Morgunblaðið - 14.09.2008, Side 46

Morgunblaðið - 14.09.2008, Side 46
46 SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Eiríkur Ingvars-son fæddist í Miðhúsum í Bisk- upstungum 20. maí 1932. Hann varð bráðkvaddur á hjúkrunarheimilinu Vífilstöðum 29. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ingvar Eiríksson bóndi, f. 4. mars 1891, d. 15. mars 1969 og Sigríður Ingvarsdóttir hús- freyja, f. 3. maí 1904, d. 26. desember 1990. Eiríkur flutti 8 ára gamall að Efri-Reykjum í Biskupstungum með foreldrum sínum og bræðrum. Bræður Eiríks eru Hlöðver, f. 11. september 1928, kvæntur Rögnu Hjaltadóttur, Ingvar, f. 17. september 1930, kvæntur Guðrúnu Sigurðardóttur, og Gunnar, f. 7. febr- úar 1934, kvæntur Kristínu Johansen. Eiríkur var í nokkur ár í sambúð með Valgerði Bene- diktsdóttur, f. 17. júlí 1943, d. 13. maí 1992. Þau slitu sam- vistum. Dóttir þeirra er Matthildur, f. 19. maí 1967. Börn hennar eru Elva Dögg Tórshamar, f. 17. október 1984, sonur hennar Leó Breki Tórshamar, f. 2. janúar 2007, Telma Ýr Tórshamar, f. 23. júlí 1987 og tvíburarnir Davíð Þór og Andri Már Halldórssynir, f. 27. maí 1994. Eiríkur var til sjós og vann við smíðar. Eiríkur var jarðsunginn í kyrr- þey. Nú er góður vinur minn, Eiríkur Ingvarsson, fallinn frá eftir alllanga sjúkrahúsdvöl á Vífilsstöðum. Eiríkur var indælismaður og sér- staklega barngóður. Hann var ótrú- legur í verkum sínum hvort sem um var að ræða trésmíðar eða byggingu steinhúsa, ævintýralega útsjónar- samur og unun að sjá hann að verki. Var líkast því að þar væru margir menn við störf. Það var algjör óska- stund þegar hann kom til mín til starfa, hvort sem hann var að vinna við sundlaug, gróðurhús, jarðhús, dúkkuhús eða jólasveinasleða. Auk þess var hann liðtækur við leik og að- stoð við uppfærslu fyrir barnasýn- ingar, og þá kom í ljós að hann gat einnig saumað og sniðið. Sömuleiðis vil ég láta þess getið að oft veitti hann mér aðstoð við uppsetningu málverka á sýningum mínum í Ráð- húsi Reykjavíkur. Þess ber og enn- fremur að geta að hann var einnig af- burða sjómaður, sannkallaður sægarpur, eins og berlega kom í ljós þegar Barðinn steytti á skeri við Snæfellsnes og skipverjar stóðu í köldum sjó upp í brjóst í stýrishús- inu tímunum saman. Hann hvatti þá til dáða og fullvissaði þá um að þeim yrði bjargað, hjálpaði þeim í kláfinn hverjum og einum og fór síðastur frá borði. En verðlaunabikarinn fór eitt- hvað annað en til hans. Mörg sumur vann hann með Hróari Björnssyni, þeim merka manni sem nú er fallinn frá, við gerð laxastiga víðsvegar um landið, og munaði hann ekki um að hlaupa upp á næsta fjall að kvöldi eftir langan vinnudag, því hann var ótrúlega vel íþróttum búinn og með afbrigðum sterkur. Einnig vann Eiríkur síðustu ár Hróars að sumarlagi við skrúð- garðyrkju. Eiríkur ólst upp á bænum Efri- Reykjum í hinni fögru sveit Biskups- tungum. Og þegar þeir feðgar voru við smíðar var hann yfirleitt fyrstur til að sjá hvernig verkinu yrði best hagað. Hann var svo heppinn að eignast góða konu og með henni indæla dótt- ur, en þau hjónin skildu fyrir mörg- um árum. Það var unun að sjá hve mikið ástríki var á milli þeirra feðg- ina Matthildar og Eiríks þar sem þau voru að sýsla um börn hennar og kynnast því hve vel hann naut sín í afahlutverkinu. Yfirleitt bjó Eiríkur einn og safn- aði ekki veraldarauði, en andlega visku átti hann nóga. Oft átti hann við huglæga vanheilsu að stríða, en nú eru öll slík veikindi að baki og bíð- ur hans dýrðleg heimkoma. Tel ég hann einn merkasta mann á sínu sviði sem ég hef hitt á lífsleiðinni. Guð blessi hann og fólkið hans. Ketill