Morgunblaðið - 14.09.2008, Page 26
26 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
U
ng móðir í Njarðvík
ber dóttur sína um
allt í burðarpoka sem
hún saumaði sjálf og
er nú farin að selja.
Ásta María Guðmundsdóttir, 25 ára
Bolvíkingur sem hefur sest að á
Suðurnesjum, er gjarnan með Sig-
nýju dóttur sína í skrautlegum Mei
Tai, hefðbundnum asískum burð-
arpoka.
Ásta María hefur notað ýmsar
gerðir burðarpoka eftir að frum-
burðurinn kom í heiminn fyrir tíu
mánuðum. „Ég byrjaði á því að nota
hringjasjal og fór svo að nota form-
aðan burðarpoka en langaði í Mei
Tai eftir að hafa séð stelpu með
svona. Ég fann snið á netinu og
prófaði að sauma svona fyrir mig,“
segir Ásta María sem fékk mjög góð
viðbrögð við pokanum frá stelpum í
kringum sig. „Þeim fannst þetta
flott og spurðu hvort ég ætlaði ekki
að fara að selja svona. Þannig vatt
þetta upp á sig.“
Af þessu tilefni setti Ásta María
upp síðuna foreldrafadmur.net þar
sem pokinn er til sölu en hann er nú
einnig hægt að fá í Litlu kistunni við
Laugaveg. „Áhuginn var miklu
meiri en mig grunaði,“ en pokanir
hafa verið til sölu síðan um miðjan
júlí.
Draumur að vinna heiman frá
Gamall draumur Ástu Maríu er að
vera mamma sem vinnur heiman frá
og er hann nú kominn langleiðina
með að rætast. „Saumaskapur var
þó ekkert endilega draumurinn! En
þetta er byrjunin.“ Hún er þó ekki
eingöngu að sauma og sjá um barn
því hún byrjaði í haust í frumgrein-
anámi í háskólabrú Keilis með dygg-
um stuðningi maka síns, Njarðvík-
ingsins Magnúsar Orra
Einarssonar.
Með tíð og tíma hefur Ásta María
hugsað sér að auka umsvif vefversl-
unarinnar en segir að það sé nóg að
gera í bili.
En hvað var það sem heillaði við
Mei Tai umfram aðra burðarpoka?
„Mér finnst þetta þægilegast af
því sem ég hef prófað. Þeir eru líka
fallegir því það er hægt að nota ým-
is skemmtileg efni,“ segir hún en
óskar þess um leið að efnaúrvalið
væri meira hérlendis.
Eins og með aðra frumkvöðla-
starfsemi tók einhverjar tilraunir að
koma saumaskapnum af stað. „Ég
prófaði mig áfram með þetta, þróaði
sniðið varðandi þykkt og lengd
bandanna og fleira.“
Hún miðar við að burðarpokinn
beri barn sem er allt að 17 kg en þó
á að vera hægt að nota pokann
þangað til barnið er orðið of þungt
fyrir þann sem ber.
Í sumar notaði hún skræpóttan
appelsínugulan poka, sem hún segir
hafa vakið athygli. „Fólk tók eftir
þessu og var mikið að spyrja mig
um þetta.“
Sprenging í barnaburði
Mei Tai-pokann notar hún mikið
heimavið og líka í skreppitúra eins
og verslunarferðir á Laugaveginn
eða í Kringluna. Í ferðir sem fela í
sér frekara fjallaklifur notar hún
formaðan burðarpoka.
Vinsældir burðarpoka hafa aukist
að undanförnu og talar Ásta María
um að það hafi orðið sprenging í
barnaburði síðan í vor. Hún segir
þetta haldast í hendur við ákveðinn
uppeldisstíl eins og að fleiri for-
eldrar noti nú taubleyjur.
Sjálf aðhyllist hún uppeldisstefnu
sem á ensku heitir „attachment pa-
renting“ en hefur verið kallað
barnamiðað uppeldi á íslensku. „Ég
tengi barnaburð við þessa uppeld-
isstefnu. Til dæmis sefur stelpan
mín uppí hjá okkur og ég ætla að
hafa hana lengi á brjósti.“
Hún segir þetta þó ekki endilega
fara saman því það sé einfaldlega
hentugt að bera barn í poka. „Það er
bara ekki alls staðar þægilegt að
vera með kerru.“
Burðarpokatískan er vonandi
komin til að vera því pokarnir eru til
mikillar hægðaraukningar fyrir
bæði móður og barn. „Þessir asísku
burðarpokar hafa sannað sig í mörg
hundruð ár.“
Að bera barn
Morgunblaðið/Valdís Thor
Góðar saman Signý unir sér vel í hefðbundna asíska Mei Tai-burðarpok-
anum sem Ásta María mamma hennar saumaði sjálf og er nú farin að selja.
