Morgunblaðið - 14.09.2008, Side 41

Morgunblaðið - 14.09.2008, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 41 AUÐBREKKA - KÓPAVOGUR Til sölu vel staðsett 297,3 fm atvinnuhúsnæði á jarðhæð. Getur hentað fyrir margsskonar starf- semi. Góðar innkeyrsludyr auk sér inngöngu í mót- töku. Tilboða er óskað. Afhending samkv. nánari samkomulagi. Nánari uppl. á skrifst FM, sími 550 3000. Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 250 – 350 fm einbýlishús í Þingholtunum. Staðgreiðsla í boði. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Einbýlishús í Þingholtunum óskast - staðgreiðsla Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095 Sími: 588 9090 Á skjólsælum stað í Kópavogi: Raðhús 194 fm. ásamt óskráðum fermetrum í risi. Stór parketlögð stofa ásamt flísalögðum sólskála, útgengt er úr stofu út á stóran, steyptan sólpall, sem snýr móti suðri, heitur pottur er á sólpallinum. Fjögur Svefnherbergi með parketi á gólfum. Eldhús með rúmgóðum borðkrók, útgengt í fallegan gróinn garð. Sjónvarpshol og þvottahús. Tvö baðherbergi flísalögð. Í risi eru tvö svefnherbergi undir súð, risherbergin eru ekki inni í skráðri fermetratölu. Bílskúr er rúmgóður og sambyggður húsinu. Páll sími 898-7208 sýnir. OPIÐ HÚS Í DAG KL. 15 OG 16 FAGRIHJALLI 66 FASTEIGNASALA HÁTÚNI 6a SÍMI 512 1212 - FAX 512 1213 Bragi Björnsson lögmaður og löggiltur fasteignasali REYNIMELUR - 2JA HERB. ÞORRAGATA ELDRI BORGARAR Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, fax 512 12 13, netfang foss@foss.is Björt og falleg 78,4 fm 2ja herb íbúð á 4. hæð í fjölbýlis- húsi við Reynimel í vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin var tekin í gegn að stórum hluta fyrir nokkrum árum. Gólfefni, parket og flísar. Gangur með flísum á gólfi. Eldhús með fallegri viðarinnréttningu, pláss fyrir eldhúsborð. Stofa er björt, útgengt á svalir, mjög gott útsýni. Svefnherbergi er mjög rúmgott, góðir skápar. Í kjallara er sér- geymsla ásamt sameiginlegri vagna-og hjólageymslu. Verð 23,5 millj. Falleg 3j herbergja íbúð við Þorragötu í Reykjavík í góðu lyftuhúsi. Stærð íbúðar er 108,1 fm auk 15,9 fm stæði í bílskýli. Alls 124 fm. Ljóst beyki parket á gólfi. Innaf for- stofu er sér þvottahús, gráar flísar á gólfi. Eldhús með borðkróki, snyrtileg eldhúsinnrétting. Stofa og borðstofa alrými. Gengið útá stórar suður-svalir frá stofu, gott sjávarútsýni. Rúmgott baðherbergi er flísalagt hólf í gólf með sturtuklefa. Góð geymsla er í kjallara. Íbúðinni fylgir stæði í bílskýli. Verð 44 milljónir. SÓLVALLAGATA SJÁVARÚTSÝNI Björt 2ja herbergja íbúð í lyftuhúsi byggðu 2003 við Sólvallagötu í vesturbæ Reykjavíkur. Stæði í bíla- geymslu fylgir eigninni. Íbúð- in er 74,4 fm á 2. hæð.Parket og flísar á gólfum. Útsýni yfir sjóinn í vesturátt. Eigandi óskar eftir tilboðum í eignina. Allar nánari upplýsinga veittar hjá Foss fasteignasölu. skyldu átti að gefa út ríkisbréf. Það hefði hækkað raunvexti strax, slegið á þensluna og aðrir vextir því ekki farið í þær hæðir sem síð- ar varð. Í stað þess að bregðast við afnámu menn og lækkuðu skatta, helltu olíu á eldinn. Allt tilheyrir þetta fyrri ríkisstjórn. Þegar peningum er dælt inn í hagkerfi eins og hér gerðist verða peningar í umferð of miklir m.v. þau verðmæti sem spurn er eftir. Of margar krónur taka að eltast við takmörkuð gæði. Þess vegna er brýnt að vakta peningamagnið og bregðast strax við óhóflegri aukn- ingu með því að draga fé inn á móti. Án slíks eykst verðbólga og gengi fellur. Loks