Larsen. Eiríkur Ingvarsson Á haustdögum árið 1951 var ég beðinn að gegna bæjarfógeta- embættinu á Siglufirði um stundarstakir. Ég hafði þá verið fulltrúi lögreglustjór- ans í Reykjavík í nokkur ár. Dvöl mín fyrir norðan dróst fram á vor. Sigl- firðingar voru glaðlyndir og góðir heim að sækja. Mér þótti líkt og al- þjóðlegur andblær léki um staðinn. Árið 1959 var ég orðinn sýslumaður í Dölum og þurfti að ráða til mín sýslu- skrifara. Það var ekki auðvelt að ná í góðan mann í slíkt starf, sem var lágt launað, en gat verið allumsvifamikið. Datt mér þá í hug að leita til vinar míns á Siglufirði Stefáns Stefánsson- ar frá Móskógum í Fljótum. Ég vissi, að hann var mörgum góðum kostum búinn. Hann átti son ungan að aldri sem að vísu var ekki langskólageng- inn, en orðinn bátsmaður á togara (Elliða eða Hafliða). Ég spurði þá í fá- fræði minni: „Hvað gerir bátsmað- ur?“ og svarið var: „Hann stjórnar allri vinnu á dekki.“ Þá hugsaði ég með mér, það hlýtur að vera eitthvað Skjöldur Stefánsson ✝ Skjöldur Stef-ánsson fæddist á Siglufirði 11. júlí 1935. Hann lést á Landspítalanum 3. september síðastlið- inn. Skjöldur var jarðsunginn frá Hjarðarholtskirkju í Dölum 12. sept sl. spunnið í strákinn, fyrst honum kornung- um er trúað fyrir svo mikilvægu starfi á sjónum. Ég vissi líka, að hann var af traustu bergi brotinn, skrifaði vel (eftir forskrift frá Veroniku, konu Eiðs á Skálá) og hafði margt fleira af góðum toga til brunns að bera. Er ekki að orðlengja það, að Skjöldur Stefánsson flutti með fjölskyldu sína til Búðardals haustið 1959 og hefur átt þar heima síðan í hálfa öld til dauðadags 3. þ.m. Auk starfs sýsluskrifara hóf Skjöldur snemma að vinna við Spari- sjóð Dalasýslu og var aðalstarfsmað- ur sjóðsins, þegar var gerður sam- starfssamningur við Búnaðarbanka Íslands 1965. Var hann þá ráðinn úti- bússtjóri bankans í Búðardal og vann þar til starfsloka. Þótt Skjöldur væri alla ævi góður Siglfirðingur varð hann jafnframt snemma góður og gegn Dalamaður og eignaðist marga vini í byggðum Breiðafjarðar. Sjálfur var hann trölltryggur vinur vina sinna. Hann var eindreginn og stefnufastur í opinberum málum og dugmikill og áhugasamur félagi, þar sem hann lagði hönd á plóginn. Að leiðarlokum þakka ég honum löng og góð kynni og sendi konu hans og fjölskyldu allri einlægar samúðarkveðjur. Friðjón Þórðarson. Í dag kveð ég í hinsta sinn elskulega ömmu mína. Amma mín var ekki bara amma heldur var hún mikill vinur minn, við gátum talað saman um allt sem við þurftum að tala um. Til henn- ar gat ég leitað með flest sem angraði huga minn. Þegar ég átti elstu dóttur mína bjuggum við í kjallaranum hjá ömmu og afa, þá styrktist samband okkar mikið. Ég gat ekki bara talað Kristín Ingimundardóttir ✝ Kristín Ingi-mundardóttir fæddist í Hala í Djúpárhreppi, 11. maí 1916. Hún lést á Dvalarheimilinu Garðvangi 7. sept- ember síðastliðinn og var jarðsungin frá Útskálakirkju 12. september. við ömmu heldur var alltaf hægt að leita ráða hjá henni. Laugardagskvöld eitt voru amma og afi að fara í hóf hjá SÍF og búin að klæða sig í sitt fínasta púss þegar ég, óreynd móðir, hljóp upp til þeirra með Siggu mína litla mjög veika og vissi ekki hvað ég ætti að gera því ég hélt að hún væri að kafna. Amma kunni ráð við því, hún náði að láta Siggu anda eðlilega aftur og ældi barnið yfir ömmu í leiðinni. Ömmu fannst það ekki mikið mál þó að hún þyrfti að klæða sig upp á nýtt og sjálf- sagt mættu þau afi alltof seint í hófið. Það var alltaf notalegt að koma á Reyni til ömmu og afa og eftir að afi dó sat ég oftar hjá ömmu og oft átti ég erfitt með að halda mér vakandi því það var svo afslappandi að vera hjá henni. Amma hafði alltaf áhyggjur af öðrum, hún vildi að allir hefðu það allra besta og öllum liði vel, til dæmis er það síðasta sem amma sagði við mig: „Er þér svona kalt á höndunum?