Morgunblaðið - 14.09.2008, Page 25

Morgunblaðið - 14.09.2008, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 25 andi konu Jets Harris í The Shadow. „Ég var undrandi en hamingjusamur með að vera dreginn á tálar,“ segir hann. Undir högg að sækja Sumir vilja meina að snyrtilegt út- litið og fínpússuð framkoman hafi á stundum verið Cliff Richard til traf- ala. Þrátt fyrir að lög hans skori miklu oftar og hærra á vinsældalist- um en annarra tónlistarmanna og hjá honum sé alltaf troðfullt á tónleikum var hann í skoðanakönnun 2002 val- inn leiðinlegasta stjarna breskrar tónlistarsögu. Meðalvegurinn er vandrataður. Cliff Richard hefur opinberlega kvartað yfir skorti á markaðslegum stuðningi útvarpsstöðva og plötuút- gáfna, sem hampa nýjum hljóm- sveitum á kostnað eldri tónlistar- manna, eins og hans sjálfs. Orð hans eru ekki út í bláinn, en til að renna stoðum undir þau tók hann til bragðs 1998 að gefa út disk undir dulnefninu Blacknight og senda á 240 útvarps- stöðvar. Diskurinn var merktur eins og listamaðurinn væri ekki á samn- ingi hjá stóru útgáfunum og var hon- um firnavel tekið. „Frábær plata […] Í sannleika sagt hefðum við þó aldrei spilað hana hefðum við vitað að Cliff stæði að henni,“ viðurkenndi plötu- snúður á Choice FM í London. Og kollegar hans á öðrum stöðvum ját- uðu fordóma sína, margir sögðust einfaldlega „ekki spila Cliff“. Og eru enn við sama heygarðshornið ef marka má ummæli söngvarans á ITV-sjónvarpsstöðinni í fyrra. Passar upp á sitt Cliff Richard er víðar vel á verð- inum. Hann lætur sig höfundarrétt- arlög varða, enda var fyrsta platan, Move It, prófsteinn á tímann sem þau gilda. Niðurstaðan féll almenningi í vil, sem þýðir að Cliff Richard hefur ekki lengur af henni tekjur. Að sögn svíður honum sérstaklega að fá ekki rönd við reist þótt lög hans séu notuð í klámkvikmyndum og þvíumlíku. Fyrir tveimur árum fóru á kreik sögusagnir um að hann hefði lánað Tony Blair, þáverandi forsætisráð- herra, og fjölskyldu hans glæsivillu sína á Barbados þrisvar sinnum til þess að geta þrýst á hann um að breyta höfundarréttarlögunum. Cliff Richard brást reiður við og vísaði því algjörlega á bug. Söngvarinn er fjarri því á flæði- skeri staddur, enda fengið vænar fúlgur fyrir ótal smelli jafnt og þétt í hálfa öld og fjárfest skynsamlega. Auk setursins á Englandi þar sem hann og McElynn búa lungann úr árinu á hann fyrrgreinda villu á Barbados upp á tæpan milljarð ís- lenskra króna, hlut í Arora-hótelinu í Manchester, vínekru og víngerð í Portúgal og svo fyrir fjórum árum setti hann á markað ilmvatn fyrir konur, Miss You Nights, eða Næt- ursöknuð. Ekkert bendir til annars en söngv- arinn og presturinn fyrrverandi muni eiga saman ánægjulegt ævikvöld. Flest virðist líka verða Cliff Richard að gulli, t.d. hefur ævisagan þegar rokið upp í fyrsta sæti á metsölulist- anum, þótt hún sé um margt ólík sögu flestra annarra poppstjarna. Og trúlega ólík hans eigin, Which One’s Cliff?, sem kom út 1977. Opinberun samkynhneigðar telst alla jafna ekki vænleg söluvara nú til dags, nema kannski ef söguhetjan heitir Cliff Richard. 