harðna pening- arnir í formi steinsteypu í hálf- byggðum húsum og bindast í auknu rekstrarfé fyrirtækja, sem er bein afleiðing verðbólgu. Þá er orðið of seint að draga inn fé. Úr því sem nú er komið er eina leiðin að halda vöxtum háum. Bók- stafstrú á afskiptaleysi í hagstjórn er innsti kjarni vandans. Fjármál hins opinbera Ríkisfjármál voru í jafnvægi á síðustu árum og skuldir greiddar. Vandalaust er að ná endum saman í þeim rekstri þegar innflutningur hátollavarnings, s.s. bifreiða, er í hámarki. Það voru mistök í hag- stjórn að reka ríkissjóð ekki með enn meiri afgangi en raun varð á, í ljósi þenslunnar. Tekjuauki góð- ærisins leysti vanda ríkissjóðs og sveitarfélaga með auðveldum hætti. Nú þarf að aðlaga útgjöldin veruleikanum. Það verður ekki auðvelt. Ríkisfjármál geta nýst til sveiflujöfnunar. Í afgreiðslu fjár- laga felst ákvörðun um til hvaða verkefna ríkið ver fjármunum, hver hlutdeild hvers verkefnis skuli vera og loks um heildar- fjárhæðina. Ferillinn er þungur í vöfum og vandséð að Alþingi henti að beita sér oftar en árlega. Þó að þingið ákveði fjárlög með ofan- greindum hætti gæti það falið framkvæmdavaldinu að ákveða ársfjórðungslega „þanstuðul“ sem breyti fjárhæðum til útborgunar á næsta fjórðungi með sama hætti. Í þessu fælist að heildarfjárhæð fjárlaga yrði ekki endanlega ákveðin af Alþingi fyrr en með fjáraukalögum, sem staðfestu þá orðinn hlut. Stuðullinn þyrfti að geta orðið bæði til hækkunar og lækkunar, eftir hagþróun. Beita mætti þessu á framkvæmdir og framlög, en síður á rekstur. Óhætt er að gera þetta, Alþingi mundi eftir sem áður ákveða allar fram- kvæmdir og framlög og skiptingu fjárins. Hvar er kreppan? Vegna gengisfalls krónunnar fara erlendir verkamenn nú margir úr landi. Það mýkir lendinguna. Utanríkisráðherra skilur ekki hvað varð af kreppunni. Seðlabankar veraldarinnar hafa dælt miklum fjármunum inn í hagkerfin. Það hefur þau áhrif að verðbólga eykst. Kaupmáttur fjöldans er skertur í stað þess að allt höggið lendi á þeim sem missa vinnuna. Þetta er af hinu góða, en látum það ekki villa okkur sýn. Í efnahagslægðum hér á landi hefur kaupmáttur oft- ast rýrnað um 5-6% þrjú ár í röð. Þetta er þegar hafið og vill safna sig upp í hvorki meira né minna en nálægt 20% alls. Fjöldi heimila og fyrirtækja verður gjaldþrota. Lægðin getur tekið 4-5 ár. Það reynir á úthaldið, einnig hjá þeim sem fóru varlega. Mestri óvissu veldur að bankavandinn er óleyst- ur og vindur hratt upp á sig. Hvað dvelur Orminn langa? Höfundur er viðskiptafræðingur, bankamaður og fjármálaráðgjafi. krónunnar sem að lokum lét undan síga. Afleiðing þessa er m.a. mikil verðbólga og háir vextir. Hin hliðin er „íslenska leiðin“ svokallaða. Hún lýsti sér í því að ungir athafnamenn keyptu stór fyrirtæki út á lán frá bönkunum. Mörg þeirra voru keypt á yfirverði og án þeirrar nauðsyn- legu aðgátar sem hafa verður í nær- veru mikilla fjármuna. Bæði fyr- irtækin sem keyptu svo og bankarnir sem lánuðu kunna að eiga erfið ár framundan. Þetta tólf ára innistæðulitla þensluskeið setti hag- kerfið úr skorðum og áður en farið verður í nýja hraðferð í hagvexti þarf að koma efnahagslífinu í starf- hæft jafnvægi á ný. Nýjar stór- iðjuframkvæmdir með tilheyrandi virkjunum, lántökum og endurvak- inni þenslu eru alrangt úrræði. Það leysir ekki heldur eykur þann vanda sem við blasir. Þetta er fjármála- og gjaldmiðilskreppa Fjármálakreppuna þarf að leysa á hennar eigin forsendum. Gera þarf bankakerfinu kleift að sinna á ný þeim