Morgunblaðið - 14.09.2008, Page 15

Morgunblaðið - 14.09.2008, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 15 Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is R okkið leið ekki undir lok í vikunni, ekki frekar en heimurinn í heild sinni. Náttúrlega þurfa dauðlegir menn vikur til að melta slíkan grip, jafn- vel mánuði, en fyrstu teikn eru gríðarlega jákvæð. Níunda skífa sjálfs rokkskrímslisins, Metallica, með frumsömdu efni kom út á föstudag og Death Magnetic, eins og hún kallast, er staðfesting á því að rokkið lifir enn góðu lífi. Óprúttnir aðilar, m.a. í brennidepli alviskunnar, 101 Reykjavík, hafa reynt að drekkja því í einhverju kaffisulli en verður ekki kápan úr því klæðinu. Í það minnsta rokka ’tallica-strákarnir ennþá úr sér lifur og lungu, hálffimmtugir að aldri. Hér er allt lagt undir, slík er keyrslan að eftir hið stórbrotna All Nightmare Long er ekki þurr þráð- ur á manni. Svei mér ef sér ekki á veggjum líka. Og samt er hálf plat- an eftir. Ekkert jafnast á við ómengað þrass – í botni. Fleiri lög hafa burði til að verða klassík, s.s. Cyanide, Broken, Beat and Scarred og The Day That Never Comes en dómur í því máli fellur vitaskuld ekki strax. Ég hafna því alfarið að síðastnefnda lagið sé einskonar „One wannabe“ og þá er átt við eitt merkasta lag Metallica frá upphafi, fyrir þá sem koma af fjöllum. Upp- byggingin er vissulega lík en að öðru leyti eiga lögin fátt sameig- inlegt. Er ekki tónlist líka stöðug endurvinnsla á hugmyndum þegar öllu er á botninn hvolft? Ég get hins vegar fallist á að My Apoca- lypse sé spartverskur ættingi Da- mage Inc. Og kannski síðri. Horft á hornfánana? Þessi lagaheiti endurspegla þá staðreynd að það hefur aldrei verið sterkasta hlið Metallica að ljá lög- um sínum nöfn. Textarnir munu líka seint verða skilgreindir sem bókmenntasöguleg þrekvirki enda þótt sitthvað frambærilegt leynist þar inn á milli. En hverjum er ekki slétt sama? Að hlusta á rokk vegna textanna er eins og að fara á knatt- spyrnuleik til að horfa á hornfán- ana. Fyrir utan þá staðreynd að enginn lagar vont lag með meitl- uðum texta. Ekki einu sinni móðir Teresa okkar tíma, Bono. Þegar síðasta plata Metallica, St. Anger, kom út fyrir fimm árum var mikið rætt um afturhvarf til for- tíðar. Sveitin væri komin að rótum sínum. Það var undarleg umræða því St. Anger er eins ólík fyrstu plötum Metallica og hugsast getur enda þótt hraðinn væri keyrður upp á ný. Sem kunnugt er var málm- urinn blandaður í kolvitlausum hlutföllum á Load-plötunum á síð- asta áratug. Með Death Magnetic má aftur á móti fara að tala um afturhvarf til fortíðar – en í bland við ferskleika og almenna leikgleði. Menn hafa greinilega yndi af því sem þeir eru að gera og nýi bassaleikarinn, Ro- bert Trujillo, hefur fallið að sveit- inni eins og flís við rass. Bráð- skemmtilegur karakter og listamaður fram í fingurgóma. Ekki er ofsögum sagt að hann hafi lyft Metallica upp á hærra plan. Þá er búið að leysa Kirk Ham- mett gítarleikara úr spennitreyj- unni en sem frægt er var hann bar- inn niður á St. Anger og fékk ekki að taka eitt aukatekið sóló. Ýmsum þótti líka trommuleik- urinn heldur hvellur og ágengur. Lars Ulrich hamast eins og her- maur á sterum plötuna út í gegn. St. Anger engin mistök Áður en lengra er haldið má ég þó til með að bera í bætifláka fyrir St. Anger og leiðrétta þann út- breidda misskilning að platan hafi verið „mistök“. Þvert á móti var hún mikilvægur liður í þroskasögu sveitarinnar. Gott og vel, lagasmíð- arnar hafa oft verið betri og St. An- ger er augljóslega ómstríðari og um leið tormeltari en aðrar plötur Me- tallica. En það þýðir ekki endilega að hún sé verri, þegar komið er undir hrjúft yfirborðið, þó ekki ætli ég að skipa henni á bekk með önd- vegisverkum sveitarinnar, Master of Puppets og ... and Justice For All. Á St. Anger er allt löðrandi í tilfinningum og tilgangi, s.s. í tit- illaginu, Some Kind of Monster, My World og The Unnamed Feeling. Það sér inn í bera kvikuna í kjölfar frægrar tilvistarkreppu sveit- arinnar í upphafi þessa áratugar. Við efasemdamenn þessa heims segi ég því einfaldlega: Hlustið og þér munuð heyra! Eða rímaði St. Anger kannski bara svona vel við sálarlíf mitt á þessum tíma? En hvað sem mönnum kann að finnast um St. Anger er ljóst að Metallica hafði gyrt sig í málmbrók á ný. Þá brók hefur sveitin ekki leyst niður um sig á Death Magn- etic, nema síður sé. Og það sem meira er, hún er endanlega stigin út úr hringiðu hjómsins, þangað sem hún sogaðist eftir Svörtu