Morgunblaðið - 14.09.2008, Side 43

Morgunblaðið - 14.09.2008, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 43 KAPLAHRAUN - HF. Nýkomið í einkasölu glæsil. ca. 1000 fm. húsnæði á rúmgóðri sérlóð. Húsnæðið skiptist í verslun, vinnslusali, skriftstofu ofl. Góðar innkeyrsludyr. Einstök staðsetning í grónu hverfi. Malbikuð lóð. Eign í sérflokki. V.150 millj. Upplýsingar gefur Helgi Jón, sölustjóri í síma 893 2233. STEINHELLA - HF. TIL SÖLU - LEIGU Glæsilegasta atvinnuhúsnæðið á markaðnum, um er að ræða 2.612 fm. þar af eru skrifstofur, móttaka, kaffistofa ofl. Ca. 600 fm. Vinnusalir með mikilli lofthæð. Nokkrar stórar innkeyrsludyr. Lóðin 6.320 fm. Laust strax. Frábær staðsetning og auglýsingagildi frá Reykjanesbraut. Fullbúin eign í sérflokki. Upplýsingar gefur Helgi Jón, s. 893 2233 ATVINNUHÚSNÆÐI Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Glæsilegt 188,8 fm tvílyft parhús með innbyggðum 27 fm bílskúr innarlega í botnlanga við Fjallalind í Lindahverfinu í Kópavogi. Til viðbótar flatarmálinu er um 20 fm milliloft. V. 61,5 m. 3802 EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG (SUNNUDAG) FRÁ KL. 16:00-17:00. OPIÐ HÚS Í DAG - Fjallalind 33 Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095 Sími: 588 9090 OPIÐ HÚS Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Sími 530 6500 Björt og falleg efri sérhæð og ris á á góðum stað í Vestur- bænum. Íbúðin sem er talsvert endurnýjuð býður upp á mikla möguleika til stækkunar í risi sem eykur mjög á nýtingar- möguleika hennar. VÍÐIMELUR 62 - Opið hús Opið hús er á eigninni milli kl. 13 og 14 í dag. Verið velkomin! Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is VIÐ hjónin höfum notið þeirrar gæfu að dvelja undanfarið í Suður- Frakklandi. Fljótlega eftir kom- una var hafist handa við að finna leiðir til þess að geta horft á leiki íslenska handboltalandsliðsins okkar á Ólympíuleikunum í Pek- ing. Þar voru ýmsar leiðir reyndar og með hjálp vefjarins, franska, ís- lenska og kínverska sjónvarpsins tókst að lokum að horfa á nánast alla leiki strákanna okkar. Und- irritaður hefur löngum verið unn- andi íslensks handbolta. Og hvílík veisla. Eftir því sem á keppnina leið urðum við fljótlega vör við að- dáun franskra fjölmiðla á árangri strákanna okkar og Guðmundar landsliðsþjálfara. Og það var ekki leiðinlegt þegar Guðmundur var ítrekað kallaður kraftaverkamað- urinn frá Íslandi og Sigfús Sig- urðsson varnartröll „le magnifiqe“. En þetta var ekki það eina sem gladdi í okkur íslenska hjartað. Það var eins og litla Ísland væri ofarlega í huga Frakka þessa daga. Þannig hófst það í hinu stór- kostlega sjódýrasafni í Mónakó að þegar við gegnum í forkunn- arfagran vísindasal safnsins þá blasti þar við breiðtjald og fullur salur af fólki að horfa á íslenska kvikmynd eftir Friðrik Þór Frið- riksson um lundann og Vest- mannaeyjar. Við settumst dolfallin í sæti og horfðum til enda líkt og allir hinir Frakkarnir og ferða- mennirnir. Og það var eins og þetta væri ekki nóg. Eitt kvöldið kveiktum við á franska sjónvarp- inu og hver nema Árni Tryggva- son birtist þá ekki á skjánum að háma