Morgunblaðið - 14.09.2008, Side 45

Morgunblaðið - 14.09.2008, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 45 MINNINGAR Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix ✝ Móðir mín og tengdamóðir, GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Kirkjubraut 6, Höfn í Hornafirði, lést á hjúkrunarheimilinu á Höfn þriðjudaginn 9. september. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju mánudaginn 22. september kl. 14.00. Agnes Ingvarsdóttir, Guðbjartur Össurarson. ✝ Kær frændi okkar, HANNES GUÐMUNDSSON fyrrum bóndi, Auðkúlu, Austur-Húnavatnssýslu, lést á Heilbrigðisstofnun Blönduóss miðvikudaginn 10. september. Jarðarförin fer fram frá Svínavatnskirkju föstudaginn 19. september kl. 16.00. Ásdís Sólrún Arnljótsdóttir, Hulda Anna Arnljótsdóttir, Guðmundur Arnljótsson, Arnar Þorri Arnljótsson, Katrín Klara Þorleifsdóttir og fjölskyldur. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÞORLÁKUR BREIÐFJÖRÐ GUÐJÓNSSON rafvirkjameistari, Bláhömrum 2, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn 8. september. Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 17. september kl. 13.00. Ragnheiður Sturludóttir, Þórunn Þorláksdóttir, Þorgeir Jónsson, Herborg Þorláksdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson, Guðsteinn Þorláksson, Lindsey Tate, Ólafur Magnús Þorláksson, Herborg Þuríðardóttir, Ragnheiður Kr. Þorláksdóttir,Fergal Malone, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ELÍS KJARAN FRIÐFINNSSON, lést þriðjudaginn 9. september. Útförin fer fram frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 20. september kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands eða MND félagið. Fyrir hönd aðstandenda, Katrín Gunnarsdóttir, Ragnar Kjaran Elísson, María Kristjánsdóttir, Hanna Laufey Elísdóttir, Bjarki Laxdal, Ósk Elísdóttir, Friðfinnur Elísson, Guðrún Fjóla Kristjánsdóttir, Þröstur Kjaran Elísson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Guðrún Björg Hafliðadóttir(Gígja) fæddist á Lundeyri við Akureyri 13. júní 1931. Hún lést á Krabbameinsdeild Land- spítalans við Hringbraut 24. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Hafliði Páll Stef- ánsson vélstjóri, f. 8. október 1904, d. 7. júní 1963 og Anna Sigríður Guðmundsdóttir hús- móðir, f. 8. apríl 1910, d. 24. nóv- ember 1992. Systkini Guðrúnar Bjargar eru Guðmundur Stefán, f. 24. ágúst 1933, d. 18. ágúst 2008, Haflína, f. 8 febrúar 1937, d. 20. sept- ember 1994, Guðjón Jóhannes, f. 21. ágúst 1938, Sigurður Viðar, f. 18. apríl 1940, d. 19. júní 1976, Unnur Fríða, f. 15. desember 1943 og Kolbrún Björk, f. 6. apr- íl 1950. Guðrún Björg giftist 1. apríl desember 1961, maki Stefán Þór Sæmundsson, búsett á Akureyri. Börn þeirra Auður, f. 25. febrúar 1983 í sambúð með Styrmi Reyn- issyni og Sindri, f. 18. mars 1992. 5) Trausti forritari, f. 29. októ- ber 1967, búsettur í Kanada. Guðrún Björg fluttist tveggja ára til Akraness og ólst þar upp. Hún lauk gagnfræðaprófi á Akranesi og vann þar við af- greiðslustörf. Árið 1957 flutti hún til Akureyrar ásamt eig- inmanni sínum og átti þar heim- ili æ síðan. Guðrún Björg var húsmóðir en vann einnig á sam- bandsverksmiðjunum og síðan um tuttugu ára skeið vann hún sem skólaliði í Lundarskóla. Útför Guðrúnar Bjargar fór fram frá Höfðakapellu á Ak- ureyri 2. september, í kyrrþey að hennar ósk. 1956 Sigurvini Jónssyni, fyrrver- andi umsjónarmanni Lund- arskóla, f. 14. mars 1929. For- eldrar hans voru Jón Árelíus Þorvaldsson og Ólafía Hálfdán- ardóttir. Börn Guðrúnar Bjargar og Sigurvins: 1) Sigríður leik- skólakennari og sjúkraliði, f. 5. október 1955. Maki Bjarni Krist- insson, f. 10. janúar 1957, búsett á Akureyri. Synir þeirra eru Rúnar Már, f. 18. maí 1982, Jó- hann Ingi, f. 11. apríl 1987 og Sigurvin, f. 31. ágúst 1989. 