Morgunblaðið - 14.09.2008, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 14.09.2008, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 29 Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur gudrung@mbl.is Um daginn var ég að akaniður Laugaveg og varekkert sérstaklega aðflýta mér. Fyrir framan mig var vélhjól og maður sem sat á því, klæddur leðurgalla með hjálm á höfði. Í rólegheitum biðum við á rauðu ljósi – en svo kom grænt ljós og maðurinn á vélhjólinu virtist ekki taka eftir því, hann horfði til hliðar og fór ekki af stað. „Einn sem lætur sig dreyma,“ hugsaði ég og datt skyndilega í hug að flauta lítillega, svona til að ýta við honum ef hann hefði gleymt sér alvar- lega. Og mikið rétt, hann rauk af stað og ég líka á bílnum mínum. Ég fór meira að segja fljótlega fram úr hjól- inu. En allt í einu varð allt umhverfið sveipað bláum bjarma, blá blikkljós eltu mig dálitla stund áður en ég átt- aði mig á að bláu ljósunum væri beint að mér. Ég stansaði og renndi niður fram- rúðunni. „Er eitthvert þras hér,“ sagði ung- ur og myndarlegur lögreglumaður og horfði fast í augu mér undan hjálm- inum. „Ha, þras, nei, nei, það er ekkert þras, hreint ekkert þras,“ svaraði ég hissa. Mér varð skyndilega ljóst að draumlyndi vélhjólamaðurinn – sem ég hélt vera – væri lögreglumaður í fullum skrúða á veglegu mótorhjóli með öllum græjum, þar á meðal blikk- ljósunum bláu. „Gerir þú þér grein fyrir að þú flautaðir á öryggistæki,“ sagði lög- reglumaðurinn. „Nei, ég hélt bara að þú værir venjulegur maður sem hefði gleymt sér,“ sagði ég og var nú svolítið skjálf- rödduð. „Það er alvarlegt mál að flauta á ör- yggistæki, þú gerir þér væntanlega grein fyrir því,“ sagði lögreglumað- urinn með þunga í röddinni. „Ég bið innilega afsökunar, ég veit ekki af hverju ég gerði þetta – kannski af því að ég hélt bara að þú værir annars hugar,“ sagði ég stam- andi og auðmjúkri röddu. „Annars hugar! Það er spurning hver er annars hugar. Af hverju ert þú ekki bundin,“ sagði nú lög- reglumaðurinn og benti á bílbeltið sem greinilega var ekki utan um mig eins og það átti að vera. „Ja – líklega er það bara ég sem er annars hugar,“ svaraði ég. „Það lítur út fyrir það,“ sagði lög- reglumaðurinn og horfði enn fast á mig. Það varð þögn nokkra stund, svo sagði ég aftur: „Ég bið mjög innilega afsökunar á að hafa flautað á öryggistæki, ég geri það aldrei aftur.“ Lögreglumaðurinn horfði á mig efasemdafullur, rétt eins og hann renndi í grun að ég væri sjálf draum- lynd og legði jafnvel í vana minn að flauta á öryggistæki hvenær sem ég sæi mér færi. „Jæja, látum þetta eiga sig núna. En ekkert þras, mundu það,“ sagði lögreglumaðurinn svo eftir nokkurt hik. Síðan ók hann af stað í blússi, nú án bláu blikkljósanna. Þetta var einkennilegt atvik, eink- um af því að ég er á móti því að flauta yfirleitt. Oft hef ég fylgst með fólki flauta og flauta í gríð og erg, rétt eins og líf lægi við. „Það er nú meira hvað öllum liggur á í þessum heimi, ætli væri ekki betra að fara stillt af stað,“ hugsa ég þá hneyksluð. Og nú hafði það hent sjálfa mig að flauta af litlu tilefni – og þá endilega á öryggistæki. En svona er þetta. „Það sem að helst hann varast vann, varð þó að koma yfir hann.“ Það ágæta máltæki sannast þarna enn einu sinni. Flautað á örygg- istæki ÞJÓÐLÍFSÞANKAR Þó svo að lýtaaðgerð-ir séu umdeildarverða þær sífelltvinsælli um allan heim. Fyrstu lýtaaðgerð- irnar voru síður en svo gerð- ar á fullkomlega heilbrigðu fólki, heldur á þeim sem höfðu afskræmst svo í stríði að þeir gátu jafnvel ekki séð, talað, borðað eða drukkið. Sjóliðinn Walter Yeo var fyrstur allra til að gangast undir lýtaaðgerð. Yeo lenti í slysi árið 1916, þegar hann flutti skotvopn um borð í herskip og varð andlit hans algerlega óþekkjanlegt. Svo mikill var skaðinn að hann missti efri og neðri augnlok hafi framkvæmt um ellefu þúsund aðgerðir alls á um fimm þúsund mönnum. Þeir sem nutu þessarar þjónustu Gilles voru allir hermenn sem höfðu slasast í stríðinu. Það var hins vegar mun síðar á sömu öld sem farið var að framkvæma þessar aðgerðir á líkamlega heil- brigðu fólki sem var ósátt við eigið útlit. Lýtalækningar voru áhrifarík leið til að takast á við þá hræðilegu áverka sem hermenn hlutu í bardögum á vígvöllum fyrri heimsstyrj- aldarinnar. Lýtin lagfærð Fyrir og eftir Sjóliðinn Walter Yeo var fyrstur til að gangast undir lýtaaðgerð. Fyrsta myndin sýnir hvernig andlit hans var útleikið áður en hann gekkst undir aðgerðirnar. á báðum augum. Ári síðar fékk hann meðferð hjá lækninum Harold Gilles, sem kallaður hefur verið faðir lýtalækninganna. Gil- les var þá nýbúinn að opna sérstaka deild á Queen Ma- ry’s Hospital í Sidkup í Bretlandi. Hafði hann þróað sérstaka aðferð við að taka heilbrigða húð af einum stað á fólki og græða hana á sjúka svæðið. Í tilfelli Yeos græddi hann „húðgrímu“ yf- ir augu hans sem varð síðan að nýjum augnlokum. Gille þróaði seinna meir frekari aðferðir við lýta- lækningar ásamt samstarfs- fólki sínu. Talið er að hann Borgarferðir Haust vetrarveisla& Karabíska hafið Kanarí og Tenerife • Barcelona • Prag • Búdapest • Kraká • Montreal • Róm • Sikiley • Stuttgart/ Heidelberg Borgarveisla í beinu flugi! Frábær sértilboð til fjölda áfangastaða í haust og vetur! Kynntu þér fjölda einstakra sértilboða á www.heimsferdir.is og tryggðu þér haust- eða vetrarfrí á frábærum kjörum! Mjög takmarkaður fjöldi sæta í boði. Bókaðu núna! Sölutímabil 6.-20. sept. Frábær sértilboð – beint vikulegt morgunflug í allan vetur • Dóminíska lýðveldið • Barbados • Kúba Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • www.heimsferdir.is Frá kr. 24.900 Frá kr. 99.900 – allt innifalið í 9 nætur Frá kr. 55.350 B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra .A llt ve rð er ne tv er ð á m an n. Kynntu þér fráb ær veislutil boð á www.he imsferd ir.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.