Morgunblaðið - 14.09.2008, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
T
am Coyle er tónleikahald-
ari og plötusnúður í
Glasgow. Hann hefur
ferðast með Köflótta
hernum (The Tartan
Army) um árabil og í tengslum við
knattspyrnuna og starf sitt komið til
samtals 57 landa. „Mig vantar fjögur
lönd í Evrópu. Þegar við vorum í
Makedóníu á laugardaginn, þar sem
við reyndar töpuðum, var ég að íhuga
að stökkva yfir til Albaníu en hafði
ekki tíma. Albanía er eitt af lönd-
unum sem við höfum ekki spilað við,
þess vegna hef ég ekki komið þang-
að.“
Tam var í Reykjavík fyrir sex ár-
um, þegar Skotland mætti Íslandi í
undankeppni stórmóts, rétt eins og
núna. Í millitíðinni hefur hann oft
verið nálægt því að koma til Reykja-
víkur á tónlistarhátíðina Airwaves,
en alltaf þurft að fresta því vegna
annríkis. „Október er erfiður, þá eru
margar aðrar tónlistarhátíðir, auk
þess sem við höldum fimm og allt upp
í sjö gigg á viku á staðnum sem ég er
með, Barfly. Skólarnir byrja nefni-
lega um þetta leyti og það er mik-
ilvægt að vera með góða dagskrá til
þess að ná stúdentunum rakleitt
inn,“ segir Tam, en á Barfly í Glas-
gow spila stór og smá bönd, allt frá
nýliðum til Franz Ferdinand og Bloc
Party.
Tam er mikill aðdáandi íslenskrar
tónlistar og rifjar upp þegar hann átti
þátt í að skipuleggja fyrstu tónleika
Sykurmolanna í Skotlandi árið 1988
og aðra í New York árið eftir. Síðan
þá hefur hann skipulagt tónleika í
Bretlandi með Bellatrix, múm og Sig-
ur Rós, svo fáar sveitir séu nefndar,
og næst á dagskrá er Sign.
Þú skalt ekki mann deyða
„Þegar ég ferðast með Köflótta
hernum fæ ég mér bjór, ég fæ mér
Jack Daniels, ég er í fríi og get verið
eins mjúkur og mér sýnist, jafnvel
fullur. En þegar ég er heima snerti ég
ekki áfengi, það er ekki hægt,“ segir
hann við því orðspori sem oft fer af
skosku knattspyrnuáhangendunum,
að þeir séu drykkjuboltar. „Þegar ég
kem heim á mánudaginn er haust-
vertíðin í bransanum að hefjast,
endalaus skipulagning, og ég mun
vinna í 37 daga samfleytt. Ekki einn
einasti frídagur,“ segir Tam og við-
urkennir að líf hans sé dálítið skorpu-
kennt.
Til Reykjavíkur kom hann sem
fyrr segir beint frá Makedóníu, þang-
að voru mættir 3.000 skoðanabræður
hans, en liðsmenn Köflótta hersins
búa um víða veröld og safnast reglu-
lega saman þar sem skoska landsliðið
leikur útileiki. „Ef við komumst á
HM í Suður-Afríku 2010 ætlum við að
keyra,“ fullyrðir Tam og segir að þeg-
ar sé búið að fjármagna ferðina með
samningum við dagblöð og útvarps-
stöðvar. „Við munum senda reglulega
pistla heim. Svo munum við gefa rút-
una okkar til hjálparstarfs í þjáðu
Afríkuríki,“ segir hann grafalvarlegur
og talið berst að hjartahlýju Skota.
„Þetta er gott fólk,“ samsinnir hann
og lítur yfir skrautlegan hópinn á
kaffihúsinu þar sem við sitjum. Þótt
þeir kenni sig við her séu þeir frið-
elskandi og réttsýnir. „Við viljum til
dæmis losna undan ensku yfirvaldi
með friðsamlegum hætti. Við viljum
ekki tengjast atburðum eins og þeim
sem gerst hafa í Írak og Afganistan.
Tony Blair hefur í okkar huga sess
stríðsglæpamanns, það var ekki vilji
skosku þjóðarinnar að valda dauða og
hörmungum saklausra borgara í Írak.
