Morgunblaðið - 14.09.2008, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.09.2008, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 39 OPIN HÚS Í DAG - VERIÐ VELKOMIN! Sjón er sögu ríkari - Íbúð í toppklassa ! Opið hús að Rauðavaði 23 – íb. 0302 í dag frá kl. 15-16 Í einkasölu glæsileg 3-4ra herb., 105 fm íb. í góðu vels- taðs. húsi ásamt bílskýli. Vand. innrétt. Ísskápur og uppþvotta- vél fylgja eigninni. Parket, Mjög gott skipul. Stutt í mjög góðan skóla og leiksk. Einstakt útsýni á fjallahringinn og Heiðmörkina. Hér getur þú flutt inn við kaup- samning. Einstakt verð aðeins 27,0 millj. Hafdís og Baldvin taka á móti áhugasömum í dag frá kl. 15-16. Áhugasamir velkomnir. Frábær staðsetning í Norðlingaholtinu rétt við Heiðmörkina! Búðavað 10 - 14 og 16, opið hús í dag kl. 15-16. Glæsileg parhús á 2. hæðum – fráb. verð. Glæsil. Útsýni Glæsileg 219 parhús á fallegum stað. Útsýni á vatnið. Skemmti- legt skipulag. 3 metra lofthæð. Skilast tilbúin til innréttinga að innan og fullfrágengin að utan með grófjafnaðri lóð. 20 fm sól- ar og útsýnissv. Fráb. verð að- eins 54,9 m. Fráb. kaup. Sölu- maður Valhallar verður á staðnum í dag sunnudag frá kl. 15-16. Selvað 1-5 einungis 7 íbúðir eftir ekki missa af einstöku tækifæri! 95% lánamögul. Glæsilegar íbúðir í nýju lyftuhúsi ásamt bílskýli. Opið hús í dag frá kl. 14-15 Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér nýja glæsilega íbúð á einstak- lega góðu verði og greiðslukjörum ! Nýjar glæsil. íb. í 36 íb. lyftuh. m. þremur stigagöngum ásamt stæði í bílskýli á fráb. stað. Íb. sem eru mjög velskipul. afh. fullb. án gólfefna og án flísa á baðherb. Stórar svalir. íb. Keyptu íbúð og greiddu minna á mán en í leigu. Verð frá 27,0 -29,4 millj. Sölumenn frá Valhöll verða á staðnum í dag sunnudag frá kl. 14-15. Frábær staðsetning í Norðlingaholtinu rétt við skóla og aðra mjög góða þjónustu! Ljósvallagata 8 – 1.h. laus við kaup- samn. Opið hús sunnudag frá kl. 14-15 Í einkasölu björt og sjarme- randi, 3ja herb. íb. á 1. h. á fráb. stað. Parket. Endurn. gler og rafm. 2 góð svefnherb. Einst. staðsetn. V. 23,9 m. Íbúðin verður sýnd í dag frá kl. 14-15. Hlíðarbyggð 16 Garðab. – Endaraðhús Opið hús Sunnud. frá kl. 15:15 – 16:15 Glæsilegt 205 fm endaraðhús m. innbyggðum bílskúr. Hæðin er 144 fm og neðri hæðin 62 fm. Húsið er mikið endurnýjað að innan og í toppstandi. Skemmtilegar stofur með út- sýni. Stór nýleg verönd mót í suðvestur. Nýlega hellulagt bílaplan. Vandað eldhús og baðherb. Hús nýmálað utan. V. 51,5 m. Opið hús verður í dag sunnudag frá kl. 15:15-16:15. Nýbýlavegur 54 Kóp. – Nýtt glæsil. Lyftuhús. Sölumenn verða á staðnum í dag frá kl.15-16 Til sýnis og sölu í þessu glæsil. húsi fimm íbúðir 104-160 fm að stærð. Tveimur íbúðum fylgir bílskúr og tveimur fylgir að- staða/vinnuherb. á jarðhæð. Húsið er fullfrágengið að utan á mjög vandaðan hátt með frá- genginni lóð og bílastæðum. Íbúðirnar eru til afhendingar strax/fljótlega tilbúnar til innréttingar. Mjög gott skipulag og frábær staðsetning á einstökum útsýnisstað í grónu hverfi í Kópavogi. Verð frá 26,5-42 millj. Lítið við í dag Sunnudag frá kl. 15-16 sölumenn verða á staðnum. Blikastígur nr 19 - Álftanesi eintök úti- vistarparadís. Opið hús í dag sunnudag frá kl. 15:30-16:30 Nýkomið stórglæsilegt, nýtt, 308 fm einbýli m. aukaíb. og stórum bílskúr. Húsið er glæsilega innréttað með vönduðum eikarinnr., steinflísum, eikarp- arketi, glæsil.eldhús með öllum tækjum (m.a. kaffivél, gufusuðuofn, ör- bylgjuofn, uppþv.vél og fl.) 160 innfeldum halogenljósum, 50 fm útsýnis- svölum (lagt f. potti) Panorama útsýni allur fjallahringurinn og flóinn, 5 svefnherb., auka 2ja he.íb. m.sérinng. og m.fl. Áhv. 75 millj. 