í sig svið og drekka íslenskt brennivín með hákarli. Það var ljóst að þetta vissi á eitthvað og það kom á daginn. Strákarnir okk- ur sýndu svo ekki varð um villst að þeir eru með eitt besta hand- knattleikslið í heimi. Hver stór- þjóðin af annarri lá í valnum; Rússar, heimsmeistarar Þjóðverja, Evrópumeistarar Dana skildir eft- ir í 7. sæti og Pólverjar og síðast Spánverjar kjöldregnir í beinni út- sendingu. Það var ekki laust við að litla íslenska hjartað stækkaði ör- lítið þegar Frakkarnir spurðu okk- ur hvort það væri virkilega satt að við værum bara 300.000 og hvort göturnar tæmdust í Reykjavík meðan á leikum stæði. Síðan kom að úrslitaleiknum og þar gat ein- ungis annað liðið unnið. Frakk- arnir og „hurðin“ eins og frönsku fréttamennirnir kölluðu mark- manninn Omeyer unnu verð- skuldað. Við því miður duttum nið- ur á lélegan leik. Því miður. Það og „hurðin“ var það sem skildi á milli því Frakkarnir spiluðu ekki heldur mjög vel. Það að komast í leik um gullið í hópíþrótt á Ólymp- íuleikum, sem er stærsta íþrótta- keppni sem haldin er í heiminum, er stórkostlegt afrek út af fyrir sig. Hvað þá fyrir okkar litla Ís- land. Með þessu hafa verið sett ný viðmið og eftir þeim ber að vinna framvegis. Og umfjöllun franskra fjölmiðla síðastliðna daga stað- festir í raun hve árangur strák- anna okkar er stórkostlegur. Þannig hafa fjölmiðlar fjallað ít- arlega um úrslitin, allar síður blaða hafa verið fullar af myndum og greinum um leikinn, sjónvarpið hefur ítrekað sýnt viðtöl við frönsku leikmennina og nú síðast í gær var ekið með þá ásamt öðrum gullverðlaunahöfum undir sig- urbogann á Champs Elysées. Þannig var fjallað um sigur Frakklands á Íslandi sem stór- kostlegt afrek. Þetta eitt sýnir okkur á hvaða stalli strákarnir okkar eru. Að bæta 14 silf- urverðlaunapeningum við þá þrjá sem fyrir voru er afrek sem gleymist aldrei. Og því á að bera höfuðið hátt. Og við eigum að þakka strákunum okkar fyrir þennan árangur og allar þær miklu fórnir sem þeir hafa fært og Guðmundi Guðmundssyni og Ósk- ari Bjarna fyrir stórkostlegt afrek. Þá má ekki gleyma forystu HSÍ en þar hefur Guðmundur Ingvars- son formaður og hans fólk í gegn- um árin unnið óeigingjart starf og er nú að uppskera. Fyrir þetta ber að þakka. GUÐNI Á. HARALDSSON, Villefrance, Frakklandi. Frakklandsbréf Frá Guðna Á. Haraldssyni FYRIR ári, þann 16. júní 2007, sneru hjúkrunarnemar aftur heim frá Nairobi eftir að hafa unnið þar með hjálparsamtökunum Provide International. 8 stelpur sem lokið höfðu 2. ári í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands fóru í þessa ferð. Allar áttu þær sér þann draum að ferðast til fjarlægra landa og nýta nám sitt til vinnu meðal fátækra. Þessi ferð var draumur sem varð að veruleika fyrir tilstilli margra góðra aðila. Þetta var dýr ferð og ólaunuð vinna og var því víða leitað eftir styrkjum. Þessi leit bar ár- angur og fengum við góðar við- tökur víða. Reyndar gekk söfnunin það vel að þegar gengið hafði verið frá flugi, gistingu og bólusetningum var afgangur. Hluta þess nýttum við í kaup á blóðsykurmælum auk strimla sem vantaði áþreifanlega á