Morgunblaðið - 14.09.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 21
Morgunblaðið/Frikki
og notast við chilli, mygluosta, svartar ólífur og
fleira í þeim dúr. Hann hefur alltaf borðað
svona mat og elskar þetta. Amma hans í föð-
urætt er meistarakokkur og hefur alið hann vel
upp að þessu leyti. Sjálf hef ég líka mjög gam-
an af eldamennsku og ekki hafa matargæðin á
heimilinu minnkað eftir að Þorfinnur bættist í
hópinn.
Hann byrjaði á því sem unglingur að prófa
sig áfram í eldamennskunni því ég var alltaf að
vinna frameftir öllu. Þá fór hann búa til hrís-
grjónagraut, spaghettí og ommelettur. Ég veit
að núna um daginn var hann að bjóða vinum
sínum í mat. Hann er fluttur að heiman og er
fullfær um að sjá um sig sjálfur.
Hann verður stúdent í vor ef allt gengur upp.
Ég held það sé kominn tími á það og ég gæti
trúað því að hann hefði hug á að fara eitthvað
út í heim að skoða sig um. Sem ég skil mjög vel,
ég flýtti mér með menntaskóla og dreif mig út.
Ein fyndin saga af Breka er þegar hann var
með mér í dansstúdíói í kennslu. Hann var úti í
horni eitthvað að dunda sér og ég var að kenna
æfinguna „Grand Battement“. Ég var að út-
skýra þetta fyrir stelpunum og endurtók orðið
„Battement“. Þá kom hann skyndilega á þeysi-
reið yfir stúdíóið og öskraði Batman! Batman!
En þetta var á þeim tíma sem verið var að sýna
Leðurblökumanninn í bíói. Nemendum mínum
fannst þetta mjög fyndið og hafa oft nefnt þetta
við mig síðan. Hann var bara tveggja, þriggja
ára þegar þetta gerðist og fylgdist greinilega
meira með en ég hélt.
Dýravinur
Breki er dýravinur og var rosalega góður
vinur tveggja tíka sem amma hans og afi í föð-
urætt áttu. Það var fallegt samband. Önnur
tíkin passaði hann alltaf þegar hann var barn
og það samband hélt áfram og þau voru bestu
vinir þangað til hún dó. Ég held það gefi börn-
um mikið að eiga félaga í dýrum.
Svo hefur hann verið í hestum með pabba
sínum og líka eru amma hans og afi mikið
hestafólk. Hann á hest og hefur mikinn áhuga á
hestum. Pabbi hans segir að hann sé góður, ég
hef ekki vit á hestum.
Breki hefur kennt mér ýmislegt. Hann togar
mig stundum niður á jörðina. Hann er sveim-
hugi eins og ég en stundum ef það er mikið
stress í gangi, þá segir hann mér að slaka á og
taka það rólega. Ég hlusta alveg á hann.“
vinnuna. Þannig var þetta ekki síst á meðan
mamma var meira að dansa og minna að
kenna. Hún var oft að vinna í söngleikjum og
þá tók það yfir fjölskyldulífið og ég fékk þessi
lög á heilann í marga mánuði. Hún var alltaf að
skrifa eitthvað og dansa heima. Þegar ég tek
að mér verkefni sekk ég mér í þau eins og hún.
Þetta er ekki bara starf heldur líka lífsstíll.
Mamma hefur kennt mér ást á starfi, að
velja sér eitthvert starf sem maður hefur rosa-
lega gaman af, alveg eins og hún gerði. Hún er
búin að vinna við þetta alla sína ævi og leggur
mikinn metnað í það sem hún gerir og sekkur
sér í starfið. Hún hefur róast svolítið með aldr-
inum. Hún reykti einu sinni en hætti, sem er
mjög flott hjá henni. Hún hætti af því að ég bað
hana um það, þá var ég svona sjö, átta ára.