40 ára erlent lán. Mjög hagst. að taka yfir í dag. Skipti skoðuð. Ásett verð 115 m. Lækk- að verð nú 99,9 millj. Opið hús í dag sunnudag milli kl.15:30 og 16:30. Tröllakór 9-11. - Nýtt glæsil. Lyftuhús. Sölumenn verða á staðnum í dag frá kl.14-15 Til sýnis og sölu nýjar glæsileg- ar 3ja og 4ra herbergja íbúðir í þessu flotta lyftuhúsi á frábær- um stað við mikla íþróttaþjón- ustu í Kórahverfi í Kópavogi. Íbúðir sem eftir eru eru 3ja herb. Frá 104 fm að stærð og 4ra herb. Íb. Allt að 140 fm að stærð. Sýn- ingaríbúð tilbúin og aðrar íbúðir afhendast mjög fljótlega. Íbúðum fylgir stæði í mjög góðri bílageymslu. Verð 3ja herbergja frá 25 millj. Verð 4ra frá 32 millj. Sýningaríbúð fullb. Með parketi. Sölumenn verða á staðnum í dag sunnudag frá kl. 14-15 Allir velkomnir. FYRIR nokkrum misserum kom upp deila á alþjóðavettvangi varðandi verndun viðkvæmra vistkerfa í hafinu, svo sem kald- sjávarkóralla, hverastrýtna og neðansjávartinda, fyrir hugs- anlegum skaðlegum áhrifum fiskveiða. Ekki var ágreiningur um þörfina á að vernda viðkvæm vistkerfi, heldur greindi ríki á um leiðir til að ná því markmiði. Sum ríki vildu byggja á aðferð sem grundvallast á tvennu. Ann- ars vegar á hnattrænni lausn þar sem sömu stjórnunarreglur eru settar fyrir öll hafsvæði heimsins óháð þeim ólíku aðstæðum sem eru á mismunandi svæðum. Hins vegar á því að horfa ekki til við- kvæmu vistkerfanna sjálfra held- ur einblína á einstök veiðarfæri og takmarka eða jafnvel banna notkun þeirra almennt, óháð því hvort ástæða sé til að ætla að þau hafi skaðleg áhrif á því svæði þar sem þau eru notuð eða ekki. Aðferð Íslands Önnur ríki, þ.m.t. Ísland, vildu byggja á annarri aðferð. Annars vegar að sett væru hnattræn við- mið sem síðan væru útfærð nán- ar og framkvæmd á svæð- isbundnum vettvangi, þar sem tillit væri tekið til þeirrar sér- stöðu sem einkennir hvert hinna mismunandi hafsvæða heimsins. Hins vegar að ekki væri einblínt á einstök veiðarfæri heldur við- kvæmu vistkerfin sjálf, þannig að notkun veiðarfæra væri ekki takmörkuð þar sem ekki er ástæða til að ætla að þau valdi skaða og viðkvæmu vistkerfin væru vernduð óháð því hvaða veiðarfæri valdi álagi á þau. Eftir langar og erfiðar við- ræður varð niðurstaðan á vett- vangi allsherjarþings SÞ haustið 2006 í samræmi við vilja þess ríkjahóps sem Ísland tilheyrði. Urðu ýmsir til að gagnrýna ís- lensk stjórnvöld vegna þessa og fundu niðurstöðunni allt til for- áttu. Við litum hins vegar svo á að hún fæli í sér skuldbindingar um raunhæfar, markvissar og skilvirkar aðgerðir til verndar viðkvæmum vistkerfum hafsins og héldum okkar striki í áfram- haldandi vinnu í þessu máli á al- þjóðavettangi, enda var henni hvergi nærri lokið. Stórt skref stigið Í lok síðasta mánaðar var stig- ið stórt skref í þessu sambandi þegar Matvæla- og landbún- aðarstofnun SÞ, FAO, samþykkti alþjóðlegar leiðbeiningarreglur um stjórn djúpsjávarveiða á út- hafinu. Í reglunum, sem eru grundvallaðar á niðurstöðu alls- herjarþingsins, eru sett viðmið sem nauðsynleg eru til að tryggja góða framkvæmd vernd- unar viðkvæmra vistkerfa hafs- ins. Framkvæmd leiðbein- ingareglna FAO er þegar hafin, m.a. innan fiskveiðistjórn- unarstofnana á Norður- Atlantshafi þar sem Ísland er virkur þátttakandi. Í ljósi forsögunnar er mikilvægt að benda á að með gerð leið- beiningarreglnanna var alþjóðasamfélagið að festa í sessi þá nálgun sem Ísland lagði áherslu á, en ýmis ríki og fé- lagasamtök höfðu ver- ið mótfallin. Þegar unnið var að prakt- ískri útfærslu á vernd viðkvæmra vist- kerfa hafsins hvarf andstaðan við þessa nálgun og allt starf- ið innan FAO grundvallaðist á því að almenn sátt hef- ur nú náðst um meginaðferðafræð- ina. Sú nálgun sem áður var gagnrýnd er nú studd af nán- ast öllum. Staðfesta Íslands og líkt þenkjandi ríkja skilaði sér svo sannarlega og nú vilja allir þessa Lilju kveðið hafa. Niðurstaða sem ber að fagna Allt starf að þessu máli á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna og FAO var af Íslands hálfu unnið undir forystu utanríkisráðuneyt- isins í góðu samstarfi við sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðu- neytið. Rétt er að fagna niðurstöðunni og benda á að Ís- land gegndi mikilvægu hlutverki í því að vinna bæði að því að vernd viðkvæmra vistkerfa hafs- ins verði tryggð með sem skil- virkustum hætti og að tryggja að sjávarútvegur á Íslandi og annars staðar þurfi ekki að bera óþarfar byrðar til að því mik- ilvæga takmarki verði náð. Nálgun Íslands fest í sessi Einar Kristinn Guðfinnsson skrifar um verndun vistkerfa í hafinu »Eftir langar og erf- iðar viðræður varð niðurstaðan á vettvangi allsherjarþings SÞ haustið 2006 í samræmi við vilja þess ríkjahóps sem Ísland tilheyrði. Einar K. Guðfinnsson Höfundur er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.