Morgunblaðið - 14.09.2008, Síða 35

Morgunblaðið - 14.09.2008, Síða 35
Fjölmiðlar vita sjálfir hvað þeir mega fjalla um, hafa tileinkað sér sína eigin innri ritskoðun, blöðin vita hvað þau mega skrifa og hvað ekki. Þau kunna þetta og vita hvar rauða línan er!“ – Milljónir Írana búa í Bandaríkj- unum. Þessir brottfluttu og oft út- lægu Íranar reka tugi sjónvarps- stöðva og útsendingunum, sem eru á farsi, er beint til Írans með aðstoð gervihnatta. Fylgjast margir með þessum sendingum í Íran? „Það gera margir og síðan berst út um samfélagið það sem sagt er í þessum stöðvum. Almenningur veit þess vegna heilmikið um það sem gert er og sagt í öðrum löndum. Yf- irvöld reyna stundum að hindra þetta, banna fólki að setja upp gervihnattadiska en það þýðir ekki neitt. Þessar tilraunir renna alltaf út í sandinn. Unga fólkið fylgist vel með frétt- um, engin ríkisstjórn getur haft eft- irlit með þessu öllu.“ Gömul menningarþjóð Íranar voru lengi kallaðir Persar í Evrópu. Ástæðan er að tunga þeirra heitir farsi en þjóðin hefur sjálf frá örófi alda kallað sig Írana. Darwish ræðir um menningu Írana, ljóðin, tunguna og mörg þúsund ára gamla sögu en Íran var til forna eitt helsta stórveldið í Mið-Austurlöndum. Þeir eru múslímar, flestir aðhyllast sjía- grein íslams en þorri annarra músl- íma er hins vegar súnnítar. Íranar nota arabíska letrið en hafa breytt því mjög til að laga það að farsi sem er indóevrópskt mál eins og íslenska og nær öll Evr- ópumál. Arabíska er hins vegar se- mitískt mál eins og hebreska og óskylt okkar tungu. Algengt er að Vesturlandamenn haldi að Íranar séu arabar en það eru þeir ekki þótt vissulega búi all- margir arabar í landinu vest- anverðu. Meira en helmingur íbúa ríkisins er Íranar, hinir eru Aserar, sem tala tyrkneskt mál, Kúrdar, sem tala indóevrópska tungu, og loks arabarnir áðurnefndu en fleiri þjóðarbrot finnast reyndar í land- inu. Farsi er helsta opinbera tungu- málið og kennsla í öllum skólum fer fram á farsi. „Við erum ólíkir aröbum,“ segir Darwish. „Sum hljóðin í okkar máli eru ekki til í arabísku, þess vegna þurftum við að bæta við fjórum stöf- um. Mörg algeng orð hjá okkur eru svipuð og í Evrópumálunum, við segjum moder [móðir], við segjum líka pedar [faðir] og barodar [bróð- ir]. Þetta eru sömu orðstofnarnir og hjá ykkur og fleiri Evrópuþjóðum. Skyldleikinn leynir sér ekki. Arabar lögðu Íran undir sig á sjö- undu öld, það tók þá tuttugu ár. Við urðum þjóð múslíma en við héldum tungu okkar og menningu, andstætt t.d. Egyptum sem tóku upp arab- ísku. Við eru mjög stolt af ljóðahefð okkar. Margir Vesturlandamenn þekkja helstu skáldin okkar, Omar Khayyam og Ferdowzi, í vestrænum þýðingum. Þessi miklu skáld okkar tryggðu menningu okkar, farsi lifði af. Það voru ekki hershöfðingjar heldur skáld sem björguðu okkur í neyð!“ – Sumir segja að vísur Khayyams um vín og ást í ljóðabálkinum Ruba- iyat séu vitlaust þýddar. Hann hafi verið strangtrúaður múslími og þeir hafi ekki notað vín þá fremur en núna. Þetta hafi bara verið berja- saft. Hvað segir þú? „Nei, nei, Ferdowsi yrkir líka um vín. Öll skáldin okkar hylla vínið. Það er rétt að trú okkar bannar vín- drykkju en við Íranar höfðum drukkið vín í margar aldir fyrir tíma íslams og getum ekki bara fleygt þeirri sögu á haugana. Það er athyglisvert að í Íran er margt sem ekki má segja eða skrifa en menn geta sagt það þegar þeir yrkja. Svigrúmið er meira í ljóðinu! Jafnvel klerkarnir lesa þetta, þeir elska líka skáldskapinn okkar,“ seg- ir dr. Farokh Darwish, prófessor í Teheran. kjon@mbl.is Ern Dr. Farokh Darwish, prófessor í tölfræði við Azad-háskóla. Elstur Aðalbygging Teheran-háskóla, einum öflugasta og elsta háskóla landsins. Þar er einnig stærsta bókasafn Írans. »Mikið er um mótsagnakenndar yfirlýsingar. Það er meira að segja erfitt fyrir okkur sem búum sjálf í landinu að skilja hvernig hlutirnir ganga fyrir sig í stjórn- málunum í Íran. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 35 Klasaverkefnið Næring í nýsköpun Opinn kynningarfundur Markáætlunarumsókn til RANNÍS, um rannsóknaklasann Næring í nýsköpun, er núna í undirbúningi. Kynning á undirbúningsvinnunni fer fram þriðjudaginn 16. september kl. 15–16 í Grand Hótel, fundarsal Gullteig B, þar sem fundargestir geta kynnt sér verkefnið og rætt tækifæri og samstarf. Á fundinum verða kynnt nokkur viðfangsefni klasans: • Inngangur – Kristinn Andersen, Marel • Rannsóknir og vinnsla matvæla – Guðjón Þorkelsson, Matís • Tækifæri í næringarfræði – Inga Þórsdóttir, LSH-HÍ • Frumkvöðlar, nýsköpun og atvinnuþróun – Sigríður Ingvarsdóttir, NMÍ • Umræður og kaffiveitingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.