Morgunblaðið - 14.09.2008, Side 1
S U N N U D A G U R 1 4. S E P T E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
251. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Leikhúsin
í landinu >> 55SKÁLDIN BJÖRGUÐUÍRANSKRI MENNINGU
VIÐTALIÐ
BRETAR SUKKA Á
SÓLARSTRÖNDUM
ERLENT
„EFTIR að ráðist var á mig hugsaði ég oft
um að ég hefði viljað hafa rafbyssu og vera í
skot- og hnífheldu vesti. En mér finnst sorg-
legt að hugsa um það. Að sjá fram á að sam-
félagið verði þannig.“
Þetta segir lögreglumaður sem varð fyrir
fólskulegri árás ölvaðs manns í starfi. Hann
og félagar hans segja ofbeldi gegn lögregl-
unni daglegt brauð. Það kemst sjaldnast í
fréttir, flokkast undir smápústra og af-
leiðingarnar undir minni háttar meiðsli. Þeir
fá pústra, eru klóraðir, það er sparkað í þá
Lögreglumenn kunna ekki lausn á vand-
anum. Þeir segja virðingarleysið mikið, bæði
hjá fullorðnum og þeim sem yngri eru. „Við
lendum margoft í því að unglingar stofni til
einhverra vandræða og þegar við stillum til
friðar erum við umkringdir krökkum, sem
allir eru með gemsana á lofti. Þeir gera sitt
besta til að stofna til vandræða og taka svo
myndir og vídeó af öllum viðbrögðum okk-
ar.“
„Ég skal drepa konuna þína!“
Ofbeldi og hótanir gegn lögreglumönnum í starfi eru nánast daglegt brauð
Lögreglumenn segja virðingarleysið mikið, hjá eldri jafnt sem yngri
Við búum ekki lengur | 10
og margoft kemur fyrir að hrækt sé á þá.
Hótanirnar, sem dynja á lögreglumönn-
um, reyna á þolrifin. „Ég skal drepa konuna
þína og krakkana, helvítið þitt.“ „Ég fer
heim til þín og nauðga konunni þinni.“
Kannski er einhverjum alvara
Einn lögreglumaður sagðist hafa kylfuna
og piparúðann við rúmstokkinn á nóttunni.
„Ég hef svo oft heyrt viðbjóðslegar hótanir í
minn garð og ekki síður konunnar minnar.
Kannski er einhverjum þeirra alvara?“ Morgunblaðið/Júlíus
Ýmislegt bendir til að vonin um
hagnað í veðmálum valdi spillingu í
knattspyrnu og að úrslitum leikja
sé hagrætt. Ólögleg veðmál
blómstra í Asíu og veltan er talin
nema milljörðum.
Veðmálin spilla
knattspyrnunni
Ef einhver hélt að Metallica væri
búin að rokka sitt síðasta verður
hann að endurskoða það. Hljóm-
sveitin hefur aldrei verið sprækari,
eins og níunda skífan staðfestir.
Mikill er máttur
Metallica
Kína hefur á örskömmum tíma
stokkið frá miðstjórn til stjórnlauss
kapítalisma. Hörð samkeppni
þrýstir á fyrirtæki að halda kostn-
aði niðri, ekki síst laununum.
Lélegur aðbún-
aður og lág laun
BALTASAR Breki Samper er op-
inskár í tali við móður sína, Ástrós
Gunnarsdóttur, og talar við hana
um allt mögulegt. Hann segir
mömmu framsækna og flotta á sviði
og hún kallar soninn listfengan og
rólegan. Að einu leyti eru þau gjör-
ólík. Hún er mikill morgunhani, en
sonurinn nátthrafn. Ástrós segir
þessa leti á morgnana geta alveg
farið með hvert foreldri. Mæðginin
ræða tengsl sín í viðtali við Morg-
unblaðið í dag.
Mæðginin Ástrós og Baltasar Breki eru náin
Tala saman um allt mögulegt
Morgunblaðið/Frikki
Tengsl | 20
VIKUSPEGILL
EITT hundrað og sex íslenskir sjúk-
lingar fengu í fyrra meðferð á tveimur
sjúkrahúsum í Taílandi.
Ef þeim er eins farið og öðrum
Norðurlandabúum hafa um 60%
þeirra verið ferðamenn, sem lentu í
óhöppum, en 40%, eða alls 43 einstak-
lingar, farið gagngert til Taílands að
leita sér lækninga.
Taílendingar leggja mikla áherslu
á að byggja upp svokallaða lækninga-
ferðamennsku. Þar í landi eru 333
einkareknir spítalar, sem sækjast eft-
ir sjúklingum frá fjarlægum löndum.
Styrkur þeirra er að bjóða upp á að-
gerðir á hátæknisjúkrahúsum fyrir
hluta þess kostnaðar sem slíkar að-
gerðir kosta á Vesturlöndum. | 32
Til Taílands
á sjúkrahús
„FLUGMAÐURINN bakkaði eins
langt og hann gat og svo var allt sett
í botn, brunað af stað og vonað hið
besta,“ segir Ingi Agnarsson, líf-
fræðingur og sérfræðingur í
kóngulóm, um ferðalag inn í regn-
skóga Gvæana. Hann tók, ásamt fé-
lögum sínum frá Smithsonian, á loft í
ofhlaðinni vél í miðjum skógi eftir
ævintýralega ferð til að safna
kóngulóm. Öll sýnin voru síðan tekin
af þeim við komuna til höfuðborg-
arinnar þegar þeir lentu náhvítir eft-
ir þriggja tíma ferðalag í stormi.| 22
Skúlptúr Engispretta fer úr ham.
Svaðilför í
regnskógi
Ljósmynd/Ingi Agnarsson