verkefnum sem brýnust eru og standa því næst, þ.e. að stunda venjulega bankastarfsemi innan- lands, en það gera bankarnir ekki, því þeir veita varla lán lengur. Þá verður að auka traust á gjaldmiðli Íslendinga, en það verður því miður ekki gert nema með yfirlýsingu rík- isstjórnarinnar um að stefnan verði tekin á ESB og evruna. Ef stjórn- málamenn treysta sér ekki til þess, verður að afnema frjálst gengi krón- unnar og takmarka frjálsa fjár- magnsflutninga milli Íslands og út- landa. Krónan er og verður of mikil smásmíði í víðáttumiklum hafsjó hnattrænna fjármálaviðskipta. Það er óðs manns æði að láta undan þrýstingi óbilgjarnra bæjarstjóra og ana út í nýjar stóriðjuframkvæmdir. Það leiðir okkur á svipaðar slóðir og við vorum í og erum að súpa seyðið af. Við verðum enn fjær því að upp- fylla skilyrði sjálfbærrar efna- hagsþróunar en nú. Ekkert getur komið í staðinn fyrir hagræna stjórnun efnahags- og peningamála, og miðað við þá umgjörð sem at- vinnulífið starfar við getum við ekki gert hvort tveggja, hafið stór- iðjuframkvæmdir og náð stöð- ugleika. Höfundur er hagfræðingur. SKATTUR á tekjur fjármagnseigenda á Ís- landi er aðeins 10%, á tekjur fyrirtækja 15%, en launþegar verða að greiða um 35% af tekjum sínum í skatta, útsvarið er þar með fyr- ir þjónustu sveitarfé- laga sem sumir fjár- magnseigenda geta notað án endurgjalds. Það að slíkt hrópandi ranglæti skuli renna í gegnum hverjar kosn- ingarnar á fætur öðr- um hjá sauðþægum kjósendum þessa lands, rétt eins og eignaupptaka kvótans rann í gegn og ekkert gat breytt, sýnir að flokkakerfið íslenska er ófært um að sinna hagsmunum almenn- ings. Nýjasta (og þó margra ára) himinhrópandi dæmið um þetta er nú sá kostnaður sem lántakendur á Ís- landi (les: nánast allur almenningur) þurfa að greiða fyrir þau trúarbrögð nokkurra stjórnmálamanna og for- stokkaðra hugmyndafræðinga að halda beri landinu utan við ESB og þar með myntbandalagið sem enginn hagfræðingur með réttu ráði getur andmælt að kæmi sér betur fyrir þjóðina alla í efnahagslegu tilliti. Það þarf engan hagfræðing til að sjá þann kostnað sem almenn- ingur þarf að bera til viðbótar við skattana sína til að lifa af hér á landi. Stýrivextir hér eru 15,5% eða 10% hærri en á evrusvæð- inu, verðbólga er 15% ofan á um 5% vexti verðtryggðra lána og það er ósköp einfalt að átta sig á því að þetta er sá munur sem við greið- um fyrir matadorpen- inga þá sem við köllum krónu. Mánuð eftir mánuð þurfum við að greiða 10–15% í „skatt“ af lánakostnaði okkar ofan á það sem við greið- um þegar í skatta í þeim tilgangi einum að stjórn- málaflokkar í afneitun geti barið höfði okkar við steininn. Og það sem verra er, féð rennur ekki í sjóði landsmanna held- ur til fjármagnseigend- anna sem ekki þurfa að greiða nema 10% af því í skatta. Það má því segja að þeir hirði þannig tvöfalt af almenningi, fyrst þegar þeir sleppa við 25 prósentustig af tekjuskatti og útsvari og aftur þeg- ar þeir hirða 90 prósent af vaxtaokr- inu. Og launþegar sitja svo í súpunni með hæstu vexti á Vesturlöndum, hæsta verðlag á Vesturlöndum og þannig má segja, í raun hæstu skatta á Vesturlöndum þótt þeir heiti eitt- hvað annað. Krónuskatturinn Gauti Kristmanns- son skrifar um vexti, skatta og verðlag á Íslandi Gauti Kristmannsson » Íslenska krónan virk- ar eins og skatt- ur á landsmenn alla og sýgur frá þeim kaupmátt- inn og getu þeirra til að koma sér þaki yfir höfuðið. Höfundur er dósent. flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.