heilsugæslustöðvarnar ytra. Enn voru eftir peningar og var tekin ákvörðun um að geyma þá þar til út væri komið svo við gætum metið þörf stöðvanna fyrir tækjabúnað og menntun starfsmanna. Það fór svo á þá leið að stuttu eftir að við kom- um utan og hófum störf með sam- tökunum varð ljóst að það sem helst vantaði væri sjúkrabíll. Sam- tökin áttu gamlan bíl sem var held- ur hrörlegur að sjá og sjaldnast gangfær. Ástandið í fátækrahverf- unum er þannig að heilsugæslu- stöðvar Provide sinna öllum íbúum þess en sjúkrabílar sem tilheyra sjúkrahúsum Nairobi neita að fara inn í hverfin þar sem hverfin eru talin of hættuleg. Það voru því mörg mannslífin sem höfðu týnst vegna skorts á fararskjóta þegar einstaklingar þurftu meiri og sér- hæfðari aðstoð en þá sem stöðv- arnar höfðu upp á að bjóða. Þó okkur þætti sjóðurinn digur var hann ekki nægur til kaupa á far- artæki sem þessu. Við biðluðum því aftur til fólks, og þá á bloggi sem haldið var úti meðan ferðalaginu stóð, um aðstoð til að fjárfesta í bíl. Svörin létu ekki á sér standa og sjóðurinn óx hratt. Í millitíðinni áttum við fund með forstjóra bíla- fyrirtækis sem ákvað í kjölfar fundar okkar að endurnýja sjúkra- bíl fyrirtækis síns og gaf samtök- unum notaðan sjúkrabíl sem var í ágætu standi. Við höfðum því feng- ið ágætan bíl en mikið keyrðan. Töldum við þá vænlegt að halda söfnun áfram og freista þess að kaupa nýrri og dýrari bíl. Í ljósi þeirra atburða sem áttu sér stað í Kenía síðastliðinn vetur þar sem miklar óeirðir brutust út í kjölfar forsetakosninga varð þörfin á öðr- um sjúkrabíl enn ríkari svo ákvörð- un var tekin um að kaupa sjúkra- bíl, ódýrari en við höfðum ætlað í upphafi. Því keyra nú tveir sjúkra- bílar undir merkjum íslenskra hjúkrunarfræðinema sem keyptu þá sem stoltir sendiboðar þjóðar sinnar. Þessir tveir sjúkrabílar sinna þúsundum manna og hafa margsannað notagildi sitt. Okkur langar með þessu bréfi að þakka öllu því góða fólki sem tók beiðni okkar vel og styrkti okkur til þessarar farar. Fjárstyrkir, styrkir í formi hjúkrunarvara, flutningaþjónustu, bóluefnis og fata. Takk fyrir okkur! Starfsfólk Landspítala sem aðstoðaði okkur og sýndi okkur ótrúlega þolinmæði, auk þeirra frábæru einstaklinga sem deildu eigin reynslu frá sínum ferðum með okkur, á miklar þakkir skilið fyrir. Þið gerðuð okkur kleift að fara þessa ferð og það með ein- hverja hugmynd um það hvað við vorum að fara út í. Ef ekki væri fyrir ykkur, sem trúðuð á okkur og sýnduð það í verki, hefði þessi för ekki verið far- in. Við lögðum upp með draum, þið létuð hann rætast. Hjúkrun í Kenía skipa: Elva Dögg Valsdóttir, Halldóra Ög- mundsdóttir Michelsen, Helga Guð- mundsdóttir, Hlín Árnadóttir, Kol- brún Sara Larsen, Kristín Þórhallsdóttir, Lilja Þórunn Þor- geirsdóttir, Þórey Rósa Ein- arsdóttir. Fyrir hönd okkar allra: Kærar þakkir. LILJA ÞÓRUNN ÞORGEIRSDÓTTIR, nemi við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands Hjúkrun í Kenía Hjálparstarf Íslensku hjúkrunarfræðinemarnir átta létu þann draum sinn rætast, að sinna hjálparstarfi meðal fátækra í Nairobi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.