Hófsöm manneskja
Mamma er hófsöm manneskja og ég lít upp
til hennar hvað það varðar. Hófsemi er eitt-
hvað sem ég er ekki bestur í. Hún er hófsöm á
mat og áfengi. Margir í kringum mig hafa farið
illa á áfenginu og þá er gott að hafa fyrirmynd í
mömmu. Mér finnst oft vanta hér á Íslandi að
foreldrar séu fyrirmyndir barna sinna hvað
varðar drykkju.
Hún hefur líka kennt mér að njóta lífsins. Til
dæmis ferðast þau Þorfinnur heilmikið saman
og lifa lífinu, án þess að það bitni á starfinu.
Mamma kemur oft á óvart. Einu sinni kom
hún heim nærri snoðuð og ég fékk algjört
sjokk. Annars hef ég líka heyrt margar
skemmtilegar sögur af henni sem gerðust áður
en ég fæddist. Einu sinni sviðnaði allt hár
framan úr henni þegar hún var að reyna að
kveikja á gasofni þegar hún bjó í New York!
Annars hefur hún aldrei slasað sig alvarlega
en hefur verið veik í bakinu eins og margir at-
vinnudansarar. Hún er að kenna Pilates en í
því er verið að rækta alla þessa vöðva sem við
notum almennt rosalega lítið. Hún er núna
mikið að hugsa um hvað sé best fyrir líkamann.
Ég bjó með mömmu og Guðbjörgu, systur
hennar, í mörg ár. Ég hef alltaf verið um-
kringdur kvenmönnum. Allar systurnar eru
rosalega ólíkar. Mamma er yngst og minnst en
að sama skapi stæltust.
Fylgist vel með
Mamma átti mig þegar hún var svo ung. Ég
á því unga foreldra og hef alltaf getað talað við
þau um allt. Líka tónlist og bíómyndir sem eru
í gangi í dag því þau fylgjast svo mikið með.
Mamma lifir og hrærist í menningarlífinu. Hún
og Þorfinnur fara mikið á tónleika og í leikhús.
Það kom mér frekar mikið á óvart þegar hún
fór í mennta- og menningarstjórnunarnámið.
Mér fannst það mjög flott hjá henni. Líka að
flytja til fjölskyldu í Texas á meðan hún var að
gera lokaverkefnið, komin á fimmtugsaldur.
Mamma er algjör morgunhani, sem ég hef
aldrei verið. Ég er nátthrafn á meðan hún er
heldur betur morgunhress.
Það er mjög gaman að ferðast með henni.
Við fórum í skíðaferð til Austurríkis um síð-
ustu páska með Þorfinni og strákunum hans.
Þá var hún hálfpartinn að stíga sín fyrstu skref
á skíðum. Það kom mér á óvart að hún hefði
ekki skíðað fyrr. Hún lét það ekki á sig fá og
fór á námskeið þarna úti. Hún var orðin ágæt
undir lokin. Hún hefur allavega þorið í að drífa
sig á námskeið í stað þess að sitja heima.“
Baltasar Breki: „Mamma er mjög góður
uppalandi og ég hef búið með henni nærri alla
mína ævi en ég flutti út fyrir ári eða svo. Hún er
rosalega góð kona en getur verið erfið, eins og
þegar mann langaði út á lífið á unglingsárun-
um. Þá rifumst við svolítið. Hún hefur alltaf
stutt við bakið á mér. Hún er mjög ákveðin og
veit alveg hvað hún vill. Hún er líka mjög bjart-
sýn og er alltaf að prófa eitthvað nýtt og
skemmtilegt, með tilraunastarfsemi bæði í
dansinum og öðru sem hún gerir. Hún er mjög
framsækin. Fór til dæmis til Texas í tengslum í
meistaraverkefnið sitt í mennta- og menningar-
stjórnun.
Flott á sviði
Hún er ekki síst gefin fyrir tilraunir í sam-
bandi við dansinn og dettur mér sérstaklega í
hug sýning sem hún setti upp með Láru Stef-
ánsdóttur í Iðnó fyrir nokkrum mánuðum. Vin-
ir mínir spyrja mig stundum hvort það sé ekki
skrýtið að horfa á mömmu á sviði í hinum ýmsu
hlutverkum. Mér finnst það allt í lagi og er van-
ur að sjá foreldra mína koma fram. Hún verður
ákveðinn karakter þegar hún er að dansa,
kemst í vissan gír. Hún er rosalega flott á sviði.