“ sem lýsir henni vel. Þegar amma hafði ekki heilsu til að vera ein heima lengur var það mitt hlutvert að fara með hana á Garðvang, það að skilja hana eftir þar er eitt það erfiðasta sem ég hef þurft að gera síð- ustu ár þar sem amma vildi helst af öllu vera heima. Hún tók af mér það loforð að ég yrði dugleg að heimsækja sig sem ég vona að ég hafi staðið mig í og áttum við margar góðar samveru- stundir saman í herberginu hennar á Garðvangi þar sem fór vel um hana. Fyrir tveimur árum varð amma langa- langamma og var hún mjög stolt af því og ánægð með að nöfn hennar og móð- ur hennar voru til skiptis í sjö ættliði. Þótt amma hafi verið hvíldinni feg- inn eftir langa og stranga ævi er samt erfitt að kveðja hana því það er oft þannig að því meira sem þér þykir vænt um einstaklinginn því meiri verður sorgin. Ég geymi fyrir mig all- ar vangaveltur okkar ömmu og veit að það verður vel tekið á móti henni því við vorum búnar að ræða þau mál. Hvíl í friði, elsku amma mín. Þín, Ólöf Kristín. Hún elsku amma er farin. Loksins fékk hún hvíldina langþráðu og loks- ins eru þau afi saman á ný. Amma á Reyni gaf mér svo margt sem á eftir að endast mér alla ævi og skelfing á ég eftir að sakna hennar. Ég hitti hana ekki eins oft og ég hefði viljað síðustu árin en ég held að hún hafi vitað hvað mér þótti vænt um hana. Við hjónin vorum svo heppin að líta til hennar síð- ast núna í júní og hitta á hana í fanta- formi, úti í sólinni með derhúfuna sína. Þannig er gott að minnast hennar, hvað hún var skýr og hress þó skrokk- urinn væri henni erfiður. Því miður fengu krakkarnir mínir lítinn tíma með langömmu Stínu og kynntust henni aldrei í fullu fjöri en hún er sér- stök persóna í þeirra huga og mun ekki gleymast. Minningarnar eru ótalmargar og rifjast upp hver af annarri nú þegar afi og amma á Reyni eru bæði farin. Fjöl- skyldan var stór og alltaf var mið- punkturinn á Reyni, þar fengum við skjól, eitthvað gott í gogginn og oftast smáspjall. Fjölskyldufyrirtækið krafðist margra handa og fullorðna fólkið vann flest þar lengri eða skemmri tíma. Þá man ég eftir dimm- um vetrarmorgnum þegar síldin fyllti fiskhúsið og pabbi og mamma þurftu bæði að fara snemma að vinna og við systurnar fengum að vera hjá ömmu. Þá kúrðum við frændsystkinin stund- um í myrkrinu í borðstofunni, undir borðstofuborðinu og hlustuðum á ein- hverja skemmtilega sögu í Morgun- stund barnanna. Eina minningu á ég um ömmu sem er mér kærari en margar. Ég átti í einhverju basli framan af með að læra á klukku, skildi bara ekki hvernig þetta virkaði allt saman. Svo kom ég á Reyni eitt kvöldið einhverra erinda og ílengdist svo þar góða stund á spjalli við ömmu. Þá barst þetta í tal og ömmu fannst alveg ómögulegt að ég kynni ekki á klukku. Uppi á borð- stofuskápnum hjá afa og ömmu var forláta klukka sem sló falleg, hljóm- mikil högg og hún fór með mig þang- að, opnaði glerið og tók sér góðan tíma í að sýna mér hvernig litli og stóri vísirinn unnu saman og kenna mér hvað þetta hét nú allt. Allt í einu small þetta allt saman í litla hausnum og ég skildi hvernig klukkur virkuðu. Mér fannst þetta eins og kraftaverk, kvaddi ömmu himinlifandi og hljóp alla móana heim syngjandi að nú kynni ég á klukku. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst afa mínum og ömmu og nú þegar hún er farin er ákveðnum kafla í lífi okkar afkomenda þeirra lokið. En ég veit að nú líður ömmu vel og nú er það okkar að taka allt það besta sem hún kenndi okkur og færa það áfram til næstu kynslóða. Guð geymi þig, amma mín, takk fyrir tímann með þér, ég bið að heilsa afa og öllum hinum sem þú ert að hitta núna. Helena og fjölskylda. Elsku amma, þá er komið að kveðjustund. Minningarnar eru margar og ljúfar og gott að geta yljað sér við þær nú þegar þú hefur fengið hvíldina. Amma var einstök kona sem stóð af sér hvert mótlætið á eftir öðru. Síð- ustu ár reyndust henni erfið er hún þurfti að reyna ótímabæran missi ást- vina sinna um leið og heilsu hennar fór að hraka. Hún var ótrúleg seig og náði á hinn ótrúlegasta hátt að jafna sig furðu vel eftir áföll fyrri ára. Amma var eins og ég sagði alltaf „alvöru“amma sem var heima og við krakkarnir gátum farið til á daginn eftir skóla og fengið að drekka. Hún átti alltaf eitthvað handa okkur enda var oft margt um mann- inn hjá henni í mat og kaffi, þá sér- staklega á meðan á vertíðinni stóð og afi var með fiskhúsið fullt af mann- skap í aðgerð eða við saltfiskvinnsl- una. Flatkökurnar hennar voru þær bestu sem hægt var að fá og voru í al- geru uppáhaldi hjá mér. Ég var nú svo lánsöm að alast upp í nágrenni við ömmu og afa og má þess vegna segja að ég og frænkur mínar hafi að sumu leyti átt okkar annað heimili hjá þeim. Það var sama hvort við vorum búnar að leika okkur í fjörunni, niðri á túni eða höfðum bara verið að vesenast og flækjast fyrir í fiskhúsinu, alltaf gát- um við farið til ömmu þegar við vorum búnar að fá nóg, orðnar þreyttar og svangar. Mér er minnisstæð þolin- mæði ömmu þegar við vorum inni í stofu og spiluðum ABBA og sungum hátt með, henni leiddist það nú ekki enda þar á ferð uppáhaldshljómsveit ömmu og afa. Þegar þau fengu svo litasjónvarpið var fastur liður að fara til ömmu og horfa á Húsið á sléttunni með henni og var nú þá oftar en ekki eitthvað nýbakað með kaffinu. Það er nú eiginlega ekki hægt að minnast ömmu án þess að minnast afa um leið. Afi var alltaf í fiskhúsinu og hún sá um heimilið og allt sem því fylgdi af miklum myndarskap. Þegar ég var lítil fóru þau að mér fannst oft til útlanda, afi var í vinnuferðum að selja fisk og amma fylgdi stundum með. Þessar ferðir þeirra voru ótrú- lega spennandi fyrir mig sem beið alltaf spennt eftir að þau kæmu heim og segðu mér ferðasöguna og ekki skemmdi fyrir að yfirleitt var eitthvað keypt handa barnabörnunum. Það var minn draumur að fá að fara með þeim einhvern tímann og stóð það nú alltaf til en því miður varð nú aldrei úr því. Missir ömmu var mikill þegar afi dó en hún var dugleg og bjó ein í þónokk- ur ár þrátt fyrir heilsubrest. Hún hafði sérstaklega gaman af rósunum sínum og sýndi mér þær stolt þegar þær voru í blóma. Hún var nú oft ansi orðheppin og lá ekkert á skoðunum sínum, við rökræddum oft ýmislegt, vorum ekki alltaf sammála en báðar jafn þrjóskar, nú brosi ég þegar ég hugsa um ýmislegt sem við spáðum í og spjölluðum um. Minningarnar eru margar og góðar og gott til þess að hugsa að ég átti bestu ömmu í heimi. Það er með sökn- uði sem ég kveð hana en samt sem áð- ur glöð yfir að hún hafi fengið lang- þráða hvíld. Ég veit að hún hefur skilað góðu lífshlaupi og fer sátt við guð og menn. Elsku amma, minning um góða og sterka konu lifir í hjarta mínu. Takk fyrir allt og allt. Ásborg. ✝ Elskulegur faðir minn, bróðir, hálfbróðir og mágur okkar, HILMAR TH. MAGNÚSSON bifreiðarstjóri, Prestastíg 9, Reykjavík, varð bráðkvaddur miðvikudaginn 3. september. Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Alfreð Hilmarsson, systkini og aðrir aðstandendur. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.