2 Kemur stelpunni fyrir.1 Ásta María bindur pokann á sig. 3 Bindur lokahnútinn.
Í HNOTSKURN
» Til eru nokkrar gerðir burðarpoka og má lesa um þær áhjálplegri íslenskri vefsíðu, pokaborn.org.
» Burðarsjal. Þessi sjöl eru ýmist úr teygjanlegu eða óteygjanleguefni frá 2,7 m upp í 5,7 m að lengd. Ofin sjöl er hægt að nota frá
fæðingu og þangað til barnið er orðið of þungt fyrir þann sem ber.
Teygjanleg sjöl henta best fyrir ungbörn upp í 8 kg. Ofin sjöl er hægt
að nota að framan, á baki og á mjöðm. Teygjanleg sjöl eru aðallega
notuð framan á.
» Hringjasjal. Er úr rétthyrndu efni með tveimur hringjum festum íannan endann og hinum endanum þrætt í gegnum hringina til að
mynda poka eða sæti fyrir barnið. Hringasjöl eru aðallega notuð að
framan og á mjöðm en er hægt að nota á baki með eldri börn.
» Skjóða. Einfalt efni saumað í hring og brotið í tvennt þannig aðsæti myndast fyrir barnið. Þessa poka er hægt að nota alveg frá
fæðingu en henta best fyrir börn eldri en fjögurra mánaða.
» Formaður burðarpoki. Þessir pokar eru gjarnan með fóðruðumaxlaólum og mittisbelti. Formaða poka má flesta nota að framan
og á baki og suma er hægt að nota á mjöðm líka.
» Mei Tai og fleiri asískir pokar. Mei Tai er vinsælasti pokinn íþessum hópi en hann er upprunalega kínverskur. Myndaður úr
rétthyrningi með böndum tengdum við hvert horn til að festa pokann.
Hægt að nota frá fæðingu og þar til barnið er orðið of þungt fyrir
þann sem ber. Í Mei Tai er hægt að binda barnið að framan og hafa
það á baki og á hlið. Barnið ætti helst að snúa að þeim sem ber.
VINSÆLDIR þess að bera ung-
barn í sérstökum burðarpokum og
-sjölum hafa aukist mikið að und-
anförnu. Það sem lengi hefur þótt
eðlilegur hluti lífsins í fjölmörgum
menningarheimum er að verða al-
gengt í vestrænu stórborg-
arumhverfi. Ekki þarf að leita til
Afríku til að sjá lítinn haus gægj-
ast upp úr litríku sjali því það
verður sífellt algengari sjón í mið-
borg Reykjavíkur.
Margir kostir fylgja því að
halda á barni með þessum hætti.
Til dæmis getur mamman eða
pabbinn notað báðar hendur til að
gera eitthvað annað en að sinna
barninu. Erfitt er að burðast um
með ungbörn í bílstól og er þá
þægilegt að skella barninu í burð-
arpoka.
Dr. Willam Sears er upphafs-
maður barnamiðaðs uppeldis (at-
tachment parenting). Hann segist
hafa tekið eftir því á 30 ára ferli
sínum sem barnalæknir að for-
eldrar segðu að barn sitt væri
ánægt svo fremi sem þeir héldu á
því. Sjálfur á hann sex börn og
hann og Martha eiginkona hans
byrjuðu að nota heimagerða burð-
arpoka með góðum árangri. Á
síðu sinni, AskDrSears.com, telur
hann upp helstu kosti þess að
halda á barni sínu með þessum
hætti.
Einn af þeim er að burðarbörn
gráta minna. Barninu líður vel að
vera upp við mömmu eða pabba.
Lyktin af foreldrinu finnst vel og
snertingin veitir öryggistilfinn-
ingu.
Hann segir einnig að þau læri
meira því þau eyði minni tíma í
grát. Þau fá til dæmis gott tæki-
færi til að fylgjast með andliti
mömmu eða pabba, sem er ein-
hver mesta örvun sem ungbarn
fær. Dr. Sears heldur því fram að
ungbörn sem eru mikið í burð-
arpoka verði klárari. Hann segir
burðinn örva málþroska og að
burðarbörn veiti heiminum í
kringum sig meiri athygli.
Svo má ekki gleyma því að það
er bara svo huggulegt að halda á
barninu sínu með þessum hætti.
Örvandi öryggi
Í burðarsjali Það er líka gaman hjá
litlum strákum að vera hjá pabba.
grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli
NÁMSAÐSTOÐ
íslenska - stærðfræði - enska - danska
franska - eðlisfræði - efnafræði - tölfræði
þýska - spænska - lestur - stafsetning o.fl.
greining á lestrarerfiðleikum
Nemendaþjónustan sf. Sími 557 9233 • www.namsadstod.is