Hún er alltaf dansandi hérna heima. Um leið
og það fer einhver tónlist í gang byrjar hún að
dansa. Ég hef gaman af því að dansa og sótti
um í Listdansskólanum. Ég komst inn en hafði
ekki tíma enda hefði það kannski verið skrýtið
að vera í tíma hjá henni.
Hún var í fimleikum þegar hún var yngri.
Þess vegna er hún kannski svona lítil!
Hún er alltaf full af orku og vinnur við að
hreyfa sig allan daginn sem hlýtur að taka á.
Hún slapp við það að vera atvinnuballerína.
Mamma valdi sér þá braut að vera módern-
dansari en það passar miklu betur við persónu-
leika hennar. Hún er alltof framsækin til þess
að vera ballerína.
Hún var að vinna í Þjóðleikhúsinu á sama
tíma og pabbi þannig að það var eins og mitt
annað heimili þegar ég var lítill. Ég fór líka oft
með henni í vinnuna þegar hún var að kenna
þannig að ég þekki alveg inn á hana í dansinum
þó að ég sé ekki að blaðra alltaf um það við
hana. Ég held að hún haldi að ég hafi engan
áhuga á þessu! Ég reyni að mæta á flestar sýn-
ingar sem hún gerir og gef henni mína gagn-
rýni. Ég get horft á hana dansa út frá öðru
sjónarhorni en að þetta sé mamma mín, sem er
gott og ég vona að hún geti líka gert hið sama
við mig þegar ég er að leika. Það þurfa allir
gagnrýni, ekki síst í fjölskyldu þar sem allir eru
listamenn.
Góður kokkur
Mamma hefur alltaf verið mjög Miðjarð-
arhafsleg í eldamennsku. Hún eldar spænskan,
franskan og ítalskan mat og ég ólst upp við
þessa matargerð. Afi minn er spænskur og
konan hans eldar bara svona mat. Ég ólst upp
við góðan mat. Mamma er rosalega flink í mat-
argerð og svo kynntist hún Þorfinni, sem er
svaka kokkur líka. Það er aldrei leiðinlegt að
fara í mat til mömmu og stemningin við mat-
arborðið er góð. Frá því að ég var pínkulítill var
uppáhaldsrétturinn minn grænmetislasagna
sem hún gerir. Mamma er mikil grænmetisæta.
Ég elska kjöt og vil borða skepnur og Þorfinn-
ur kemur með það inn í matargerðina hjá
henni. Hann er mikill súkkulaði- og kjötmaður.
Ef hún mætti ráða væri aldrei neitt annað en
grænmeti á boðstólum. Mamma vinnur við að
hreyfa sig og verður að borða góðan mat, hollan
og léttan. Hún býr yfir sjálfsaga hvað þetta
varðar.
Bæði hjá henni og pabba snýst allt í kringum
Mikill morgunhani
»Hún er líka mjög bjartsýn
og er alltaf að prófa eitthvað
nýtt og skemmtilegt.
Mægðin nú Breki í eldhúsinu
á heimili móður sinnar og
Þorfinns við Stýrimannastíg
þar sem oft er eldaður góður
matur og samræðurnar við
matarborðið eru ekki síðri.
OG ENGIN
FÆRSLUGJÖLD
www.nb.is
M
iðast
við
m
eðal-yfir dráttarvextiá
sam
bæ
rilegum
reikningum
.
Kynntu þér málið og sæktu um á www.nb.is
eða hafðu samband við þjónustufulltrúa okkar
í síma 550 1800.
Nýir viðskiptavinir Netbankans sem sækja um debetkort
án færslu- og árgjalda, fá 18,45% yfirdráttarvexti fyrstu
6 mánuðina sem þeir eru í viðskiptum. Að auki býðst
nýjum viðskiptavinum almennt e-Vildarkort án árgjalds
fyrsta árið.