Í dag er forsætisráðherra Bretlands
að vísu skoskur, en það er ekkert
betra. Hann er of hallur undir enska,
að mínu mati.“
Tam segir að mikill meirihluti liðs-
manna Köflótta hersins hallist að
sjálfstæðu Skotlandi og söngvarnir og
klæðnaðurinn hafi sterkar þjóðern-
islegar skírskotanir. „Fullt af þessum
lögum sem ég spila fjalla um föð-
urlandsást, um skoska menningu og
hetjudáðir,“ segir Tam, en hann var
plötusnúður í stærstu partíum Skot-
anna í Reykjavík í vikunni – upphit-
unarpartíinu á Hressó kvöldið fyrir
leikdag og sigurhátíðinni daginn eftir.
Þar hljómuðu lög eins og Caledonia,
Flower of Scotland og The Bonny
Banks of Loch Lomond, í bland við
eitíssmelli frá Deacon Blue o.fl. Og
hástöfum var sungið með. „Ég passa
mig samt að fara ekki yfir strikið, ég
spila ekki róttæk, pólitísk lög, því
sumir okkar, kannski 20%, eru Bret-
landssinnar. Ég vil ekki móðga
neinn,“ segir Tam. „Skynsamleg og
eðlileg þróun,“ segir hann um leiðina
til sjálfstæðis. „Englendingar eru
vinir okkar og verða áfram góðir ná-
grannar. En þeir eru náttúrlega til í
okkar hópi sem hatast við Englend-
inga, vilja fara í fússi og sýna þeim
fingurinn. Það er nú meira ruglið.“
Langbesta sveitin
Tam fær klapp á bakið frá félögun-
um fyrir góða frammistöðu á plötu-
snúðapallinum og hann er sjálfur kát-
ur. „Ég hef með mér svona kannski
150 diska í hverri ferð. En ég nenni
ekki alltaf að standa í þessu, stundum
erum við búnir að leigja bar og mæt-
um á staðinn en þá standast engir
samningar. Oft fæ ég líka lítið borgað
fyrir púlið. En sums staðar – eins og í
Færeyjum síðast – sting ég bara upp
á því við eigandann að ég fái prósent-
ur af barnum og þá geng ég nátt-
úrlega út með fulla vasa fjár. Ég
þekki mína menn,“ segir hann glott-
andi og rifjar upp að í Færeyjum hafi
bareigandinn sem opnaði staðinn sinn
þurft að hringja í alla aðra bareig-
endur Þórshafnar þegar leið á nótt-
ina, til þess að útvega meira áfengi. Í
kjölfarið koma skrautlegar sögur af
menningarferðum Köflótta hersins til
aðskiljanlegustu landa, frá Moldóvíu
til Japans, t.a.m. sagan af þremenn-
ingunum sem sátu í pilsum sínum á
útikaffihúsi í Búdapest þegar bílalest
Tonys Blairs fór framhjá og þeir
stukku samstundis upp, sneru sér við
og sviptu upp pilsunum. „Eins og í
Braveheart, skilurðu,“ segir Tam.
Hvar sem hann fer er hann svo
auðvitað með eyrun opin fyrir nýrri
tónlist og er gjarnan mættur á sömu
staði einhverjum misserum síðar –
ekki í pilsi heldur gallabuxum – til
fundar við umboðsmenn. Það er því
eins og fyrir fullkomna galdra að
þjónninn á Kofa Tómasar frænda,
þar sem við sitjum, skuli bregða nýj-
ustu Sigur Rósar-plötunni undir
geislann. „Ahhh …“ stynur Tam og
leggur lófana á hnén þar sem græn-
köflóttu Glasgow-mynstrinu sleppir.
„Ég held að ég geti sagt að þeir séu
uppáhaldshljómsveitin mín í víðri
veröld. Mig langaði mikið að koma og
sjá þá í náttúrutónleikaröðinni
Heima, en var vant við látinn. Líklega
einhvers staðar á knattspyrnuleik.
En þeir eru að spila í Glasgow í nóv-
ember. Það kemur í staðinn,“ segir
plötusnúður vikunnar og tónlist-
arhetja köflóttu hermannanna.
Veisla í farangrinum
Lorna J. Waite er doktorsnemi í
listfræðum og skrifandi kona í
Ísland er frjálst Skotland
Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur