Morgunblaðið - 14.09.2008, Page 34
34 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
K
onur berjast fyrir
auknum réttindum og
ef þeim tekst að ná
fram jafnrétti
kynjanna meðan
klerkarnir ráða er það afskaplega
gott. Ef veraldleg ríkisstjórn kæmi
á slíkum breytingum myndu margir
klerkar mótmæla, segja að þetta
væri ekki í samræmi við íslam og
svo framvegis. En ef klerkastjórnin
sjálf veitir konum þessi réttindi
verða allir að sætta sig við breyt-
inguna,“ segir dr. Farokh Darwish,
76 ára gamall prófessor í tölfræði í
Teheran. Hann var nýlega í heim-
sókn hér á landi ásamt eiginkonu
sinni, Mehrangiz Darwish, en fóst-
ursonur þeirra hjóna og nokkur
barnabörn búa í Reykjavík. Þau
náðu að ferðast nokkuð hérlendis,
dvöldu meðal annars í Þórsmörk og
Darwish segist vera mjög hrifinn af
landinu, hér sé fallegt landslag sem
minni hann sums staðar á heima-
landið.
Darwish er meðalmaður að hæð,
brosmildur og hlýr, talar ágæta
ensku og þýsku en hann stundaði
nám í landbúnaðarfræðum í Vín upp
úr 1950. Hann lauk þar doktorsprófi
1958 en kennir nú hagnýta tölfræði
við Azad-háskóla sem er einkarek-
inn. „Ég bjó lengi í Austurríki en ég
elska landið mitt svo heitt að ég vildi
frekar fara heim og starfa þar. Ég
veit ekki hvort ég er mikill þjóðern-
issinni en ég myndi alltaf sakna
ljóðanna og tungunnar, alls þess
sem gerir okkur að Írönum, ef ég
ætti heima í öðru landi,“ segir hann.
Kraftmiklir háskólar
á sviði raungreina
Íranar eru nú liðlega 70 milljónir.
Þeim hefur fjölgað mjög síðustu
áratugi en fæðingartíðnin fer nú ört
lækkandi eins og víðar í heiminum.
Bandaríska tímaritið Time fjallaði
nýlega um menntun í heiminum og
sagði í grein um Íran að háskólar
landsins væru ótrúlega framarlega á
ýmsum sviðum raungreina þótt oft
væru þeir fátækir og illa búnir. En
metnaður bæði nemenda og kenn-
ara væri svo mikill að hann tryggði
góðan árangur.
„Við erum ung þjóð, nærri helm-
ingur af þjóðinni er undir 25 ára
aldri,“ segir Darwish. „Samfélagið
er mjög kraftmikið en skapa þarf
mörg störf handa svo mörgu ungu
fólki. Og menntunin er úrslitaatriði.
Nú eru um tvær milljónir Írana við
nám í háskólum landsins, þar af
helmingurinn í ríkisreknum stofn-
unum en hinir í einkareknum há-
skólum.
Fólk borgar algerlega sjálft fyrir
menntunina í einkareknu skólunum
en foreldrarnir eru fúsir að borga til
að tryggja börnum sínum góða
menntun. Og meirihlutinn af nem-
unum er konur!
Velmenntaðar mæður
og áhrif þeirra
Menntuðu konurnar okkar eiga
eftir að breyta samfélaginu smám
saman, hvort sem stjórnvöldum lík-
ar það vel eða illa. Ég er þrátt fyrir
allt bjartsýnn, með svona margt
ungt fólk í skóla hljótum við að lok-
um að sjá miklar framfarir. Mennt-
unin, ekki síst aukin menntun og
þátttaka kvenna, mun tryggja það.
Gleymum aldrei hvað velmenntaðar
mæður geta valdið miklum um-
skiptum í samfélaginu.“
– Skipta stjórnvöld sér ekki af
starfinu hjá ykkur?
„Nei það gera þau í raun ekki. Við
veljum og höfnum, notum inntöku-
próf og hleypum bara inn þeim sem
ráða við námið. Meirihluti nemenda
er nú kvenkyns en stjórnin vill að
við sjáum til þess að karlar séu
minnst helmingur nemenda. Það
gerist auðvitað ef helmingur þeirra
sem nær prófinu er karlar!
Ég held að veruleiki lífsins muni
að lokum koma kvenþjóðinni í Íran
til bjargar. Ráðamenn í Íran eru
ekki bara klerkar sem mótmæla öll-
um breytingum, þeir þurfa líka að
stýra landinu. Þetta er spurning um
tíma.
Íran er ekki jafn einsleitt og
margir halda. Það eru ýmis blæ-
brigði í stjórnarfarinu og á þingi er
stjórnarandstaða þótt henni séu
settar þröngar skorður. Þar sitja
líka nokkrar konur en áhrif þeirra
eru reyndar ekki mikil. Þetta er
flókið stjórnarfar, líkist engu öðru í
heiminum. Mikið er um mótsagna-
kenndar yfirlýsingar. Það er meira
að segja erfitt fyrir okkur sem bú-
um sjálf í landinu að skilja hvernig
hlutirnir ganga fyrir sig í stjórnmál-
unum í Íran,“ segir Darwish og hlær
dátt.
Hann segir unga fólkið, margar
milljónir Írana, vilja aukin réttindi
og vilja fá að lifa eigin lífi.
„Þau þrýsta mjög á ríkisstjórnina,
hún verður að útvega þeim störf og
tækifæri í lífinu. Ráðamenn geta
ekki bara yppt öxlum, þeir verða að
bregðast við þessum kröfum, annars
verður félagslega óánægjan svo
mikil. Þess vegna reyna þeir að
leysa málin. En við viljum ekki nýja
byltingu, Íranar eru búnir að fá nóg
af byltingum síðustu áratugina. Við
viljum friðsamlega þróun, ekki bylt-
ingu.“
– Oft er sagt að spillingin sé að
verða eitt helsta vandamálið í Íran,
klerkar séu margir farnir að raka
saman auði og misnota aðstöðu sína.
Er spilling mikið vandamál?
„Það er spilling en hún er líka fyr-
ir hendi í öðrum löndum, hún er
ekki bundin við Íran. En landið er í
kastljósi heimsins og þess vegna
mikið rætt um spillinguna þar. Hún
er auðvitað vandamál. Fjölmiðlar
fjalla stundum um hana en ekki öll
málin.
AP
Áfanga lokið Nýútskrifaðir læknanemar í höfuðborginni Teheran, konur eru í meirihluta meðal nema við háskóla Írans. Þótt ströng túlkun klerkanna á
gömlum lögum íslams hefti á marga vegu þátttöku kvenna í samfélaginu láta þær ekki auðveldlega kúga sig og nota ýmis tækifæri til að efla hlut sinn.
„Svigrúmið er meira í ljóðinu!“
Dr. Farokh Darwish er
76 ára gamall Írani,
hann lauk doktorsnámi
í landbúnaðarfræði í
Vín 1958 og kennir enn
við háskóla í Teheran.
Kristján Jónsson ræddi
við Darwish.
1 8 7
" 3
81<=>8
8&=1/
?8@&A8>
& B @ C /
8 1 8 ? 8
8+8>/
C&8>
D<8>
E17<=>C&8>
F87/
C&8>
G17/
"8>@
2008
óskað eftir tilnefningum
Fyrirtækja Skóla og fræðsluaðila Opnum flokki
Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim aðilum
sem vinna framúrskarandi starf í fræðslumálum
og starfsmenntun. Veitt eru verðlaun í flokki:
(félagasamtök og einstaklingar)
Tilnefningar skal senda á sérstökum eyðublöðum sem eru á slóðinni
www.starfsmenntarad.is
Frestur til að senda inn tilnefningar eru til og með 14. október nk.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Starfsmenntaráði, Hafnarhúsi v/Tryggvagötu,
101 Reykjavík, sími 515 4800, www.starfsmenntarad.is
N
NI
R
AP
A
KS
AF
O
TS
A
G
NIS
L
G
U
A