plöt- una og Load-ævintýrið. Héðan í frá koma menn til dyranna eins og þeir eru klæddir enda einlægni allra dygða best í listum. Og líklega líf- inu yfir höfuð. Uppgjörið að baki Ekki þarf að fjölyrða um téða til- vistarkreppu Metallica. Henni voru gerð ítarleg skil í kvikmyndinni Some Kind of Monster. Þegar hana ber á góma sé ég alltaf fyrir mér atriðið með Ulrich, Dave Mustaine og sálfræðingnum. Þar opnaðist einhver ný vídd. Vídd sem senni- lega ætti að vera lokuð. En alltént. Af myndinni að dæma var Metallica nálægt því að leggja upp laupana – eins og frystihúsin forðum – í kjölfar þess að James Hetfield hóf síðbúna leit að sjálfum sér. Gleymum því ekki að þessir menn voru ekki nema liðlega tví- tugir þegar þeir vöknuðu upp um miðja nótt í Smálöndunum í Svíþjóð við það að tónleikarútan hafði oltið og Cliff Burton bassaleikari orðið undir henni. Slíkri upplifun gleyma menn auðvitað aldrei enda þótt Bakkus hafi deyft hana um alllangt skeið. Og frestað uppgjörinu. Þrátt fyrir allt var samt líklega lítil hætta á því að sveitin leystist upp enda henda menn ekki fjöregg- inu svo auðveldlega frá sér. Allra síst þegar þeir eru orðnir allsgáðir. Hitt er annað mál að Hetfield hefur án efa oftar en einu sinni verið sjálfur á þröm uppgjafar. Í athygl- isverðu samtali við Dave Grohl, for- sprakka Foo Fighters, á metallica- .com á dögunum lætur hann líka að því liggja að mögulega hefði allt getað farið á annan veg og hann nú setið að sumbli með Kurt Cobain, Layne Staley og fleiri góðum mönn- um. Það getur verið afdrifaríkt að finna ekki reiði sinni farveg, eink- um þegar hún er uppsöfnuð. En allt um það. Hetfield er hérna megin móðunnar, vígreifur sem aldrei fyrr. Death Magnetic hefur litið dagsins ljós og mögulega hittir fyrrnefndur Dave Grohl naglann á höfuðið þegar hann segir íbygginn við ’tallica-strákana: „Ég geng ekki svo langt að halda því fram að Death Magnetic sé ykkar besta plata – en hún er nálægt því.“ Af málmi ertu kominn... Gömlu brýnin í Metallica rokka sem aldrei fyrr á nýjustu skífu sinni, Death Magnetic, sem kom út fyr- ir helgi og sýna svo ekki verður um villst að frásagnir af dauða rokkskrímslisins eru stórlega ýktar Reuters Þéttir James Hetfield, Robert Trujillo, Lars Ulrich og Kirk Hammett rokka frá sér allt vit í Los Angeles í sumar. Á nýju plötunni, Death Magnetic, leitar Metallica aftur til uppruna síns í gamla góða þrassinu. Mikill er mátturinn. Í HNOTSKURN »Metallica var stofnuð íLos Angeles árið 1981 og sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu, Kill ’Em All, tveimur árum síðar. Hún er af mörgum talin áhrifamesta þungarokkshljómsveit sög- unnar. »Death Magnetic er ní-unda plata Metallica með frumsömdu efni en að auki hefur sveitin gefið út eina tónleikaplötu og tvær plötur með ábreiðum, þ.e. efni eftir aðra. »Hinn goðsagnakenndiupptökustjóri Rick Rub- in, sem m.a. er þekktur fyrir samstarf sitt við Johnny Cash, stýrði upptökum á Death Magnetic. TÓNLIST Fyrirtæki framtíðarinnar Ráðstefna um nýtingu mannauðs í stjórnun fyrirtækja Ráðstefnan fer fram í Salnum í Kópavogi föstudaginn 19. september frá kl. 8.30-12.30. Ráðstefnustjóri: Bryndís Hlöðversdóttir, forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst. Ráðstefnan er öllum opin. Ráðstefnu- gjald er kr. 4.500. Skráning fer fram á www.bifrost.is og í síma 433 3000. 19. september frá 8.30-12.30. Dagskrá Ágúst Einarsson rektor Háskólans á Bifröst setur ráðstefnuna Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ávarpar ráðstefnugesti The Diversity Business Case: Overcoming Challenges and Measuring Impact Eleanor Tabi Haller-Jorden framkvæmdastjóri Catalyst Europe The gender quota – implementation and experi- ence in Norway Marit Hoel framkvæmdastjóri Centre for Corpo- rate Diversity í Osló Álit og viðbrögð frá fjórum stjórnendum úr atvinnulífinu: Hildur Árnadóttir, Margrét Kristmanns- dóttir, Sævar Freyr Þráinsson, Þórólfur Árnason Kaffi Kynlegar kennitölur Elín Blöndal prófessor við lagadeild Háskólans á Bifröst Kyn sem áhrifaþáttur í stjórnun fyrirtækja Margrét Sæmundsdóttir hagfræðingur hjá viðskiptaráðuneytinu Hagfræði fyrir alla Illugi Gunnarsson alþingismaður Erum við að hoppa á öðrum fæti? Þór Sigfússon formaður Samtaka atvinnu- lífsins Álit og viðbrögð frá fjórum stjórnendum úr atvinnulífinu: Hreggviður Jónsson, Margrét Sanders, Ólafur Þ. Stephensen, Þórdís Jóna Sigurðar- dóttir Samantekt og slit Bryndís Hlöðversdóttir E N N E M M / S ÍA / N M 3 5 3 6 6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.