.
ÞAÐ styttist óðum í upphaf nýrrar leik-
tíðar í enska boltanum en fyrsta um-
ferðin fer fram eftir tvær vikur. Liðin
20 hafa farið misjafnlega geyst í leik-
mannakaup það sem af er sumri og
t.a.m. hafa Englandsmeistarar Man-
chester United enn ekki keypt leik-
mann á meðan að Tottenham hefur
keypt leikmenn fyrir hátt í 50 milljónir
punda eða nærri 8 milljarða króna.
Tottenham
hefur farið
mikinn
Fjölmörg félagaskipti á Englandi
!"
#$
%
$
&
'
#(
)
"
* +! ,
$
-
-
. $
/
/ &
/
!
"
!
#!$"
# $
$"
# $
!$#
#$%
$
&$
$
$
%$
&$"
##$
$"
"$
!!$%
#$&
"$
%$
$
$"
$""
$"
$%&
#$ %
$"&
!$"
$
#$#
#$!&
#$%
#$!
!$"
%$
#$%
$
#$#
!
!
"
!
#
%
#
#
"
"
#$
$
#%$
$
#!$
#$#
#$
$
%$
!$"
!$&
#$
!"$"
&$
$
#$
$#
$!%
$ %
$!#
$
$#
$
$!
$"
#$
$%#
$%%
$!
%$#"
#$!
#$%
$"
'#$%
'#$
(#$"
'#$!
'#$#
'&$"
'$
'%$
'$
(%$
'$%
'!$
($
'$"
'"$
($
'#$&
(#$
'"$!
DREGIÐ var í 3. umferð Meistaradeildar Evrópu í
gær en nokkur stórlið úr Evrópu voru í hattinum
þegar dregið var. Eiður Smári Guðjohnsen og fé-
lagar hans úr spænska liðinu Barcelona leika
gegn ísraelska liðinu Beitar eða Wisla frá Póllandi
sem eiga eftir að leika síðari leikinn í 2. umferð.
Ensku liðin Arsenal og Liverpool fara til Hollands
og Belgíu. Liverpool leikur gegn Standard og Ars-
enal mætir Twente. Íslendingaliðið Brann frá
Noregi á eftir að leika síðari leikinn gegn lettn-
eska liðinu Ventspils en sigurliðið mætir Marseille
frá Frakklandi. Ragnar Sigurðsson og Hjálmar
Jónsson úr meistaraliði Gautaborgar í Svíþjóð
eiga eftir að leika síðari leikinn gegn svissneska
liðinu Basel en sigurliðið mætir portúgalska liðinu
Vitoria Guimaraes. Þessi lið mætast í 3. umferð.
Börsungar til Póllands
íþróttir
ÍSLENSKA
landsliðið í knatt-
spyrnu skipað
strákum á aldr-
inum 17 ára og
yngri leikur við
Skota um 5. sæt-
ið á opna norð-
urlandamótinu í
dag. Mótið fer
fram í Svíþjóð og
hafnaði Ísland í 3. sæti í sínum riðli
á eftir Norðmönnum og Englend-
ingum en í 4. sæti riðilsins voru
Finnar.
Leikurinn fer fram klukkan
11:30 á íslenskum tíma. Þjálfari Ís-
lands er Luka Kostic.
thorkell@mbl.is
Ísland leikur
við Skota um
5. sætið
Luka Kostic
ENSKI knatt-
spyrnumaðurinn
David Bentley
skoraði í sínum
fyrsta leik fyrir
Tottenham
Hotspurs þegar
liðið lagði Glas-
gow Celtic að
velli, 2:0, í æf-
ingaleik í gær-
kvöld. Bentley, sem gekk til liðsins
frá Blackburn á miðvikudag, skor-
aði síðara mark Tottenham í leikn-
um en áður hafði Darren Bent kom-
ið liðinu yfir.
Af öðrum æfingaleikjum stórliða
má nefna það að Newcastle tapaði
fyrir Hertha Berlin, 1:0, og Chelsea
gerði jafntefli við Lokomotiv
Moskvu, 1:1, þar sem Michael Es-
sien skoraði mark Chelsea. Þá vann
Sevilla 1:0-sigur á AC Milan og var
það sjálfsmark Gennaros Gattuso
sem skildi liðin að.
Í dag leikur svo Manchester Unit-
ed æfingaleik við Espanyol, Liver-
pool mætir Glasgow Rangers og
Arsenal keppir við Juventus auk
þess að Real Madríd keppir við
Hamburg. thorkell@mbl.is
Bentley skor-
aði í sínum
fyrsta leik
David Bentley
BANDARÍSKA
körfuboltalands-
liðið átti ekki í
teljandi erfið-
leikum með það
litháíska og vann
120:84, þegar
þjóðirnar mætt-
ust í æfingaleik í
karlaflokki í
gær. Leikurinn
var liður í undirbúningi beggja
þjóða fyrir Ólympíuleikana í Pek-
ing sem hefjast á næstu dögum.
Stigahæstur í liði Bandaríkjanna
var Dwyane Wade úr liði Miami
Heat með 19 stig. Næstir honum
komu Dwight Howard með 17 stig,
Michael Redd með 16 og LeBron
James úr Cleveland með 15 stig.
Í síðasta mánuði lék íslenska
landsliðið tvívegis við Litháen og
tapaði stórt. thorkell@mbl.is
Bandaríkin
fóru létt
með Litháen
Dwyane Wade