1981-1990 1991-2000 2001-2008 Berlínarmúrinn fellur, hörmulegt kjarnorkuslys verður í Chernobyl og Rubik’s teningurinn fær fólk á öllum aldri til að klóra sér í hausnum. Bandaríkjaher gerir innrás í Írak og tekur þátt í Flóastríðinu, vísindamenn kynna klónuðu kindina Dolly, GSM símar og iMac tölvur eru settar á markað og slá í gegn. Vísindamenn og almenningur hafa áhyggjur af hlýnun jarðar, réttindabarátta samkyn- hneigðra ber loks árangur og hryðjuverkamenn ráðast á tvíburaturnana í New York. Tónleikar um allan heim,m.a. í Rússlandi, Bandaríkjunum, Kanada, Hong Kong, Singapore, Bangkok, Japan, Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Keníu.Smellir: Daddy’s Home,Wired For Sound, jólalagið Little Town,The OnlyWay Out,Where DoWe Go From Here. Þrír þættir á BBC um líf hans. Byrjaði að leika tennis.Aðalhlutverk í söngleiknum Time áWest End. Leikur Heathcliff í samnefndum söngleik, sem fær metaðsókn þrátt fyrir fálæti fjölmiðla.Tónleikaferð m.a. um Suður-Afríku, síðar Ástralíu með Oliviu Newton-John.Metaðsókn á 32 tónleikum í Royal Albert Hall.Aðlaður 25. október 1995, fyrstur breskra rokkstjarna. Smellir:We Should Be Together, I Still Believe In You, Peace In Our Time,Misunderstood Man. Dvelur mikið í Portúgal, þar sem hann tekur upp 50 Biblíusögur á 3 diska með barnabók, Frakklandi, Ítalíu, Bandaríkjunum og setri sínu á Barbados. Vida Nova af vínekrunum hans í Portúgal kemur á markað. Frægðarhöll breskrar tónlistar innvígði hann fyrir frábært framlag til breskrar tónlistar og menningarlífs.Smellir: Let Me Be The One,Mistletone andWine, 21st Century Christmas og Thank You For A Lifetime. Í HNOTSKURN » Harry Roger Webb, sem1958 tók upp nafnið Cliff Richard, fæddist 14. október 1940 í Lucknow á Indlandi, sem þá var bresk nýlenda. » Hann fluttist með for-eldrum sínum, Rodger Oscar og Dorothy Marie Webb, og þremur systrum til Englands eftir að Indland fékk sjálfstæði. » Plötur hans hafa selst ímeira en 250 milljónum eintaka og hann á metið með 120 lög á topp 20. » Cliff Richard kom til Ís-lands 2007 og hélt tónleika í Laugardalshöll ásamt The Shadows. Gagnrýnandi Morg- unblaðsins sagði hann hafa staðið fyrir sínu. Morgunblaðið/Ómar Goðsögn á Íslandi 2007 Cliff Richard hélt tónleika í Laugardalshöllinni í mars 2007 fyrir fullu húsi. „Það sem uppúr stendur auðvitað að á sviðinu stóð lifandi goðsögn, sem lagði sig fram um að skemmta aðdáendum sín- um,“ skrifaði gagnrýnandi Morgunblaðsins. Fundur um málefni aðstandenda geðsjúkra Glímutök geðsjúkdóma á aðstandendum 18. september á Grand Hótel Reykjavík kl. 19:00-20:30 í samvinnu AstraZeneca, Geðhjálpar og Geðsviðs LSH. annt um líf og líðan Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra setur fundinn. Fundarstjóri: Þórgunnur Ársælsdóttir, geðlæknir. 18:30-19:00 Hressing og skráning. Fyrirlesarar: 19:00-19:40 Pete Earley, aðstandandi og höfundur bókarinnar CRAZY: a Father´s Search Through America´s Mental Health Madness sem tilnefnd var til Pulitzer bókmenntaverðlaunanna 2007. 19:40-19:55 Rebbi og græni frakkinn - ætluð börnum geðsjúkra. 19:55-20:15 Hulda Dóra Styrmisdóttir, aðstandandi: „Hafa skal það sem betra reynist“ 20:15-20:30 Samantekt/Umræður Skráning á fund: Katrín Sveinsdóttir sími 535-7186 katrin@veritascapital.is í síðasta lagi fyrir 17. sept. Leiðbeinendanámskeið ÍSÍ Le ið be in en da ná m sk ei ð ÍS Í Stafganga Reykjavík og Akureyri Laugardaginn 20. september kl. 9-17 Námskeiðið er m.a. ætlað íþróttakennurum, íþróttafræðingum, sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum, hjúkrunarfræðingum og læknum. Skráning er hjá ÍSÍ í síma 514 4000 eða á netfangið namskeid@isi.is Skráningarfrestur 17. september Frekari upplýsingar má finna á www.isi.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.