2) Jóna Ólafía þroskaþjálfi, f. 7. október 1956, búsett í Reykjavík. 3) Ásdís framhaldsskólakennari, f. 12. mars 1960, maki Einar Birgir Kristjánsson, f. 13. júní 1959, búsett á Akureyri. Börn þeirra Kári, f. 21. júlí 1987 og Gígja, f. 31. október 1992. 4) Björg leikskólakennari, f. 11. Það eru ófáar minningarnar sem ég á úr Suðurbyggð 15. Suðurbyggð var ævintýrastaður í mínum aug- um. Í stofunni voru blóm sem náðu til lofts og ég ímyndaði mér að ég væri stödd í frumskógi. Auk þess var fallegi garðurinn með öllum blómunum kjörinn staður fyrir barn. Steinarnir hans afa voru stór- kostlegir og hátíð að fá að leika sér með þá. En þar voru líka amma og afi. Amma var óþreytandi að spila við mig Ólsen, ólsen sem var í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég freistaðist stundum til að svindla smá þegar amma skrapp frá og hún hló bara og þótti merkileg tilviljun að ég skyldi hafa fjórar áttur á hendi. Oftar en ekki löbbuðum við í búðina við Byggðaveg. Ég var sannfærð um að búðin héti Ömmu Gígjubúð og að amma ætti búðina. Amma var oftast fáanleg til að kaupa Svala eða annað góðgæti handa barnabarninu sem þótti búðarferðirnar hin mesta skemmtun. Eitt sinn spurði hún mig hvað ég myndi láta dúkku heita fengi ég eina slíka í jólagjöf. Ég hugsaði þetta lengi enda alvarlegt mál og sagði svo að nafnið væri Bumba. Amma hefur sennilega átt bágt með að fela bros en hún sam- þykkti þetta þó hún væri eflaust hissa á vali mínu. Ég gleymdi sam- talinu þar til ég opnaði jólapakkann frá ömmu og afa, í honum var dúkka sem auðvitað fékk nafnið Bumba og þótti mér mjög vænt um hana. Amma mín var góð og sterk kona sem vildi ekki láta hafa fyrir sér. Hún hugsaði fyrst og fremst um aðra. Að koma í Suðurbyggð var alltaf gott, móttökurnar hlýjar og boðið upp á ósviknar ömmuveiting- ar. Ömmu þótti mjög gaman að vera í kringum fjölskylduna, fá systur sínar í heimsókn og vænt þótti henni um þegar Jóna og Trausti komu. Þá komu gjarnan all- ir saman, börn og barnabörn. Amma gladdist mjög yfir þeim fréttum að hún væri að verða langamma og spurði alltaf hvernig mér liði þrátt fyrir að hún væri veik sjálf. Mér þykir mjög sárt að hún hafi ekki lifað nógu lengi til að fá þennan titil en ég mun segja barninu mínu frá langömmu sinni. Amma fékk hvíldina sunnudaginn 24. ágúst. Ég hugga mig við að henni líði betur núna. Hugur minn er hjá afa, mömmu, móðursystrum og – bróður sem hafa misst svo mikið. Auður. Guðrún Björg Hafliðadóttir ✝ Margrét Guð-mundsdóttir fæddist á Akureyri 2. mars 1961. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri 31. ágúst síðastliðinn. Hún er dóttir hjónanna Guðnýjar Rósu Georgsdóttur og Guðmundar Björns- sonar. Systkini Mar- grétar, Björn og Aðalheiður, eru bæði búsett á Akur- eyri. Eiginmaður Margrétar er Sveinn Árnason úr Svarfaðardal. Margrét lauk námi úr verslunar- deild Gagnfræða- skólans á Akureyri. Síðar á ævinni stundaði hún versl- unarfagnám með vinnu hjá Símennt- unarmiðstöð Eyja- fjarðar. Margrét vann alla sína starfs- ævi við verslunar- störf, lengst hjá Bókvali og Penn- anum þar sem hún gegndi starfi aðstoð- arverslunarstjóra síðustu árin. Margrét var jarðsungin 11. september, í kyrrþey að eigin ósk. Jörðin hafði sveipað sig mildu haustmyrkri, hlý nóttin bar þó enn mýkt sumarsins, stafalogn og á einstaka laufblað hafði haustið málað liti sína. Í Fálkafelli