Morgunblaðið - 14.09.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 17
Minnt er á að í fyrri hluta október
fer fram álagning opinberra gjalda
lögaðila vegna rekstrarársins 2007.
Framtalsfrestur er nú liðinn og eru því þau félög
sem enn eiga eftir að skila skattframtali 2008 ásamt
ársreikningi hvött til að skila hið allra fyrsta.
Bent skal á að skattframtali skal alltaf skila, jafnvel
þó að engin eiginleg atvinnustarfsemi eða rekstur
hafi verið til staðar hjá félaginu.
Minnt er á að félög skulu jafnframt skila ársreikningi
til Ársreikningaskrár.
Til forráðamanna hlutafélaga, einkahlutafélaga og
annarra skattskyldra lögaðila
Framtalsfrestur
félagaer liðinn
skattur.is
Hægt er að skila skattframtali og ársreikningi rafrænt áwww.skattur.is.
» Nei, kanntu annan?
Valdís Óskarsdóttir , klippari og leikstjóri, spurð
hvort í bígerð væri Hollywood-útgáfa af Sveitabrúð-
kaupi.
» Ef skilaboðin frá dómskerfinu eruekki skýr, um að þetta sé alvarlegt og
menn fái makleg málagjöld fyrir þetta, þá
er hættan sú að menn haldi uppi við-
teknum hætti.
Geir Jón Þórisson , yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu, um sífellt tíðari árásir á lög-
reglumenn í starfi.
» Prímadonnur eiga oft erfitt með aðviðurkenna aðrar prímadonnur og ef
prímadonnur neyðast til samstarfs er
iðulega þrumusvipur á báðum.
Úr pistli Kolbrúnar Bergþórsdóttur , blaðamanns, um
stjórnarsamstarfið.
» Hinir eru miklu fleiri, sem kunna aðmeta að lognmollunni sé blásið frá.
Ögmundur Jónasson , þingflokksformaður Vinstri
grænna um viðbrögð við myndskreytingu á heimasíðu
hans, þar sem andliti Guðlaugs Þórs Þórðarsonar,
heilbrigðisráðherra, er skeytt inn á mynd með
Moammar Gaddafi, Líbýuforseta.
» Ég vænti þess að þessar fjölskyldurgeti gefið okkur mikið og kennt okkur
mikið, ekki síst það að sálunum svipar
saman í Súdan og Grímsnesinu.
Sigtryggur Karlsson , en hann og kona hans, Helga
Gunnarsdóttir, eru ein stuðningsfjölskyldna palest-
ínska flóttafólksins, sem kom til Akraness frá flótta-
mannabúðum í Írak.
» Maður á ekki að elta ólar við fólk semhefur yndi af illmælgi.
Úr yfirlýsingu Árna Johnsens , alþingismanns, þar
sem hann fellur frá meiðyrðamálsókn gegn Agnesi
Bragadóttur, blaðamanni.
»Yfirlýsing hans [Árna Johnsen] er fá-ránlegt skítkast og allt í lagi með það.
Agnes Bragadóttir um yfirlýsingu Árna Johnsens.
» Mér finnst það mikið umhugsunar-efni að formaður þingflokks stærsta
stjórnarandstöðuflokksins sjái sóma sinn
í því að gera þetta.
Guðlaugur Þór Þórðarson , heilbrigðisráðherra, um
fyrrgreint tiltæki Ögmundar.
» Að mínu mati tapaði betra liðið í þess-um leik.
Ólafur Jóhannsson , landsliðsþjálfari í knattspyrnu,
eftir leikinn við Skota.
»Að umgangast Keiko var eins og aðumgangast vitran hund.
Hallur Hallsson í útvarpsviðtali.
» Ég lái ljósmæðrum ekki að hafareiðst þar sem þessi orð má nátt-
úrlega ekki túlka öðruvísi en að öll kjara-
barátta, kvennabarátta, jafnréttisbarátta
síðustu 50 ára hafi verið unnin fyrir gýg
ef gildismat ríkisins á eðli starfa er frá
1962.
Guðlaug Einarsdóttir , formaður Ljósmæðrafélags
Íslands, um stefnu Árni M. Mathiesen, fjár-
málaráðherra, á hendur félaginu fyrir ólöglega vinnu-
stöðvun.
Reuters
Á tískusýningu Victoria Beckham og Jenni-
fer Lopez mættu á sýningu Marc Jacobs í
New York í vikunni.
Ummæli vikunnar