tindr- uðu ljós á listaverki Andrews Ro- gers og kölluðust á við ljósblikin á Pollinum. Frá miðbæ Akureyrar barst ómur af Akureyrarvöku, glaðværð og hlátrasköll – bæjarbú- ar að kveðja sumarið. Þessa undurfallegu nótt kvaddi mágkona mín bæinn sinn, sumarið og þetta líf. Veðrið þessa nótt var einhvern veginn eins og hún sjálf. Falleg, yfirveguð, kraftmikil og hafði návist sem fyllti mann vellíð- an. Undir mildu yfirborðinu ólg- andi kraftur, lífsgleði og alltaf stutt í hláturinn. Ég sé hana alltaf fyrir mér í af- greiðslu Pennans skömmu fyrir síðustu jól, þar sem hún stóð glað- vær í annríki jólaundirbúnings, pakkaði inn vörum og óskaði við- skiptavinum gleðilegrar hátíðar. Ég dáðist að kraftinum í henni og gladdist yfir því að hún hafði geng- ið með sigur af hólmi í baráttunni við veikindin. Hún var fegurðin, orkan – og lífið. Ég minnist líka hnyttinna til- svara og kímnigáfunnar sem stundum var svo skemmtilega kaldhæðnisleg og velti upp hliðinni sem ekki sást á teningnum. Ég minnist hennar þegar við sóttum heimspekikaffihúsið í vetur eftir að veikindin tóku sig aftur upp. Hún drakk í sig fróðleikinn og benti mér á sinn kankvísa hátt á að trú- lega væri ekkert alveg alvont. „Ef ég væri ekki veik þá væri ég í vinnunni og missti af allri þessari visku og skemmtilegheitum.“ Lífið tekur enda, það vitum við öll. En þegar endi er bundinn á líf manneskju eftir 47 ár þá finnst manni djúpt á réttlætinu. Ævin að- eins hálfnuð og svo margt óunnið af því sem fyrir lá. Ég veit að henni Möggu minni fannst það líka svo. Hún var ekki tilbúin að kveðja, ætlaði sér mörg viðfangsefnin hér á jörð. En við verðum að trúa að tilgangurinn með brotthvarfi henn- ar sé einhver – þó ég eigi nú erfitt með að sjá hann og skilja. Elsku Magga mín, hafðu hjart- ans þökk fyrir okkar alltof stuttu samfylgd og fyrir allt sem þú gafst mér og mínum. Sveini og öllum öðrum aðstand- endum votta ég mína dýpstu sam- úð. Sigurbjörg Árnadóttir. Hvert svífið þér, svanir, af ströndu með söngvum í bláheiðan geim? Ég sé það af öllu, þér ætlið í ósýnis fjarlægan heim. Þér kvödduð og komuð ei framar með kliðinn, sem lengst hef ég þreyð, en, svanir, kemst ég þá til yðar, ef ómurinn vísar mér leið? (Steingrímur Thorsteinsson.) Já, það er fullvíst að söngur svananna mun vísa Margréti Guð- mundsdóttur veginn á ferð hennar til annarra starfa á nýjum vett- vangi. Við minnumst hennar sem virkrar í félagsstarfi Félags versl- unar- og skrifstofufólks Akureyri, en þar starfaði hún fyrst lengi vel í fulltrúaráði en nú síðustu tvö árin í varastjórn félagsins. Þrátt fyrir baráttu við illvígan sjúkdóm var hún ávallt boðin og búin til starfa þegar til hennar var leitað. Stjórn og starfsfólk Félags verslunar- og skrifstofufólks send- ir eiginmanni Margrétar svo og öðrum ástvinum samúðarkveðjur. Margrét, við þökkum þitt fram- lag. Með hinstu kveðju Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, formaður FVSA. Þetta litla ljóð sem ég samdi vil ég tileinka Möggu og aðstandend- um hennar: Mín kæra hvernig er hvíldin? Góð? Klukkan þín er orðin hljóð og vatnið upp nú rennur. Það virðast kannski orðin tóm en þegar nafn þitt ber á góm hjartað í mér brennur. Því sorgin hún er sest hér að, hún sækir á minn hjartastað og siglir sjó af tárum. Ég núna skil og gef því gaum í gegnum saltan táraflaum að mæla ekki allt í árum. Því sögur enda sérhvern dag, og hetjur falla líka í slag, þau örlög eru ráðin. En veistu þó þú sofir fast að gefa það sem af þér gafst, er sanna hetjudáðin. Vilhjálmur Bragason. Margrét Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.